Morgunblaðið - 22.11.1980, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 22.11.1980, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1980 25 KXAdÐQiJKTCKX HÉR FER á eftir i heild ræða sú. sem ólaíur Jóhannesson, utan- rikisráðherra flutti á Madrid- ráðstefnunni í siðustu viku: Ég vil leyfa mér að óska spönsk- um stjórnvöldum til hamingu og færa þeim mínar bestu þakkir fyrir frábærar móttökur. Það er mjög við hæfi að Spánn, sem hefur tekist að yfirvinna örðugleika sína og verða að nýju eitt af lýðræðisríkjum Evrópu, skuli verða vettvangur þessarar tilraunar okkar til að leysa ýms grundvallarvandamál Evrópu og samskipta austurs og vesturs. Ég ætla mér ekki í þessari ræðu að reyna að fara ofan í saumana á störfum undirbúningsnefndar þessa fundar. í 2 mánuði hefur verið reynt til þrautar, en án árangurs, að undirbúa dagskrá og eða til þess stóðu að minnsta kosti einlægustu vonir — að þróun sem myndi færa þjóðir okkar nær hver annarri, auka gagnkvæman skiln- ing og skapa þannig traust og trúnað milli aðildarríkjanna. Það er tilgangur þessa fundar að athuga hver er staða okkar nú og reyna að styðja að þessari þróun. Ytri aðstæður gætu hins vegar hafa verið hagstæðari þegar við komum nú hér saman. Sovétríkin og Afganistan Ég hygg að flest aðildarríki hafi viðurkennt hin nánu tengsl milli friðar og öryggis í Evrópu annars vegar og hins vegar í öðrum hlutum heims. Öryggisleysi sem hlýst af ástandi í einum heims- \ hvað síst um þá þætti, sem varða mannleg samskipti. Fortíð og framtíð Við eigum hins vegar ekki að láta umræður okkar snúast upp í illdeilur, heldur miklu fremur að verða eins jákvæðar og mögulegt er. Við þurfum að ræða um fortíðina. Við þurfum að geta um 011 þau atriði, sem við teljum að á skorti að framkvæma. Framtíðin er hins vegar mikilvægari en fortíðin. Við verðum því fyrst og fremst að reyna að leita leiða til samkomulags um þau atriði, sem okkur greinir á um. Og við verðum að ná sem allra fyrst betri árangri við framkvæmd allra ákvæða lokasamþykktarinnar. Því hefur verið haldið fram að það séu langtíma markmið, sem ísland og A-Evrópa ísland hefur um langt skeið átt góð viðskipti við löndin í Austur- Evrópu, sem verið hafa báðum aðilum til hagsbóta. Við styðjum eflingu viðskipta og aukna sam- vinnu að því marki er þjóðirnar sjálfar vilja á sviði efnahags-, vísinda- og tæknimála. Við álítum að Efnahagsnefnd Sameinuðu þjóðanna fyrir Evrópu eigi áfram að gegna lykilhlutverki á þessum sviðum. Greiða verður fyrir við- skiptasamböndum og auka þarf upplýsingasta'rfsemi á sviði við- skipta. Efling mannlegra sam- skipta, aukið upplýsingastreymi og aukin menningarsamskipti eru afar þýðingarmikil atriði. Al- menningur fylgist náið með að framkvæmd séu ákvæðin um mannréttindi, og þar á meðal Ihlutun Sovétmanna í Afganistan hefur haft óheppi- leg áhrif á slökunarstefnuna Ræða Ólafs Jóhannessonar á Madrid-fundinum ytri ramma Madridfundarins. Það er því bráðnauðsynlegt að fyrir lok þessarar viku takist að brúa bilið sem enn er milli þátttöku- þjóðanna. Ef þetta mistekst getur það þýtt að slökunarstefnan bíði alvarlegan hnekki, og að heitustu vonir margra þeirra þjóða, sem hér eiga fulltrúa, verði að engu gerðar. Slökunarstefnan Það er alger nauðsyn að okkur takist að viðhalda og styrkja þau tengsl sem hafa myndast við mótun og framkvæmd slökunar- stefnunnar. Þessi þróun verður að halda áfram, því hún er eina úrræðið. ísland hefur frá upphafi stutt framkvæmd slökunarstefn- unnar og fagnar þessu tækifæri til að kanna hvernig til hefur tekist um framkvæmd ákvæða Hels- inki-samþykktarinnar í aðildar- ríkjunum. Við álítum að þær athuganir sem fram fara á ein- stökum ákvæðum lokasamþykkt- arinnar séu afar þýðingarmikill þáttur í þróun slökunarstefnunn- ar. Þá er ekki síður þýðingarmikið að athuga nýjar tillögur, sem aðildarríkin hafa lagt fram í þeim tilgangi að betur megi framfylgja lokasamþykktinni. I lokasamþykktina voru skráð meginatriði og leiðbeiningar um leiðir til friðsamlegri og vinsam- legri