Morgunblaðið - 12.07.1980, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1980
Markús Örn Antonsson, borgarfulltrúi:
Pólitísk vandræði meiri-
hlutans í borgarstjórn
Nú er kjörtímabil vinstri manna í borgar-
stjórn Reykjavíkur rétt hálfnað og af því
tilefni hafa forystumenn flokkanna þriggja,
sem fleyttu sér upp í valdastöðurnar á
nokkrum tugum atkvæða umfram Sjálfstæð-
ismenn, látið eiga við sig viðtöl í málgögnum
sínum og komið fram í öðrum fjölmiðlum til
að hæla sér af árangri þessa samstarfs, sem
áður hefur verið óþekkt í borgarstjórn
Reykjavíkur.
. Þeir fulltrúar vinstri flokk-
anna, sem fluttu afmælisávörpin,
báru sig borginmannlega, þögðu
um álagningargleði sína í skatta-
málum, dáðleysið í skipulags-
málum og afleiðingar lóðaskorts
en gumuðu þeim mun meira af
pylsuvögnum, uppákomum í
kringum listahátíð, fjölgun veit-
ingastaða og „iðandi mannlífi" í
miðborginni. Einhvern tíma voru
brauð og leikir taldir tákn hins
hnignandi stórveldis. „Ein með
öllu“, rauðvínstár með ostinum á
matsölustað og spánskir stultu-
karlar geta kannski veitt ein-
hverjum þá lífsfullnægju, sem
félagslega þenkjandi sérfræðing-
um úr vinstri fylkingunni hefur
þótt á skorta í borgarbrag
Reykjavíkur. En varla getur
þetta orðið lykillinn að framtíð
borgarinnar og rennt stoðum
undir þróttmikið samfélag, sem
verið hefur í uppbyggingu á
undanförnum áratugum í
Reykjavík. Þess vegna ery það
grátbroslegt að sjá ritstjóra
Þjóðviljans ganga af göflunum í
barnslegri gleði sinni yfir að loks
sé Reykjavík borgið með öllum
þessum fjölbreytílega kaffihúsa-
rekstri og manneskjum á öllum
aldri, sem í sumarstemmning-
unni færu hér dansandi og syngj-
andi um strætin að manni helzt
skildist af hinum hástemmdu
lýsingum.
Maðurinn
með hattinn
Meira að segja Sigurjón Pét-
ursson, forseti borgarstjórnar, er
að springja af mannlífi og setti
upp skringilegan hatt einn laug-
ardagseftirmiðdag um daginn og
lét útvarpshlustendur leita að
sér. Hann var auðfundinn því að
það voru engir á ferli í miðborg-
inni þrátt fyrir kaffihús og pylsu-
vagna nema maðurinn með hatt-
inn og leigubílstjórinn, sem kom
auga á hann. Stultukarlarnir eru
farnir heim og óvíst hvað borg-
arsjóðurinn getur séð af miklu
fjármagni í skemmtilegheit eins
og „Umhverfi 80“ á Skólavörðu-
stígnum í því magni að stuðli að
„viðstöðulausu mannlífi" í bæn-
um. Það þarf nokkuð til ef málin
eiga jafnaðarlega að vera í því
hámarki, sem gerist á listahátíð-
um. Það þekkjum við af reynslu
fyrri ára, þegar borgin, félög og
einstaklingar hafa viljað gangast
fyrir einhverri tilbreytingu í bæj-
arlífinu. Viðleitni, sem ekki hefur
verið hægt að halda endalaust
áfram fremur en nú.
Á tveggja ára afmæli meiri-
hlutans í borgarstjórn Reykjavík-
ur hafa oddvitar hans öðru frem-
ur reynt að fela þann rótgróna og
á stundum heiftarlega skoðana-
ágreining, sem ólgar undir niðri
hjá þeim þó allt eigi að heita slétt
og fellt á yfirborðinu. Eins og við
fulltrúar minnihlutans höfum
bent á áður, og það oftar en einu
sinni og oftar en tvisvar, kemur
þessi skoðanaágreiningur ákaf-
lega illa við hag borgarbúa, þegar
hlutirnir eru langtímum í salti og
engin hreyfing kemst á fram-
kvæmd nauðsynjamála af því að
á bak við tjöldin logar allt í
illdeilum milli borgarfulltrúa
meirihlutans. Þannig er þetta í
skipulagsmálum. Enn er ekki
ljóst hvert þessi vinstri meiri-
hluti stefnir með framtíðarupp-
byggingu borgarinnar. Hann
hafði í höndunum samþykkt
skipulag borgarstjórnar frá árinu
1977, þegar hann tók við, og það
átti að gilda til 1995. Skipulagið
var stimplað ónothæft af því að
það var samþykkt í tíð meirihluta
Sjálfstæðisflokksins. Ekkert nýtt
skipulag hefur enn verið lagt
fyrir borgarstjórn en á sl. vetri
lýstu sumir talsrnenn meirihlut-
ans yfir því, að lokafrestur í
skipulagsmálum rynni út í maí.
