Morgunblaðið - 22.11.1980, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 22.11.1980, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1980 Kór • • Oldutúns- skóla 15 ára: „Á lauKHrdaxinn 22. nóvember eru liðin nákva mlesa 15 ár frá stofnun kórs Öldutúnsskóla í Hafnarfirói. I>að var þó ekki fyrr en lontíu seinna að ég vissi að þessi sami dagur er da«ur heil- attrar Sesselju, sem er vcrndar- dýrlingur tónlistarinnar.“ Þetta segir Egill Friðleifsson, tón- menntakennari, sem stjórnað hefur kór Öldutúnsskóla frá upp- hafi. Ilvort þessi skemmtileKa tilviljun hefur ráðið einhverju um velgenKni ok vöxt þessa kórs á undanfornum árum skal ósaKt látið, en viðtökur á sönKmótum ok álit færustu tónlistarmanna á þessu sviði bera þess vitni, að kórinn er heimsfræKur víðar cn í Ifafnarfirði ok hefur lönKU sprenKt af sér þann ramma ok þær kröfur, sem venjuleKa eru Kerðar til skólakóra. í tilefni afmælisins átti blm. viðtal við EkíI «k hað hann um að seKja söku þessa kórs í stuttu máli. EkíII Friðlcifsson stjórnar samsönK Tapiola-kórsins ok kórs Öldutúnsskóla á Bessastöðum. „Eitthvað óumrœði- lega jákvœtt og gott fglgir barmröddinni“ Frá tónleikum kórs Öldutúnsskóla í Kennedy Center í WashinKton. í ferðinni sönK kórinn i Karði Hvíta hússins. sönKurinn stóð sem hæst, flugu þotur yfir Hvíta húsið og svana- söngurinn okkar hafði lítið í þotu- drunurnar að gera. Þrískiptur kór Á tónleikunum, sem kórinn heldur í dag, verða þrír hópar nemenda. í fyrsta lagi syngur „litli kórinn", sem er undirbúningskór fyrir börn á aldrinum 8—9 ára. I öðru lagi kemur fram hópur nem- enda, sem flestir eiga það sameig- inlegt að vera farnir úr skólanum, en halda enn tryggð við kórinn og syngja. Þetta kalla ég „úrvalshóp- inn“, og í honum eru stúlkur á aldrinum 15—18 ára. Strákarnir detta eins og eðlilegt er út við fjórtán ára aldur þegar þeir fara í mútur. Sumar þessara stúlkna hafa sungið í kórnum í allt að tíu ár. I þriðja lagi syngur svo hinn eiginlegi kór, aðalkórinn, sem telur nú rúmlega 50 nemendur. Þannig hefur starfið vaxið og aukist á alla kanta og er reyndar fyrir bragðið orðið tímafrekara og erfiðara." Varla komast allir að sem vilja? „Nei, það segir sig sjálft. Það er því miður ekki hægt að taka við öllum þeim fjölda, sem sækir um inngöngu í kórinn. Ef allir væru í kórnum sem þess óskuðu, þá væri ég með 400 börn í stað hundrað, og þá þyrfti maður að leigja Laugar- dalshöll við hverja æfingu. Þar að auki verður að segjast eins og er að það hafa ekki allir þá lágmarks- hæfni, sem verður að vera fyrir hendi, t.d. einfaldan hlut eins og að halda lagi. Annars er í langflestum Erkki Pohjola. „Árið 1965, þegar ég útskrifaðist úr tónmenntakennaradeild Tón- listarskólans í Reykjavík, réðist ég til Öldutúnsskóla og stofnaði kór- inn. I fyrstu voru þetta aðeins nokkrir krakkar, en ég hafði mik- inn áhuga á þessu og tók starfið mjög alvarlega strax frá upphafi. Eg var heppinn með nemendur og síðan þá hefur starfið vaxið jafnt og þétt. Tveimur árum síðar fékk ég tækifæri til að dveljast við nám erlendis sumarlangt og kynntist ég þá finnskum stjórnanda, Erkki Pohjola. Það má segja að þau kynni hafi skipt sköpum í mínu starfi. Þessi maður er ákaflega fær og snjall stjórnandi og söngkenn- ari og hann gaf mér ýmsar góðar ábendingar. Árið 1968 fór kórinn svo sína fyrstu ferð einmitt til Finnlands á norræna barnakóra- mótið, sem haldið var þar. Eftir kynni mín af Pohjola varð mér Ijós sá gífurlegi munur sem er á þjálfun barnsraddar og fullorð- insraddar. Þegar börn eru þjálfuð er í fyrstu ekki lögð svo mikil áhersla á röddina