Morgunblaðið - 05.07.1980, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ1980
21
Rýmt fyrir nýju húsi — Bakcr hótclið i miðburtf Dallas í Tcxasfylki var á dögunum jafnað við
jörðu mcð því að dýnamíti var komið fyrir i kjallara byKKÍntcarinnar. cn við sprcnKÍnguna
myndaðist nógu öfluKur skjálfti til þcss að það féll saman líkt ok tunna sem fellur í stafi.
McðfylKjandi myndir voru tcknar cr húsið hrundi.
Indland:
Harðnandi aðgerðir í
norðausturhlutanum
Nýju Dehlí, 4. júlí. AP.
NÁMSMENN, sem krafist hafa
þess. að milljónir innflytjenda í
Assamhéraði verði Kcrðir
brottrækir. lokuðu i daK fyrir
alla vöru- ok farþcKaflutninKa
á lofti ok láði i norðausturhluta
Indlands._________________________
Talsmenn námsmannanna, sem
hófu baráttu sína fyrir 10 mánuð-
um, sögðu, að gripið yrði til enn
róttaekari aðgerða og þeim ekki
linnt fyrr en allir „útlendingar"
væru á brott frá Assam.
Til átaka kom milli rósturs-
manna og lögreglu á ýmsum
Þetta gerðist 5. júlí
1977 — Herbylting gegn Ali
Bhutto forsætisráðherra í Pakist-
an.
1975 — Grænhöfðaeyjar (Kap
Verde) fá sjálfstæði eftir 500 ára
stjórn Portúgala.
1973 — Herbylting í Rwanda.
1970 — 109 fórust með kanad-
ískri flugvél í lendingu í Toronto.
1969 — Tom Mboya, annar
valdamesti maður Kenya, ráðinn
af dögum.
1960 — Herinn í Kongó gerir
uppreisn.
1955 — Fyrsti fundur Vestur-
Evrópubandalagsins (WEU) í
Strassborg.
1948 — Brezka heilbrigðislög-
gjöfin tekur gildi.
1933 — Kaþólski flokkurinn í
Þýzkalandi leystur upp.
1932 — Salazar kosinn forsætis-
ráðherra Portúgals og kemur á
fasistastjórn.
1865 — William Booth stofnar
Hjálpræðisherinn í London.
1841 — Ferðaskrifstofa Cook’s
stofnuð.
1830 — Frakkar gera innrás í
Alsír og taka Algeirsborg.
1812 — Bretar semja frið við
Rússa og Svía.
1811 — Venezúela lýsir yfir
sjálfstæði fyrst landa í Suður-
Ameríku.
17% — Bretar taka Elbu.
1764 — Ivan VI Rússakeisari
myrtur.
1596 — Brezkur leiðangursher
gerir strandhögg í Cadiz.
1556 — Hinrik II af Frakklandi
hefur nýtt stríð gegn Habsborg-
urum á Italíu.
Afmæli. David Farragut, banda-
rískur sjóliðsforingi (1801—1870)
— Phineas Barnum, bandarískur
brautryðjandi fjölleikahúsa
(1810-1891) - Cecil Rhodes,
brezkur stjórnmálaleiðtogi
(1853—1902) — Jean Cocteau,
franskur rithöfundur (1899—
1963) — Andrei Gromyko, sov-
ézkur ráðherra (1909—).
Andlát. 1180 d. ísleifur biskup
Gizurarson — 1826 d. Stanford
Raffles, embættismaður — 1920
d. Jón Aðils.
Innlent. 1851 Þjóðfundur settur í
Reykjavík — 1919 Flugvél tekur
farþega í fyrsta sinn á íslandi —
1933 Flugfloti ítala kemur til
Reykjavíkur — 1942 Alþingis-
kosningar.
Orð dagsins. A friðartímum
grafa synir feður sína — á
stríðstímum feður syni sína —
Herodotus, grískur sagnfræðing-
ur (5. öld f. kr.).
stöðum. Fjöldi fólks slasaðist og
hundruð voru handteknir.
