Morgunblaðið - 22.11.1980, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 22.11.1980, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1980 Jafnvægi í fram- leiðslu og sölu búvara NÍTJÁN þingmenn Sjálfstæðis- flokksins hafa la«t fram á Al- þinjíi tillöKU til þinnsályktunar um stefnumótun i landbúnaði. Fyrsti flutninKsmaður er EkíII Jónsson. Tillagan er svohljóð- andi: Alþingi ályktar að stefnumörkun í málefnum landbúnaðarins skuli óyftgjast á eftirfarandi grundvail- aratriðum: I. Treysta skal sjálfseignarábúð bænda á jörðum. Eignarréttur ein- staklinga og sveitarfélaga á landi og hlunnindum verði verndaður. Landbúnaðurinn verði jafnan met- inn sem sjálfstæður atvinnurekst- ur, þar sem framsýni og hyggindi njóti sín og sú áhætta, sem felst í rekstri og uppbyggingu, leiði til aðhalds og ábyrgðar. II. Grundvöllur landbúnaðar, er felst í ræktun landsins, verði treystur og verðmæti jarðargróð- urs aukin með nýrri þekkingu og tækni. Unnið verði markvisst að aukinni hagkvæmni í landbúnaðin- um ásamt fjölbreytni í framleiðslu og fullvinnslu búvara. III. Framleiðsla landbúnaðaraf- urða miðist fyrst og fremst við það, að fullnægt verði þörfum þjóðar- innar fyrir neysluvörur og hráefni til iðnaðar. Auk þess verði tekið fullt tillit til þjóðhagslegs gildis þeirra atvinnutækifæra annarra, sem landbúnaðarframleiðslan veit- ir. IV. Áhersla verði lögð á að treysta byggð í sveitum landsins. Miðað verði við að hefðbundnar búgreinar ásamt aukinni nýtingu hlunninda fullnægi atvinnuþörf sveitanna í núverandi mynd, en nýjar búgreinar og aukin atvinnu- tækifæri, m.a. í iðnaði og þjónustu- greinum, auki á styrk byggðar í sveitum landsins. V. Landbúnaðinum verði búin þau skilyrði, að unnt sé að tryggja bændum sambærileg lífskjör við aðrar fjölmennar stéttir þjóðfé- lagsins. VI. íbúum sveitanna verði með lögum veitt sambærileg félagsleg réttindi og þorri annarra þegna þjóðfélagsins nýtur. Aukið verði jafnræði í aðstöðu til mennta og í þjónustu opinberra aðila án tillits til búsetu. VII. Gætt verði hófsemi í um- gengni við landið og náttúru þess. Tryggt verði, svo sem tök eru á, að varðveitt séu sérstæð náttúrufyrir- brigði, gróður, dýralíf og hlunnindi. Öllum verði gefinn kostur á að njóta samskipta við náttúru lands- ins og séð verði fyrir opnum svæðum til útivistar, þjóðgörðum og tjaldstæðum. Til að unnt sé að ná framan- greindum markmiðum er m.a. bent á: 1. Gerðar verði markvissar ráðstafanir til að koma á jafnvægi í framleiðslu og sölu búvara. Sam- tök bænda fái víðtækar heimildir til að stjórna framleiðslu landbún- aðarvara í samræmi við þarfir markaðarins á hverjum tíma. I þessu sambandi er lögð áhersla á: a. Heimilt verði að leggja gjald á allt innflutt kjarnfóður, er að upphæð verði svipað og nemur útflutningsbótum á kjarnfóðri frá viðskiptalöndum okkar. b. Á meðan það ástand varir i landbúnaðinum, að heimildir til útflutningsbóta nægja ekki til að verðbæta útfluttar búvörur verði heimilt að leggja á sérstakt gjald á hámarksnotkun