Maí er löngu liðinn og borgar-
fulltrúar hafa engar skipulagstil-
lögur séð núna þegar kominn er
júlí. Skipulagstillögur munu að
vísu hafa verið lagðar fram af
hálfu sérfræðinga borgarinnar en
hina pólitísku oddvita meirihlut-
ans virðst greina á um tillögurn-
ar og þar af leiðandi meginstefn-
una í skipulagsmálum, sem að
vísu er ekki nein ný bóla. Af
þessum sökum koma skipulags-
tillögur enn ekki fram í dagsljós-
ið. Öll seinvirknin og losarabrag-
urinn á stjórn borgarinnar vegna
samstöðuleysisins er augljós öll-
um, sem á annað borð fylgjast
með á sviði borgarmála.
Þó ekki sé farið lengra aftur í
tímann en nokkra síðustu mánuð-
ina fyrir „afmæli" vinstra sam-
starfsins og allra síðustu vikur,
verða á vegi okkar ágæt og skýr
dæmi um óheilindin í samstarfi
borgarfulltrúa vinstri flokkanna,
hvernig menn sitja þar á svikráð-
um hver við annan en láta svo
sem ekkert sé og brosa smjaðurs-
lega hver til annars þegar hin
opinbera ásýnd meirihlutans á að
birtast íbúum borgarinnar.
Plötuðu Sjöfn í
sumarfríinu
Dæmi 1: Svo sem frægt er
orðið, ætluðu Alþýðubanda-
lagsmenn í borgarstjórn að knýja
fram með látum ákvörðun borg-
arstjórnar um kaup á 20 strætis-
vögnum frá Ungverjalandi, af
svokallaðri Ikarus-gerð, núna í
vetur. Þetta vildu samstarfsmenn
þeirra í meirihlutanum ekki fall-
ast á né minnihlutinn. Oddvitar
Framsóknarflokks og Alþýðu-
flokks létu þó til leiðast í borg-
arráði að samþykkja kaup á 3—5
Ikarus-vögnum í reynsluskyni,
svona til að hafa kommana góða.
Þegar málið kom fyrir borgar-
stjórn þann 17. apríl sl., hafði
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, annar
borgarfulltrúi Alþýðuflokksins,
sínar skoðanir á málinu:
Sjöfn: Forseti, góðir borg-
arfuiltrúar. í sambandi við
þessa tillögu borgarráðs-
fulltrúa meirihlutans, að
teknar verði upp viðræður
við fyrirsvarsmenn Ikar-
us-verksmiðjunnar um
kaup á 3—5 vögnum frá
verksmiðjunni til reynslu,
vil ég benda á eftirfarandi:
1. Tillagan gerir aðeins
ráð fyrir viðræðum um
kaup, en ekki kaupum. 2.
Sérstaka samþykkt borg-
arstjórnar verður að fá
síðar, ef samningar nást
við Ikarus um sérstaka
tilraunavagna á aðgengi-
legu verði. 3. Ef borgin fer
út í tilraunastarfsemi með
strætisvagna verða vafa-
laust teknar fleiri tegund-
ir til prófunar en Ikarus,
þvi tilboð komu frá mörg-
um öðrum aðilum, sem
buðu vagna, sem ekki er
reynsla af hér á landi, og
þó að þeir hafi allir verið
dýrari en Ikarus, verður
að fá reynslu af þeim líka,
því vel má vera að ending-
in væri i samræmi við
verðið. Fæ ég ekki séð, að
gera megi upp á milli
tilboðsaðila, þvi vel má
vera, að hagkvæmast sé að
kaupa dýrustu vagnana, ef
ending þeirra er meiri en
sem svarar verðmuni.
Það gerðist ekkert meira í
Ikarus-málunum í borgarstjórn.
