Morgunblaðið - 22.11.1980, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 22.11.1980, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1980 Minning: Ásta Kristjáns- dóttir Keflavík Fædd 9. nóvember 1914. Dáin 8. nóvember 1980. Ásta í Holti er látin. Hún var fædd 9. nóvember 1914 í Holti, Keflavík, sem þá lá við Templara- sund 7, síðar Kirkjuveg 7. Foreldr- ar hennar voru þau Guðrún Jóns- dóttir frá Akri í Innri Njarðvík og Kristján Sveinsson (Stjáni blái). Ásta ól alla sína bernsku í Holti, ef bernsku skyldi kalla. Skömmu eftir 7. afmælisdag hennar eða 17. nóvember 1921 drukknar faðir hennar frá konu og 4 börnum. Var hann á leið úr kaupstaðarferð til Hafnarfjarðar þar sem ýmissa brýnustu nauð- synja vetrarins hafði verið aflað Strax næsta sumar var Ásta farin að breiða fisk. Á næstu árum er reynt að afla heimilinu tekna með ýmsum ráð- um, eins og við að beita og stokka upp bjóð. Aðeins 11 ára er hún byrjuð að vaska fisk. 350 fiska vaskaði hún fyrsta daginn. Dágott af 11 ára stúlkubarni. Á þessum árum búa um 500 manns í Keflavík. Allt byggist á fiskveiðum, sem eru mjög árstíða- bundnar. Bátar eru svo til undan- tekningarlaust undir 10 tonnum, og eru gerðir út aðeins 6—8 mánuði ársins, þegar fiskigengd og gæftir leyfa. Atvinnuleysi var því alltaf af og til — einkum þegar saltfiskurinn seldist illa. Ásta minntist þess þó ekki að hafa verið án atvinnu. Aðeins í tvígang vann hún vinnukonustörf (á táriingsárum sínum), sem stúlk- ur tóku oft, þegar annað bauðst ekki. Strax á unga aldri varð hún því eftirsóttur vinnukraftur. Framan af aldri vann hún svo til eingöngu við margskonar fisk- verkun, aðallega í H/F Keflavík. 17—18 ára fór hún í fyrsta skipti á síld norður á Siglufjörð. Næstu sumur verður hún með eftirsótt- ustu söltunarstúlkunum fyrir norðan. Enda var hún þegar orðin karlmaður að hreysti og þreki. Á þessum árum (1930—1947) vann Ásta ekki eingöngu við fiskverkun, því tvívegis og alls í 5—6 ár vann hún við saumastörf. Átti hún forláta saumavél, sem nú er orðin hálfgerður safngripur. 2 sumur var hún einnig kokkur á síldarbátum. Um 1947 flytur hún til Reykja- víkur og var þar í 7—8 ár. Vann hún fyrst og fremst á Kirkjusandi, annaðhvort við fiskverkun eða í mötuneytinu. Þar kynntist hún eiginmanni sínum Ólgeiri Egg- ertssyni, sem var um áratugaskeið vélstjóri hjá Tryggva Ófeigssyni. Eftir að Ásta sneri til átthag- anna aftur vann hún um 10 ára skeið í ýmsum frystihúsum stað- arins. Um 1965 hóf hún störf á Keflavíkurflugvelli og vann þar fram til 1978, aðallega í mötuneyti hersins. Var hún þá farin að kröftum eftir 60 ára ævistarf. Fór einkum að bera á þreytu og þrekleysi síðustu 5—10 árin. 1978 ákvað hún að sinna Olgeiri eigin- manni sínum alfarið en hann þurfti þá mjög á umhyggju henn- ar að halda eftir bílslys og hjarta- slag, sem hann náði sér aldrei eftir. Fyrst eftir heimkomu Ástu 1955 fór undirritaður að kynnast þess- ari stórfrænku sinni eitthvað að ráði. Jólagjafirnar höfðu að vísu minnt á þessa gjöfulu og rausnar- legu konu í Reykjavík, en enn höfðu engin kynnti tekist með okkur. Á þessu áttu eftir að verða snör umskipti á næstu árum. Upphaf