Morgunblaðið - 22.11.1980, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 22.11.1980, Blaðsíða 31
HVAÐ ER AÐ GERAST UM HELGINA? MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1980 31 Sýningar um helgina í dag opnaði þýski myndlistamaðurinn Rudolf Weissauer sýningu á verkum sinum í Kalleriinu að BerK-staðastrœti 15. bar sýnir hann vatnslita-, pastel- ok Krafíkmyndir. SýninKÍn er opin frá kl. 2—6 alla daKa um óákveðinn tima. Myndin er af listamanninum við eitt verka sinna. Kjarvalsstaðir: Jón E. Guð- mundsson sýnir högKmyndir úr tré, málverk, vatnslitamyndir og teikn- ingar í austursal. Sýningunni lýkur 30. þ.m. Guðmundur Björgvinsson sýnir 55 pastelteikningar og 45 prentlita- og tússmyndir. Sýningunni lýkur 30. þ.m. Listasafn tslands: Yfirlitssýning á verkum Svavars Guðnasonar. Sýningin stendur til mánaðamóta. Norræna húsið: Pinninn Pentti Kaskipuro sýnir grafíkmyndir í anddyri. Sýningin stendur til mán- aðamóta. Gallerí Langbrók: Sigrún Eld- járn sýnir blýantsteikningar með vatnsiitaívafi. Sýningin er opin virka daga frá kl. 12—18 og stendur til 5. desember. FÍM-salurinn, Laugarnesvegi 112: Gunnlaugur Stefán Gíslason sýnir vatnslitamyndir. Sýningin er opin frá kl. 14—22 í dag og á morgun en henni lýkur annað kvöld. Nýlistasafnið, Vatnsstíg 3B: Bókasýning. Sýndar bækur eftir 100 listamenn, bæði úrval íslenskra bóka, sem Árni Ingólfsson hefur valið, og úrval frá „Other books and so“, safnbúð í Amsterdam. Opið frá kl. 16—20 á virkum dögum, en 14—20 um helgar. Sýningin stend- ur til 14. desember. Ásmundarsalur: Jörundur Páls- son sýnir 40 vatnslitamyndir og 5 eftirprentanir. Sýningin er opin frá kl. 14—21 daglega og stendur til 2. desember. Epal, Siðumúla 20: Textilhópur- inn sýnir tauþrykk. Sýningin stendur fram yfir mánaðamót. Bergstaðastræti 15: Þýski myndlistamaðurinn Rudolf Weiss- auer sýnir vatnslita-, pastel- og grafíkmyndir. Sýningin er opin frá kl. 2—6 alla daga um óákveðinn tíma. Á morgun opnar Jörundur Pálsson sýningu í Ásmundarsal við Freyjugötu. Þar sýnir hann 40 vatnslitamyndir, flestar af Esjunni, en tvær frá Þingvöllum, auk þess sem hann sýnir 5 eftirprentanir frá svartlistarsýningu sem hann tók þátt í 1947. Sýningin stendur til 2. desember og er opin frá kl. 14—21 daglega. KJAItVALSSTAÐIR: Túlka myndverk með hreyfilist í KVÖLD kl. 20.30 sýna tvíbura- hræðurnir Ilaukur og lleiðar Ilarðarsynir á Kjarvalsstöðum og túlka myndverk Guðmundar Björgvinssonar með hreyfilist. í list sinni, sem bræðurnir nefna „hreyfilist", beita þeir líkama sín- um sem tjáningarmiðli til þess að túlka myndverk á sýningunni, ým- ist við undirleik tónlistar eða í þögn. Þeir hafa komið nokkrum sinnum fram áður, m.a. á „Bláum mánu- degi“ í Þjóðleikhúskjallaranum, sem opnunaratriði hljómsveitar- innar Þeys í Norræna húsinu og á móti sem haldið var á Flúðum á vegum Guðspekifélagsins. Túlkuðu þeir tilfinningaáhrif sem þeir urðu fyrir á hverjum stað, frá fólki og umhverfi. Haukur og Hörður Harðarsynir leggja einnig stund á myndlist, bæði grafík og vatnslitun, og árið 1977 sýndu þeir tréverk og vatns- litamyndir á Loftinu við Skóla- vörðustíg. ÞAÐ VERÐUR sprett úr spori í HoIIywood annað kvöld. Silfur- kórinn kynnir þrællétta plötu sina sem er nýkomin út. Methaf- inn úr limlsVkoppni síðasta sunnudags, Kristín Bragadótt- ir, etur kappi við fyrrverandi methafa. Haukur Morthens flyt- ur log af nýrri plötu. Gestur kvöldsins verður nýkjörin „Ungfrú Hollywood“, ValKerður Gunnarsdóttir. Módel 79 sýna tiskuklæðnað og