Morgunblaðið - 22.11.1980, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 22.11.1980, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1980 39 Arni Jón Einarsson frá Flatey - Minning Það var m Drottinn mjúkum hondum lyki, um lifsins perlu á gullnu augnablikl. T.G. Það eina sem við lifandi verur eigum víst í þessari tilvist okkar er dauðinn. Okkur þeim yngri finnst það ef til vill skelfileg staðreynd ef við veltum málinu fyrir okkar en suraura er dauðinn þó líkn í þraut og kærkomin hvíld. Ég held að þannig hafi því verið varið með Árna Jón Einarsson sem kvaddur er nú. Hann fæddist 3. apríl 1893 að Fossi á Barðaströnd, sonur ábú- enda þar, hjónanna Jarþrúðar Guðmundsdóttur og Einars Guð- mundssonar. Tvíburabróðir Árna var Guðmundur Jóhann en áður hafði þeim hjónum fæðst sonur, Árni, sem var látinn aðeins fárra ára. Tvíburabræðurnir ólust upp ásamt systkinum sinum. Þórarni sem nú er einn eftirlifandi af þeim systkinum og búsettur í Reykjavík og Guðrún sem drukknaði ásamt Hrefnu dóttur sinni og fleirum þegar m.b. Oddur fórst í Breiða- firði vorið 1954. Á sama hátt og þeir tvíburarnir Árni og Guð- mundur litu dagsins ljós svo til samtímis leið aðeins hálfur sólar- hringur frá því að Guðmundur andaðist á sjúkrahúsi Patreks- fjarðar og þar til Árni andaðist á sjúkrahúsi Akraness eftir langa og stranga legu. Eins og tíðkaðist með börn þess tíma fór Árni snemma að taka til hendinni við hin ýmsu störf jafnt á landi og sjó. Ungur fór hann til Hergilseyja þar sem hann kynnt- ist konuefni sínu Guðbjörgu Jóns- dóttur ættaðri úr Strandasýslu f. 23. september 1896 d. 16. septem- ber 1971. Þau gengu í hjónaband árið 1917 og hófu búskap í Holti á Barðaströnd og fluttu síðan til Hergilseyjar. Árið 1930 fluttu þau til Flateyjar á Breiðafirði þar sem Árni átti lögheimili æ síðan. Árni þótti snemma hagur jafnt á tré sem járn. Marga báta smíðaði hann um ævina, einn og með öðrum, og gerði við báta af öllum stærðum og gerðum. Auk þess gerði hann við vélar allt frá stærstu bátavélum að smæstu úrverkum. Mér er hann minnisstæður þar sem hann sat löngum við úraviðgerðir og hafði fest við annað augað stækkunar- gler. Það gler var mikill leyndar- dómur. Þau hjón Árni og Guðbjörg eignuðust 4 börn, Bergþóru sem býr í Kópavogi, Önnu Aðalheiði en hún andaðist árið 1959, Sigurjón sem kvæntur er Svanhvíti Bjarna- dóttur og býr á Patreksfirði og Hafliða Arnberg en hann andaðist 1977. Auk þeirra átti Árni dóttur, Elísabetu sem býr í Reykjavík. Leiðir Árna og Guðbjargar skildu eftir rúmlega 30 ára hjú- skap og eftir það hélt hann heimili með Hafliða syni sínum og Berg- þóru og hennar fjölskyldu þar til þau fluttu frá Flatey. Eftir það bjuggu þeir feðgar einir. Meðan Árna entist heilsa bjó hann allt árið í Flatey en fór síðan að hafa vetursetu annarsstaðar, ýmist hjá börnum sínum á Patreksfirði og fyrir sunnan eða hjá Guðmundi bróður sínum og hans fólki á Brjánslæk. En strax og voraði fór hann til Flateyjar á ný og hófst handa við undirbúning vorstarf- anna, en þau voru selaveiðar og dúntekja. Árni var nokkuð hress fram undir áttrætt en upp frá því fór heilsu hans ört hrakandi. Eftir það fór að líða á sumar, ár hvert, áður en hann treysti sér til að takast á hendur ferð til