Morgunblaðið - 22.11.1980, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1980
45
Æskilegast að f ólk geti valið og haf nað
V.S. skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Vissulega fagnar islenska
þjóðin því, að hinir ungu og
dugmiklu stjórnendur Hafskips
skuli vera að athuga möguleika á
kaupum farþegaskips eða ferju
til Evrópuferða. Vonandi velja
sérfræðingar fyrirtækisins skip
sem hentar farþegum, þótt um
ferju verði að ræða. Það er
kunnara en frá þurfi að segja, að
sumar ferjur velta mikið, ef
eitthvað er að veðri.
Margir eru hræddir
við að fljúga
Ég skora á forráðamenn Haf-
skips að láta nú þegar verða af
þessum kaupum. Sú var tíðin að
Gullfoss, Hekla og Dronning
Alexandrine sigldu milli Reykja-
víkur og Kaupmannahafnar með
viðkomu í ýmsum löndum. Nú er
fólk neytt til að fljúga, því að
farþegaskip er ekkert til. Æski-
legast er hins vegar að fólk geti
valið og hafnað, og þar að auki
eru margir hræddir við að
fljúga. En hvernig er það með
óskabarn þjóðarinnar, ætlar það
að svíkja okkur um nýjan Gull-
foss?
Með vinsemd og virðingu."
Án sólarljóss
er ekkert líf
fyrir 50 árum
„Talsvert hefir verið um
það rætt undanfarið. hvort
rjett sje að ísland æski upp-
töku i Þjóðabandalagið nú
þegar, eða ekki fyr en eftir
1943, þegar vjer höfum skilið
við I)ani að fuilu og öllu.
Sumir eru þcirrar skoðunar,
að rjett sje að ganga í banda-
lagið strax. því að hagurinn
af því muni vega á móti
skyldunum. Hefir Einar Arn-
órsson nýlega skrifað um
þetta mál i Lesbókinni og
ræður hann eindregið til, að
ísland gangi í Þjóðabanda-
lagið nú þegar.
Sennilega er það rjett at-
hugað hjá Einari prófessor
Arnórssyni, að tslandi yrði
hagur að því, að ganga í
Þjóðabandalagið nú þegar.
En eins og hann bcndir rjetti-
lega á, veltur þetta að sjálf-
sögðu eingöngu á þvi, hvort
ísland getur sjálft farið með
umboð sitt á þingum og
ráðstefnum bandalagsins, eða
hvort það yrði að fela Dönum
að fara með umboðið ...“
Guðmundur Auðunsson,
Stapaseli 10, skrifar 12. nóvem-
ber:
„Velvakandi góður.
Tilefni þessarar greinar hjá
mér eru þau skrif sem birst hafa
í dálkum þínum um þróunar-
kenningu Darwins og Biblíuna.
Fyrst þegar greinar bókstafstrú-
arfólksins birtust varð ég hissa.
Ég trúði því raunverulega ekki
að fólk tryði ennþá, á 20. öld,
fremur tvö þúsund ára gömlu
trúarriti, sem skrifað var þegar
menn vissu ekki betur en jörðin
væri flöt og miðja alheimsins, en
kenningum Darwins sem vís-
indamenn hafa verið að þróa í
tæplega 2 aldir. En fleiri og fleiri
hafa skrifað og lýst hneykslan
sinni á þeim sem aðhyllast skoð-
anir Darwins.
Sameiginleg-
ur íorfaðir
Sóley segist einnig rökstyðja
sitt mál. Mér þætti fróðlegt að
sjá rök hennar fyrir því sem
stendur fremst í Biblíunni. Þar
segir að Guð hafi sagt: „Verði
ljós“ — á fyrsta degi sköpunar-
innar. Og hann hafi greint dag
frá nóttu. Á þriðja degi lét hann
spretta gróður sem bæri ávöxt.
En það er ekki fyrr en á fjórða
degi sem hann skapar sólina!
Hvernig stendur þá á því að hann
gat greint nótt frá degi og látið
gróður spretta, þegar sólina
vantaði? Það hlýtur hver heilvita
maður að vita að án sólarljóss er
ekkert líf.
Með þökk fyrir birtinguna."
Þessir hringdu . . .
