Morgunblaðið - 16.03.1980, Síða 27
Þetta gerðist
16. marz
1978 — Aldo Moro, fv. forsætis-
ráðherra Italíu rænt og fimm
lífverðir hans drepnir.
1975 — Ríkisstjórn Portúgals
segir af sér til undirbúnings
auknum völdum vinstri manna.
1969 — 155 fórust með venez-
úelskri flugvéi í flugtaki frá
Maracaiboi.
1945 — Andspyrnu Japana á
Iwo Jima lýkur.
1942 — Fyrstu bandarísku her-
mennirnir koma til Ástralíu.
1939 — Slóvakía gerð að þýzku
leppríki og Ungverjar innlima
Rútheníu.
1935 — Þjóðverjar afneita
ákvæðum Versalasamningsins
um afvopnun.
1934 — Ítalía, Austurríki og
Ungverjaland mynda Dónar-
bandalagið með Rómar-bókun-
unum gegn Litla bandalaginu.
1922 — Bretar viðurkenna eg-
ypzka konungsríkið og sameigin-
lega stjórn Egypta og Breta í
Súdan.
1917 — Nikulás II Rússakeisari
leggur niður völd; Kerensky-
stjórnin mynduð.
1851 — Grikkir fá stjórnarskrá.
1815 — Vilhjálmur af Óraníu
verður Vilhjálmur I, konungur
Hollands.
1792 — Gústaf III Svíakonungur
skotinn á grímudansleik (d. 29.
marz).
1690 — Loðvík XIV sendir her
til írlands til stuðnings Jakobi
II.
1534 — Englendingar slíta öllu
sambandi við Páfastól.
1527 — Mógúl-keisarinn Barbar
sigrar Hindúa við Kanwanha,
Indlandi.
1521 — Portúgalski sæfarinn
Magellan kemur til Filippseyja.
Afmæli: Georg Simon Óhm,
þýzkur eðlisfræðingur (1787 —
1854) — M.P. Moussorgsky,
rússneskt tónskáld (1839 —
1881) — James Madison, banda-
rískur forseti (1751 — 1836).
Innlent: 1237 Gvöndarbardagi,
d. Guðmundur góði — 1341 d.
Jón Indriðason biskup — 1697 d.
Þórður Þorláksson Hólabiskup
— 1938 Alþingi samþykkir Gerð-
ardómslögin — 1968 Tuttugu
þúsund manna verkfalli lýkur —
1972 Stórbruni í Grindavík —
1939 d. Bríet Bjarnhéðinsdóttir
— 1963 d. Valtýr Stefánsson —
1913 f. Nína Tryggvadóttir.
Orð dagsins: Sigurinn er þeirra
sem þrauka lengst — Napoleon
Bonaparte (1769 — 1821).
Föstuguðsþjón-
usta með nýju
sniði í Laug-
arneskirkju
SUNNUDAGINN 16. marz kl. 14
verður föstuguðsþjónusta með
sérstöku sniði í Laugarneskirkju.
Sólveig Björling syngur aríur
úr passíum eftir J.S. Bach. Lesið
verður úr píslarsögunni og Pass-
iusálmar sungnir og lesnir.
Þessi nýbreytni er gerð til þess
að koma boðskap föstunnar betur
til skila en ella. Að vísu eru
bænaguðsþjónustur á föstu hvern
þriðjudag kl. 18 en færri geta
notið þeirra en skyldi vegna ann-
arra _skyldustarfa. Með þessari
föstuguðsþjónustu gerum við öll-
um kleift að njóta helgrar stundar
við íhugun á píslarsögu frelsarans.
Gústaf Jóhannesson leikur á
orgel kirkjunnar í stundarfjórð-
ung áður en guðsþjónustan hefst.
(Fréttatllk.)
MYNDAMÓT HF.
PRENTMVNDAOERÐ
AEDALSTRJCTI • - SlMARt <7IU-I71»
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 1980
27
Fáskrúðsfirðingar og aðrir
Austfirðingar á Suðurlandi
halda sína árlegu vorskemmtun í Fóstbræðraheimilinu laugardaginn
22. marz kl. 8.30.
Félagsvist, kaffiveitingar. Dans.
Ágóðinn rennur til styrktarfélags vangefinna á Austurlandi.
Allir velkomnir.
Skemmtínefndin
EF ÞAÐ ER FRÉTT- 8) NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU
Skipatæki — Hydraulikk
Sala og þjónusta okkar inniheldur m.a.:
Flotvörpuvindur — geilavindur, Véltak hf.
Mini-úrhristivélar fyrir reknet, Véltak hf.
Tunnuvalsa fyrir síld, Véltak hf.
Vindur 2—5,5 tonn frá Pull Master.
Krana frá 3—30 tonn, metra frá Fassi.
Loka, mótora, dælur og háþrýstisíur.
Leggjum vökvakerfi og önnumst viöhald vökvakerfa og
tækja.
Véltak hf. er sérhæft verkstæöi í hydraulikk.
Erum meö renni- og járnsmíöaverkstæöi.
Vélaverkstæöiö Véltak,
Hvaleyrarbraut 3,
Hafnarfiröi, box 49,
símar 50236 — 54315.
MÁLMIQJAIM HF
Smiójuveg 66. Sími:(91)-76600
Væri ekki nær að fá hann
fjöldaframleiddan?
LÆKKUN FRAMLEIÐSLUKOSTNAÐAR. þínu að fjölbreyttari og arðsamari hliðum fram-
Þú hefur því möguleika á að lækka fram- leiðslunnar. MÁLMIÐJAN HF veitir aðstoð við efnisval
leiðslukostnaðinn um leið og þú beinir starfsfólki og hönnun. Leitið upplýsinga.
FJÖLDAFRAMLEIÐSLA f MÁLMIÐNAÐI.
Það fer ekki eftir stærð eða þyngd hlutarins
hve hagkvæmur hann er í framleiðslu.Oft reynast
það vera smáeiningarnar sem koma hvað
verst út þegar á heildina er litið.
Er bað tilfellið í binni framleiðslu?
FJÖLDAFRAMLEIÐSLA Á RENNDUM
MÁLMHLUTUM
Nú getur MÁLMIÐJAN HF tekið að sér fjölda-
framleiðslu á renndum málmhlutum, sniðnum
eftir þínum óskum og þörfum. Til þess eru
notaðir sjálfvirkir rennibekkir.
Sjálfvirkir rennibekkir.
Sýnishorn af framleiðslu.
PESSISMAHLUTUR
GÆTIVERIÐ
ŒAGKVÆMASTA EINING
FRAMLEIÐSLUNNAR!