sambúðar aðildarríkjanna. Lokasamþykktin var upphafið — hluta getur auðveldlega haft áhrif á aðra heimshluta. Þess vegna hefur íhlutun Sovétríkjanna í Af- ganistan haft afar óheppileg áhrif á slökunarstefnuna og alla við- leitni til að bæta sambúð þjóða. Þessi hernaðaríhlutun er ósamræmanleg anda og grund- vallarmarkmiðum lokasamþykkt- arinnar. Mikill meirihluti þjóða heims lýsti sig andvígan innrás- inni með stuðningi við ályktun allsherjarþings Sameinuðu þjóð- anna 14. jan. sl. Leysa verður Afganistanmálið sem allra fyrst á viðunandi hátt, ef við eigum að koma aftur á þeim jákvæðu aðstæðum sem stuðlað geta að slökun. Ef langtímasjónarmið eru höfð í huga ætti viðhald slökunarstefn- unnar að vera aðalviðfangsefni okkar, hversu erfið sem staðan í alþjóðamálum kann að vera. Helsinki-samþykktin Við verðum að vona að þrátt fyrir erfiðar aðstæður muni hrein- skilnar umræður hér í Madrid beina okkur að nýju inn á réttar brautir þannig að við getum tekið til við þar sem frá var horfið að auka og bæta samskipti þjóða okkar. Árangur starfs okkar hér kann að verða vísbending um það, herjar líkur séu á árangri í viðleitni okkar til að tryggja áframhald slökunarstefnunnar. Á sama hátt myndi batnandi ástand í alþjóðamálum auka mjög líkurn- ar á að raunhæfur árangur verði af þessari ráðstefnu. Markmið okkar hlýtur að vera að vinna að framkvæmd allra þátta Helsinki-samþykktarinnar og semja um leiðir er tryggi framgang hennar á öllum sviðum. Við þurfum að geta tryggt betri og markvissari framkvæmd á öllum meginreglum og ákvæðum sam- þykktarinnar. Jafnvel þótt við viðurkenndum öll að undirritun lokasamþykktar Helsinki-fundarins hafi verið sögulegur viðburður, þá er stað- reyndin engu að síður sú, að raunverulegt gildi lokasamþykkt- arinnar er komið undir fram- kvæmdinni. Nokkur árangur hef- ur náðst á vissum sviðum, en það verður hins vegar að viðurkenn- ast, að of mörg ákvæði hafa ekki verið framkvæmd á viðunandi hátt. Almenningur á íslandi væntir þess, að opinskáar umræður verði í Madrid um alla þætti Helsinki- samþykktarinnar, þar á meðal um þá, sem ekki hefur verið farið eftir. Gildir hið síðarnefnda ekki fram koma í lokasamþykktinni frá Helsinki. En þrátt fyrir það — ef við ætlum að viðhalda trúnni á að aðildarríkjum Helsinki-ráðstefn- unnar hafi verið full alvara, þá verða þátttökuríkin stöðugt að geta komið fram með nýjar sann- anir fyrir því að þau vinni að framkvæmd þeirra skuldbindinga, sem þar voru gefnar. Náin tengsl voru á milli allra ákvæða lokaskjalsins og það var undirritað á þeim grundvelli að öll ríkin, sem það samþykktu, tækju þar með á sig þá skyldu að framkvæma öll ákvæði, sem það hefur að geyma. Á þeirri ráðstefnu, sem hér er hafin þarf að leitast við að ná jöfnum árangri í öllum þremur höfuðmálaflokkum. Fundurinn á m.a. að fjalla um aðgerðir innan ramma Helsinki-samþykktarinn- ar til að draga úr tortryggni á sviði hermála. Fundurinn á að fjalla um þær ýmsu tillögur, sem fram hafa komið og ætlað er að koma á vopnaeftirliti og afvopn- unarviðræðum er taki til allrar Evrópu. Það er afar þýðingarmikið að fallist verði á leiðir hér í Madrid sem stuðli að slökun á sviði vígbúnaðar í Evrópu. ákvæðin um endursameiningu fjölskyldna. Menn skilja ekki þær reglur, sem komið geta í veg fyrir að sonur geti flust til föður síns eða önnur álíka tilvik. Takmark- anir á ferðafrelsi eru afar fjarlæg- ar Islendingum. Almenningur hefur áhyggju- fullur fylgst með örlögum ein- staklinga í nokkrum aðildarríkj- anna, er hafa orðið að sæta miklu harðræði vegna þess eins að hafa gert kröfur um grundvallarmann- réttindi í samræmi við loka- samþykktina. Það er enginn vafi á því að slík tilefni skaða jákvæða þróun í samskiptum austurs og vesturs. Við væntum þess að þessum stein- um í vegi raunverulegrar slökun- arstefnu verði rutt úr vegi hið fyrsta. Við teljum að á þessum fundi verði að taka ákvörðun um stað og tíma fyrir næstu framhaldsráð- stefnu um öryggi og samstarf í Evrópu. Mætti hugsa sér að hæfi- legur tími