Morgunblaðið - 05.07.1980, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1980
íslandsmótið í knattspyrnu
8. umferð hefst í dag
5 leikir í 1. deild um helgina
í DAG hefst 8. umferðin í íslandsmótinu í knattspyrnu, staðan í 1.
deild er nú mjög jöfn og spennandi og enn getur allt gerst. Fram
trónar nú í eísta sæti með 12 stig cn Valur er með 10 stig. Leikur Vals
og ÍBK í dag er mjög þýðingarmikill fyrir bæði liðin. Ætli ÍBK scr að
vera með í baráttunni, verða þeir að sigra í leiknum i dag. Lið Vals
mun þó verða erfitt viðureignar, minnugir þcss hversu illa gekk í
siðasta leik, er þeir töpuðu 3—2 fyrir Fram í bikarnum. ÍA er í þriðja
sæti í deildinni með 8 stig og vcrða að sigra UBK í dag til að vera með
í toppbaráttunni. Leikur ÍBV og FII sem fram fer í dag verður eins og
hinir lcikirnir tvísýnn. ógerlegt er með öllu að spá um úrslit í leikjum
þessum, en Ijóst er að næstu þrjár umferðir koma til með að skýra
stöðuna verulega.
EFTIRTALDIR knattspyrnuleikir fara fram um helgina.
I.AllCAItDAÖllK 5. Jt'll.f
kl. 11.00 Valnr - ÍIIK
kl. 15.00 (A - IJBK
kl. 15.00 lllV - FII
Björgúlfur, Jón, Ari, Magnús Jónsson, formaður GR og Gunnar bera
hitann og þungann af framkvæmd opna golfmótsins, sem fram fer á
Grafarholtsvelli í dag og á morgun.
Opna GR-mótið
Hrejipir einhver
bíl i verðlaun
1. dcild Lauxardalsvóllur
1. Akrancsvollur
1. m f Vcstmannacvjavollur
2. dcild Nordfjarrtarvollur
2. Kaplakrikavollur
2. ísafjarðarvollur
2. LauKardalsvollur
3. A Mclavollur
3. m llclluvollur
3. m II Varmárvollur
3. m (írindavíkurvóllur
3. m Stjórnuvollur
3. m C HúAardalsvollur
3. m llcllissandsvollur
3. m BolunKarvíkurvóllur
3. m 1) Álftaháruvollur
3. m Siglufjaróarvollur
3. m llofsosvollur
3. „ K LauKavollur
3. Sauúárkróksvollur
3. n. ii
kl. 15.00 I»róttur - Sclíoss
kl. 11.00 llaukar - l»ór
kl. 11.00 ÍBÍ - Ármann
kl. 17.00 F’ylkir - Vólsunicur
kl. lfi.00 I>ttir - Rcynir
ki. ifi.no llckla - Katla
ki. ifi.on Afturcldin^ - Njaróvík
ki. ifi.on (•rindavík - Grótta
ki. ifi.no Stjarnan - Víóir
kl. lfi.00 Ólafur Pá - Skallaifr.
ki. m.on Rcynir - lll»V
ki. ífi.on BolunKarvik - VíkinKur
kl. Ifi.Ofi IISI» h - Ma«ni
ki. ifi.no KS - Lciftur
ki. ifi.no llofóastrcnd. - Árntóinn
kl. Ifi.OO EfHnjc - IISAII
kl. lfi.00 Tindastóll - Rcynir
ki. ifi.no llaukar - ÍBÍ
kl. 13.00 Týr - Rcynir II
kl. 11.00 Týr - l>or V
kl. Ifi.OO SkallaKrímur - ÍBÍ
Staðaní
1. deild
Fram 7 5 2 0 9- 2 12
Valur 7 5 0 2 20- 9 10
ÍA 7 3 2 2 8- 7 8
ÍBV 7 3 13 10-11 7
KR 7 3 1 3 5- 7 7
ÍBK 7 2 3 2 7-10 7
UBK 7 3 0 4 12-10 6
Víkingur 7142 7—8 4
Þróttur 7 1 2 4 5— 8 4
FH 7 115 8-18 3
Markhæstir eftir 7 umferðir
eru eftirfarandi leikmenn:
Matthias Hallgrímsson Val 9
Ingólfur Ingólfsson UBK 5
Magnús Teitsson FH 3
Sigþór ómarsson ÍA 3
Lárus Guðmundsson Vík. 3
Staðaní
2. deild
KA 6 4 11 12-4 9
Þór 6 4 11 12-4 9
ÍBÍ 6 3 2 1 14-11 8
Ilaukar 6 3 2 1 13-12 8
Fylkir 6 3 12 12-4 7
Völsungur 6 3 1 2 9—7 7
Þróttur N. 6 2 1 3 8-12 5
Ármann 6 114 6—13 3
Selfoss 6 114 6-14 3
Austri 6 0 1 5 6—17 1
í DAG og á morgun fer fram i
þriðja sinn opna GR-mótið í golfi.