kjarnfóðurs, er miðist við framleiðslu og bústofn. Á meðan kvótakerfi er í fram- kvæmd verði þau bú, sem eru með svipaða eða minni framleiðslu en grundvallarbú verðlagsgrundvallar og ekki hafa umtalsverðar tekjur annars staðar frá, undanþegin framleiðslukvóta og sérstakt tillit verði tekið til frumbýlinga og þeirra annarra bænda, sem fjárfest hafa í landbúnaði á síðari árum. c. Heimildir verði áfram í lögum um verðmiðlun búvöru. d. Samtökum bænda verði veitt- ar heimildir til að skipuleggja og hagræða framleiðslu búvara innan héraða og framleiðslusvæða. í því sambandi er áhersla lögð á að markaðsþörf innanlands sé alls staðar fullnægt. 2. Til að auðvelda framleiðend- um búvara aðlögun að breyttri skipan framleiðslumála og til að koma í veg fyrir snöggar breyt- ingar í landbúnaðarframleiðslunni, sem hefðu í för með sér erfiðleika í rekstri, er m.a. leiddi til skorts á búvörum, þegar framleiðsla þeirra er í lágmarki, verði sú útflutnings- framleiðsla, sem ekki nýtur verð- bóta, að hluta verðtryggð. Árið 1980 nemi sú verðtrygging 60% af umframframleiðslunni, ár- ið 1981 40% og þegar þessu fyrir- komulagi lýkur árið 1982 nemi hlutdeild verðtryggingarinnar að- eins 20% af óverðtryggðri fram- leiðslu búvara. Tillaga Egils Jónssonar og 18 meðflutn- ingsmanna 3. Þeirri heimild, sem nú er í lögum um verðtryggingu búvara til útflutnings, verði breytt þannig, að heimiluð sé greiðsla til ákveðinna framleiðsluþátta á frumstigi. Heimildir til viðmiðunar verði inn- an þess ramma sem nú er, og nái ekki til nýrra búgreina. Jafnframt verði tryggt að þær greiðslur hafi áhrif til lækkunar á framleiðslu- kostnaði búvara. I þessu sambandi kemur m.a. til greina: a. Greiðsla til Áburðarverk- smiðju ríkisins til að lækka verð á tilbúnum áburði. b. Greiðsla vegna fjármagns- kostnaðar. c. Niðurgreiðsla á vinnsluvörum á markað innanlands til að auð- velda sölu þeirra, t.d. til þarfa iðnaðarins. d. Beinar greiðslur til bænda, sbr. þingsályktun um beinar greiðslur til bænda, sem samþykkt var á Alþingi fyrir ári. 4. Þar sem á vissum svæðum landsins á sér enn stað eyðing gróðurlendis og ísland er sérlega vel fallið til grasræktar, skiptir það höfuðmáli að bæta og vernda gróðurfar í byggð og óbyggð. Með hliðsjón af þeirri vitneskju sem fengist hefur með tilraunum og rannsóknum, ber að hraða úttekt gróðurlendisins svo að unnt verði að ákvarða nýtingu þess og koma í veg fyrir ofbeit þar sem hún kann að eiga sér stað. Stórátak verði gert til að tryggja heyverkun í landinu með aukinni votheysverkun og súgþurrkun. Jafnframt verði komið á skipu- lagðri uppbyggingu fóðuriðnaðar, er miði að því að í iandinu verði að mestum hluta framleitt það fóður sem þörf er fyrir innanlands. 