Morgunblaðið - 05.10.1980, Page 12
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1980
48
myndasafni
Ólafs K.
Magnússonar
Fullkomnasta gatan og
hinar sögulegu þúfur
Einn af stórviðburðunum í
Reykjavík var breikkun Lækj-
argötunnar haustið 1949. Enda
segir í stórri frétt í Morgunblað-
inu: „Lækjargatan nýja var
opnuð fyrir umferð í gær í fyrsta
skipti, en þessi gata er ein
fullkomnasta gata, sem gerð
hefur verið á íslandi til þessa. Er
meira til hennar vandað en áður
hefur tíðkast hér á landi um
götur. Verður Lækjargatan hin
mesta samgöngubót í Miðbæn-
um og auk þess eru við götuna 40
bílastæði, sem munu létta þá
erfiðleika, sem eru samfara því
að geyma bifreiðar í Miðbæn-
um.“ Gefur þessi frétt góða
innsýn í þær miklu tæknifram-
farir, sem orðið hafa á sl. 30
árum.
Að sjálfsögðu festi Ólafur K.
Magnússon, þennan viðburð á
filmu, sem svo marga aðra, og
því má m.a. nú sjá hverjir unnu
þetta mikla verk. Lækjargatan,
ein helsta gata bæjarins, hafði
frá því um aldamót verið 7
metrar á breidd og takmarkast
að vestanverðu af sömu húsaröð
og nú, er að austanverðu af
Læknum, sem þá var opinn og
2,7 m á breidd. Árið 1912 var
Lækurinn lagður í steyptan
stokk, yfirbyggðan og var þá
gatan með gangstéttum beggja
megin rúmlega 12 metrar á
breidd. En 1949 var öldin orðin
önnur og bílar þurftu helst að
geta mætst. Því var ráðist í
þetta stórvirki. Þurfti m.a. að
endurnýja, flytja til og breyta
leiðslum og við verkið notuð
stórvirk tæki á þeirra tíma
mælikvarða „þ.á.m. malbiksjafn-
ari, sem gatnagerðin hafði áður
aðeins notað við Hallveigarstíg".
Við verkið unnu 80 manns og að
auki um 20 við breytingar á
leiðslum, auk allra þeirra sem
unnu að framleiðslu á efni, segir
þar. Enda þótti verkið dýrt,
kostaði 1,3 milljónir króna.
Þegar seinni akreinin var
opnuð umferð fór fram hátíðleg
athöfn. Borgarstjórinn, Gunnar
Thoroddsen, ók í bíl sínum
norður götuna, en bifreið lög-
reglustjórans fylgdi á eftir. Var
ekið norður að Lækjartorgi, en
síðan snúið við og ekið suður
eftir hinni nýju akbraut. Þegar
borgarstjórinn kom aftur, mælti
hann nokkur orð. Gat þess að
þetta væri ein fullkomnasta
gata, sem gerð hefði verið hér á
landi. Hún væri framför í skipu-
lagsmálum bæjarins og benti til
þess sem framkvæma yrði í þeim
efnum víðar í bænum. Lækjar-
gatan nýja væri mikil sam-
göngubót og þar að auki fegurð-
arauki fyrir Reykjavík.
Ekki hafði þó þessi fram-
kvæmd gengi friðsamlega fyrir
sig og ekki allir á sama máli, svo
sem sjá má af fréttum: „Bæjar-
fulltrúi Framsóknar lýsti því
yfir að hann „skyldi ekki nauð-
syn svo breiðrar götu“. Breikkun
Lækjargötu væri „grófleg árás á
Menntaskólann". „Þúfurnar í
túninu eru sögustaðir," bætti
hann við. Kvað bæjarstjórn hafa
sýnt hina mestu „fúlmennsku"
með breikkun götunnar. Urðu
blaðadeilur í ritstjórnargreinum
um hinar „sögulegu þúfur", sem
virðist hafa lokið með orðunum:
„Umbótin hefur verið fram-
kvæmd.“
Hér á síðunni má sjá myndir
frá þessum stóratburði í bæjar-
lífinu.
bessir verkamenn lögðu hönd á plóginn og var tekim af þeim mynd framan við hina
breikkuðu götu. í hópnum má þekkja, frá vinstri (föðurnöfn nokkurra vantar): Pétur
Sigurðsson. Brynjólf Gíslason, Elías Jóhannesson, ólaf, Tómas Sigurþórsson. Gest Pálsson,
Sigurjún Elíasson, Gunnlaug Bárðarson, Bjórn, óskar Jónsson, Pétur, Guðmund Jónsson,
Guðjón. Jón Eyvindsson, Guðmund Magnússon. Gunnar Tryggvason. Guðmund Þórðarson,
Guðlaug Magnússon, Jón Stefánsson, Axel Guðmundsson, Markús Sæmundsson, Þorstein,
Vilhjálm, Ásmund Þorsteinsson, Helga Sæmundsson, Sigurð Magnússon. Símon Simonarson,
Eirík Þorsteinsson. Guðlaug Stefánsson, Einar Einarsson. Stefán Guðnason, Pétur
Ilraunfjörð, Braga Kristjánsson og Þórð Jónsson.
Breikkun Lækjargötunnar var unnin 1949, undir stjórn Geirs
Þorsteinssonar verkfræðings og núverandi forstjóra Ræsis h/f.
Hér eru þeir sem stýrðu hinum ýmsu þáttum: Frá vinstri: Gestur
Stefánsson, verkfræðingur, nú i Danmörku, Rögnvaldur Þorkels-
son, verkfræðingur, Bolli Thoroddsen, bæjarverkfræðingur,
Gunnlaugur Bárðarson, flokksstjóri, Einar B. Pálsson, yfirverk-
fræðingur, Jón Eyvindsson, flokksstjóri, Guðmundur Þórðarson,
verkstjóri, Stefán Guðnason, malbikunarflokksstjóri, Guðlaugur
Stefánsson, yfirverkstjóri, Þórður Jónsson, flokksstjóri, Geir
Þorsteinsson, verkfræðingur, Ólafur Guttormsson, mælingamaður.
Þessar gatnagerðarframkvæmdir voru umfangsmeiri en nokkru
sinni hafði þekkst í Reykjavík, enda var skipt um jarðveg, leiðslur
færðar og malbikað.
Fyrstur ók eftir götunni borgarstjórinn í Reykjavík. Gunnar
Thoroddsen og lögreglustjórinn á eftir honum. Fyrst norður að
Lækjartorgi, þar sem þeir sneru við og óku aftur suður götuna.
Tveir þekktir borgarar hæjarins eru þarna komnir til að skoða
framkvæmdirnar i Lækjargötu, þeir Finnur Einarsson, þáverandi
bóksali og Iiaraldur Johannessen, aðalféhirðir Landsbankans.