Það voru þeir Ari Guðmundsson
og enskur golfkennari, Nolan að
nafni, sem hér starfar, sem voru
upphafsmenn mótsins. Að þessu
sinni eru verðlaun veglegri og
fleiri en áður hefur þekkst hér á
landi i golfmótum. Þá eiga menn
möguleika á að fá bil i verðlaun
fyrir að fara holu í höggi á 17.
braut. Reiknað er með þvi að
keppendur verði um 150 í mótinu
að þessu sinni. Keppnisfyrir-
komulag er það sama og áður, að
tveir og tveir leika saman og
telur betri bolti á hverri holu.
Hefur þetta reynst vera mjög
vinsælt. Gefin er 7/8 i forgjöf.
Verndari mótsins verður Anna
Kristjánsdóttir, eiginkona fyrsta
formanns Golfklúbbs Reykjavík-
ur, Gunnlaugs Einarssonar.
Verðlaunin i mótinu verða öll
verðmætari en þátttökugjaldið
sem er kr. 25.000.-.
3. íl. C Vostmannaoyjavollur
5. fI. C Vostmannaoyjavollur
5. » liorKarnosvollur
SIINNUDACIIR fi. Jíll.l
1. dcild LauKardalsvollur kl. 20.00 l»róttur - VíkinKur
2. - Akurcyrarvollur kl. Ifi.Ofl KA - Austri
5. íl. C l»orlákshafnarvollur kl. Ifi.OO Þór l> - llll
mAniidaöur 7. JÚI.I
1. dcild LauKardals\ollur kl. 20.00 Fram - KR
Það má enginn eiga fast sæti í landsliði
UM FÁTT er jafnan meira rætt meðal áhugamanna um knattspyrnu
en landsliðsmál og mál varðandi landsleiki. Styrkleiki þjóða i
knattspyrnu er þvi oftast metinn eftir frammistöðu i landsleikjum.
Undirrituðum langar að leggja nokkur orð i belg, en að nokkru leyti
frá öðru sjónarhorni en ýmsir aðrir hafa skrifað. Þvi miður hafði ég
ekki tækifæri til að sjá landsleikinn við Finna, og það sem verra er,
ekki heldur möguleika að sjá eða heyra á öldum ljósvaka né i
sjónvarpi, frekar en aðrir „dreifbýlismenn“. Ég fékk skyndilega
annan og meiri skilning á hversu stór þáttur þessir fjölmiðlar eru,
varðandi þá sem ekki eiga þess kost að skreppa á völlinn til að sjá og
heyra. Ég verð alveg undrandi, að ekki skuli vera hægt að leysa svo
einfalt atriði, þannig að landslýður geti notið þess. Mig undrar þá
ekki að stundum sé erfitt að leysa það sem flóknara er.
Mig rak í rogastanz morguninn
eftir Finnaleikinn, að ég heyrði
nær engan mann minnast á leik-
inn. Eg gerði það að gamni mínu
að spyrja nokkra hvernig leikur-
inn hefði farið, fæstir mundu eftir
að leikurinn hafði farið fram, en
um fátt er þó meira rætt manna á
meðal a.m.k. á „cafeteríunni" en
knattspyrna og aðrar íþróttir.
Helst heyrðist mér á fólki að
mönnum utan Reykjavíkur og
nágrennis væri ekki ætlað að
fylgjast með þessum málum. Ég
held að nokkuð sé til í þessum
athugasemdum, og er ég þó all-
mikið „borgarbarn". Eftir að hafa
lesið umsagnir allra íþrótta-
fréttaritara dagblaðanna fannst
mér upphaf og endir þessa leiks
vera svipaður og flest undanfarin
ár.
