Morgunblaðið - 26.11.1980, Side 26

Morgunblaðið - 26.11.1980, Side 26
2 6 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1980 Guðbrandur Jörundar- son frá Vatni - Minning Hann var glaðvær og broshýr að vanda, þar sem hann lá eftir enn eina stinna brýnu við erfiðan sjúkdóm. Við áttum stutta stund saman í gáska og gamansemi. Hann var að hressast og hafði við orð, að margt væri ógert og ekki væri hann tilbúinn að deyja. En á skammri stund skipast veður í lofti, og fáum dögum síðar var hann burt kvaddur í skyndi. Enda þótt Guðbrandur Jörundarson ætti margt ógert, eins og aðrir menn í fullu starfsfjöri, þá veit ég fyrir víst, að ekkert verk, sem við varð ráðið, skildi hann eftir sig hálfgert eða vangert, og þótt ekki væri hann tilbúinn, var hann viðbúinn vel þeim umskiptum, sem orðið hafa. Við vorum báðir komnir yfir miðjan starfsaldur, þegar leiðir okkar lágu saman og hann réðst il starfa í Búnaðarbanka íslands. Ég vissi það eitt um manninn, að hann hafði átt marga ferð um Dali vestur með föður mínum fyrr á árum og þeim orðið gott til vina, og svo hitt, að þessi lágvaxni, knálegi og vingjarnlegi maður var nánast holdi klæddur kafli úr sögu íslenzkra samgöngumála, merki- legur og þjóðsagnakenndur kafli, tengdur við Dali. Samgöngur og flutningar fjár- verðmæta í stórum og dreifðum banka eru erilsamt og erfitt ábyrgðarstarf. Guðbrandur ann- aðist um langt árabil auk ýmissa annarra erinda fyrr og síðar í þágu stofnunarinnar þann veiga- mikla þátt starfseminnar að halda uppi daglegum ferðum milli Reykjavíkur og deilda bankans á Suðurlandi. Gegndi hann því af trúmennsku og öryggi, og kom þá oft að góðum notum sú mikla reynsla, sem hann hafði frá fyrri tíð. Fár var sá vandi, sem að höndum bar, hvort heldur á erfið- um ferðum eða í daglegum störf- um, að hann léti sér í augu vaxa, og engin sú mótstaðan stríð, að hann svignaði. Maðurinn var kvik- legur og snar á fæti, ósérhlífinn og hafði úrræði í seilingarfjarlægð, ef ekki á hraðbergi. Honum lét ekki að fresta verki til morguns, sem hægt var að ljúka í dag, en fór þó aldrei framar en fljótt. Verk hans öll báru enda vitni um einstaka samvizkusemi, vand- virkni og snyrtimennsku af því tagi, sem flokkast undir menn- ingu. Honum var næstum órótt innan brjósts, unz verki eða erindi var lokið með óaðfinnanlegum hætti. Þetta átti við um allt, sem honum var trúað fyrir, hvort sem stórt var eða smátt, og aldrei vafðist fyrir honum mikilvægi eða forgangsröð verkefna, því að mað- urinn var skýr og gefin góð dómgreind. Það var stolt hans og skylda að duga til hins ýtrasta í hverju máli. En Guðbrandur flutti fleira en fólk og fjárverðmæti. Hann var boðberi góðra orða milli manna, kunni ekki tvírætt tal og blendið, gerði engum manni vélar eða ófrægingar. Grandvarleiki og heil- indi voru honum í blóð borin. Því var hann aufúsugestur í hverjum áningarstað, og honum var eðli- legt að upptendra umhverfi sitt hlýrri birtu glaðværðar og góð- sinnis. Hvers konar ýfingar milli manna voru honum leiðar, og slíkar öldur tókst honum jafnan að lægja, áður en þær risu hátt, með ljúfmennsku og kurteisi. Hann var maður friðar og nær- færni, fór mjúkum höndum um allt umhverfi sitt. Hann var blíður maður og