Morgunblaðið - 22.11.1980, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1980
Peninga-
markadurinn
GENGISSKRANING
Nr. 223. — 29. nóvember 1980
Eining Kl. 12.00 Kaup Sala
1 Bandaríkjadollar 573,00 574,40
1 Sterlingapund 1367,80 1371,10
1 Kanadadollar 483,15 484,35
100 Danakar krónur 9780,25 9804,15
100 Norakar krónur 11448,55 11476,55
100 Saanakar krónur 13322,45 13355,05
100 Finnak mörk 15219,20 15256,30
100 Franakir frankar 12897,75 13019,05
100 Balg. frankar 1873,75 1878,35
100 Sviaan. frankar 33440,35 33522,05
100 Gyllini 27781,80 27849,70
100 V.-Þýzk mork 30126,20 30199,80
100 Lírur 63,22 63,37
100 Auaturr. Sch. 4244,40 4254,80
100 Eacudoa 1105,65 1108,35
100 Pmtir 748,00 749,80
100 Yan 269,55 270,21
1 írakt pund SDR (aératök 1122,50 1125,20
dréttarr.) 17/11 734,39 736,19
L V
r
GENGISSKRANING
FERÐAMANNAGJALDEYRIS
20. nóvember 1980.
Eining Kl. 12.00 Kaup Sala
1 Bandaríkjadollar 630,30 631,84
1 Sterlingapund 1504,58 1508,21
1 Kanadadollar 531,47 530,78
100 Danakar krónur 10758,28 10784,57
100 Norakar krónur 12593,41 12624,21
100 Stanakar krónur 14654,70 14690,56
100 Finnak mörk 16741,01 16781,83
100 Franekir frankar 14286,09 14320,96
100 Belg. frankar 2061,13 2066,19
100 Sviaan. frankar 36784,39 36874,25
100 Gyllini 30559,98 30634,67
100 V.-þýzk mörk 33138,82 33219,78
100 Lirur 69,54 69,16
100 Aueturr. Sch. 4668,84 4680,28
100 Eacudoa 1216422 1219,29
100 Paaatar 822,80 824,78
100 Yen 296,51 297,23
1 írakt pund 1234,75 1237,72
v ^
Vextir:
INNLÁNSVEXTIR:.
(ársvextir)
1. Almennar sparisjóðsbækur.....35,0%
2.6 mán. sparisjóðsbækur .......36,0%
3.12 mán. og 10 ára sparisjóðsb.37,5%
4. Vaxtaaukareikningar, 3 mán..40,5%
5. Vaxtaaukareikningar, 12 mán.46,0%
6. Ávtsana- og hlaupareikningur.19,0%
7. Vfeitölubundnir sparifjárreikn. 1,0%
ÚTLÁNSVEXTIR:
(ársvextir)
1. Víxlar, forvextir ...........34,0%
2. Hlaupareikningar.............36,0%
3. lin vegna útflutningsafurða. 8,5%
4. Önnur endurseljanleg afuröalán ... 29,0%
5. Lán með ríkisábyrgð .........37,0%
6. Almenn skuldabréf............38,0%
7. Vaxtaaukalán.................45,0%
8. Vfeitölubundin skuldabréf .... 2£%
9. Vanskilavextir á mán.........4,75%
Þess ber aö geta, að lán vegna
útflutningsafuröa eru verötryggö
miöaö viö gengi Bandaríkjadollars.
Lífeyrissjódslán:
Lífeyrissjóöur starfsmanna ríkis-
ins: Lánsupphæö er nú 6,5 milljónir
króna og er lániö vísitölubundiö meö
lánskjaravísitölu, en ársvextir eu 2%.
Lánstími er allt aö 25 ár, en getur
veriö skemmri, óski lántakandi þess,
og eins ef eign sú, sem veö er í er
lítilfjörleg, þá getur sjóöurinn stytt
lánstímann.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna:
Lánsupphæö er nú eftir 3ja ára aðild
aö Irfeyrissjóönum 4.320.000 krónur,
en fyrir hvern ársfjóröung umfram 3
ár bætast viö lániö 360 þúsund
krónur, unz sjóösfélagi hefur náö 5
ára aöild aö sjóönum. Á tímabilinu
frá 5 til 10 ára sjóösaöild bætast viö
höfuöstól leyfilegrar lánsupphæöar
180 þúsund krónur á hverjum árs-
fjóröungi, en eftir 10 ára sjóösaöild
er lánsupphæðin oröin 10.800.000
krónur. Eftir 10 ára aðild bætast viö
90 þúsund krónur fyrir hvern árs-
fjóröung sem líöur. Því er í raun
ekkert hámarkslán í sjóönum.
Höfuöstóll lánsins er tryggöur meö
byggingavísitölu, en lánsupphæöin
ber 2% ársvexti. Lánstíminn er 10 til
25 ár aö vali lántakanda.
Lánskjaravísitala var hinn 1.
nóvember síöastliöinn 191 stig og er
þá miöaö við 100 1. júní ’79.