Þjálfun landsliös
Margur landinn varð glaður á
liðnu vori þegar fréttist að Islend-
ingur hefði verið ráðinn landsliðs-
þjálfari í fyrsta sinn í mörg ár.
Undirritaður fagnar því mjög að
„kollega" Guðna Kjartanssyni var
gefinn kostur á að spreyta sig, og
óskar að allar góðar vættir veiti
honum og hans nefndarmönnum
brautargengi. Það er aðaliega
tvennt sem knýr mig til að fjalla
um þessi mál.
Landsliðsnefnd
og hvernig lands-
liðið er valið
Sá háttur hefur um nokkurt
skeið verið valinn aftur, að lands-
liðsnefnd velji landslið, þ.e. þjálf-
ari og tveir stjórnskipaðir menn.
Mér hefur aldrei fundist koma
skýrt fram sl'. ár hvort þjálfari
veiji liðið eða hvort aðrir nefnd-
armenn séu þar með puttana í.
Hitt hef ég oft fundið, að ef illa
gengur er þjálfarinn gagnrýnd-
ur, en ef vel árar eru allir
tilnefndir. Formaður landsliðs-
nefndar fær jafnan þann heiður
að tilkynna landslýð hverjir hafi
verið valdir, og þá má bæði nota
útvarp og sjónvarp. Sé sá háttur
á hafður sem að framan greinir,
tel ég að um úreltar aðferðir sé að
ræða. Ég tel alfarið, að ef þjálfara
er ætlað að undirbúa liðið fyrir
landsleik, skipuleggja undirbún-
ing („taktik"), jafnt sem aðra hluti
eigi hann að vera einráður, taka
við lofsyrðum eða gagnrýni eftir
því hvernig til tekst. Hugmyndir
um að tveir ungir þjálfarar sæju
um þjálfun landsliðsins hafa skot-
ið upp kollinum og tel ég að um
athyglisverða hugmynd sé að
ræða, og engu fórnað þó reynt
hefði verið, og kastað fyrir róða
þeim gömlu vinnubrögðum sem
lengi hafa tíðkast. Ef einhver
nefnd þyrfti að vera þarna nálægt
vegna K.S.Í., mætti gefa henni
nýtt nafn t.d. áhaldanefnd lands-
liðsins til að bera töskur, búninga,
bolta og annað, sem til þarf.
Þjálfun og
undirbúningur
Annað sem alltaf er verið að
ræða um og mikið gagnrýnt er
sjálf þjálfunin og síðasti undir-
búningur fyrir landsleik. Oftast er
bent á að of skammur tími fáist
fyrir hvern landsleik. Ég tel að
tómt mál sé um að tala að auka
þanna tíma, nema með fækkun
landsleikja og deildarleikja.
Menn mega heldur ekki gleyma
að stundum hefur gefist lengri
tími, t.d. á haustin eftir að mótum
lýkur, en útkoman verið svipuð.
Spurningin er því, hvort hægt sé
að breyta um vinnubrögð. Allir
sem til knattspyrnuþjálfunar
þekkja, vita, að enginn þjálfari
gerir stórar rósir á 2—4 dögum, ef
lítið annað er unnið, það er ekki
nóg að horfa á nokkra kappleiki
snemma vors og velja síðan lands-
lið. Ég tel því að breytt vinnu-
brögð landsliðsþjálfara væri vel
til athugunar. Ymsir möguleikar
koma til greina. Hér gefst þó ekki
rúm til að kryfja það til mergjar,
en benda má á nokkur atriði. í
staðinn fyrir að horfa aðeins á
leikmenn í vorleikjum, þá bara að
fara á æfingar viðkomandi leik-
manna, jafnvel að fá að taka þátt í
hluta af æfingum með leikmönn-
um, ræða þar við viðkomandi
leikmenn og ýmislegt fleira í þeim
dúr. Miklu meiri upplýsingar og
kynningarstarfsemi varðandi and-
stæðingana hverju sinni. Nánari
upplýsingar meðal manna viðkom-
andi landa, jafnt hjá leikum sem
lærðum, filmur og myndir alls
konar, reyna að komast í sem
nánasta snertingu meðal inn-
fæddra, reyna að skyggnast sem
lengst inní þjóðarsál knattspyrn-
unnar meðal andstæðinganna, og
helst að komast þar inná gafl,
jafnvel að „neðanjarðarhreyfing-
unni“. Margt fleira mætti telja
upp, og hér verða menn að taka
með í reikninginn að um fullt
starf landsliðsþjálfara er að ræða,
eins og nú er háttað. Á þennan
hátt gætu t.d. tveir samhentir
menn unnið gott starf. Sá stutti
tími sem ætlaður er til landsliðs-
þjálfunar hentar þjálfurum afar
misjafnt. Vinur minn, Youri II-
itchev, spurði mig, hér áður fyrr á
árunum, hvernig mér litist á að
hann þjálfaði íslenzka landsliðið.