5. Gert verði öflugt átak í mark- aðsmálum landbúnaðarins. Þess verði freistað að ná samningum við stjórnvöld í helstu viðskiptalönd- um okkar um að fá fellda niður innflutningstolla af íslenskum landbúnaðarafurðum, m.a. í tengsl- um við aðra viðskiptasamninga. Gert verði skipulagt átak í að fullvinna innanlands þær landbún- aðarvörur, sem nú eru fluttar óunnar úr landi, t.d. gærur og ull, og auka þannig verðmæti útfluttra landbúnaðarvara stórlega. Skipu- lag á sölu- og markaðsmálum landbúnaðarins, er lýtur að út- flutningi búvara, verði tekið til endurskoðunar m.a. með það fyrir augum að tryggja bændasamtök- unum beina aðild að framkvæmd þeirra mála. 6. Lánamál landbúnaðarins verði tekin til endurskoðunar. Þar verði m.a. athugað hvaða áhrif núverandi lánareglur, er fela í sér fulla verðtryggingu, hafa á rekstur Stofnlánadeildar landbúnaðarins. Jafnframt verði kannað að hve miklu leyti Lífeyrissjóður bænda Mengunarrannsóknum í innanverðum Eyjafirði lokið: Mengun reyndist minni en óttast haíði verið Lokið er nú mengunarrannsókn- um í innsta hluta Eyjafjarðar, einkum Akureyrarpolli, sem Nátt- úrugripasafnið á Akureyri stóð fyrir að beiðni heilbrigðisnefndar Ákureyrar, og hafa niðurstöður verið lagðar fyrir heilbrigðisnefnd og bæjarstjórn. Rannsóknirnar hafa staðið lengst af síðasta ára- tug, verið afar yfirgripsmiklar og þar að auki verið brautryðjenda- verk á þessu sviði hér á landi. Meginniðurstöður eru þær, að mengunaráhrifa gæti minna á rannsóknarsvæðinu en menn höfðu talið ástæðu til að óttast, en hins vegar kemur fram, að vá er fyrir dyrum, ef ekki verður gripið til hreinsunar skolps á Akureyri fljótlega, auk annarra fyrirbyggj- andi ráðstafana. Á árunum 1960—1970 komu fram raddir um að mikilla meng- unaráhrifa gætti í Akureyrarpolli og innsta hluta Eyjafjarðar. Tóku sumir svo djúpt í árinni að segja að Pollurinn væri líflaus orðinn og rotin leðja í botni hans. Árið 1969 var sett bann á netalagnir og fyrirdrátt í landhelgi bæjarins, af heilbrigðisástæðum. Árið 1970 samþykkti bæjarstjórn Akureyrar að láta fara fram könnun á mengunarástandinu í sjó og vötn- um við Akureyri og var heilbrigð- isnefnd bæjarins falið að sjá um það verk Vorið 1971 leitaði heil- brigðisnefndin svo til Náttúru- gripasafnsins á Akureyri og beiddist þess að það skipulegði rannsóknirnar og sæi um fram- kvæmd þeirra. Safnið var á margan hátt van- búið undir slíkt verkefni og skorti flest sem til þurfti, svo sem tæki til söfnunar, upplýsingarit og þó fyrst og fremst reynslu, enda höfðu slíkar rannsóknir aldrei verið gerðar fyrr hérlendis. Því er óhætt að segja að það tók verkefn- ið að sér með hálfum huga. Á grundvelli frumrannsókn- anna 1971 var svo gerð áætlun um framhald mengunarrannsókn- anna, sem áætlað var að stæðu í allt að fimm ára tímabil. Lögð var áhersla á að könnunin yrði alhliða og tæki til sem flestra þátta sjófræði, efnafræði, gerlafræði og líffræði. Leitað var til ýmissa stofnana um framkvæmd vissra rannsóknaþátta eða hluta af þeim. Þannig tók Rannsóknastofa Norð- urlands að sér efnagreiningar að hluta, ásamt rannsóknastofu Haf- rannsóknastofnunar í Reykjavík. Rannsóknastofa Mjólkursamlags KEA tók að sér ræktun og taln- ingar á gerlum, Líffræðistofnun Háskóla Islands tók að sér rann- sókn á botndýrum og sjóplöntu- stofnun Sorbonne-háskóla