Morgunblaðið - 14.03.1980, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1980
Þórir Einarsson prófessor:
Blindingjar í borgarstióm
AÖfararnótt
föstudags í fyrri
viku tók borgarstjórn
Reykjavíkur kjós-
endur sína í Árbæj-
arhverfi í bólinu.
Langflestum íbúum
að óvörum sam-
þykkti borgar-
stjórn Reykjavíkur
að ráðast í svokallaða
Höfðabakkabrú yfir
Elliðaár rétt neðan
stíflu. Brúnni er ætl-
að að tengja bílaum-
ferð í Breiðholti og
sunnar með hrað-
braut við Suður-
landsveg. Við það
sparast tvær mínút-
ur í akstri miðað
við núverandi vega-
kerfi. Hins vegar
slítur þessi hrað-
braut Árbæjar-
hverfi frá samnefn-
ara sínum, Árbæ. Fé-
lagasamtökum í Ár-
bæ tókst að koma
mótmælum á fram-
færi til Umhverfis-
málaráðs Reykja-
víkur og borgar-
ráðs og borgar-
stjórnar. Umhverf-
ismálaráð fór fram á
frest á afgreiðslu
málsins en borgar-
ráð og borgarstjórn
virtu erindi Árþæj-
arbúa að vettugi.
Fyrir vikið er nú
í uppsiglingu mál,
sem sameinar ein-
kenni Kröflu- og
Laxárvirkjana.
Forsjónin vill
greinilega ekki firra
þéttbýlinga slíku
mótlæti.
GATNAKERFI
Breiðholts- og Ár-
bæjarhverfis sam-
kvæmt endurskoð-
uðu aðalskipulagi
frá 1977 sem á ný er
í endurskoðun. Gert
er ráð fyrir Höfða-
bakkavegi frá mót-
um Vesturlandsveg-
ar að Breiðholts-
braut. Á kortinu má
sjá að brúin og
nyrsti hluti Höfða-
bakkans eru fyrst og
fremst hlnti Foss-
vogshraðbrautar.
Einnig er gert ráð
fyrir Ofanbyggða-
vegi frá Breiðholts-
braut.
Laxárvirkjunar-
einkennin
Laxárvirkjunardeilan einkennd-
ist framar öðru af því að réttmæt-
ur hagsmunahópur, bændur í hér-
aði, voru hundsaðir og náttúru-
verndarsjónarmið sniðgengin. Á
undanförnum tveimur áratugum
hefur gildismat íbúa á Vestur-
löndum gagnvart umhverfis- og
náttúruvernd tekið stökkbreyting-
um. Skilningsleysi stjórnenda
Laxárvirkjunar á hinu breytta
gildismati og festu heimamanna
er ef til vill skiljanlegur, þar sem
á ferðinni voru fyrstu stórvægi-
legu átökin í umhverfismálum
milli hefðbundins og nútímalegs
gildismats. I dag er engum vork-
unn lengur. Gildismat umhverfis-
og náttúruverndar er það samofið
vestrænni menningu að einungis
forstokkaðir grjótpálar og menn-
ingarleg nátttröll hafa ekki getað
tileinkað sér þau eða bæla niður
sem óþægilegar minningar.
Fólk eða bílar?
Ibúar Árbæjarhverfis vilja með
andstöðu sinni við Höfðabakkabrú
og hraðbraut mótmæla spjöllum á
óviðjafnanlegu umhverfi og nátt-
úru í Elliðaárdal. Þeir mótmæla
því að verða stýfðir frá sameigin-
legum miðdepli og tákni hverfis
bórir Einarsson
síns. Þeir mótmæla ásamt börnum
sínum að leiksvæði þeirra í Árbæ,
Ártúnsbrekku og „indíanaeyju"
skuli afgirt frá þeim með hrað-
braut. Þeir mótmæla slysahætt-
unni og dauðagildrunni sem slík
hraðbraut er, hvort sem einhvers
staðar finnast á henni undirgöng
eða ekki. Þeir mótmæla hávaða-
og útblástursmengun af umferð-
inni í Árbæjarsafni og næstu
götum. Þeir mótmæla því að
hagsmunir þeirra, fullorðinna sem
barna, vegi minna en hagsmunir
bíleigenda komandi ára, sem geta
stytt sér tveggja mínútna akst-
ursleið.
Kröflueinkennin
Hverjir voru þeir þættir sem
settu helzt svip sinn á ákvarðana-
töku í Kröflumálinu? Mikill hraði
og flaustur á undirbúningsstig-
inu, þar sem ótækt þótti að bíða
eftir frekari borunum og rann-
sóknum. Pukurpólitík
stjórnmálamanna úr fleiri flokk-
um og embættismanna, þar sem
samið var á bak við tjöldin á
sérhagsmunagrundvelli án vitund-
ar almennings. Ilópblinda, sem
heltók þennan hóp manna. Gagn-
rýni komst ekki að og hver styrkti
annað í einhliða röksemdafærslu.
Á ensku kallast fyrirbærið
Groupthink. Því var gerð
skemmtileg skil í kvikmynd sem
sýnd var fyrir nokkru á vegum
Stjórnunarfélags íslands. Hvar
voru blindingjarnir þá?
í þeim hluta stjórnunarfræða
sem fjallar um ákvarðanatöku er
gjarnan greint á milli ákvarðana
eftir undirbúningi og mikilvægi.
Stærri verkefni eins og meiri
háttar fjárfestingu ber að ákveða
af heildarsýn og samræmdri
stefnumörkun. Undirbúningsstig-
ið er langt, upplýsingasöfnun
rækileg og stefnumörkun ígrund-
uð. Þannig hafa ákvarðanir um
virkjunarframkvæmdir á Suður-
landi verið teknar og mættu
margir af þeim læra.
Hins vegar er talað um þrýsti-
ákvarðanir eða jaðarákvarðanir
þegar viðfangsefnið er minni hátt-
ar fjárráðstöfun eða breytingar á
fyrri fjárveitingarliðum. Slíkar
athuganir eru teknar án ítarlegs
undirbúnings og fyrir þrýsting.
Klipið er af einum stað og aukið
annars staðar.
Stöðvið fram-
leiðslustjórann!
Hvað er þá sameiginlegt með
Kröfluvirkjun og Höfðabakkabrú?
Hraði og flaustur á undirbúningi
ákvörðunar, pukurpólitík og
hópblinda, skortur á heildarsýn en
yfirbragð þrýstings. Skyldi ein-
hver blindinginn hafa búið til
vígorðið: „Betra er að veifa rangri
brú en engri“?
Hvaðan getur þrýstingurinn
hafa komið? Nærtækast er að líta
á borgarverkfræðingsembættið
sem hagsmunaaðilann. Markmið
þess er að byggja vegi og brýr og
viðhalda þeim. Velgengni og virð-
ing embættisins í borgarkerfinu
og samfélaginu hlýtur að mælast í
einhverju hlutfalli við umsvif
embættisins. Annarra er að fjalia
um loftkennd markmið eins og
umhverfismál. Þá er betra að hafa
eitthvað fast undir fæti.
Taka má samlíkingu úr fyrir-
tæki. Eðlilegt markmið fram-