atvinnusögu minnar er t.d. nátengt henni. Ekki nóg með að hún hafi upphaflega útvegað mér atvinnu heldur tryggði hún einnig, að ég fengi þann kaup- taxta, sem eðli vinnunnar krafð- ist. í Páskahrotunni 1959, þá 11 ára, vann ég mér inn mín fyrstu laun. Eftir þetta varð Ásta í Holti mín baktrygging fyrir því, að ég fengi vinnu í frystihúsum næstu sumur. Síðar meir áttu vinnulaun þessa tíma eftir að koma að ómetanlegu gagni á skólaferli mínum. Ásta átti mikinn fjölda vina og kunningja. Um árabil skrifaði ég á annað hundrað jólakort og pakk- aði slíkum fjölda af jólagjöfum fyrir hana að útilokað var að halda tölu á. Hún var einnig mjög félagslynd. Á yngri árum tók hún virkan þátt í íþróttum eins og sundi, hand- bolta, glímu, hástökki og hesta- mennsku. Var hún hvarvetna fremst í flokki enda vel vaxin til íþróttaiðkana. 1930 fór hún t.d. með íþróttaflokki á Þingvallahá- tíðina. Ásta var einnig virk í störfum verkakvennafélagsins, sat þar í stjórn og sótti nokkur ASI-þing. Hún andaðist á Landakotsspít- ala í Reykjavík, hinn 12. nóvember 1980, þrotin að kröftum Jóhanna var fædd að Efri Mið- vík í Aðalvík, hinn 21. ágúst árið 1891, dóttir hjónanna Sigríðar Kristjánsdóttur og Bjarna Þor- steinssonar. Aðeins 4 af systkinunum, börn- um þeirra hjóna, komust til full- orðinsára og voru þau Jóhanna, sem var þeirra elst, Þorsteinn, Margrét og Kristín, kona þess er þetta ritar. Jóhanna giftist Guðmundi Jóni Guðnasyni úr Hælavík hinn 2. september 1922 og bjuggu þau hjón á ýmsum stöðum vestra, unz þau fluttust suður á land á síðari stríðsárunum, fyrst til Keflavíkur en síðan á dvalarheimilið Hrafn- istu í Reykjavík og dvöldu þar til æviloka, en Guðmundur andaðist fyrir nokkrum árum. Þau hjónin eignuðust 4 börn og eru þau Bjarney Sigríður, kona Ögmundar Þorsteinssonar verka- manns í Reykjavík, Guðrún Soffía, Hún kunni manna best að skemmta sér og var mikil dans- og söngkona. Rödd hennar átti sér engan líka. Að auki kunni hún gífurlegt magn af bundnu máli, sem sýndi mikla næmni, þrátt fyrir stutta skólagöngu. Frásagn- argáfu hennar var viðbrugðið og hlátur hennar mun lengi lifa í endurminningunni. Ásta var ör í skapi og gat stundum verið fljótráð. Hún var strangheiðarleg og tvöfeldni var ekki til hjá henni. Hún var fljót að fyrirgefa og erfði aldrei neitt við neinn. Fyrir tæpu ári eða 13. desember 1979 lést Olgeir eiginmaður Ástu. Hér urðu viss kaflaskil í lífi hennar. Allt frá fráfalli föður hennar 1921 hafði vinnan og sá félagsskapur sem fylgdi henni verið ríkjandi lífsmynstur hjá Ástu. Nú fór í hönd tími athafna- leysis og einsemdar, þrátt fyrir að hún hitti hvern dag fjölda vina og kunningja. í sinni hinstu kveðju til allra vina segir hún að sér leiðist. Síðast þegar ég hitti hana hvatti hún mig til að eignast mörg börn. Ástu varð engra barna auðið. Þessi háa, granna og tígulega kona, þessi Salka Valka Keflavík- ur verður í dag til moldar borin. Það verður sjónarsviptir að henni. ST kona Kristófers Jónssonar verka- manns í Reykjavík, sem er látinn, Kjartan Hafsteinn blikksmíða- meistari á Akranesi kvæntur Auði Elíasdóttur frá Þingeyri og Herdís Salbjörg, kona