Morgunblaðið - 22.11.1980, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 22.11.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1980 3 Landsfundur Alþýðubandalagsins: Tillögur um að Alþýðubandalagið sætti sig við framkvæmdir í Helgu- vík og stjórnarslit út af þeim „ATBURÐARÁSIN hérlendis og erlendis mun á næstu misserum líkt og síðasta sumar færa okkur mikinn efnivið í umrædulotur ok knýja fram afstöðu Kannvart kröfum Bandaríkjanna. Væri Alþýðubandal- agið hins vegar utan stjórnar hefðu NATO-öflin þegar tryggt þær framkvæmdir en nú eru málin öll i spennu. Stjórnarandstaðan reynir að hvetja utanríkisráðherrann til NATO-dáða,“ sagði Ólafur Ragnar Grimsson m.a. i framsöguræðu sinni um sjálfstæði þjóðar á landsfundi Alþýðubandalagsins i gær. Þorgrímur Starri Björgvinsson kvaðst vilja vara ráðherra Al- þýðubandalagsins við manni, sem væri með þeim í ríkisstjórn og héti Ólafur Jóhannesson. „Ég ætla að vara þá við þessum manni og segja þeim að trúa engu orði, sem hann segir. Hann er einn dyggasti NATO-þjónn á ís- landi og mun sitja á svikráðum í þessu máli, hvenær sem færi gefst," sagði Þorgrímur Starri. Rifjaði hann upp, er Ólafur Jóhannesson, þá forsætisráð- herra, fór til London og samdi við Edward Heath, þá forsætisráð- herra Breta, um landhelgismálið og „sveik ráðherra okkar, Lúðvík Jósepsson og Magnús Kjartans- son“. Sagði Þorgrímur Starri þá mjög hafa verið rætt um það, að Alþýðubandalagið segði sig úr ríkisstjórninni. Þorgrímur sagði Ólaf Jóhannesson hafa uppi þrennskonar tilburði til að ganga á ákvæði stjórnarsáttmálans um varnarmál. í fyrsta lagi hygðist hann ráða sér „morðfróðan" að- stoðarmann til að gera sig gild- andi í „morðáætlunum NATO“. í öðru lagi færi hann undan í flæmingi, þegar spurt væri um flugstöðvarbyggingu eða fram- kvæmdir í Helguvík. „Auðvitað vill hann þjóna sínum herrum og þeir vilja styrkja stöðu sína hér.“ Þá hefði utanríkisráðherra farið til Bandaríkjanna og „betlað að stoð fyrir þá, sem eiga þetta hús (Flugleiðir hf. — innskot Mbl.) um hlutdeild í morðtólaflutning- um til landsins”. Sagði Þorgrím- ur Starri, að ef Ölafur sýndi tilburði til þess að keyra fram- kvæmdir í Helguvík af stað, þá ættu ráðherrar Alþýðubanda- lagsins að segja stopp og hóta stjórnarslitum. „Ég spái því, að þeir þurfi ekki að fara, því Alþýðubandalagið er eftirsóttasti hlutur á íslandi til að sitja í ríkisstjórn í dag,“ sagði Þorgrím- ur Starri. Álfheiður Ingadóttir sagði Al- þýðubandalaginu hafa mistekizt að skýra fyrir fólki ótta sinn í sambandi við framkvæmdirnar í Helguvík. Fólk héldi málið snúast um mengunarvarnir og þótt þær væru aðeins yfirvarp yfir annað og meira, þá mætti ekki horfa fram hjá því að um raunverulega mengunarhættu væri að ræða af núverandi fyrirkomulagi, eins og Alþýðubandalagið hefði vakið at- hygli á á sínum tíma. Álfheiður sagðist mótfallin því að setja málið fram sem skilyrði fyrir stjórnarsamvinnu. „Við eigum að krefjast annarra valkosta. Við höfnum þessari tillögu nefndar- innar um fjórföldun tankarýmis utan vallar. Við eigum í ályktun okkar að hafa ábendingu til okkar þingflokks og ráðherra um að leitað verði fleiri leiða,“ sagði Álfheiður. Ásmundur Ásmundsson sagði 50 milljarða króna fjárfestingu og fjórföldun tankarýmis ekki koma til greina frá hendi