mildur, en hélt ævinlega einurð sinni og virðingu. Ég tel það verið hafa heillaríkt fyrir Búnaðarbankann og gæfu fyrir sjálfan mig persónulega að hafa notið starfskrafta, trúnaðar og vináttu Guðbrandar Jörundar- sonar um árabil. Búnaðarbankinn þakkar honum á hinztu stund árvekni og hollustu, sem aldrei brást. Hans er vissulega sárt saknað í stofnuninni og mest af þeim, sem þekktu hann bezt. Ég lærði margt af mörgu tali okkar, þegar við vorum einir á ferð. Hann átti ýmsa þá reynslu að baki, sem mér varð lærdómsrík. Vinátta og samneyti okkar skilur eftir ein- ungis hlýjar, göfugar og mann- bætandi minningar í hugskoti mínu. Á heimili okkar Sigríðar átti hann alla að vinum góðum, börn, barnabörn svo og tvö smá- dýr, sem fögnuðu honum ákaflega, þegar hann bar að garði. Öll fjölskyldan sendir ástvinum Guð- brandar hugheilar samúðarkveðj- ur. Guðbrandur Jörundarson unni landi sínu, fegurð þess og gæzku af sönnum innileik. Heimasveit hans var honum áfkaflega hjart- fólgin, og þangað sveif hugur hans löngum ofar tindum fjalla. Nú þegar hann er frjáls, er gatan greið í Dali vestur, þar sem hann fann ilm beztan íslenzkrar fegurð- ar, búsældar og sögu. Guð gefi honum gott leiði. Blessuð sé minning hans. Stefán Hilmarsson í dag kveður starfsfólk Búnað- arbanka íslands einn af félögum sínum, Guðbrand Jörundsson, frá Vatni. Guðbrandur lézt á Landspítal- anum þann 17. nóvember sl., 69 ára að aldri. Guðbrandur hóf störf sem bifreiðarstjóri hjá Búnaðar- banka íslands 1974 og starfaði þar til dauðadags. En nú er komið að kveðjustund, sem enginn getur umflúið og er skarð fyrir skildi í okkar hópi. Við samstarfsfólk hans vissum, að hann hafði ekki lengi gengið heill til skógar, en hann duldi veikindi sín undir léttu yfirbragði og sagði þetta ekki vera neitt. Það var honum ekki að skapi, að við hefðum áhyggjur af heilsu hans. Guðbrandur var mjög dulur að eðlisfari, en hann kom skoðunum sínum á framfæri með vissum léttleika, en við sem til þekktum, vissum, að undir niðri bjó djúp alvara. Hann leit fyrst og fremst á jákvæðari hliðar mála í mati sínu á mönnum og málefnum. Hafði hann mikla mannþekkingu til að bera, sem fólst í heilbrigðu mati og virðingu fyrir persónuleika hvers og eins. Guðbrandur lifði mikið fram- faratímabil í sögu lands og þjóðar. Þeim framförum fylgdu nokkrir annmarkar, m.a. þótti honum sárt til þess að vita, að vegna sívaxandi þátttöku kvenna í atvinnulífinu nytu færri börn handleiðslu mæðra sinna. I þessu sambandi minntist hann á hversu mikils virði samband hans við móður sína hafði verið. Guðbrandur bar mikla ást til átthaganna vestur í Dölum og þar höfðu þau hjónin komið upp fögrum trjálundi. Hann var næmur músikmaður og oft var skipst á um stökur við hann í léttum dúr. En nú er komið að þeim vegamótum, sem við öll komum einhverntíma að. Á þeim tímamótum vil ég þakka Guð- brandi f.h. starfsmannafélagsins alla greiðviknina og hjálpsemi í okkar garð. Það hefur verið ómet- anlegt að geta alltaf leitað til hans í tíma og ótíma með ótal verkefni. Gekk hann að þeim störfum með sömu ósérhlífninni sem öðrum. Hlýjar kveðjur og þakkir fyrir samfylgdina fylgja Guðbrandi frá starfsfólki Búnaðarbanka íslands og við vottum eiginkonu hans, Ingiríði E. Ólafsdóttur, vinum hans og venslamönnum, okkar dýpstu samúð. „Haf þokk ok heiAur, þarfi vin, haf þökk fyrir fræÖNÍu ok ráð. Svo skal við eid vor örlöjf «krá, þar iAja lífs er háÖ; hvo knúö skal stáli, varma vigt, hvert verk, hver andans dáö.