Morgunblaðið - 05.07.1980, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ1980
27
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
húsnæöi
óskast
íbúð óskast
Eldri kona óskar aö taka á leigu
litla íbúö. Uppl. í síma 74079.
2ja—3ja herb. íbúð
Námsfólk, par, óskar effir að
taka á leigu 2ja—3ja herb. (búð
sem fyrst. Uppl. í síma 28699
eða 24751.
Óska eftir
aö taka á leigu góöa íbúö í
Reykjavík. Uppl. í síma 31514
eöa 31212.
Mosfellssveit
Raöhús, einbýlishús eöa 3—4ra
herb. íbúö óskast til leigu í
Mosfellssveit fyrir reglusama
fjölskyldu fyrir 1. september.
Uppl. í síma 29408.
Iðnaðarhúsnæði
100—150 fm iönaöarhúsnæði
óskast sem fyrst. Veröur að vera
á jarðhæð og með stórri hurö.
Uppl. í síma 29408 á kvöldin.
Stofa óskast
Útlendingur búsettur á íslandi
(talar íslensku) óskar eftir stofu
eöa lítilli íbúö til leigu í nágrenni
Landspítalans. Fyrirframgreiösla
möguleg. Uppl. í síma 27502
(spyrja eftir Geirharöi).
Ánamaðkar til sölu
Uppl. í s: 15924.
Nýjar og ónotaðar
útihurðir
Til sölu eru 2 nýjar og ónotaöar
sænskar fallegar útidyrahuröir j
karmi. Huröirnar eru úr tekkl,
með fallegu mynstri og sérpant-
aðar frá Svíþjóð. Uppl í s. 39373
og 20160.
-y-vtr-
~Yy—v~yy----
húsnæöi
í boöi
Keflavík —
verzlunarhúsnæði
Til sölu 160 fm verzlunarhús-
næöi, sem nýtt á góöum staö.
Upplýsingar ekki í síma.
Njarðvík
Til sölu eldra einbýlishús, á
tveimur hæöum. Mikiö endurnýj-
aö. Glæsileg eign á góöum staö.
Verö 45 millj.
Skipti á íbúö á stór-Reykjavik-
ursvæöinu kemur til greina.
Hjá okkur er úrvaliö.
Eignamiölun Suöurnesja,
Hafnargötu 57 sími 3868.
Breiöfirðingar
Hin árlega skemmtiferð Breiö-
firöigafélagsins veröur dagana
18. til 20. júlí ef þátttaka fæst.
Fariö veröur um Breiöafjarðar-
eyjar.
Þátttaka tilkynnist fyrir 12. júlí.
Upplýslngasímar 52373 og
33088.
Ferðanefndin.
Krossinn
Æskulýössamkoma í kvöld kl.
| 20.30 aö Auöbrekku 34, Kópa-
| vogi.
I Allir hjartanlega velkomnir.
ÚTIVISTARFERÐIR
Sunnud. 6.7. kl. 13
Grnnadyngja-Sog, iétt ganga.
skrautsteinar. Fararstj. Kristján
M. Baldursson. Verð 4000 kr.,
frítt f. börn m. fullorðnum. Fariö
frá B.S.Í. benzínsölu.
Þórsmörk og Emstrur um
næstu helgi.
Hornstrandir f næstu viku, far-
arstj. Jón I. Bjarnason.
Grænland 17. júlí, fararstj. Jón
Ármann Héðinsson.
Farseðlar í þessar ferðir á
skrifst., Lækjarg. 6a.
Útivist, sími 14606.
Fíladelfía
Almenn guösþjónusta veröur í
tjaldinu viö Laugalækjaskóla ki.
20.30. Kunnir predikarar frá
Ameríku tala.
Velkomin í stærsta tjald á ís-
landi.
FERDAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR 11798 og 19533.
Dagsferðir 6. júlí:
1. kl 09. Þríhyrningur (6Í7 m).
Þríhyrningur gnæfir yfir Fljóts-
hlíöina og er afar gott útsýni,
þegar gengiö er á fjalliö.
2. kl. 13. Kambabrún — Núpa-
hnjúkur. Létt ganga. fagurt út-
sýni.
Fariö frá Umferöarmiöstööinm
aö austanveröu. Fargj. gr. v/bíl.
Upplýsingar á skrifstofunni.
radauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
Bátar til sölu
Til sölur eru 2 trébátar, 7 og 10 tonn. Uppl.
gefur Viðskiptaþjónusta Guðmundar Ás-
geirssonar, sími 97-7677, Neskaupstað.
Skip til sölu
6 — 7 — 8 — 9—10—11 — 12—15 —
20 — 24 — 29 — 30 — 49 — 53 — 64 — 65
— 70 — 73 — 88.
Einnig opnir bátar af ýmsum stærðum.
Aöalskipasalan,
s. 28888 og 51119.