sjálfa, heldur miklu fremur einbeitni og athygli, síðan heyrn og loks röddina sjálfa. Því ef einbeitingin og athyglin eru ekki fullnægjandi, næst ekki tilætlaður árangur með röddinni. Pohjola er hreinasti galdramaður á þessu sviði, og nú í sumar veittist okkur sú ánægja, að fá kór hans, Tapiola-kórinn, hingað til lands og söng hann víða við mjög góðar undirtektir. Meðlimir Tapiola-kórsins bjuggu á heimilum kórfélaga í Öldutúnsskólakórnum og rómuðu þeir allir frábæra gestrisni, sem þeim var sýnd. Ég vil nota tæki- I.jósm. Emilía. Frá æfingu kórsins á miðvikudag. færið og þakka foreldrum barn- anna fyrir ómetanlega aðstoð. Án hennar hefði heimsókn Tapiola- kórsins aldrei getað orðið. Síðasti dagur kórsins hér var mjög eftirminnilegur. Þá söng kórinn við messu í Bessastaða- kirkju og að því loknu var móttaka hjá forseta íslands. Boðið til Kennedy Center Á þessum fimmtán árum hefur kórinn ferðast mikið. Við höfum farið sex sinnum utan og sungið í fjölda landa í þremur heimsálfum. Síðast fórum við til Kanada og Bandaríkjanna. í Kanada tókum við þátt í alþjóðaþingi tónlistar- uppalenda (International Society for Music Education), sem er deild innan UNESCO. Þaðan héldum við til Washington, en við höfðum fengið boð um að taka þátt í alþjóðlegu ungkóramóti í Kennedy Center, sem er ein helsta lista- miðstöð Bandaríkjanna. Þessi ferð er mjög eftirminnileg að tvennu leyti sérstaklega. Við sungum í stóra salnum, sem tekur um þrjú þúsund manns og ég hef aldrei fyrr né síðar komið í sal, sem hefur jafn góðan hljómburð. Það skiptir sérlega miklu máli að hljómburð- urinn sé góður þegar um er að ræða jafn viðkvæmt hljóðfæri og barnakórinn er, og þarna var hann aldeilis frábær. Á ferðalaginu barst okkur boð, sem kom okkur reyndar mjög á óvart, um að koma og syngja í garði Hvíta hússins. Þar eru oft ýmsar uppákomur og þykir mikill heiður að fá að syngja þar. Síðan var okkur boðið inn í Hvíta húsið og okkur var leiðbeint þar um sali. Þetta var í lok ágúst 1978. Carter forseti var þá ekki heima sjálfur, fundaði með Sadat og Begin í Camp David, en við fengum afhent skjal áritað af honum, þar sem okkur var þakkað fyrir komuna. Þessi söngur okkar í garði forseta- hallarinnar var okkur minnisstæð- ur, ekki síst fyrir það, að þegar t tilfellum rangt að segja að barn sé „laglaust" nær væri að segja „lagvillt". Visst sambandsleysi milli heyrnar og raddar veldur þessu og oftast má laga þetta með þjálfun. Þetta stafar yfirleitt af notkunarleysi raddarinnar eða þá að viðkomandi notar ekki meðvitað heyrnina með. Skilningur yfirvalda rýr Skólakórar á Islandi hafa átt við ýmsa erfiðleika að etja. Til dæmis hefur ekki verið gerð ákveðin grein fyrir stöðu skólakóra í skólakerf- inu. Það er hvorki áætlaður ákveð- inn tími til þessa starfs né fjár- munir. Þessu hefur verið reynt að breyta á undanförnum árum en með litlum árangri. Það verður að segjast eins og er, að um leið og starfsemi kórsins hefur aukist og í raun og veru margfaldast í gegn- um árin, þá hefur skilningur fræðsiuyfirvalda ekki fylgt eftir að sama skapi, því miður. Nýlega fórum við Jón Karl Einarsson, formaður tónmenntakennarafé- lagsins, á fund menntamálaráð- herra, til þess að knýja á breyt- ingar og umbætur í þessu máli. Ráðherrann tók okkur ljúflega, eins og reyndar allir forverar hans hafa gert, en við erum að vona að málið verði nú tekið föstum tökum og afgreitt, það er löngu kominn tími til þess. Oft er kórstarfið ánægjulegasti og jafnframt árangursríkasti þátt- ur tónmenntakennslunnar. Skóla- «

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.