Mikil flóð eru nú í fylkinu
Gujarat í vesturhluta Indlands í •
kjölfar mikilla rigninga og í dag
fóru yfirvöld þess á leit við 15.000
íbúa þorps á svæðinu, að þeir
yfirgæfu þorp sín. Fjölda fólks
hefur þegar verið bjargað um borð
í báta eða þyrlur, en fregnir fara
af því, að látist hafi a.m.k. 16
manns af völdum flóðanna. Um
5.000 manns í Keralafylki í vestur-
hluta Indlands hafa verið fluttir í
bráðabirgðabúðir eftir að flóð
eyðilögðu hús þeirra.
ERLENT
Norska olíuvinnslan:
Verður verkfall
mánaðarlangt?
Ósló, í. júlí. AP.
VERKFÖLL starfsmanna á
norsku olíuvinnslusvæðunum í
Norðursjó. er hófust á fimmtu-
dag. kunna að dragast á langinn.
þar sem ríkisstjórn Noregs ákvað
í dag, að freistað skvldi að ná
samningum i stað þess að senda
deilumálið til gerðardóms. Búist
er jafnvel við a.m.k. mánaðar-
verkfalli.
Verði af svo löngu verkfalli,
verður tekjutap norska ríkisins
um 600 milljónir dollara og
vinnslufyrirtækin tapa þá af um
milljarði dollara í tekjur.
Olíuvinnslumennirnir kröfðust í
upphafi 33% launahækkunar og
ýmissa annarra samningsbreyt-
inga er í raun samsvöruðu enn
meiri launahækkun. Engar skýrsl-
ur eru til um launakjör verka-
mannanna, en norsk blöð herma
að árstekjur þeirra séu jafnvirði
30.000 dollara, eða 15 milljóna
króna.
Veður
Akureyri 12 alskýjaö
Amsterdam 19 skýjað
Aþena 31 heiðskírt
Berlín 21 skýjaö
Brilssel 18 skýjað
Chicago 23 skýjað
Feneyjar 22 léttskýjaö
Frankfurt 19 rigning
Færeyjar 13 alskýjað
Genf 15 skýjaö
Helsinki 21 skýjaö
Jerúsalem 27 heiðskírt
Jóhannesarborg 13 heiöskírt
Kaupmannahöfn 22 heiðskírt
Las Palmas 25 mistur
Lissabon 24 heiðskírt
London 20 skýjað
Los Angeles 28 heiðskírt
Madríd 37 heiöskírt
Malaga 25 léttskýjaö
Mallorca 25 léttskýjað
Miami 30 skýjað
Moskva 22 heiöskírt
New York 24 heiöskirt
Ósló 23 heiöskírt
París 22 skýjað
Reykjavík 11 skýjað
Rio de Janeiro 26 skýjað
Rómaborg 24 heiðskírt
Stokkhólmur 20 heiðskfrt
Tel Aviv 28 heiöskírt
Tókýó 30 heiðskírt
Vancouver 15 skýjaö
Vínarborg 14 rigning
Bardot fær
skaðabætur
París 4. júlí. AP.
BORGARDÓMUR í París hef-
ur dæmt leikkonunni Brigitte
Bardot 20.000 franka
(2.400.000 íslenskar krónur) í
skaðabætur vegna birtingar á
falsaðri mynd af henni. Mynd
sú sem um ræðir birtist á
forsíðu skoprits í nóvember sl.
og sýnir leikkonuna með að-
eins eina tönn.
Karpov tapaði
Amsterdam. 4. júli. AP.
ANATOLY Karpov heimsmeistari í
^skák tapaði skák sinni við ung-
verska stórmeistarann Ribli á
IBM-skákmótinu. en heldur engu
að síður forystu á mótinu.