Oddvitarnir voru svo klókir að
bíða. Vagnarnir eru samt að
koma. Borgarstjórn gerði hlé á
fundum sínum 19. júní og kemur
ekki saman aftur fyrr en í
september. Á meðan hefur borg-
arráð umboð til að fara með
ákvörðunarvald borgarstjórnar.
Vinir Sjafnar og samherjar sáu
sér leik á borði og notuðu nú
fyrsta tækifæri eftir að borgar-
ráð fékk vald borgarstjórnar til
að ákveða endanlega kaup á
þremur Ikarus-vögnum. Þann 24.
júní, á fyrsta fundi borgarráðs
eftir að borgarstjórn fór í sumar-
leyfi, samþykktu fulltrúar meiri-
hlutans þar eftirfarandi tillögu:
„Borgarráð samþykkir að
kaupa 3 vagna af Ikarus-
gerð skv. tilboði Samafls,
sbr. bréf dags. 23. þ.m.
enda verði greiðsluskilmál-
ar i samræmi við upphaf-
legt tilboð fyrirtækisins.“
Þrátt fyrir alla fyrirvara
Sjafnar Sigurbjörnsdóttur í borg-
arstjórn 17. apríl sl. er þetta mál
nú endanlega afgreitt og kemur
ekkert meir til kasta hennar né
annarra borgarfulltrúa. Þarna
léku þeir ísmeygilega á Sjöfn
samstarfsmenn hennar í meiri-
hlutanum. Eða hverju öðru á að
trúa eftir fyrri yfirlýsingar henn-
ar? Var henni alvara með um-
mælum sínum í borgarstjórn eða
voru þau meiningarlaust hjal?
Það er allavega staðreynd máls-
ins að borgarstjórn kemur ekki
til með að hafa minnstu áhrif á
vagnakaup úr því sem komið er.
Og það þrátt fyrir kröfu Sjafnar.
Adda Bára vill
enn meiri
hringlandahátt
Dæmi 2: Tillögur um Höfða-
bakkabrú hafa verið að þvælast í
borgarkerfinu um langan aldur.
Alþýðubandalagsmenn þyrluðu
upp miklu moldviðri út af brú-
arsmíðinni en urðu að bíta í það
súra epli að lenda í minnihluta,
þegar borgarstjórn samþykkti
brúarsmíðina þvert ofan í hug-
myndir Alþýðubandalagsins. Þá
töldu metnaðargjarnir leiðtogar í
þessum forystuflokki borgar-
stjórnarmeirihlutans virðingu
sinni misboðið. Það var reynt að
stimpast við og öllum hugsan-
legum ráðum beitt til þess að
lögleg samþykkt borgarstjórnar
næði ekki fram að ganga. Síðast
gátu Alþýðubandalagsmenn sett
bremsu á málið í byggingarnefnd.
Á fundi borgarstjórnar þann 19.
júní sl., var Adda Bára Sigfús-
dóttir, borgarfulltrúi Alþýðu-
bandalagsins, enn harla vongóð
um að hægt yrði að bregða fæti
fyrir upphaflegu áformin um
gerð Höfðabakkabrúar og láta
fara fram endurhönnun á mann-
virkinu þannig að Alþýðubanda-
lagiö héldi andlitinu sem leiðandi
afl í borgarstjórn.
Adda Bára: „Ég vænti
þess, að byggingarnefnd
skoði gaumgæfilega það,
sem hönnuðir hafa fram að
færa i þessu máli, og að
borgarráð i sumarleyfi
borgarstjórnar hafi hug-
rckki til þess að sýna þann
hringlandahátt að endur-
skoða þetta mannvirki.
Það er stundum dyggð að
þora að sýna hringlanda-
hátt, ef nýr og betri kostur
er fyrir hendi en sá sem
var fyrir hendi, cða var
viðhafður, þegar fyrri
ákvörðun var tekin.“
Guðrún Helgadóttir, borgar-
fulltrúi Alþýðubandalagsins, tók
líka til máls og lagði mikla
áherzlu á að Höfðabakkabrúin
væri í endurhönnun:
Guðrún: „Ég held að það sé
fullkomlega virðingarvert
að athygli sé vakin á þessu
máli hér, og fulltrúum
„Kí m(inn ('ru nú að hu«sa uni na'stu kosninuaharáttu. þá
hafa menn kannski okki sórdcilis mikinn áhima á að þa'r
ncfndir akkúrat blómstri. som hinir stjórna"
— sejíir horjfarfuiltrúi Alþýðubandalajísins