í París tók að sér könnun á þörunga- gróðri. Auk þess tóku nokkrir einstaklingar að sér verkefni. Svend-Aage Malmberg (Ha- frannsóknastofnun) mældi strauma, Erlingur Hauksson sjáv- arlíffræðingur kannaði botndýr o.fl. Karl Gunnarsson (Hafranns- óknastofnun) safnaði þörungum og Sigurður Hallsson verkfræð- ingur kannaði úrgangsefni frá iðjuverum í bænum. Af hálfu Náttúrugripasafnsins hafa fyrst og fremst hinir föstu starfsmenn þess unnið við rann- sóknirnar, einkum við sýnatökur, ýmiss konar úrvinnslu og skýrslu- gerð, ásamt fjölritun á skýrslum. Helgi Hallgrímsson hafði umsjón með rannsóknunum fyrsta árið (1971) og aftur á árunum 1977— 1980, en Hörður Kristinsson ann- aðist þær í millitíðinni, árin 1972—1976, en það var hið eigin- lega framkvæmdatímabil rann- sóknanna, enda var þeim að mestu lokið um 1975, eins og ráð var gert fyrir. Úrvinnsla og skýrslugerð fóru hins vegar að mestu fram á árunum 1975—1980. Auk ofan- greindra starfsmanna hafa þeir Hálfdán Björnsson og Sigurður B. Jóhannesson unnið við rannsókn- irnar á vegum safnsins. Hafnar- stjórinn á Akureyri lagði til bát við söfnun sýna. Frá upphafi rannsóknanna var við það miðað, að greint yrði frá niðurstöðum rannsóknanna í skýrslum sem síðan yrðu fjölritað- ar á vegum safnsins. Hafa safninu nú borist sjö skýrslur sem unnar hafa verið þannig og gefnar út, og eru þær skráðar hér á eftir: 1. Skýrsla um frumathuganir á mengun í Eyjafjarðarbotni sumarið 1971, eftir Helga Hall- grímsson og Hörð Kristinsson. Fjölrit Náttúrugripas. nr. 1. (1971). 2. Botndýr i Akureyrarpolli, e. Agnar Ingólfsson, Arnþór Garð- arsson og Svein Ingvarsson. Fjöl- rit N. nr. 3. (1972). 3. Rannsóknir á Coligerlum, súr- efni, nitrati og fosfati í Akureyr- arpolli 1971-1974, e. Hörð Krist- insson. Fjölrit N. nr. 5. (1975). 4. Straummælingar við Oddeyr- artanga í Eyjafirði, e. Svend- Aage Malmberg. Fjölrit N. nr. 7 (1978). 5. Könnun á botndýralífi i innan- verðum Eyjafirði, e. Erling Hauksson. Fjölrit N. nr. 9 (1979). 6. Botnþörungar i innanverðum Eyjafirði, e. Karl Gunnarsson. Fjölr. N. 8 (1979). 7. Könnun á fjörudýralifi i inn- anverðum Eyjafirði, e. Erling Hauksson. Fjölrit N. nr. 10. (1980). Samtals eru þessar skýrslur um 100 lesmálssíður, 85 myndasíöur og um 20 töflusíður. í þeim er að finna mikinn fróðleik um eðli og efnasamsetningu og þó fyrst og fremst um lífríki sjávarins í innfirðinum. Þessi fróðleikur hef- urekki aðeins gildi fyrir sjálft verkefnið, rannsókn mengunar, heldur hefur hann mikið almennt náttúrufræðilegt gildi. Þegar rannsóknirnar voru gerðar hafði enginn íslenzkur fjörður verið kannaður jafn vel, en nú hafa nokkrir firðir á SV.-landi verið kannaðir sambærilega. Helstu niðurstöður rannsókn- anna eru þessar: 1. I yfirborðslagi Pollsins og innsta hluta fjarðarins (innan Krossaness) eru áhrif skólp- mengunar auðsæ, einkum með vesturlandinu, næst útrásum skólpsins og í lygnum víkum. Áhrifin koma m.a. fram í: — a) Miklu magni saurgerla í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.