Flateyjar, en þó var hugurinn þar alla tíð. Síðast var hann þar sumarið 1976, þegar hann fór þaðan suður varð honum að orði að líklega ætti hann þangað ekki afturkvæmt. Förinni var heitið til Kópavogs þar sem meiningin var að hann yrði hjá dóttur sinni. Akranes var hugsaður áningarstaður, en dvölin þar varð lengri. Hann dvaldi við hina bestu umönnun á heimili Auðar dótturdóttur sinnar og manns hennar Elí Halldórssonar þar til í desember á sl. ári að hann fór á sjúkrahús Akraness. í júlí sl. slasaðist hann og komst aldrei á fætur eftir það. Á sjúkra- húsinu var mjög vel um hann hugsað og það þakka aðstandend- ur hans nú. Árni var vel meðalmaður á hæð og þéttvaxinn á sínum bestu árum, myndarlegur og bar sig með reisn fram á háan aldur. Hann var skapmikill og fastur fyrir og flíkaði lítt tilfinningum sínum. Ég held að fáir hafi séð honum brugðið á sorgarstundum, þó hafði hann sterkar tilfinningar til ætt- ingja sinna og afkomenda og bar þeirra hag fyrir brjósti. Hann var vel greindur, víðlesinn og sjálf- menntaður, stoltur og traustur og ávann sér virðingu samferðar- manna sinna. Honum var ekki gefið um fjas eða fánýta hluti og gat í fáum orðum sagt svo margt að minnisstætt verður. Hann var vel ritfær og ólatur við að skrifa, bæði minnisatriði, ættfræðiágrip sem hann skráði þegar hann var um áttrætt, og sendibréf til ætt- ingja og vina. Ég á í fórum mínum nokkur bréf skrifuð á síðustu árum hans í Flatey. Þau hafa að geyma heilræði til mín og minna, byggð á reynslu langrar ævi, vangaveltur um lífið og tilveruna og greinilegt var að hann undi löngum við það að rifja upp gamlar minningar, skoða myndir og lesa bréf frá börnum og barna- börnum. Hann fann sárt til þess að hafa ekki getað gert allt það sem hann hefði viljað fyrir börn sín og aðra þá er honum stóðu næst. En í mínum augum, dótturdóttur hans, er hann sá sem allan vanda leysti og allra götu greiddi. Þess er gott að minnast. í dag þegar við kveðjum Árna Jón Einarsson, þökkum við ástvin- ir hans honum fyrir allt og sendum um leið okkar innilegustu samúðarkveðjur til fjölskyldu Guðmundar Jóhanns Einarssonar og biðjum báðum bræðrunum blessunar Guðs. Freyja K. Þorvaldsdóttir. Tímarit Norska arkitekta- félagsins „Byggekunst“ fjall- ar um byggingalist á íslandi í NÝÚTKOMNU hefti af „Byggekunst“ tímariti norska Arkitektafélagsins er fjailað sérstaklega um byggingalist á íslandi. fyrr og nú. Meðal efnis i heftinu má nefna greinar um skipulagsmál og byggingalist á íslandi auk þess sem sýnd eru nokkur dæmi um nýiegar bygg- ingar. og grein er eftir kanad- iska prófessorinn Carmen Corn- eil um sýningu Arkitekta- félagsins, sem haldin var i Ásmundarsal á sl. sumri og tæpast hefur verið um fjallað fyrr á opinberum vettvangi. Ástæða er til að vekja athygli þeirra, sem áhuga hafa á bygg- ingalist, á þessu vandaða tíma- ritshefti og jafnframt því, að gert er ráð fyrir að framhald verði á birtingu íslensks efnis í ritinu. Tímaritið er fáanlegt í Bóka- verslun Máls og menningar, Bókaverslun Sigfúsar Ey- mundssonar, Bóksölu stúdenta og á Akureyri hjá Bókval, enn- fremur á skrifstofu Arkitektafé- lags íslands, Freyjugötu 41. FréttatilkynninK. BLðM /éyv: VIKUNNAR k(\ \\s'' UMSJÓN: ÁB. ® Kvistir IV (Spiraea) Víðikvistur (Spir. salici- folia) sem vex villtur víöa um Evrópu er líklega harö- gerastur allra kvistanna, jafnvel í mögrum og þurr- um óræktarjarðvegi. Hann veröur um 1 metri á hæö og blómstrar daufbleikum blómum síöla sumars. Ekki telst hann neinn fyrirmynd- ar garörunni og veltur því helst aö hann skríöur vítt og breitt um meö rótar- sprotum og lætur ófriö- lega. Billard skóp í Frakklandi um miðja síöustu' öld. Hann er talinn betri garö- runni en báðir foreldrarnir, skríöur ekki eins mikiö og blómstrar lengur. Erlendis er hann talinn svipaöur á hæö og dögglingskvistur- inn, en hér veröur hann sjaldan meira en 1 metri. Er klipptur mikiö niöur eftir blómgun. Ekki get ég stillt mig um, svona í lokin, aö nefna einn kvist, sem ég hef mikið dálæti á, en þaö Spiraea douglasii — Dögglingskvistur. Dögglingskvistur (Spir. douglasii) er rauöblómstr- andi tegund frá Noröur- Ameríku, sem í heimkynn- um sínum verður á 3. metra á hæö og blómstrar síösumars. Þær plöntur sem hér ganga undir þessu nafni eru þó líklega flestar rangnefndar og munu vera blendingar, líklega á milli úlfakvists og dögglings- kvists. Þekktastur þeirra blendinga mun vera: Úlfakvistur (Spir. billar- dii) sem maöur aö nafni er blendingur á milli dögglingskvists og Jap- anskvists og hefur hér ver- ið nefndur: Potsdam- kvistur (Spir. sanssouci- ana) eöa Spir. nobleana. Þetta er Ijómandi fallegur runni, um 60—70 sm á hæö og blómstrar síðsum- ars rósrauöum blómum í þéttum pýramídalöguðum klösum á greinaendunum. Hann viröist haröger hér en er lítt reyndur og mætti aö mínum dómi sjást víöar. Ó.B.G. r 1 Hátíðarguðsþjónusta Nýju postulakirkjunni t Þökkum auðsýnda samúö vlö fráfall og jaröarför fööur okkar og tengdafööur, ÞÓRDAR STEFÁNSSONAR frá Vestmannaeyjum, Skarphéðinsgötu 20, Reykjavík. Born og tengdabórn. t Þökkum samúö og vinsemd viö fráfall SIGRÍÐAR MAGNÚSDÓTTUR, Hringbraut 81. Systur og aörir vandamenn. Hátiðarguðsþjónusta verður á morgun i Nýju postulakirkjunni i Reykjavik og hefst hún kl. 11 f.h. Aðalprédikari að þessu sinni er sr. Alberg Loschnig frá Kan- ada og með honum þjónar prest- ur Nýju postulakirkjunnar hér á landi, sr. Lennart Hedin. Nú er liðið rúmlega eitt og hálft ár frá því Nýja postulakirkjan hóf starfsemi sína hér á landi og er aðsetur hennar að Háaleitisbraut 58—60. Hefur sr. Lennart Hedin og fjölskylda hans staðið fyrir starfi kirkjunnar og kynningu hér. Hreyfing sú, sem Nýja postula- kirkjan er sprottin af, hófst í Skotlandi og Énglandi um 1830. í frétt frá Nýju postulakirkjunni segir að aðalhvatinn að stofnun hreyfingarinnar hafi verið þrá trúaðs fólks eftir leiðsögn heilags anda, trúin á nálæga endurkomu Krists og endurreisn postuladóms innan kirkjunnar, að hætti hinnar fyrstu kristni. Mikil áherzla sé lögð á samhjálp, bræðralag og kærleika í öllum mannlegum sam- skiptum. Frá Bretlandi barst hreyfingin til Þýzkalands og varð þar hin eiginlega Nýja postulakirkja til skömmu eftir 1860. Hefur kirkjan síðan breiðzt út um heim, einkum hin síðari ár. Nýlega er komið út á íslenzku kynningarrit um trúar- kenningar Nýju postulakirkjunn- ar, en þar er leitazt við að svara spurningum um hlutverk hennar í heimi nútímans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.