VANTAR ÞIG VINNU (n
VANTAR ÞIG FÓLK í
ÞÚ ALGLÝSIR UM AI.LT
LAND ÞEGAR ÞL ALG-
LÝSIR I MORGLNBLAOIM
Fiskiskip
Höfum til sölu m.a. eftirtalda eikarbáta:
23 rúml., smíðaður 1971. Vél 240 hp;
Caterpillar. Vel útbúinn tækjum. Til afhend-
ingar strax.
25 rúml., smíðaður 1968. Vél 230 hp.
Caterpillar. Vélin nýupptekin. Mikið af netum
fylgir.
30 rúml., smíðaður 1973. Vél 270 hp
Cummings. Verið að setja vélina niður.
SKIPASALA-SKIPALEIGA,
JÓNAS HARALDSSON, LÖGFR. SIMI 29500
Guðríður
dóttir —
í dag 5. júlí 1980 er Guðríður
Guðjónsdóttir frá Sandgerði til
moldar borin að Hvalsnesi í Mið-
neshreppi. Guðríður andaðist á
Landspítalanum þann 26. júní
eftir erfiða sjúkralegu.
Guðríður fæddist að ökrum á
Miðnesi 7. nóvember 1904, önnur
tveggja dætra hjónanna Guðjóns
Jónssonar og Maríu Helgadóttur.
Hin var Karólína María, er lést 9.
ágúst 1940. Faðir Guðríðar Guð-
jón var fæddur í Kirkjuvogi í
Höfnum 10. marz 1882, þar sem
foreldrar hans voru vinnuhjú hjá
ekkjufrú Þórunni Brynjólfsdóttur
systur séra Sigurðar B. Sivertsen
merkisprestsins á Útskálum. Móð-
ir Guðríðar var María, fædd 10.
ágúst 1876, Helgadóttur frá Mos-
húsum á Miðnesi Eyjólfssonar og
Guðrúnar Gísladóttur konu hans.
Guðríður ólst upp í foreldrahús-
um til 16 ára aldurs, en um það
leyti þ.e. 27. júní 1921 lést móðir
hennar aðeins 45 ára gömul af
hjartabilun. Faðir Guðríðar brá
þá búi með dætrum sínum og
fluttist fyrst til Sandgerðis en
bráðlega til Reykjavíkur, þaðan
sem hann stundaði sjómennsku
fram undir æfilok. Guðríður varð
hinsvegar eftir í Sandgerði hjá
hjónunum Gíslínu Gísladóttur og
Eyjólfi Jóhannssyni og hjá þeim
merkishjónum var hún þar til hún
giftist Guðna Jónssyni þann 14.
maí 1927 frá Flankastöðum í
Miðneshreppi, en við þann stað
var Guðni jafnan kenndur. Guðni
var fæddur að Bæjaskerjum í
Miðneshreppi 29. apríl 1905. For-
eldrar Guðna voru Jón Páisson
útvegsbóndi og kona hans Guð-
Guðjóns-
Minning
finna Sigurðardóttir. Guðni Jóns-
son var í áratugi skipstjóri á eigin
bátum og annara, en þó lengst af
hjá Haraldi Böðvarssyni & Co. og
h/f Miðnes. Guðni var rómaður
sjósóknari, farsæll og fiskinn og
persónuleiki, sem ávallt verður
ferskur í hugum þeirra, sem hon-
um kynntust. Guðni lést þann 24.
desember 1966.
Elst barna Guðríðar var María
Gréta Sigurðardóttir ekkja eftir
Roy Abbey frá New York, með
manni sínum Guðna eignaðist hún
9 börn; Jón, sem lést af slysförum
á fjórða ári, Guðjón, flugþjónn
kvæntur Steinunni Gunnlaugs-
dóttur, búsettur í Reykjavík, Guð-
rún, gift Birgi Axelssyni
framkvstj. í Keflavík, Hulda, gift
Jóhanni Walderhaug trésmíða-
meistara í Reykjavík, Sigurður,
sjómaður búsettur í Keflavík,
Hafsteinn, skipstjóri kvæntur Ey-
dísi Eyjólfsdóttur búsettur í
Keflavík, Karólína, gift Friðrik
Óskarssyni stýrimanni búsett í
Keflavík, Guðfinna, gift Birki
Baldvinssyni flugvirkja í Luxem-
borg og Aðalsteinn, stýrimaður
kvæntur Sigrúnu Valtýsdóttur
búsett í Keflavík. Þau hjón Guðni
og Guðríður bjuggu á Flanka-
stöðum til ársins 1942 og allt til
þess tíma ráku þau þar kúabú-
skap, sem að öllu leyti hvíldi á
húsfreyju og börnum hennar. Árið
1942 fluttu þau í Breiðablik í
Sandgerði og þar bjó Guðríður þar
til hún fluttist til Reykjavíkur að
Barðavogi 21,1968.