“ E.B. Dóra Ingvarsdóttir Birting afmœlis- og minningar- greina. ATHYGLl skal vakin á þvi, að afmalis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem hirtast á í miðvikudagshlaði. að berast í siðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera i sendibréfs- formi. Þess skal einnig getið af marggefnu tilefni að frum- ort ljóð um hinn látna eru ckki birt á minningarorðasið- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu linubili. t Eiginmaöur minn, laöir okkar, tengdafaöir og afi, SIGURDUR KRISTJÁNSSON, Miklubraut 13, lést 21. nóvember. Stefanía Aöalsteinsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Bróöir okkar, SIGURDUR KLEMENS SIGURDSSON, •jómaöur, lést 23. nóvember, 1980. Jaröarförin auglýst síöar. Systkini hina látna. t Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, GÚSTAF SIGUROSSON, Suöurbraut 10, Hafnarfirði, andaöist sunnudaginn 23. nóvember. Jaröarförin auglýst síöar. Fyrir hönd vandamanna, Guörún Bjarnadóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Eiginmaöur minn, GUNNAR GUOMUNDSSON, skólastjóri, Skólatröö 8, Kópavogi, lést í Borgarspítalanum 24. nóvember. Rannveig Siguröardóttir. t Útför bróöur míns, ÓSKARS STEFÁNSSONAR, vólstjóra, er lést 21. þessa mánaöar, veröur gerö frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 27. nóvember kl. 10.30. Þeim, sem vildu minnast hins látna, er vinsamlegast bent á styrktarsjóö vistmanna aö Hrafnistu í Hafnarfiröi. Laufey Stefénsdóttir. t Utför SIGRÍÐAR E. HJARTAR, frá Þingeyri, sem lést aö Hrafnistu 21. nóvember fer fram frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 27. nóvember kl. 1.30. Margrót Hjartar, Hjörtur Hjartar, Ólafur Ragnar Grímsson. t Eíginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaöir og afi, GUNNAR SIGURJÓNSSON, guöfræöingur, sem andaöist aö heimili sínu, Þórsgötu 4, aöfaranótt 19. nóvember, verður jarösunginn frá Dómkirkjunni ( Reykjavík föstudaginn 28. nóvember kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuö, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á kristniboö Sambands íslenzkra kristniboösfélaga, Aðalskrifstofunni, Amt- mannsstíg 2B. Vilborg Jóhannesdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Þökkum auösýnda vináttu og samúö viö andlát og jaröarför RUDÓLFS SÆBÝ. Björn Grétar Ólafsson, Þóra Jónsdóttir, Ólafur Matthíasson, Elsa Baldursdóttir. t Innilegar þakkir færum viö öllum þeim er sýndu okkur samúö og hlýhug viö andlát og jaröarför eiginkonu minnar, móöur okkar, tengdamóöur, ömmu, dóttur, systur og mágkonu, HRAFNHILDAR SIGURDARDÓTTUR. Guómundur Ingvason, Siguröur Th. Guömundsaon, Elsa Sveinbjörnsdóttir, Guömundur Rúnar Guðmundsson, Yngvi Óóinn Guómundsson Jóhanna Kristín Guömundsdóttir, Valgeröur Laufey Guömundsd- Hrafnhildur Siguröardóttir, Valgeróur Laufey Einarsdóttir, Sólon R. Sigurösson, jóna V. Árnadóttir, Einar J. Sigurösson, Sigurlaug Ottósdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.