Morgunblaðið - 22.11.1980, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 22.11.1980, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1980 • ÞorberKur Aðalsteinsson, stórskyttan í Víkinxi. er óánægður með störf landsliðsþjálfarans. eru mjög óánægðir með störf þjálfarans „Jú það er rétt við Víkingar erum mjög óánægðir með vinnubrögð landsliðsþjálfarans og höfum hugieitt að draga okkur út úr landsliðshópnum. I>að er samt ekki endanlega ákveðið, við ætl- um að halda fund um málið.“ Þetta sagði handknattleiksmað- urinn Þorbergur Aðalsteinsson er Mbl. ræddi við hann í gærdag og innti hann eftir þvi hvort eitthvað væri hæít í þeim sögu- sögnum að Vikingar myndu ekki gefa kost á sér i landsiiðið i vetur. Þegar Þorbergur var spurður að því hvað það væri sem Víkingar væru helst óánægðir með sagði hann. — Okkur finnst Hilmar landsliðsþjálfari vera algjörlega stefnulaus í uppbyggingu sinni. Leikmenn ekki notaðir á réttum stöðum og innáskiptingar eru allt- of örar. Eg persónulega er mjög óánægður hversu lítið ég fékk að leika með í Noregi á Norðurlanda- meistaramótinu. Útkoma okkar þar var afar slök að mínu mati. Þá snýr þetta mál líka að þjálfara okkar í Víkingi, Bodan. Hann hefur sagt við okkur að ef við séum ekki notaðir á fullu í lands- liðinu þá sé best fyrir okkur að einbeita okkur að félagsliði okkar og er það vel skiljanlegt. Það er rétt að fram komi að við Víkingar erum ánægðir með störf HSI, óánægja okkar beinist eingöngu að störfum landsliðsþjálfarans. Margt fleira mætti segja um mál þetta en það er best að það bíði betri tíma og þangað til við höfum tekið endanlega ákvörðun í málinu sagði Þorbergur að lokum. Að undanförnu hafa fjórir Vík- ingar verið í landsliðinu í hand- knattleik, þeir Þorbergur Aðal- steinsson, Páll Björgvinsson, Ólaf- ur Jónsson, sem hefur um nokkurt skeið verið fyrirliði liðsins, og Kristján Sigmundsson markvörð- ur. Islenska landsliðið í hand- knattleik á mikið og stórt verkefni framundan þar sem B—keppnin í handknattleik er í Frakklandi í febrúar. Það er því slæmt ef einhver ágreiningsefni eru að koma upp á milli sumra leik- manna í landsliðshópnum og þjálfarans. Þau mál geta ekki verið það stórvægileg að ekki sé hægt að sætta þau. Hilmar Björnsson er margreyndur þjálf- ari með mikla reynslu og hann hlýtur að vera að þreifa fyrir sér með örum innáskiptingum og fleiri tilraunum. Það má ekki gleymast að sameinaðir stöndum vér en sundraðir föllum vér og þar sem heimsmeistarakeppni er framundan þarf ísland á öllum sínum bestu leikmönnum að halda. — ÞR. KJARTAN Másson hefur verið ráðinn knattspyrnuþjálfari ÍBV fyrir næsta keppnistimabil. Kjartan hefur verið aðstoðar- þjálfari síðustu þrjú sumrin, en þá hefur Viktor Ilelgason verið við stjórnvöiinn. Kjartan þekkir því vei til Eyjaliðsins og veit öruggiega hvernig ná á því besta út úr liðinu. — hkj. Fundur KEPPNI lauk í dönsku knatt- spyrnunni um siðustu helgi og var síðasta umferðin eftirminni- leg fyrir ýmsar sakir. Þannig æxiaðist, að KB og Næstved áttust við i síðustu umferðinni. en þar var um hreinan úrslitaleik að ræða, þar sem þau deildu efsta sætinu fram að siðustu umferð- inni. KB nægði jafntefli, þar sem markatala íiðsins var skárri. Næstved varð hins vegar að sigra. Og allt stefndi i öruggan sigur Næstved, þegar þrjár mín útur voru til leiksloka stóð 1—0. En þá gerðist það. að maður að nafni Hans Aabech sieit sig frá „yfirfrakka“ sínum og skallaði knöttinn glæsilega í netið hjá Næstved. Jafnteflið var tryggt og Aabech steig villtan sigurdans ásamt félögum sínum í leikslok. Ferill þessa manns hefur verið nokkuð furðulegur og skal hér að nokkru rakinn. Hann hóf ekki að leika knatt- spyrnu fyrr en hann var 19 ára. Fyrir vikið hefur hann aldrei þótt leikinn, en markheppinn hins veg- ar með afbrigðum. Hann lék með Hvidovre og stóð sig frábærlega. Eftir besta keppnistímabilið, 1973, gerðist hann atvinnumaður hjá FC Brugge. En það átti ekki