Útvarpsmenn
heyra ekki
til okkar
St.B.P. hringdi og var óblíð í
máli þegar hún ræddi „hljómlist-
arkraðakið" í hljóðvarpinu. Ég
veit ekki hversu margir hafa látið
í sér heyra við missi miðdegissög-
unnar, en þeir eru margir. Maður
hittir vart fólk sem komið er yfir
miðjan aldur, að ekki sé minnst á
að slæmt sé að hafa ekki lengur
miðdegissögu, en hitt hálfu verra
að þola sífellda misnotkun hljóm-
listar frá morgni til kvölds. Það
virðist vera svo, að nú geti enginn
mælt orð af vörum í útvarp, a.m.k.
ekki nokkur í röð, að ekki þurfi að
skralla með músík á milli. En ég
get frætt þá útvarpsmenn um það,
þótt þeir heyri ekki til okkar
hlustenda, eða sýni þess engin
merki í það minnsta, að miðdeg-
issaga, var ekki eingöngu vinsælt
útvarpsefni hjá eldra fólki. Mér er
kunnugt um það að hennar var
beðið með óþreyju á hverjum degi
á fjölmennum vinnustöðum af
yngri sem eldri. Það er nú ekki
gott til þess að vita þegar embætt-
ismenn loka sig svona frá þeim
sem þeir eiga og e.t.v. halda sig
vera að vinna fyrir.
Eftir hverja
helgi bætist
við kippa
B.G. hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Ég ætla nú ekki
að fara að bæta neinu við skrifin
um rjúpuna, en þó er það ein hlið á
því máli sem mig langar að orða.
Þegar þessir kappar skila sér nú
til byggða eiga sumir þeirra það
til að hengja feng sinn utan á hús
eða bílskúra, og eftir hverja helgi
bætist við - ný kippa af sundur-
skotnum fuglum. Eg segi það satt,
að ég kann ákaflega illa við að
horfa upp á slíkt og þvílíkt út um
gluggana heima hjá mér og mér
finnst það furðulegt tillitsleysi að
bjóða nágrönnum sínum upp á
þetta.
Fyrirliggjandi:
Spónaplötur á mjög hagstæöu verði.
Oregon pine, þurrkaö.
Haröviöur, þurrkaöur, ýmsar teg.
Lamina panelkrossviöur.
Plankett vegg- og loftaklaeöningar.
Viöarþíljur (antik eik, hnota).
Huntonit vegg- og loftaplötur (málaöar og
ómálaöar).
Pílárar í handriö
Plasthúö. spónaplötur.
Print haröplast ítölsk framleiösla í hæsta
gæöaflokki. Mikiö litaúrval. Veröiö sér-
staklega hagstætt.
PALL Þ0RGEIRSS0N & C0
Armúla 27 — Símar 34000 og 86100.
Mínar innilegustu þakkir fyrir audsýndan vinar-
hug með gjöfum, skeytum og á annan hátt á
áttrœðisafmœli minu 18. þessa mánaðar.
Þorbjörg Björnsdóttir,
frá Sveinungsvík.
Hjartanlegt þakklæti, færi ég öllum þeim er glöddu mig
með gjöfum, blómum og skeytum á 70 ára afmæli mínu
þann l\. nóv. sl.
Sérstakar þakkir færi ég forstöðukonu og starfsfólki,
Hraunbúðum Vestmannaeyjum.
Guð blessi ykkur öll.
Þura Þorkelsdóttir,
Hraunbúðum, Vestmannaeyjum.
, Fjölskyldu-
skemmtun með
Gosa
-í hódeginu alla sunnudaga
Enn verður Gosi viðstaddur hádegisverð í Veitingabúð Hótels
Loftleiða. Hann fer í leiki með krökkunum og er auðvitað með
nefið niðrí öllu. Kór Öldutúnsskóla í Hafnarfirði kemur í
heimsókn, stjómandi er Egill Friðleifsson. Þá verður sýning á
vetrarfatnaði fyrir börn.
Matseðill:
Rjómasveppasúpa kr. 700
Ofnsteikt lambalæri með bökuðum kartöflum kr. 4.700
Steikt ýsuflök Louisenne kr. 3.250
Rjómaís með ávöxtum kr. 1.050
Fyrir bömin:
1/2 skammtur af rétti dagsins 6—12 ára,
fritt fyrir böm yngri en 6 ára.
Auk þess: Gosaborgari m/frönskum kartöflum kr. 1.200
Nórasamloka m/frönskum kartöflum kr. 850
Verið velkomin