á milli slíkra funda yrði framvegis 2—4 ár. Ég tel að veigamesti árangurinn af umræðum okkar í þessari viku hafi verið sá að fá tækifæri til að útskýra álit ríkja okkar á stöðu alþjóðamála með sérstöku tilliti til þróunar slökunarstefnunnar í Evrópu. Ég vona að ræður okkar hafi stuðlað að því að jákvæðar niðurstöður fáist af þessari ráð- stefnu hér í Madrid. snillingur í að óti brekkunni“ lagsmál heyra undir mig sem við- skiptaráðherra. Um það vil ég segja það, að alltaf hafa verið samþykkt í ríkisstjórninni ákveðin verðlags- mörk. Þau eru nú 9%. Ef tillögur eru um að fara yfir þessi mörk, það er ef verðlagsráð sambykkir meiri hækkanir, há hafa þau mál í öllum tHvÍkum verið tekin til afgreiðslu í ríkisstjórninni og afgreidd þar, sem og raunar verðlagsmörkin sjálf. Þessi mál hafa því heyrt undir alla ríkisstjórnina og er algjörlega rangt að tala um það á þann hátt að ég einn beri ábyrgðina. Slíkt er hreinn áróður og ekkert annað. í öðru lagi hefur Ólafur Ragnar talað um að útlán bankanna hafi verið of mikil, og að bankarnir heyri undir viðskiptaráðuneytið. Ég hef svarað því til, að bankastjórar og bankaráð ráða útlánum og útlána stefnu bankanna. Það kemur ekkert til kasta viðskiptaráðuneytisins lög- um samkvæmt. Ég hef hins vegar rætt þetta mál ítrekað við Seðla- bankann og raunar við viðst j-ja_ bankana á þessu árj( 0g mæist til þess að ajjuáids verði gætt.“ — En hafa bankarnir ekki talið sig verða að halda atvinnurekstrin- um í landinu gangandi með útlán- um, og þannig komið í veg fyrir gjaldþrot fyrirtækja og atvinnuleysi í kjölfar þess? „Jú, vissulega hafa þeir bent á það, en þó er ég þeirrar skoðunar að gengið hafi verið fulllangt í útlán- um. Um leið geri ég mér þó ljósa grein fyrir því að verðbólgan skapar mikinn þrýsting og miklar kröfur vegna þarfar á auknu rekstrarfé fyrir allan atvinnurekstur. En þriðja atriðið sem Ólafur Grímsson nefndi, voru erlend lán. Ég hef svarað því til, að með lán til lengri tíma en eins árs gilda þær reglur, að svokölluð langlánanefnd gerir tillögur. Síðan eru þær tillögur sendar til allra ráðherra. Geri þeir ekki athugasemdir innan viku, eru þær afgreiddar sem samþykktar. Þessi mál heyra því einnig undir alla rikisstjórnina. Um skammtímalán er aftur það að segja, að þar eru alls kyns lán í verslun og viðskiptum, og hefur þar ekki verið breytt um stefnu frá því sem verið hefur í langan tíma.“ — Það er þá ljóst að mikill meiningarmunur er milli Alþýðu- bandalags og Framsóknarflokks um úrræði í efnahagsmálum. Þýðir það, Tómas Arnason að litlar líkur séu á að gripið verði til einhverra ráðstafana á næst- unni? „Ekki hef ég ástæðu til að ætla það, miðað við þær yfirlýsingar sem liggja fyrir frá Ragnari Arnalds fjármálaráðherra og Gunnari Thor- oddsen forsætisráðherra. Ég ætla því að nauðsynlegar efnahagsráð- stafanir verði gerðar." — Mun þá verða farin sú leið að berja niður óánægju innan Alþýðu- bandalagsins? „Ég vil nú ekkert fullyrða um það, það liggur ekki fyrir ennþá. En við höfum ákveðna skoðun á því hvernig við eigum að feta okkur niður “ ýíð með verðbólguna." — 0® Tmóað er við áramótin, að þá verði gerðar ráðstafanir? „Já, það hefur verið orðað svo, að það verði gert í tengslum við gjaldmiðilsbrevtinguna um áramót- in.“ — Er ekki slæmt að þínu mati, að þessar ráðstafanir skuli ekki liggja fyrir nú fyrir Alþýðusambands- þing? „Ég álít að leita hefði átt sam- komulags við aðila vinnumarkaðar- ins, einkum launþega, um að draga úr þessum víxlhækkunum um næstu mánaðamót, en það hefur nú ekki verið gert.“ — Fyrst og fremst vegna and- stöðu í Alþýðubandalaginu? „Kannski það, já.“ — Eru sjálfstæðismenn í ríkis- stjórn og framsóknarmenn þá nær því að vera á sömu línu í þessum málum? „Ég vil nú ekkert láta hafa eftir mér um það á þessu stigi málsins, vegna þess að málin eru nú til umfjöllunar. Ég vil ekki láta hafa neitt frekar eftir mér fyrr en afstaða flokkanna liggur endanlega fyrir,“ sagði Tómas að lokum. I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.