Morgunblaðið - 22.11.1980, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1980
23
Holmut Schmidt ræðir við Ronald Reagan.
Símamynd AP.
Washinicton. 21. nóvember. AP.
HELMUT Schmidt. kanslari
Vestur-Þýskalands og Jimmy
Carter, Bandarikjaforseti, áttu
með sér sinn síðasta opinhera
fund i fyrrada^ og jafnframt
varð Schmidt fyrstur þjóðarleið-
toKa til að eiga fund með Ronald
ReaKan, væntanleKum forseta.
í tilkynningu, sem gefin var út
eftir fund Carters og Schmidts,
sagði að þeir hefðu verið sammála
um að auka þyrfti varnarmátt
Atlantshafsbandalagsins og að
nauðsynlegt væri að komast að
samkomulagi við Sovétmenn og
bandamenn þeirra um eftirlit með
Suður-Kórea:
Stjórnmálaflokkar
leyfðir að nýju
Seoul, 21. nóv. AP.
SUÐUR-Kóreustjórn tiikynnti í
dag. að frá og með morgundegin-
um, laugardegi. yrði starfsemi
stjórnmálaflokka leyfð að nýju
vegna fyrirhugaðra þingkosn-
inga á næsta ári. Pólitísk starf-
semi verður þó áfram ýmsum
annmörkum háð.
Handtökur í
Zimbabwe
Salisburv. 21. nóv. AP.
ÖRYGGISLÖGREGLAN í Zimb-
abwe hefur handtekið ótilgreindan
fjölda starfsmanna stjórnmála-
flokks Joshua Nkomos. innanrikis-
ráðherra í stjórn Mugabes. og þar
á meðal einn þingmanna flokks-
ins, að því er tilkynnt var í dag.
Nkomo bar í dag fram kvartanir
vegna handtöku stuðningsmanna
sinna en í tilkynningu upplýs
ingamálaráðuneytisins sagði, að
nokkrir menn hefðu verið teknir til
yfirheyrslu í Salisbury og Bulawayo
að sérstökum fyrirskipunum Emm-
erson Munangagwa, en hann er
yfirmaður öryggislögreglunnar.
Talið er víst, að handtökurnar
standi í sambandi við óeirðirnar í
Bulawayo og Salisbury fyrir
skemmstu, en Mugabe hefur sakað
skæruliða og herskáa stuðnings-
menn Nkomos um að hafa staðið að
baki þeim.
í tilkynningunni sagði, að
mönnum væri heimilt að koma
saman í heimahúsum til að skipu-
leggja starf stjórnmálaflokka en
fjöldafundir verða bannaðir
áfram. Haft er eftir heimildum í
Seoul, að brátt verði stofnaður
flokkur stuðningsmanna Chun
Doo-hwan, forseta landsins, og
búst er við stofnun tveggja ann-
arra flokka, íhaldssams flokks og
flokks frjálslyndra, sem hefði
hægfara sósíalista innan sinna
vébanda.
I síðustu viku birti stjórnin lista
með nöfnum 835 manna, sem
útilokaðir eru frá þátttöku í
stjórnmálum, og eru þar á meðal
þeir, sem lengi hafa látið mikið að
sér kveða í s-kóreskum stjórnmál-
um, eins og t.d. Kim Dae-jung,
sem nú er fyrir rétti.
vopnaframleiðslu til að tryggja
hernaðarlegt jafnvægi. Samskipti
Carters og Schmidts hafa á stund-
um verið dálítið stirð en á þessum
fundi lögðu þeir áherslu á það sem
Carter nefndi „sameiginleg
stefnumál" þeirra.
Skömmu eftir fund þeirra
Schmidts og Carters átti Schmidt
50 mínútna langan fund með
Ronald Reagan, væntanlegum for-
seta, og kom hann mörgum á
óvart, því að áður hafði Reagan
neitað að eiga fund með Menach-
em Begin, forsætisráðherra ísra-
els, þegar hann var í Bandaríkjun-
um í síðustu viku. Ekki er talið að
stórpólitísk mál hafi verið til
umræðu á fundinum og allt, sem
Schmidt vildi að honum loknum
var: „Ríkisstjórinn opnaði sjálfur
fyrir mig tóbakspunginn minn.“
Bandarísk blöð gera mikið úr
fundi Schmidts og Reagans og
starfsmenn vestur-þýska sendi-
ráðsins í Washington bentu á, að
náinn, persónulegur kunnings-
skapur milli kanslarans og vænt-
anlegs Bandaríkjaforseta væri
mjög mikilvægur báðum þjóðun-
um. Um síðustu helgi lét Schmidt
í ljós þá skoðun sína, að kjör
Reagans yrði til góðs fyrir banda-
rísku þjóðina. „Það kveður nú við
nýjan tón og ákveðnari hjá banda-
rísku þjóðinni," sagði hann, „og
þess mun gæta í öldungadeildinni,
í fulltrúadeildinni og vissulega í
Hvíta húsinu með Ronald Reag-
*
Agreiningur um
rétt landluktra
þróunarríkja
Fundur Reagans með
Schmidt vekur athygli
Sameinuóu þjoóirnar. 21. nóv. — AP.
Efnahagsmálanefnd Samein-
uðu þjóðanna hvatti Allsherjar-
þingið í dag til þess að staðfesta
að nýju rétt landluktra þróunar-
landa til þess að eiga frjálsan
aðgang að sjó og ferðafrelsis á
hafi. I áliti nefndarinnar er
einnig kallað á aukna tækni- og
efnahagsaðstoð við þessi riki og
vikið að réttindum þeirra á fleiri
sviðum. Ályktunin var samþykkt
með 124 atkvæðum gegn engu, en
9 skiluðu auðu.