síðast en ekki síst verður danssýning þeirra Sóleyjar Jóhannsdóttur ok Gary Kosuda frá Honululu, en mynd- in hér að ofan er einmitt af þeim á dansgólfinu i Hollywood. Ein af höggmyndum þeim sem Jón E. Guðmundsson sýnir á Kjarvalsstöðum: Kríur með fisk. Myndin er höggvin úr einum trjábol og er úr islensku birki. BRÚÐULEIKIIÚS: Skugga-Sveinn á Kjarvalsstöð um Í DAG kl. 17 og á morgun kl. 15 sýna nemendur úr Leiklistar- skóla ríkisins með leikbrúðum kafla úr Skugga-Sveini í tilefni af sýningu Jóns E. Guðmundssonar í austursal Kjarvalsstaða, en þar sýnir hann 17 höggmyndir úr íslensku birki og 40 myndir, málverk, vatnslitamyndir og teikningar. í anddyri Kjarvalsstaða hefur verið komið fyrir litlu brúðuleik- húsi sem vísar sýningargestum til vegar og á veggjum eru brúður sem Jón hefur gert vegna sýninga á hinum ýmsu brúðuleikhúsverk- um. lfikfEiac; REYKIAVlKUR Grettir hlýtur góðar viðtökur ANNAÐ kvöld verður 5. sýning Leikfélags Reykjavikur í Austur- bæjarbiói á söngleiknum Gretti og hefst hún kl. 21.30. Leikurinn hefur hlotið afbragðsgóðar viðtökur og mikil stemmning rikt á sýningum. Ummæli blaðagagnrýnenda eru yfirleitt á þann veg, að hér sé bráðskemmtileg sýning á ferð, eigin- lega „algert æði“. Það er Kjartan Ragnarsson, sem leikur Gretti og hlýtur mikið lof fyrir. Hann leikur, syngur og dansar, allt frá því að hengslast milli heimilis, skóla og sjoppu, þar til hann — eftir smáhlið- arspor á glötunarbrautinni — gerist glæsileg sjónvarpsstjarna. Höfundar Grettis eru Egill Ólafsson, sem jafnframt fer með hlutverk sjón- varpsdraugsins Gláms, Ólafur Haukur Símonarson og Þórarinn Eldjárn. Þursaflokkurinn sér um alla tónlist í sýningunni og Þórhild- ur Þorleifsdóttir hefur samið og stjórnar hinum fjölmörgu dansatrið- um. Leikstjóri er Stefán Baldursson. Grettir (Kjartan Ragnarsson) sýnir pönkurunum. vinum sinum (Andra Clausen og Aðalsteini Bergdal), krafta sina og skrautklæði. IIALLGRIMSKIRKJA: Tónleikar til stgrkt- ar kirkjubyggingunni í DAG gangast nokkrir tónlist- armenn fyrir tónleikum i Hall- grimskirkju og hefjast þeir kl. 17.00. Ágóði af þessum tónleikum rennur i byggingarsjóð kirkjunn- ar. Flutt verður tónlist eftir F. Coup- erin, J.S. Bach, G. Caccini, G.F. Hándel, W.A. Mozart og J. Lang- lais. Flytjendur eru Gunnar Kvar- an, cello, Ágústa Ágústsdóttir, ein- söngur og Manuela Wiesler ásamt strengjatríói. Orgelleikari Antonio Corveiras. Kór Langholtskirkju ásamt einsöngvurum og stjórnanda. KÓR LANGIIOLTSKIRKJU: Tvennir tónleikar í Háteigskirkju UM HELGINA heldur Kór Langholtskirkju tvenna tón- leika i Háteigskirkju og verða það fyrstu tónleikar kórsins á þessu starfsári. Fyrri tónleikar kórsins verða í dag og hefjast kl. 17 og hinir síðari á morgun á sama tíma. Á efnisskránni verða tvær kantötur eftir Johann Sebastian Bach, kantata nr. 41, „Jesu, nun sei gepreiset", og kantata nr. 147, „Herz und Munn und Tat und Leben". Einsöngvarar með kórnum verða Ólöf K. Harðardóttir, Sól- veig Björling, Garðar Cortes og Halldór Vilhelmsson. Hljóm- sveit skipuð hljóðfæraleikurum úr Sinfóníuhljómsveit íslands leikur undir. Vetrarstarf Kórs Langholts- kirkju hófst um miðjan septem- ber og á þessum vetri verður kórinn með sína reglulegu tón- leika, þ.e. hausttónleika nú um helgina, jólatónleika og vortón- leika. Söngfélagar í Kór Lang- holtskirkju eru nú 60 talsins. Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn. Stjórnandi Kórs Langholts- kirkju er Jón Stefánsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.