Morgunblaðið - 05.07.1980, Side 20
20
Þrír sölumenn
— eða hrein
ímyndun?
Á FUNDI sjávarútvegsráðherra
með fréttamönnum á fimmtudaK
var m.a. rætt um stöðuna á
Bandaríkjamarkaði og markaðs-
öflun í Evrópu. Sagði Steinjfrím-
ur Hermannsson. að sölusamtök-
in hefðu unnið mikið og gott
starf á Bandaríkjamarkaði sið-
ustu ár, en kannski farið óvar-
le^a með því að leggja svo mikla
áherzlu á þennan markað, en að
sama skapi minni á Evrópumark-
aðinn.
Að vísu hefði náðst veruleg
aukning í sölu frystra sjávaraf-
urða í Bretlandi á tveimur síðustu
árum, en sá markaður væri háður
framboði á ferskum fiski og verð
væri því óstöðugt, en einnig væri
þar um minni markað að ræða
heldur en í Bandaríkjunum. Fær-
eyingar hefðu hins vegar tryggt
stöðu sína á þessum markaði með
því að selja talsvert magn í
gegnum stór fyrirtæki eins og
Marks og Spencer og undir merkj-
um þeirra fyrirtækja. Með þessu
hefði þeim tekizt að fá stöðugt og
gott verð fyrir frystan fisk.
Steingrímur sagði að viðskipta-
ráðuneytið kannaði þessa dagana
möguleika á frekari markaðsöflun
í Evrópu og hefði Bogi Þórðarson,
aðstoðarmaður sjávarútvegsráð-
herra, fylgst með þeim störfum.
Bogi sagði á blaðamannafundin-
um, að verið væri að athuga þessi
mál, en einnig væru þrír menn frá
sölusamtökunum nú í Evrópu til
að athuga möguleika á frekari
markaðsöflun.
Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson, for-
stjóri Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna kvaðst í gær ekki kann-
ast við neina menn, sem væru á
vegum sölusamtaka að kanna nýja
markaði í Evrópu. Hann kvaðst
ætla að hér væri úm hreina
ímyndun að ræða.
BÓKIN UM
VEGINN I
2. ÚTGÁFU
Bókaútgáfan Stafafell hefur
sent á markaðinn 2. útgáfu bókar-
innar „Um veginn" eftir Lao-Tse.
Stafafell gaf út bókina fyrst árið
1971, en hún hefur verið ófáanleg
um tíma. Formála að bókinni í
nýju útgáfunni ritar Halldór
Laxness, en þýðinguna gerði Jak-
ob J. Smári og Yngvi Jóhannesson,
sem einnig rita eftirmálann.
Bjarni Jónsson, listmálari,
teiknaði á band og titilblað. Bókin
er bundin inn hjá Nýja bókband-
inu.
„Bókin um veginn" er 110 blað-
síður að stærð, í litlu broti, og
plastkápa er til hlífðar.
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ1980
STJÓRN Sambands islenzkra sparisjóða: Frá vinstri, Ingi Tryggvason, Sparisjóði Reykdæla, Þór Gunnarsson og Guðmundur Guðmundsson,
Sparisjóði Hafnarfjarðar, Baldvin Tryggvason, Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis, formaður, Páll Jónsson, Sparisjóðnum í Keflavík og
Hallgrímur Jónsson, Sparisjóði Vélstjóra.
Samband íslenzkra sparisjóda:
36,4 milljarða innstæða í
f jörutíu og tveim sparisjóðum
SAMBAND íslenskra sparisjóða
hélt aðalfund sinn að Laugar-
vatni dagana 20.—21. júní sl.
Fundinn sóttu sparisjóðsstjór-
ar, stjórnarmenn og nokkrir
starfsmenn sparisjóðanna víðs-
vegar að af landinu. Var þetta
fjölsóttasti aðalfundur sam-
bandsins til þessa og voru um 80
fulltrúar 35 sparisjóða mættir á
fundinum.