Karpov hafði svörtu mennina og
beitti Katalóníuvörn. Mikil manna-
kaup áttu sér stað snemma í skák-
inni og fékk Ribli sterkari stöðu eftir
um 17 leiki. Þegar skákin fór í bið
hafði Karpov einu peði færra. Þegar
tekið var til við skákina að nýju,
kom í ljós að Karpov hafði ekki
fundið neina leið út úr ógöngum
sínum og var lokataflið létt fyrir
Ribli.
Karpov er efstur ásamt Hollend-
ingnum Timman með 3,5 vinninga
eftir sex umferðir. Timman mátti
þakka fyrir að ná jafntefli við landa
sinn, Van der Wiel, í sjöttu umferð-
inni. Danski skákmeistarinn Bent
Larsen er í sjöunda sæti á IBM-
mótinu með 2,5 vinninga.
E1 Salvador:
Skæruliðar ræna bændur
San Salvador. 4. júlí. AP.
VINSTRI sinnaðir skæruliðar, sem hafa
það að markmiði að steypa yfirvöldum í
EI Salvador af stóli, hafa að undanförnu
farið ránshendi um fjallaslóðir i ná-
grenni höfuðborgarinnar, að sögn bænda
sem hafa sloppið úr búðum hryðjuverka-
mannanna.
„Þeir rændu allri kornvörunni, beindu
að mér byssu og sögðust drepa mig ef ég
gcngi ekki ti) liðs við þá." sagði Jose
Domingo Guardado, einn úr hópi flótta-
mannanna. Guardado og fjölskylda hans,
alls 10 manns, eru meðal 1500 flótta-
manna. sem leitað hafa hælis i Las
Vueltas, sem er um 80 kílómetrum fyrir
norð-austan San Salvador. Þeir hafa
leitað skjóls þar undir verndarvæng
hersins.
Kona nokkur meðal flóttamannanna
sagði að skæruliðarnir feldu sig oft í
hæðunum kringum bæina á daginn en um
leið og dimmdi kæmu þeir út úr fylgsnum
sínum, læddust niður í byggðina og
hræddu fólkið.
„Þeir ógnuðu okkur með byssum og stálu
frá okkur og sögðust þarfnast þess að við
gengjum í lið með þeim,“ sagði hún.
Konan, sem vildi ekki láta nafns síns getið,
játaði að nokkrir af nágrönnum hennar
hefðu gengið í lið með skæruliðunum eða
styrkt þá á einhvern hátt.
Annars staðar í landinu segja vinstri
menn, að herinn og hægri sinnaðir hryðju-
verkamenn drepi og ræni bændurna.
Jafnvel stjórnvöldin tala um „öfgar“
hersins. En yfirmaður hersins á svæðinu
kringum Las Vueltas er sá eini í landinu
sem talinn er vera nútímalega sinnaður.
Bændur þar treysta hernum og sýnir það
að honum hefur tekist að draga úr
hryðjuverkum hersins sem eru svo algeng
annarsstaðar í landinu. Liðþjálfi varð-
sveitarinnar, segir að engar árásir hafi
verið gerðar á herinn á þessu svæði en
hann hafi samt verið vel á verði vegna þess
hve skæruliðar hafa haft sig mikið í
frammi á nærliggjandi svæðum.
„I hverju húsi í Las Vueltas og nágrenni
er flóttamaður," sagði einn foringjanna.
„Þeir hafa sagt okkur frá því hvernig
skæruliðarnir fóru með þá og við viljum
ekki að það sama komi fyrir hér.“
Töluverður matarskortur er á svæðinu,
en stjórnin hefur sent þangað hrísgrjón,
baunir, korn og olíu. Flóttamennirnir hafa
þegar misst af síðasta uppskerutíma og sjá
því fram á að þurfa að treysta á
matarsendingar frá stjórnvöldum um
langa hríð.
Nýjustu fréttir frá E1 Salvador herma
að yfirvöld þar hafi framlengt fjögurra
mánaða gamalt umsátursástand í landinu
um 30 daga vegna áframhaldandi póli-
tískra ofbeldisverka, er krafist hafa 3.000
mannslífa frá því í ársbyrjun.