Alþýðu- bandalagsins. Hægt væri að smíða nýja örugga tanka „í heið- inni. Það þarf ekki Helguvík til“. Sagði hann þessa fyrirætlun stór- felldan vöxt á umsvifum hersins, sem myndi hafa lamandi áhrif á áætlanir um uppbyggingu ís- lenzks atvinnulífs á Suðurnesjum og skapa grundvöll fyrir hug- myndir manna eins og Karls Steinars Guðnasonar, um fríiðn- svæði á Keflavíkurflugvelli. „Hin almenna þögn í stjórnarsáttmál- anum um herstöðina á að vera vísbending til okkar ráðherra um að hugmyndir utanríkisráðherra ganga þvert á þegjandi sam- komulag um að ekkert verði gert í þá átt að auka umsvif hersins," sagði Ásmundur. Oddbergur Eiríksson sagði svo illa hafa tekizt til, þegar stefna Alþýðubandalagsins í Helguvík- urmálinu hefði verið mótuð í Reykjavík, að menn hefðu ekki sett sig inn í málið. Sagðist hann hafa verið búsettur í Njarðvík síðan 1941 og það sveitarfélag eitt hefði orðið fyrir „virkilegum átroðningi af völdum hersetunn- ar“. Olíugeymasvæðið væri rétt fyrir ofan byggðina og við hliðina á vatnstönkum Njarðvíkinga. Sagðist Oddbergur viss um, að Reykvíkingar hefðu aldrei leyft olíutanka á sínu vatnsöflunar- svæði og hefðu frekar „fórnað einhverju svæði niður við sjó“. Flutningur þessara tanka væri búinn að vera baráttumál Njarð- víkinga lengi og hefði ekkert haggast í málinu fyrr en nú. Um staðsetningu nýrra tanka í Helguvík sagðist Oddbergur full- yrða að þær hugmyndir væru frá íslenzkum skipulagsaðilum komnar. Bent hefði verið á nokkr- ar lausnir, en heimamönnum litist einna skást á Helguvík. „Mér fellur illa að tengja þetta stóra mál okkar Njarðvíkinga við herstöðvarmálið. Mér svíður þetta,“ sagði Oddbergur. Jóhann Geirdal sagði tillögu kjördæmisráðs Alþýðubanda- lagsins í Reykjaneskjördæmi um stjórnarslit, ef af framkvæmdun- um í Helguvík yrði, ekki til komna vegna þess að menn horfðu fram hjá mengunarhættu af núverandi fyrirkomulagi. Hug- myndir um framkvæmdir - í Helguvík væru heldur ekki fram komnar vegna mengunarhætt- unnar, heldur vegna áætlana um 353% aukningu birgðarýmis hersins. „Ég skil ekki, að til þess að koma 60 rúmmetra rými í sæmilegt horf, skuli þurfa 212 rúmmetra," sagði Jóhann. Kvaðst hann reiðubúinn til að flytja sérstaka tillögu um mengunar- málið. Hitt væri svo, að fram- kvæmdunum í Helguvík fylgdu áfram geymar á vellinum sjálf- um. „Við viljum skerða svæði hersins, en ekki láta hann fá annað svæði,“ sagði Jóhann. Hann sagði nauðsynlegt fyrir ráðherra flokksins að fá skýr fyrirmæli landsfundarins um, hvernig þeir ættu að bregðast við tilraunum utanríkisráðherra til að koma Helguvíkurframkvæmd- unum af stað. Þetta væri ekki vantraust á ráðherrana, heldur treystu flutningsmenn þeim svo vel að þeir vildu sýna þeim stuðning, sem ráðherrarnir ættu heimtingu á að fá. „Við okkur er sagt, að við séum með þessari tillögu að segja Alþýðubandalag- inu að slíta stjórnarsamstarfinu. Ég spyr á móti. Er með því verið að segja, að búið sé að taka ákvörðun um framkvæmdir í Helguvik?" sagði Jóhann. Toyota ÚRVALT* 1981! Sjón er sögu ríkari 9 módel Splunkuný Opiö í dag frá kl. 13. -17. Opið sunnudag frá kl. 10.-17. ® TOYOTA UMBOÐIÐ NÝBÝLAVEGI KÓPAVOGI SÍMI 44144 B.lrl gaðl — og fljótarl þfónuata • þaðar alnkannl TOYOTA H IÐ 5 WFli 8 f| DGI |

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.