Byggingavísitala var hlnn 1.
október síöastliöinn 539 stig og er þá
miöaö viö 100 í október 1975.
Handhafaskuldabréf í fasteigna-
viöskiptum. Algengustu ársvextir eru
nú 18—20%.
Hljóðvarp kl. 11.20:
„Fitubolla"
Barnaleikrit eftir
Andrés Indriðason
Á dagskrá hljóðvarps kl. 11.20
er barnalcikritið _Fitubolla“ eft-
ir Andrés Indriðason. Helztu leik-
endur eru: Felix Bergsson, Mar-
grét Örnólfsdóttir. Guðmundur
Klemenzson. Róbert Arnfinns-
son. Sa>ta Jónsdóttir ok Jóhanna
Norðfjörð. Leikstjóri er Klemenz
Jónsson.
Þetta er annað leikritið, sem
Andrés hefur skrifað fyrir útvarp.
Hitt var framhaldsleikrit í fimm
þáttum, sem heitir „Elísabet" og
var flutt í útvarpinu fyrir tæpum
Andrés Indriðason
tveimur árum. Eins og kunnugt er
fékk Andrés á liðnu ári verðlaun
fyrir barnabók sína „Lyklabörn"
hjá Máli og menningu, en á
barnaárinu svonefnda efndi Mál
og menning til samkeppni meðal
rithöfunda um nýjar barnabækur.
Þá leikstýrði Andrés Indriðason
og skrifaði handrit að kvikmynd-
inni „Veiðiferðinni", en hún hefur
verið sýnd um allt land við miklar
vinsældir að undanförnu.
Andrés hefur starfað hjá Sjón-
varpinu frá byrjun, sem dagskrár-
gerðarmaður og upptökustjóri.
Hann hefur m.a. lagt til efni í
„Stundina okkar” og samið ýmsa
skemmtiþætti fyrir sjónvarp.
Þjóðleikhúsið sýndi eftir hann
barnaleikritð „Köttur út í mýri“
árið 1974.
Leikritið „Fitubolla" fjallar um
börn á skólaaldri og samskipti
þeirra hvert við annað. Upptaka á
leikritinu fór að mestu fram í
Melaskólanum og nærliggjandi
götum.
— Ég hafði nú bæði börn og
fullorðna í huga þegar ég skrifaði
þetta leikrit, sagði Andrés Indr-
iðason. Fitubollan er drengur sem
sker sig úr hópi skólasystkina
sinna fyrir það hvað hann er
feitur. Og þau veitast að honum af
þessum sökum, eins og oft vill
verða við svipaðar aðstæður. At-
burðarás leiksins tvinnast í kring-
um lítið atvik, sem á sér stað í
skólanum. í framhaldi af því
kallar skólastjórinn drenginn á
sinn fund og leiðir spjall þeirra
eitt og annað í ljós um drenginn og
hans hagi, skólasystkini hans og
jafnvel fullorðna fólkið sem að
þeim stendur.
Alfred Hitchcock: Sjónvarpið sýnir i kvöld kl. 22.40 þátt sem gerður var,
þegar bandariska kvikmyndastofnunin heiðraði leikstjórann Alfred
Hitchcock. Veislustjóri er Ingrid Bergman og meðal þeirra sem taka til
máls eru James Stewart. Anthony Perkins, Janet Leigh og Francois
Truffaut. Brugðið er upp atriðum úr allmörgum Hitchcock-myndum, en
sum þeirra eru vart við hæfi barna. Á myndinni eru m.a. (f.v.): George
Stevens (yngri), Alfred Hitchcock og Gary Grant.
Að leika og lesa kl. 17.20:
Séra Jakob seg-
ir bernskusögur
Á dagskrá hljóðvarps kl. 17.20 löngu. Sagan segir frá sönnum
er þátturinn Að leika og lesa i atburði og þar segir frá því er við
umsjá Jónínu H. Jónsdóttur. bræðurnir, Eysteinn og ég, vorum
— Meðal efnis hjá okkur í þætt- sendir til að leita að kálfi á
inum verður að séra Jakob Jónsson
segir okkur tvær stuttar sögur af
sjálfum sér, sagði Jónína, og svo
verða fastir liðir eins og venjulega;
Sesselja Traustadóttir les úr
klippusafninu og flytur leikþátt
ásamt Kjartani Haraldssyni,
Pálma Sigurhjartarsyni og Sigurði
Sigurðssyni.
Annars vegar fjalla ég þarna um
kynni mín í bernsku af móður
minni, sagði séra Jakob, og uppeld-
isaðferðir hennar, svo og um ferm-
inguna. Hins vegar er smásaga —
bernskuminning — úr bókinni
minni Segðu mér sögu sem kom út
1941 og er uppseld fyrir lifandi-
Séra Jakob Jónsson
sunnudagskvöldi.
Utvarp Reykjavík
L4UGj4RD4GUR
22. nóvember.
MORGUNINN____________________
7.00 Veðurfregnir. F'réttir.
7.10 Bæn. 7.15 Leikfimi.
7.25 Tónleikar. Þulur velur og
kynnir.