Fundarstjórar voru kjörnir
þeir Friðjón Sveinbjörnsson frá
Sparisjóði Mýrasýslu, og Ingólf-
ur Guðnason frá Sparisjóði
Vestur-Húnavatnssýslu, og rit-
arar Garðar Jóhannsson frá
Sparisjóðnum Pundinu, og
Hilmar Jónsson frá Eyrarspari-
sjóði á Patreksfirði.
í skýrslu sinni rakti formaður
sambandsins, Baldvin Tryggva-
son sparisjóðsstjóri, þau málefni
sem efst voru á baugi hjá
sparisjóðunum á liðnu starfsári
og horfðu til aukins samstarfs
þeirra og samstöðu.
Skýrði hann frá, að á næst-
unni myndi sparisjóðasamband-
ið opna sérstaka skrifstofu að
Skólavörðustíg 11, og hefði sam-
bandsstjórnin ráðið Sigurð Haf-
stein hrl. sem framkvæmda-
stjóra sambandsins.
Á árinu 1979 jukust innstæður
sparisjóðanna samtals um kr.
13,6 milljarða eða 59,7%, og voru
í árslok samtals kr. 36,4 millj-
arðar. Á landinu öllu eru starf-
andi 42 sparisjóðir með 44 af-
greiðslustaði.
sjóðanna gefið mjög góða raun
og bætt til stórra muna þjónustu
sparisjóðanna við viðskiptavini
sína um land allt.
Á fundinum voru rædd ítar-
lega ýmis atriði, sem varða
aðstöðu sparisjóðanna í stöðugt
harðnandi samkeppni þeirra við
viðskiptabankana, einkum þá
sem eru í ríkiseign.
Voru menn einhuga um þörf
sparisjóðanna fyrir nánara sam-
starfi, til þess að geta betur
staðið að baki minni sparisjóða
úti um land í erfiðri stöðu þeirra
gegn ásókn viðskiptabanka.
Mikla nauðsyn bæri til að efla
skilning stjórnvalda og almenn-
ings á því meginatriði íslenskrar
sparisjóðastarfsemi að sérhverj-
um sparisjóði er stjórnað af
heimamönnum í þágu byggðar-
lags síns.
Sérhvert byggðarlag sem yrði
að sjá á bak sparisjóði sínum og
fengi í staðinn bankaútibú hefði
um leið glatað yfirráðum yfir því
fjármagni sem í sparisjóðnum
var, og það nú komið í hendur
bankans og yfirstjórnar hans í
Reykjavík.
Launþegar verði ekki
þvingaðir til að
skipta við ákveðnar
innlánastofnanir
Margir fundarmenn létu i Ijós
þá skoðun, að athyglisvert væri
að launþegasamtökin í landinu
virtust iáta það átölulaust, að
ýmis sveitarfélög, opinberar
stofnanir og vinnuveitendur
nánast þvinguðu starfsfólk sitt
til að skipta við ákveðnar inn-
lánsstofnanir með því að neita
að leggja laun þess inn á reikn-
inga hjá öðrum innlánsstofnun-
um en þeim sem sveitarfélagið,
stofnunin eða vinnuveitandi
ákvæði. Það hlyti að teljast til
almennra mannréttinda, að hver
starfsmaður gæti valið við hvaða
sparisjóð eða banka hann vilji
eiga viðskipti. Þetta væri fyrir
löngu viðurkennt t.d. af ríkisfé-
hirði og sama gildi um bætur frá
Tryggingastofnun ríkisins, sem
veitti mönnum frjálst val um, í
hvaða sparisjóð eða banka laun
eða bætur væru lagðar. Var
stjórn sambandsins falið að
ræða við samtök launþega um
þessi mál.
Miklar umræður urðu um
verðtryggingu á sérstaka spari-
fjárreikninga. Voru menn sam-
mála um að slíkt nýmæli væri
rétt skref í áttina til að örva
sparnað í þjóðfélaginu.
Þá kom það sterklega fram, að
núverandi framtalsskylda spari-
fjár gæti verkað sem hemill á
peningalegan sparnað.
Björn Tryggvason, aðstoðar-
bankastjóri Seðlabanka Islands,
flutti á fundinum erindi um
gjaldmiðilsskiptin um næstu
áramót og svaraði fyrirspurnum.
