Morgunblaðið - 16.03.1980, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 16.03.1980, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 1980 Billy Joel er orðinn einn vinsaelasti popptónlistarmaöurinn í dag. Síöustu tvær plötur hans hata selst í um 10 milljónum eintaka fram til þessa, „The Stranger" og „52nd Street". Billy Joel hefur þrisvar feng- iö Grammy-verölaun, 1978 fyrir lag og plötu ársins, „Just The Way You Are“ og nú fyrir „52nd Street", plötu ársins. Ný breiöskífa var gefin út þann 8. mars síöastliöinn, „Glass Houses", sem á án efa eftir aö endurtaka feril hinna tveggja á und- an. En hver er Billy Joel? Jú, Billy heitir fullu nafni William Joseph Martin Joel og fæddist 9. maí 1949 í Hicksville á Long Island í New York. Billy gekk í sína fyrstu rokk- hljómsveit 14 ára aö aldri, eftir aö hafa lært á píanó frá fjögurra ára aldri. Echoes hét sú hljómsveit og áriö 1964, þegar Beatles hertóku Bandaríkin, ákvaö Billy aö gera tónlistina aö sínu lífi. Echoes uröu fljótt aö Lost Souls, en síðan tók viö hljómsveit sem hét Hassles, en Billy gekk í þá hljómsveit 1967. Ári síöar kom út fyrsta breiðskífan sem Billy er til á, „Hassles" og seinna sama ár leikana, átti. En sólskiniö varöi ekki lengi og fyrirtækiö fór á hausinn áöur en nokkuð geröist en Family Pro- duction fékk samning Billys upp í skuldir. Þaö varö úr að Billy geröi breiö- skífu fyrir Family Records, sem hét „Cold Spring Harbour" og var reynd- ar upphafiö á sólóferli hans. „Cold Spring Harbour" komst í raunlnni varla í búðir í Bandaríkjun- um þrátt fyrir þaö, vegna deilna á milli Family Records og dreifanda, en hún var gefin út af Philips í Evrópu og tókst aldrei á loft. Á „Cold Spring Harbour" átti Billy fyrst öll lögin sjálfur en meðal þeirra var „You Can Make Me Free", „Nocturne" og „Everybody Loves You Now" sem eru góð dæmi um framhaldiö á ferli hans. Stofnuö var hljómsveit til aö spila með honum, fetitgítar, bassi, gítar og trommuleik- arlnn Rhys Clark, sem hann átti svo eftir aö vinna meira meö. Þetta var áriö 1972 og hljómsveitin fór í sex mánaöa hljómleikaferö sem endaöi með ósköpum og því að Billy flúöi frá öllu saman til Los Angeles. Feröin átti þó sinn hápunkt, hljómleika á Mar-Y-Sol, þar sem 'V"' Clive Davis, þáverandi númer eitt hjá CBS, tók eftir honum, en þess má geta aö innan um hóp af frægum listamönnum var hann óþekktur klappaöur upp þrisvar sinnum um miðjan dagl í Los Angeles lét hann sig hverfa rækilega, skipti um nafn, „Hour of the Wolf“. Ekki fer neinum sögum af gæöum þessara platna, en skömmu eftir hætti Billy og trommu- leikarinn Jon Small og stofnuöu dúettinn Attila sem gaf út eina plötu 1970. Þessar hljómsveitir náðu aldrei út fyrir Long Island-svæöiö og léku mest megnis lög sem Beatles, Ston- es, Kinks og Herman's Hermits höföu gert fræg. Undir lokin var Billy farinn aö vinna ýmis dagstörf í verksmiðjum og þess háttar, og haföi fengiö sig saddan af hljómsveitum. Billy haföi mestan áhuga á aö koma lögum sínum á framfæri og til þess komst hann á samning við litla útgáfu sem hét Just Sunshine, sem Michael Long, sá er rak Woodstock-hljóm- Brimkló 80: frá vinstri, Kristinn, Arnar, Björgvin, Haraldur, Ragnhildur, Ragnar og Magnús. Ný Brimkló, sjö manna Guðmundur Benediktsson er hættur í hljómsveitinni, en hann hefur leikið stórt hlutverk í hljóm- sveitinni frá því er hún var endur- reist í október 1976, af honum auk Björgvins Halldórssonar, Ragnars Sigurjónssonar, Arnars Sigur- björnssonar og Haralds Þorsteins- sonar, en