Sigurjóns Jóhann- essonar skólastjóra á Húsavík. Gott var að koma til Jóhönnu og Guðmundar og eigum við hjónin margar unaðslegar endurminn- ingar um þau og kveður nú konan mín elskulega systur sem gekk henni í móðurstað, þegar hún missti móður sína barn að aldri. Efst í huganum er þakklæti fyrir allt og allt, kærleika og tryggð. Elskuleg móðir, tengdamóðir, systir, amma, langamma og frænka er kært kvödd, einnig af öðrum ástvinum og vinum, og er ég á meðal þeirra. Ef Jóhanna mætti mæla, þá mundi hún þakka fyrir allt og allt, öllum ástvinum og vinum og sömuleiðis hjúkrunarfólkinu á Hrafnistu, sem annaðist hana síðasta spölinn. Blessuð sé minn- ing hennar. Bjarni Þóroddsson. ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargrcinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast i siðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfs- formi. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frum- ort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasið- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu Ifnuhili. + Faöir okkar JÓHANN FERDINAND GUNNLAUGSSON fré Dalvík, Síöumúla 21, lést í Landakotsspítala 20. nóvember. Jaröarförin auglýst síöar. Börn hins létna. + Sonur minn, stjúpsonur og bróöir. STURLA SNORRASON, Goöalandi 2, andaöist í Borgarspítalanum fimmtudaginn 20. nóvember. Sigrún Jóhannesdóttir, Geir Runólfsson, Björg J. Snorradóttir, Arndís Snorradóttir. Krístín Snorradóttir, + Móðir okkar SIGRÍÐUR E. HJARTAR fré Þingeyri, lést að Hrafnistu 21. nóvember. Fyrir hönd vandamanna, Margrót og Hjörtur Hjartar. Faöir minn. MAGNÚS HÓLMGEIR SVEINSSON fré Akureyrí, lést að heimili sínu 18. þessa mánaöar. Svava Magnúsdóttir. + Bróðir okkar, Halldór Sigmundsson, innheimtumaöur, Grettisgötu 79, sem lést í Landspítalanum 13. þ.m., verður jarösunginn Fossvogskirkju mánudaginn 24. nóvember kl. 1.30. Sólveig Sigmundsdóttir, Sigurjón Sigmundsson, Vilborg Sigmundsdóttir. frá + Innilegar þakkir færum viö öllum þeim, er sýndu okkur samúö og hlýhug við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu, INGIBJARGAR SIGRÍOAR BJÖRNSDÓTTUR, Norðurbrún 34, éöur Skúlagötu 170. Björg Pálína Jóhannsdóttir, Halldór Kristinsson, Sigurrós Jóhannsdóttir, Björn Jóhannsson, Hannes Jóhannsson, Jónína Jóhannsdóttir, RagnarJóhannsson og barnabörn Friögeir Sigurgeirsson, Efemía Halldórsdóttir, Ingolf Ágústsson, + Fööursystir mín, JOHANNA BENEDIKTSDÓTTIR. Hrafnístu, éöur Samtúni 30, andaöist 20. nóvember. Valgeröur Björnsdóttir. + Eiginmaóur minn og faöir okkar, STEINN INGI ARNASON, sem lést af slysförum 18. nóvember, veröur frá jarösunginn ísafjaröarkirkju, miövikudaginn 26. nóvember kl. 2 e.h. Minningarathöfn veröur í Fossvogskirkju mánudaginn 24. nóv- ember kl. 10.30 f.h. Blóm og kransar afþakkaöir, en þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlegast bent á Styrktarfélag vangeflnna. Kolbrún Þorvaldsdóttir og synir. + Alúóarþakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö fráfall og jaröarför bróöur okkar, BJARNA EYJÓLFS MARTEINSSONAR. Systkinin. Jóhanna Bjarnadótt- ir — Minningarorð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.