við hann og hann hætti eftir tæpt ár. Hann fór þó ekki heim, heldur dvaldist í 6 ár í Belgíu, gifti sig og fleira. Síðan kom hann heim og fór fljótlega að reyna fyrir sér hjá dönskum liðum. Eðlilega lá leiðin fyrst til Hvidovre, en ekkert gekk. Var Aabech farinn að leika með liði í 6. deild, er hann fékk þá hugdettu að sækja um vinnu hjá KB. Var hann síðan ráðinn sem vallarstarfsmaður hjá KB! Fljót- lega fór hann að æfa með liðinu og gerði slíka lukku, að hann var kominn í aðallið KB áður en langt um leið. A siðasta keppnistímabili gerði hann sér lítið fyrir og skoraði 19 mörk í deildarkeppn- inni og var markhæstur. Mörk hans voru ekki síst úrslitaþáttur- inn sem færði KB Danmerkur- meistaratitilinn. Þrátt fyrir velgengnina, er Aab- ech sem fyrr vallarstarfsmaður hjá KB. Aabech erfði „baróns"- nafnbót frá föður sínum og varla eru margir barónar nú til dags starfandi verkamenn. En Aabech er hreint sama um allt slíkt og segist aldrei hafa lifað betri daga en þá sem nýloknir eru. „Mér hefur gengið prýðilega að sameina titlana," segir Aabech. Daniel Pasarella, fyrirliði argentínska landsliðsins í knattspyrnu, þykir vera með grófari knattspyrnumönnum sem fram hafa komið. Eigi alls fyrir löngu ræddi blaðamaður nokkur mjög opinskátt við Pasarella og spurði hann meðal annars hvort hann liti á sjálfan sig sem grófan leikmann. Sumt af því sem Pasarella missti út úr sér við þetta tækifæri var skrautlegt, en hann sagði m.a: — Sko, ég þykist ekki vera engill með geislabaug. Ég er ekki grófari en næsti maður. Hins vegar gerist margt í knattspyrnu- leik og margt af því er best gleymt en ekki geymt. Eg skil ekki í þeim sem kveina er þeir meiða sig, aldrei hef ég kveinað. Og ég hef aðeins verið rekinn út af fjórum sinnum á sex ára ferli mínum hjá River Plate. Það segir meira en mörg orð. Nei, ég er bara fastur fyrir og ekkert annað. Að vísu er nauðsyn- legt að sparka öðru hvoru í framherja til þess að þeir beri tilhlýðilega virðingu fyrir manni(!). Fólk er alltaf að klifa á því hvernig ég braut á Neeskens í úrslitaleiknum á HM. En næstum allir Argentínumenn hefðu gert það sama. Þá geta menn ekki gleymt og spyrja mig alltaf hvers vegna ég barði Kevin Keagan. Ég barði hann alls ekki, ég bara snerti hann tvisvar eða þrisvar(!). Menn mega ekki gleyma því að afbrot eru eitt af helstu vopnum varnarmanna, stór þáttur í úr- ræðasafni þeirra. Ef einhver á borð við Rene Houseman eða Diego Maradona kemur æðandi að mér með knöttinn við fæturna, hugsa ég ekki um að taka af þeim knöttinn, ég einbeiti mér að því að stöðva manninn með öllum tiltæk- um ráðum. Helmingur allra leikmanna í Suður-Ameríku fer í návígi með takkana á lofti. Knattspyrnumenn í Evrópu fara hins vegar löglega í slík návígi. Þá spyr fólk hvers vegna við gerum þetta og hvers vegna við reynum á þennan hátt að slasa mótherjana. Sannleikur- inn er hins vegar sá, að það er engin leið að vita hvort maður meiðir mótherjann(!). Ekki verður annað sagt, en að sum tilsvör kappans séu skrautleg, en hann klikkir út með eftirfar- andi orðum: — Jæja, ég vil ekki tala meira um þetta, ég nýt virðingar meðal almennings um heim allan, en heima í Argentínu segja allir að ég sé grófur og hættulegur. • Sköllótti baróninn, Ilans Aabech, sprautar kampavíni yfir sig að loknum leik KB og Næstved. SUNNUDAGINN 23. nóvember 1980 heldur Dómaranefnd KKÍ fund í Vogaskóla, Reykjavik. Fundurinn verður kl. 10.00 f.h. Á þessum fundi verða ræddar helstu breytingar, sem orðið hafa á reglunum siðasta árið. Nefndin vill hvetja alla dómara í körfu- knattleik til að mæta og fundur- inn er opinn öll aðilum sem vilja kynna sér reglurnar og túlkanir á þeim. Það væri æskilegt að þjálfarar liða mættu sem flestir. • Pasarella þykir oft •rrófur leikmaður. Draga Vikingar sig út úr landsliðinu Sköllótti baróninn færði KB titilinn Kjartan þjálfar „Ég barði hann ekki bara snerti hann"

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.