þannig var hljómsveitin skipuð í rúm þrjú ár. Nú hafa bættst við Magnús Kjartansson, hljómborð, trompet, söngur o.fl., Ragnhildur Gísladóttir, hljómborð og söngur, og Kristinn Svavarsson, saxafónn. Magnús og Ragnhildur hafa undan- farið verið í Brunaliðinu, sem hefur nú tekið sér hvíld, en Brimkló eins og hún er skipuð verður látin fylgja Miklar hræringar eru í hljómsveitum hérlendis um þessar mundir. Brim- kló skipar nú orðið sjö manns í stað fimm og hyggjast fylgja vinsæld- um „Sannra dægurvísna“ eftir. eftir því sem kemur út úr plötuút- gáfum erlendis ef af verður. Er Slagbrandur ræddi við Blimkló í vikunni sögðust þau ætla að gera út eins vandað band og hægt væri, með góðu liði, góðum og miklum tækjum og linnulausum æfingum. Munu þau leika á almennum dansleikjum fram í júlí, en þá verður tekið hálfsmán- aðarfrí, en eftir það farið í landreisu ásamt Halla og Ladda og öll nes og skagar þrædd. Brimkló er enn ein hljómsveitin sem virðist vera að færast nýtt líf í (þó lífið hafi nú verið til staðar þar reyndar) og bjartsýni tónlistar- manna virðist vera að glæðast á ný. „Þessu bandi verður ýtt eftir erlendis og við ætlum að reyna að komast út að spila á árinu“ sagði Björgvin. Þess má geta að Blimkló mun leika að Borg í Grímsnesi annan í páskum. Ný plata verður væntanlega hljóðrituð síðsumars. - HIA Kenny Rogers, Anne Murray, Plöturnar sem við tökum íyrir í þetta sinn eru „Kenny“ frá Kenny Rogers og „ril Always Love You“ frá Anne Murray, sem eru eins og kóngur og drottning í country poppinu í dag hér bæði með ágætar og þægi- legar plötur. Síðan er Mad- ness sem kenna sig við „ska-beat“, sem seinna var kallað „reggae“ eftir nokkra þróun, en þær eiga kannski bara jafn mikið að sækja til Sha Na Na(!), og að lokum eru Moody Blues með safnplötu, en þeirra tónlist var þróuð tónlist á sín- um tíma, en virka í dag sem venjulegt „ljúflingspopp“. „KENNY“ Kenny Rogera (United Artists) Kenny Rogers hóf feril sinn í New Christy Minstrels, þjóölagagrúppu, síöan kom First Edition, popp- hljómsveit sem varö aö Kenny Rog- ers og The First Edition. Kenny er þar af leiöandi ekki country söngvari sem rennir sér í poppiö, heldur poppari sem rennur til country. Undanfarin ár hefur country tón- listin eins og allar aörar tegundir tónlistar gengiö í gegnum breyt- ingar. Country og popp hefur bland- ast nokkuö, en þaö hefur orðiö til þess aö country tónlist á upp á pallboröið hjá mun fleirum þessa dagana en áöur. Margir svokallaöir „country artistar" eins og Kenny, Anne Murray, Crystal Gayle, Emmy- lou Harris, ná öllum plötum inn á bæöi country og popp lista. í dag er Kenny Rogers stærsta númeriö, hann á yfir silkimjúkri rödd aö ráöa sem hann notar vel í rólegum lögum eins og einu af vinsælli lögum hans, „You Decorat- ed My Life" og „Goodbye Marie" auk „One Man’s Woman" og „Old Folks" og sleppur ágætlega úr hraöari lögum eins og „Santiago Midnight Moonlight" og „You Turn The Light On“. Kenny notar rödd sína sem er kannski ekki mlkil rétt og heldur lagavali innan sinna takmarka. Út- koman er plata í stíl viö plötur Björgvins Halldórssonar, sem er ekkl leiöum aö líkjast . Lagið „Coward Of The County" er þegar oröiö hans vinsælasta lag en þaö er ballaöa um „góðan gæja, sem ailir halda aula" en sýnir aöra hliö á sér í lok lagsins. Lagiö er reyndar eitt af betri lögum í country sem heyrst hafa lengl ásamt „The Devil Went To Georgia" sem Charlie Daniels geröi frægt fyrir jól.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.