Morgunblaðið - 22.11.1980, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1980
Jöklarannsóknafélag ís-
lands er 30 ára, var stofnað
22. nóvember 1955. Fyrir
fáum dögum efndu jökla-
menn af því tilefni til fagn-
aðar, þar sem m.a. voru
heiðraðir nokkrir félagar,
sem flestir hafa allt frá
upphafi lagt starfsemi Jörfa
til allt sem þeir máttu,
ómældan tíma. erfiði og
áhugi á viðfangsefnum fé-
lagsins. Þeir eru Gunnar
Guðmundsson, Hörður Haf-
liðason, ólafur Nielsen,
Magnús Jóhannsson, Eggert
Briem og Þórarinn Bjarna-
son.
Við sama tækifæri rakti for-
maður félagsins, dr. Sigurður
Þórarinsson með þessum orðum
upphaf Jöklarannsóknafélags Is-
lands og helstu viðfangefni fé-
lagsins á þessum 30 árum: Þrjá-
tíu ár er allhár félagsaldur. Ekki
er ýkja langt síðan, að sá aldur
jaðraði við mannsaldur, en þrír
mannsaldrar voru taldir í öld.
Ofarlega er okkur í huga sá
maður, sem segja má með litlum
ýkjum, að hafi einn stofnað
þetta félag, Jón Eyþórsson veð-
urfræðingur. Hann sameinaði
þann áhuga, þann dugnað og það
úthald, sem þurfti til þess að
koma þessu félagi á laggirnar og
það sem er enn erfiðara, að
koma því til nokkurs þroska.
Stofnfundur félagsins var
haldinn í Tjarnarkaffi 22.
nóvember 1950 og þá skráði sig
41 maður í félagið. í fyrstu
aðalstjórn voru Jón Eyþórsson,
formaður, Guðmundur Kjart-
ansson, ritari, og Sigurjón Rist,
gjaldkeri. Hefur Sigurjón setið í
stjórninni öll þessi 30 ár. Mark-
mið félagsins samkvæmt
stofnskrá þess var að stuðla að
rannsóknum og ferðalögum á
jöklum landsins og gangast fyrir
fræðandi fyrirlestrum um jökla
og myndasýningum þegar að-
stæður leyfðu. Fullyrða má, að
félagið hafi í 30 ára starfsemi
sinni verið trútt þessari
stofnskrá. Það hefur stuðlað að
jöklarannsóknum og ferðalögum
á jöklum með þrennum hætti:
1) Með leiðongrum. Félagið
hefur gert út fjölmarga leið-
angra, aðalleg á Vatnajökul,
bæði í rannsóknar- og hress-
ingarskyni. Fyrsti rannsóknar-
leiðangurinn, og einn hinn ár-
angursríkasti vísindalega, var
farinn þegar á fyrsta starfsari
félagins. Það var Fransk-
íslenski Vatnajökulsleiðangur-
inn í mars-apríl 1951, sem kann-
Á Vatnajökli eftir Grimsvatnahlaup. ísþekjan hefur fallið í
vötnunum og myndast stórgjár. En leiðangrar til Grimsvatna
haía smám saman leitt til þess að gáta Skeiðarárhlaupa er að
mestu ráðin.
Ljósm. E.Pá.
Jöklarannsóknafélag
íslands
30 ára
síðasta, og Esjufjallahúsið fauk í
ofviðri.
Jöklarannsóknafélagið á nú
sjö skála. Tveir eru í Jökulheim-
um, miðstöð félagsins, og var sá
eldri reistur 1955, en sá yngri og
stærri áratug síðar. Á Gríms-
fjalli var reistur skáli 1957 og er
enn það hús er hæst ber á
íslandi. Skálar voru reistir í
Kverkfjöllum og Esjufjöllum
1977 og samskonar hús við
Fjallkirkju á Langjökli og á
Goðahnjúk austarlega á Vatna-
jökli 1979. Síðastnefndir fjórir
skálar voru reistir að nokkru
með styrk frá Ferðafélagi ís-
lands og Ferðamálaráð hefur
einnig stutt skálabyggingar fjár-
hagslega, en fyrst og fremst er
Ómetanleg stoð jökla-
rannsókna hérlendis
aði með bergmálsmælingum
þykkt jökulsins. Meðal síðari
leiðangra má nefna þá mörgu
leiðangra til Grímsvatna, sem
smám saman hafa leitt til þess,
að gáta Skeiðarárhlaupa er að
mestu ráðin. Þá má nefna borun-
arleiðangurinn á Bárðarbungu
1971 og leiðangra á Vatnajökul
og Mýrdalsjökul til radarmæl-
inga á þykkt þessara jökla, er
veita miklu nákvæmari upplýs-
ingar um landslagið undir jökl-
unum en gömlu bergmálsmæl-
ingarnar.
2) Mað skálabyggingum.
Þegar á fyrsta starfsári var
reistur braggaskáli við Hálfdán-
aröldu á Breiðamerkursandi og
járngrindaskáli syðst í Skála-
bjargarima í Esjufjöllum. Frum-
stæðir skálar báðir tveir, en hafa
þó gert sitt gagn. Skálinn undir
Hálfdárnaröldu hefur sérstak-
lega verið nýttur af breskum
vísindamönnum við víðtækar
rannsóknir á Breiðamerkur-
sandi, en fer nú að syngja sitt
Borað með
handbor í
snjógryfju í
Grímsvötnum.
Gunnar Guð-
mundsson er
einn þeirra
sem félagið
heiðraði á 30
ára afmælinu
fyrir framlag
sitt, með
ómældum
áhuga og erf-
iði.
Mynd H.B.
það þó framtak og óeigingjörn
atorka allmargra félaga okkar,
sem hefur komið þessum skálum
upp.
3) Með útgáfu Jökuls. Þegar
á fyrsta ári félagsins kom út
fyrsti árgangur tímaritsins Jök-
ull. Sá þrítugasti er nú á leiðinni
í prentsmiðjuna. Ég held, að við
getum verið sæmilega ánægð
með þetta tímarit okkar, bæði
búning þess og efni. Frá upphafi
hefur kostnaðurinn við það verið
borinn upp að mestu af árgjöld-
um félagsmanna, sem nú eru um
600, en nú er svo komið, að
aðstoð hins opinbera er okkur
nauðsynleg fyrst um sinn a.m.k.
og þakka ég viðkomandi stjórn-
völdum skilning á þessum vanda
okkar og veitta fjárhagsaðstoð.
Ritið er nú gefið út af Jökla-
rannsóknafélaginu og Jarð-
fræðafélaginu í sameiningu og
hefur svo verið í raun alllengi,
þótt ekki hafi það verið formlega
fyrr en með tveim síðustu ár-
göngunum.
Skálinn á Grímsfjalli í miðjum Vatnajökli er það hús, sem hæst ber á íslandi.
Jöklarannsóknafélagið á nú sjö skála. Tveir eru í Jökulheimum, miðstöð
félagsins. Sá eldri reistur 1955, en sá stærri áratug siðar.
Ljósm. Pétur Þorleifsson