Mikill ágreiningur varð um
fyrstu málsgrein ályktunarinnar,
þar sem Allsherjarþingið er hvatt
til þess að „staðfesta að nýju rétt
landluktra ríkja til þess að eiga
frjálsan aðgang að sjó- og ferða-
frelsi á hafi“. í atkvæðagreiðslu
neitaði yfir helmingur ríkjanna að
styðja málsgreinina. Sjötíu og eitt
ríki skilaði auðu, fimmtíu greiddu
atkvæði með málsgreininni og 9
voru á móti.
Málsgreinin ■ verður áfram í
SÞ-krafa um
brottflutning
Sameinuðu þjóðunum, 21. nóv. AP.
Allsherjarþingið samþykkti i
dag i annað skipti á þessu ári að
hvetja til hrottflutnings alls rússn-
esks herliðs frá Afganistan. Tillag-
an var samþykkt að þessu sinni
með 111 atkvæðum gegn 22 en 12
sátu hjá.
Flest ríki múhameðstrúarmanna
og þriðja heimsins greiddu atkvæði
með tillögunni. Sum þeirra ríkja,
sem nú sátu hjá, hafa löngum fylgt
Sovétmönnum að málum, eins og t.d.
Rúmenar. í janúar sl. var samhljóða
tillaga samþykkt með 104 atkv. gegn
18 en þá sátu 18 ríki hjá.
ályktuninni og búist er við að
ályktunin í heild verði samþykkt
með miklum meirihluta á Alls-
herjarþinginu.
Fulltrúi Indlands, sem skilaði
auðu, sagði, að veiting slíkra
réttinda gæti haft í för með sér
réttarskerðingu fyrir þau ríki,
sem leið landluktra ríkja að sjó
liggur um.
Nokkur þeirra ríkja sem
greiddu atkvæði gegn tillögunni
lögðu til að málið yrði tekið upp á
þriðja þingi Alþjóðahafréttar-
ráðsins.
Flugslys
(iuam. 21. nóv. — AP.
BOEING 727-farþegaþotu hlekkt-
ist á 1 lendingu á eyjunni Yap í
Kyrrahafi í dag. 19 manns slösuð-
ust af 73 sem um borð voru.
Flugvélin sem er í eigu flugfé-
lagsins Air Micronesia er mikið
skemmd.
Talið er að slysið hafi orðið
vegna bilunar í lendingartækjum
flugvélarinnar.
Þingað um Nordsat
Frá Ib Kjornhak fróttaritara Mbl.
í Kaupmannahofn. 21. nóv.
Menningarmálanefnd Norður-
landaráðs kom saman i Kaup-
mannahöfn í dag til að taka afstöðu
til þess hvort auka eigi samvinnu
Norðurlandanna á sviði útvarps- og
sjónvarpssendinga og hvort það
eigi að gerast gegnum sameigin-
legan gervihnött, Nordsat.
Fulltrúi íslands á fundinum var
Birgir Thorlacius. í næstu viku
mætast forsætisráðherrar Norður-
landanna í Kaupmannahöfn og verð-
ur þá einnig rætt um Nordsat-
áætlunina.
Ekki er búist við því að ráðherra-
nefndin taki endanlega afstöðu á
fundinum.
Veður
víða um heim
Akureyri -5 slydda
Amsterdam 13 skýjaó
Aþena 15 skýjaö
Barcelona vantar
Bertín 13 skýjaö
BrUssel vantar
Chicago 9 skýjaó
Feneyjar 8 alskýjaö
Frankfurt 12 skýjað
Faereyjar 5 súld
Genf 11 heiðskírt
Helsinki 4 rigning
Jerúsalem 16 skýjað
Jóhannesarborg 20 skýjaö
Kaupmannahöfn 8 skýjað
Las Palmas vantar
Lissabon 20 rigning
London 13 skýjaó
Los Angeles 26 heióskírt
Madrid 16 sólskin
Malaga vantar
Mallorca vantar
Miami 23 skýjaó
Moskva 3 heiðskírt
New York 9 heiöskírt
Osló 1 skýjað
París vantar
Reykjavík -7 léttskýjað
Ríó de Janeiro 32 skýjaö
Rómaborg 14 heiðsktrt
San Francisco 20 heiðskírt
Stokkhólmur 7 skýjað
Atvinnu-
leysi 4,5%
Iielsinki. 21. nóv. AP.
ATVINNULEYSI í Finnlandi var
4,5% í síðasta mánuði. Það hlut-
fall er ögn hærra en í septem-
bermánuði, en talsvert lægra en
atvinnuleysið á sama tíma í fyrra.
Yfirvöld segja hækkunina nú
stafa af árstíðabundnum sveiflum.
176 rússneskar flugvélar
það sem af er þessu ári
Washington. 21. nóvember. AP.
BANDARÍSKAR herþotur hafa á þessu ári orðið
varar við 176 rússneskar könnunarvélar. sem flogið
hafa inn fyrir tvö hundruð mílna lofthelgi Bandaríkj-
anna og Islands. á svæðinu frá íslandi til Alaska.
Þetta er, að sögn handaríska flughersins, mjög
nálægt mcðaltali fyrri ára.
Nú í vikunni birti bandríski flugherinn myndir, sem
teknar voru af rússneskum könnunarvélum, m.a. hér við
land. Á myndinni má sjá sovéska skyttu í skotturni
sínum aftast í flugvél af gerðinni TU-95 nálægt íslandi.
Á sama tíma í fyrra höfðu 173 flugvélar flogið inn
fyrir tvö hundruð mílna eftirlitssvæðið, en árið 1978 voru
flugvélarnar 188.
Rússncsk skytta í skotturni sinum í flugvél af gerðinni TU-95 við
ísland.