Þá flutti Sveinn Jónsson lögg.
endurskoðandi erindi um gildi
peningalegs sparnaðar fyrir
þjóðarbúið.
Dr. Jóhannes Nordal seðla-
bankastjóri mætti á aðalfundin-
um og ræddi um stöðuna í
peningamálum og hina nýju full-
verðtryggðu sparifjárreikninga,
svo og málefni sem snerta sam-
skipti sparisjóðanna og Seðla-
bankans.
Baldvin Tryggvason
endurkjörinn formaður
í stjórn Sambands íslenskra
sparisjóða eru:
Baldvin Tryggvason, Sparisjóði
Reykjavíkur og nágr., formaður,
Guðmundur Guðmundsson,
Sparisjóði Hafnarfjarðar, Páll
Jónsson, Sparisjóðnum í Kefla-
vík, Ingi Tryggvason, Sparisjóði
Reykdæla og Sólberg Jónsson,
Sparisjóði Bolungarvíkur.
í varastjórn eru:
Hallgrímur Jónsson, Sparisjóði
Vélstjóra og Ingólfur Guðnason,
Sparisjóði V-Húnvetninga.
(Fréttatilkynning frá Sam-
bandi íslrnskra sparisjáða.)
Innstæður í sparisjóðum og viðskiptabönkum í lok
1978 og 1979 og hlutdeild í inn- og útlánsmarkaði.
Landsþjónusta 1978 1979 Innstaaóuaukning
sparisjóðanna Á liðnu starfsári var tekið upp það nýmæli í samstarfi spari- sjóðanna að koma á fót Lands- þjónustu sparisjóðanna. Hún felur í sér að viðskiptavinur sparisjóðs getur lagt inn eða tekið út úr sparisjóðsbók sinni í hvaða sparisjóði sem er á land- inu. Hann getur einnig lagt inn á ávísana- eða hlaupareikning sinn í hvaða sparisjóð sem er, og ávísunum á sparisjóði er hægt að fá skipt í öllum sparisjóðum sem eru á landinu. Með sama hætti geta menn greitt víxla eða aðrar greiðslur til sparisjóða í öllum sparisjóðsafgreiðslum, ef það er gert eigi síðar en á íialddacra. Innstaodur millj kr. markaós- hluti millj. kr. markaós- hluti 1978 1979
Spantjóóur Viöskiptabankar 22,824 120,017 15,98% 84,02% 36,442 187,778 16,25% 83,75% 49,32% 47,98% 59,66% 56,46%
Samtalt 142,841 100.00% 224,220 100,0% 48,19% 56,97%
Útlán Spariajóáa Vióakiptabanka 15.218 122,216 11,07% 88,93% 24,069 191,707 11,15% 88,85% 51,48% 39,02% 58,16% 56,86%
Samtals 137,434 100,00% 215,776 100,00% 40,30% 57,00%
* Gjaldayrisraikningar viöskiptabankanna akki maötaldir
Fjöldi sparisjóóa Innlénaaukning % Innstaaóur i érslok
Raykjanas Raykjavík Vasturland Vastfiröir Noröurland v. Noröurland a. Austfiróir Suóurland 3 3 3 12 S 14 1 1 1978 2.392.9 1.692.0 765.2 624.9 674.9 917.7 225.7 245.8 1979 4.695.2 2.875.1 1.152.4 1J214.3 1J01.1 1.687.2 385.6 495.7 1978 49.3 51.5 46.8 46.3 46.5 49.0 56.8 51.9 1979 64.8 57.7 47.8 61,5 56.9 59.8 61.9 66.9 1977 4.854.0 3.296.0 1.643.9 1.350.7 1.364.3 1.913.6 397.3 473.2 1978 7.246.9 4.960.0 2.409.1 1.975.6 2.039.2 2X31.3 623.0 719.0 1979 11.942.1 7.855.1 3.561.5 3.189.9 3.240.3 4X29.5 1.006.6 1ÚM4.7
Hefur Landsþjónusta spari- 42 7.539.1 13.706.6 49.3 60,0 15.285.0 22.824.1 36X41.7