Ég svaraði að bragði, að sá tími
sem til þess væri ætlaður hentaði
honum alls ekki. Hann áleit þá, að
með því að þjálfa annað lið með,
mundi hann leysa málið. Mér
fannst hugmyndin ágæt ef um
unglingaþjálfun væri að ræða, en
karl vildi aðeins 1. deildarlið og
þar skildu leiðir.
Lokaundirbúningur
Sá háttur undanfarinna ára að
kalla sem flesta atvinnumenn
heim til landsleikja, hefur mælst
misjafnlega fyrir. Ef þeir eru að
mati þeirra, er landslið velja, betri
en þeir sem heima eru, er sjálfsagt
að velja þá, en þá skal það jafnan
tryggt að viðkomandi leikmaður
sé a.m.k. í leikhæfu ástandi og
gera verður síst minni kröfur tii
þeirra en annarra. Yfirlýsingar
eins og hafðar voru eftir Pétri
Péturssyni eftir Finnaleikinn, að
hann væri ekki í leikhæfu
ástandi, mega ekki heyrast fram-
ar. Þá átti furðulegt val á Atla
Eðvaldssyni, í leiknum gegn Wal-
es, engan rétt á sér, maður sem
ekkert hafði keppt á árinu og lítið
æft. Það má enginn eiga fast sæti
í landsliði fyrir það eitt að hafa
verið góður árið áður, eða gert
góðan atvinnusamning. Síðustu
dagana fyrir landsleiki fer liðið
jafnan til Þingvalla til hvíldar og
hressingar, en þeir sem frá út-
landinu koma, komast oft ekki
fyrr en 10—20 klst. fyrir landsleik,
oft eftir strangt ferðalag (15—40
klst.).
Frá Þingvöllum er síðan skropp-
ið (oft aðeins hluti af liðinu) einu
sinni til tvisvar á dag til léttra
æfinga í Reykjavík. Ég sé lítinn
tilgang í hvíld á Þingvöllum og
hossast síðan á misjöfnum vegi í
rútubíl til léttra æfinga í höfuð-
borginni. Ég tel þvi að endur-
hönnun á skipulagi og vinnu
þeirra, sem i dag velja landslið,
sé verkefni líðandi stundar. Þeir
þurfa að setjast niður, hugsa
málið niður í kjölinn, mega ekki
vera í mörgu öðru stússi, mynda
sér ákveðinn ramma að vinna eftir
og gleyma ekki vissum aga og
princip-málum.
Á eftir boltanum
Kveikjan að þessum hugleiðing-
um var sú, að Morgunblaðið hefur
endurvakið þáttinn Á eftir boltan-
um og fagna ég því og vona að þar
verði góðir þættir á næstunni. í
fyrsta þætti á þessu sumri kom
greinarhöfundur allmikið inná
landsliðsmál. Ég er honum þar
ósammála að nokkru leyti og álit
að um vanþekkingu á innri mál-
um knattspyrnuforystunnar sé
að ræða. Stjórn K.S.Í. hefur síður
en svo skorið við nögl fjármuni og
aðra fyrirgreiðslu og þjónustu, er
lýtur að landsliðsmálum, ef svo er,
þá er það nú alveg á síðustu
dögum.
Akureyri, 28. júní 1980.
Árni Njálsson