Morgunblaðið - 22.11.1980, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.11.1980, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1980 Tryggvi Jónasson, kiropraktor: í FÆREYJUM er nýlega komin út kristileg barna- plata með söngflokknum Nikodemusarsöngbólkn- um. Á þeirri plötu koma tveir íslendingar við sögu, þeir Björgvin Ilalldórsson og Magnús Kjartansson. sumir íslendingar við M.C. Restorff þar sem hann rek- ur Hótel Hafniu í Þórshöfn í Færeyjum ásamt bróður sínum og föður. Þeir útsetja eitt laganna Loksins tú fannst meg (Loksins þú fannst mig) og Björgvin útsetur lagið “Sunnudagaskúlin" ásamt Færeyingnum M.C. Rest- orff sem gert hefur alla textana á plötunni auk þess sem hann syngur í söng- flokknum. TryKKVi hnykkir á. Mynd Mbl. Kristján. Nikodemusarsöngbólkur- inn heimsótti Island á sl. ári og söng hjá Sjónarhæð- arsöfnuðinum á Akureyri. Auk þess kannast kannski Guðmundi Daníelssyni haldið „eitt örlitið morgun- samsæti44 Mestu tölvukaup Islandssögunnar Eins og kunnugt er varð Guðmundur Daníelsson sjötugur fyrir skömmu. í tilefni af því, hélt starfsfólk Gagnfræðaskólans á Selfossi honum og konu hans, Sigríði Arinbjarnadóttur „eitt örlítið morgunsamsæti" eins og Suðurland orðaði það. Þar var Guðmundi afhent stytta. A mynd Suðurlands sést Guðmundur ásamt konu sinni og Óla Þ. Guðbjartssyni, skóiastjóra, en hann afhenti skáldinu styttuna. Úr Frjálsri verzlun: Nú stendur fyrir dyrum frekari tölvuvæðing viðskiptabankanna og berjast nú sex aðilar um viðskiptasamning, sem eftir því sem Frjáls verzlun kemst næst, verður stærsti einstaki tölvu- samningur íslandssögunnar. Um verður að ræða algera tölvuvæð- ingu hinna almennu afgreiðslu bankanna, og munu þeir líklega standa saman um innkaupin. Aætlað er að um geti verið að ræða samning upp á meira en tvo milljarða króna. Þeir sem boðið hafa í tækin eru: Einar J. Skúla- son með Kingslay, IBM, Guð- mundur R. Ingvarsson með Nix- Afkoma verzlunarinnar versnar dorf, Skagfjörð með Data- saab,NCR og Skrifstofutækni með Olivetti. Kunnugir telja að líklegasta val bankanna séu tækin frá IBM eða Olivetti. IBM býður reyndar tæki, sem fremur eru sniðin að banda- rískum þörfum en evrópskum, en styrk staða á íslenzkum tölvu- markaði hjálpar fyrirtækinu. Oli- vetti býður mjög fullkomin tæki á góðu verði og gerði fyrirtækið nýlega samning við dönsku bank- ana um svipaðar tölvur og hér er um að ræða upp á $200 milljónir en um 40.000 slíkar tölvur eru nú í notkun í heiminum. Þá eru Nix- dorf-tækin talin mjög góð og sama má segja um NCR, en þær tölvur eru í efri kantinum hvað verð snertir. Búast má við að gengið verði frá kaupum bankanna seinni hluta næsta árs. Níu af hverjum tíu hafa hryggskekkju „NÍU af hverjum tíu sem til mín leita hafa hryggskekkju en það er ein ástæða þess, að fólk leitar til mín. Hins vegar er það ekki alltaf hryggskekkja sem slík, sem er til meðferðar, heldur afleiðingar hennar — vöðvabólgur, verkur í mjó- hrygg og af þessu leiðir höfuð- verkur og fleiri kvillar,“ sagði Tryggvi Jónasson, kiropraktor i samtali við hlaðamann. „Það var oft viðkvæði gamals fólks, að það rak börn snemma í rúmið. Óafvitandi ef til vill og þá til að láta börnin hvíla hrygginn svo hann þroskaðist eðlilega. Það er nú svo, að þegar einstaklingur stendur uppréttur þá vex hrygg- urinn hægar. Það er í hvíld — þegar einstaklingurinn liggur út- af að hryggurinn þroskast og vex eðliiega. Brjóskin fá næringu en þau hafa ekki tækifæri til þess þegar einstaklingur stendur upp- réttur. Þetta leiðir hvað af öðru — ef hryggurinn nær ekki að hvílast eðlilega, vaxa og dafna, þá mynd- ast spenna og í kjölfarið vöðva- bólgur. Fólk leitar þá í stellingar sem það af reynslunni veit að veldur ekki sársauka. Þannig myndast oft hryggskekkja. Það þarf vart að taka það fram, að mikilvægi þess að ein- staklingur sé vel upplagður í vinnu er gífurlegt. Það leiðir af sér betra líf, betri vinnunýtingu og þannig fram eftir götunum. Því miður hefur þessu verið alltof lítill gaumur gefinn," sagði Tryggvi ennfremur. Björgvin Halldórsson Plötur:| Magnús Kjartansson Björgvin og Magnús útsetja í Færeyjum Úr Frjálsri verzlun: Horfur eru á að afkoma heild- verslunar haldi áfram að versna á þessu ári. Á síðasta ári fór hreinn hagnaður fyrir skatta niður fyrir 1% af tekjum, samkvæmt bráða- birgðatölum Þjóðhagsstofnunar og var það í fyrsta sinn á þessum áratug, sem hagnaður fer niður fyrir tvö prósent. Gerir Þjóð- hagsstofnun ráð fyrir að enn halli undan fæti hjá heildverslun á þessu ári og að hagnaður fari jafnvel niður fyrir eitt prósent. Til samanburðar var hagnaður á bil- inu 3,5% til 4,1% á árunum 1971 til 1976 en árin 1977 og 1978 var hann 2,3% og 2,2%. Þetta kom fram í ræðu Ólafs Davíðssonar forstjóra Þjóðhags- stofnunar á fundi hjá Félagi stórkaupmanna nýlega. Ólafur hafði að vísu eðlilega fyrirvara á þessari spá, sem byggir á forsend- um gamla skattakerfisins og óbreyttu hlutfalli umboðslauna. En hvað sem því líður er tilhneig- ingin skýr og óyggjandi. Ástæðurnar fyrir þessu taldi Ólafur vera örar kostnaðarhækk- anir og samdrátt í innflutningi. Ford fær Suzuki Úr Frjálsri verzlun: Búast má við því að á næstunni HLAÐVARPINN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.