8.10 Fréttir. Túnleikar.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.) Dagskrá. Tón-
leikar.
8.50 Leikfimi.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga: Ása
Finnsdóttir kynnir. (10.00
Fréttir. 10.10 Veðurfregnir).
11.00 ABRAKADABRA
þáttur um tóna og hljóð.
Umsjón: Bergljót Jónsdóttir
og Karólína Eiriksdóttir.
Þessi þáttur var áður á
dagskrá á sunnudaginn var.
11.20 Barnaleikrit: „Fitubolla“
eftir Andrés Indriðason.
Leikstjóri: Klemenz Jónsson.
Persónur og leikendur:
Kalli/ Felix Bergsson. Kat-
rín/ Júhanna Norðfjörð.
skólastjórinn/ Róbert Arn-
finnsson, kennari/ Sigurður
Skúlason. Frissi/ Þór Stief-
el. Jói/ Guðmundur Klem-
enzson. Aðrir leikendur:
Anna Vigdís Gísladóttir,
Arna Einarsdóttir, Guðni
Elíasson, Helga Jónsdóttir
og Ilelga Þ. Stephensen.
11.50 Barnalög, sungin og leik-
in.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
SÍÐDEGID
13.45 íþróttir.
Hermann Gunnarsson segir
frá.
14.00 í vikulokin
Umsjónarmenn: Ásdls Skúla-
dóttir, Áskell Þórisson,
Björn Jósef Arnviðarson og
Óli H. Þórðarson.
15.40 íslenzkt mál
Gunnlaugur Ingólfsson
cand. mag. talar.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Tónlistarrabb; — VII.
Atli Heimir Sveinsson fjallar
um fyrstu verk Schumanns.
17.20 Að leika og lesa
Barnatimi í umsjá Jónínu II.
Jónsdóttur. Meðal efnis:
Ingibjörg Jóhannsdóttir
leikkona minnist atviks úr
bernsku sinni, Kjartan Har-
aldsson les úr dagbók sinni
og Sigurgeir Sigurðsson sér
um klippusafnið. Leikþátt
flytja Sesselja Traustadóttir,
Kjartan Ilaraldsson. Pálmi
Sigurhjartarson og Sigurður
Sigurðsson.
KVÖLDID______________________
18.00 Söngvar í léttum dúr.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 „Ileimur í hnotskurn“,
saga eítir Giovanni Guar-
eschi. Andrés Björnsson ís-
lenzkaði. Gunnar Eyjólfsson
leikari les (9).
20.00 Hlöðuball
Jónatan Garðarsson kynnir
ameriska kúreka- og sveita-
söngva.
20.30 „Yfir lönd, yfir sæ“ Jónas
Guðmundsson rithöfundur
spjallar við hlustendur: —
fjórði og síðasti þáttur.
21.15 Fjórir piltar frá Liver-
p«s)I. Þorgeir Ástvaldsson
rekur feril Bítlanna. „The
Beatles“; — sjötti þáttur.
21.5 „Illur fengur illa forgeng-
ur“. smásaga eftir Arthur
Miller. Þýðandinn, Guðrún
Kristin Magnúsdóttir, les.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.35 Kvöldsagan: Reisubok
Jóns ólafssonar Indiafara.
Flosi ólafsson leikari les (9).
23.00 Danslög. (23.45 Fréttir).
01.00 Dagskrárlok.
SKJÁNUM
LAUGARDAGUR
22. nóvember
16.30 íþrúttir.
Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
18.30 Lassic.
Sjötti þáttur. Þýðandi Jó-
hanna Júhannsdóttir.
18.55 Enska knattspyrnan.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.35 Löður.
Bandariskur gaman-
myndaflokkur. Þýðandi
Ellert Sigurbjörnsson.
21.05 Kærleikurinn gerir
kraftverk.
(Son Rise: A Miracle of
Love).
Bandarísk sjónvarpsmynd
frá árinu 1978. Aðaihlut-
verk James Farentino og
Kathryn Harrold.
Mikill fógnuður ríkir hjá
hjónunum Suzi og Barry,
þegar þeim fæðist sonur.
En brátt verður þeim Ijóst.
að litli drengurinn er hald-
inn alvarlegum sjúkdómi.
Myndin byggir á sannsögu-
legum viðburðum. Þýðandi
Guðbjartur Gunnarsson.
22.40 Alfred Ilitchcock.
Þessi þáttur var gerður.
þegar bandariska kvik-
myndastofnunin heiðraði
leikstjúrann Alfred Hitch-
cock. Ingrid Berman var
veislustjóri. og meðal
þeirra sem taka til máls
eru James Stewart, Anth-
ony Perkins, Janet Leigh
og Francois Truffaut.
Brugðið er upp atriðum úr
allmörgum Hitchcock-
myndum. og sum þeirra
eru varla við hæfi barna.
Þýðandi Dóra Ilafsteins-
dóttir.
23.55 Dagskrárlok. .