Sá, sem þessar línur ritar,
kynntist þeim hjónum báðum. Þau
voru um margt ólík, en eins og
tíðum vill verða um fólk, sem
sprottið er úr sama jarðvegi og
deilir geði saman í glímunni við
íslenskar höfuðskepnur skapast
ávallt sú eining og samhugur, sem
fleytir fólki yfir brim og fram hjá
boðum mannlífsins og í þá gæfu-
höfn, sem aðeins þeir fá notið, er
skilað hafa giftudrjúgu dagsverki.
Guðríður er mér hugstæð sem
dagfarsprúð, hæglát og elskuleg
manneskja. Hún var afburðavel
verki farin svo sem snyrtilegt
heimili hennar bar með sér. Ávallt
veitul gestum, sem að garði bar.
Heimilið var mannmargt og þar
hvíldu störfin á herðum húsmóð'-
urinnar, heimilið bar svip af
henni. Þangað var gott að koma.
Þrátt fyrir ærin störf Guðríðar
naut hún sín vel í starfi við
hannyrðir og félagsskap við bæk-
ur. Hún var vel lesin og minnug,
Guðríður starfaði í Kvenfélaginu
Hvöt og Slysavarnadeildinni Sig-
urvon í Sandgerði. Á þeim vett-
vangi leysti hún sín störf af hendi
með pryði.
Á kveðjustund hvarflar hugur-
inn til baka. Fram í hugann koma
margir og ólíkir atburðir, sem er
þekking okkar og reynsla. Öl!
erum við í sama bátnum. Dag ir-
inn í gær er Iiðinn, en við eigum
von í morgundeginum, en ekki
vissu. Það sem við eigum er aðeins
líðandi stund. Því er það mikil-
vægt, að þekking okkar og reynsla
verði okkur hvatning jafnt og
baráttuvopn á nýjum áföngum.
Megi líf og störf formæðra okkar
verða hvatning hverri ísl nskri
sprund, til þess að ræki ðsta
hlutverk konunnar mó lut-
verkið. Guðríður hefur loi inu,
megi það verða öðrum <Yir-
breytni.
Ég færi börnum henr ?tt-
ingjum og venslamönnun leg-
ustu samúðarkveðjur frá og
fjölskyldu minni.
Páll Ax n
Daninn starfar við Dýraspítala ti
DANSKI dýralæknirinn. sem ný-
lega var ráðinn að Dýraspítalan-
um í Víðidal og fékk synjun um
starfsleyfi hér á landi sem dýra-
læknir. hefur engu að síður, að
sögn Sigríðar Ásgeirsdóttur, eins
forsvarsmanna spitalans, hafið
störf við spitalann. „Hann er
þarna upp frá og sinnir vanda-
sömum læknisaðgerðum, sem við
teljum að i mörgum tilvikum
hefði ekki verið hægt að gera
annars staðar,“ sagði Sigríður.
Sigríður sagði, að fulltrúar Sam-
bands dýraverndunarfélaga á ís-
landi, Hundavinafélagsins,
Hundaræktarfélagsins, Dýra-
verndunarfélags Akureyrar og
Dýraverndunarfélags Reykjavík-
ur, hefðu á fundi með landbúnað-
arráðherra mótmælt því, að Dan-
anum hefði verið synjað um starfs-
leyfi sem dýralækni hér á landi.
Hefðu fulltrúarnir óskað eftir því
við ráðherrann að hann endur-
skoðaði afgreiðslu sína á umsókn-
inni.
Að sögn Sigríðar auglýsti spítal-
inn fyrir nokkru eftir íslenskum
dýralækni til starfa við spítalann,
en engin umsókn barst. Hins vegar
barst bréf frá héraðsdýralæknin-
um í Reykjavík, Brynjólfi Sand-
holt, þar sem hann býður fram
samvinnu og aðstoð við starf-
rækslu spítalans. „Við fögnum
þessu bréfi en þetta sýnir okkur
aðeins, að dýralæknaskortur er
hér á l«adi. Dýraverndunarsam-
tökin nWa ákveðið að beita sér
fyrir aðgerðum varðandi það
ófaglærða fólk, sem starfar að
dýralækningum víða um ,nd.
Þetta er ekkert annaö en ciu I ‘ inn
dýralæknaskortur. Einnig olja
dýraverndunarsamtökin mjög al-
varlegt að bændur geti víða uti á
landi fengið afgreidd í apótekum
lyf, eins og fúkkalyf, án lyfseðils,
en hér á Reykjavíkursvæðinu þarf
fólk réttilega að framvísa lyfseðli
til að fá þessi lyf. Þessi lyf geta
verið hættuleg, ef þau eru notuð á
rangan hátt og til dæmis mengað
afurðir," sagði Sigriður.