Morgunblaðið - 16.03.1980, Side 19

Morgunblaðið - 16.03.1980, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 1980 19 taka undir það, að sveitarfélögin eigi í erfiðleikum, sem leysa þarf á viðunandi hátt. Það skiptir hins vegar öllu máli, hvernig sú lausn er fundin. - O - Hafi ríkið ýtt verkefnum á sveit- arfélögin, er það að sjálfsögðu eðlilegt, að ríkið gefi eftir af sínum skatttekjum á móti. Núver- andi ríkisstjórn virðist ekki hafa minnsta áhuga á því. Hins vegar hefur ríkisstjórnin lofað því í málefnasamningnum að hún ætli að koma verðbólgunni niður á sama stig og hún er í viðskipta- löndunum, þannig að raungildi útsvars ætti af þeim sökum að hækka verulega, þegar efndir á þessu loforði koma fram. Jafn- framt hefur Svavar Gestsson fé- lagsmálaráðherra sagt í ræðu á Alþingi, að endurskoðun á verk- efnaskiptingu ríkis og sveitarfé- laga verði lokið fyrir árslok. Sé eitthvað að marka slíkar yfirlýs- ingar sýnist eðlilegt að leysa fjárhagsvanda sveitarfélaganna til bráðabirgða með því að ríkið gefi eftir af sínum tekjum, sem eru að mestum hluta verðtryggð- ar. Þess vegna hefur Jóhanna Sigurðardóttir lagt fram tillögu um að ríkissjóður láti 4% af söluskattstekjum sínum ganga í þessu skyni til jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Þá hefur Pétur Sig- urðsson lagt fram varatillögu um það að 2% af þessum sama tekjustofni renni til sveitarfélag- anna. Auðvitað eru tillögur Jóhönnu og Péturs ekki neinar frambúðar- lausnir. En á meðan ekki hefur verið lagt fram skattstigafrum- varp og enginn veit hver skatt- heimtan verður að öðru leyti er eðlilegt að leysa fjárhagsvanda sveitarfélaga með þessum hætti til bráðabirgða. Kemur þá til greina að miða við næstu áramót, þegar endurskoðunin á verka- skiptingunni hefur átt sér stað. - O - Það sem öllu máli skiptir er að gera sér grein fyrir heildar skatt- byrðinni. Sjálfstæðisflokkurinn hefur það á stefnuskrá sinni að draga beri úr skattheimtunni á kostnað ríkisumsvifanna. Út- svarshækkunartillaga þingmanna Pramsóknarflokksins og Alþýðu- bandalagsins fer gegn þeirri stefnu. Afstaða stuðningsmanna ríkis- stjórnarinnar úr hópi Sjálfstæð- ismanna ræður því úrslitum í málinu. Sú afstaða verður ein fyrsta prófraun þeirra í stjórnar- samstarfinu. Þess vegna er beðið eftir því, hvort þeir taka sjálf- stæða afstöðu á grundvelli stefnu Sjálfstæðisflokksins eða hvort þeir leggjast flatir fyrir þeim vinstri viðhorfum, sem koma fram í sífellt auknum álögum á almenn- ing. Ritgerðasamkeppni unglinga Lionshreyfingin á íslandi býöur fimm íslenzkum unglingum á aldrinum 15—17 til aö feröast um ísland og dvelja aö hluta í sumarbúöum meö fimm jafnöldrum sínum frá hverju hinna Norðurland- anna frá 7.-26. júlí næstkomandi. Jafnframt býöur Lionshreyfingin á íslandi öörum fimm íslenzkum unglingum til tveggja vikna sumarbúöadvalar í Finnlandi í júlí. Efnt verður til ritgerðarsamkeppni um val tíu unglinga á ofangreindum aldri, sem jafnframt þurfa aö geta bjargaö sér á einhverju hinna Noröurlandamálanna. Ritgerðirnar veröi eigi styttri en 1200 orð (ca. þrjár vélritaöar síður í aöra hverja línu á A—4) og þurfa þær aö berast Lionsumdæminu á íslandi, Háaleitisbraut 68, 105 Reykjavík, fyrir 15. apríl n.k. Efni ritgerðanna skal vera: „Þaö, sem ég ætla aö sýna jafnaldra mínum frá einhverju hinna Noröurlanda í hringferð um ísland“ Lions-umdæmiö á íslandi RÁÐGJÖF Aukin þjónusta Finnur Fróðason innanhúsarkitekt er í verslun okkará þriðjudögum ogfimmtudógum kl. 4—6 e. h. Notfœrðu þér ókeypis ráðgjöf innanhúsarkitektsins um niðurröðun húsgágna á heimilum og skrifstofum. Um leið getur þú kynnt þér úrval vandaðra húsgagna, lampa, gjafavöru o. fl. í verslun okkar. Vertu velkominn. ín a S) ro HÚSGPGDRVERSLUn KRISTJÁnS SIGGEIRSSOnflR HF. LAUGAVEG113. REYKJAVÍK. SÍMI 25870 ♦§• KOMATSU LYFTARAR Nú sjá menn hvað þeir eru að gera Opið mastur Venjulegt mastur Nýja mastriö á Komatsu lyfturunum veitir óhindrað útsýni. Þetta er bylting í hönnun lyftara. Aukift öryggi á vinnustööum KOMATSU á islandi Varahluta og viðhaldsþjónusta. BILABiJfmxJ HF. Véladeild Smiðshöföa 23. Sími: 81299

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.