Morgunblaðið - 26.11.1980, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 26.11.1980, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1980 31 Peter Benchley EYdflN „EYJAN" er •ftir sama höfund og Ókindin (Jaws) og Djúpiö (The Deep), en kvikmyndir hafa veriö geröar eftir béöum þéim sögum og eru þær vel kunnar. „EYJAN" hefur veriö á metsölulista í Dretlandi og Bandaríkjunum allt s.l. ár, enda óvenjuleg í hryllingi sinum og lýsingar Benchleys á „EYJUNNI" og samfélagi hennar eiga sér naumast hliöstæöu. KIENZLE Ur og klukkur hjá fagmanninum. Ensku- námskeið í Coventry HÉR Á landi er nú stödd frú Jaqueline Gatenby frá Coventry í EnKÍandi. Hún starfar hjá mála- skólanum „Enjrlish Studies Cent- er“ 1 Coventry og mun dveljast hér i viku ok kynna íslendingum starfsemi skólans. Morgunblaðið ræddi stuttlega við Gatenby og sagði hún m.a. að skólinn byði upp á kennslu við allra hæfi, allt frá byrjendakennslu upp að háskólastigi. Nemendur búa á enskum heimilum og samhliða nám- inu er farið í kynnisferðir um borgina og út á land. Hún sagði að ungt fólk sækti skólann einkum á sumrin, en allan ársins hring væri boðið upp á sérstök námskeið í viðskiptaensku, tæknimáli, einka- ritaraensku o.fl. Nemendum gefst einnig kostur á ýmis konar íþrótta- iðkun með náminu. Gatenby hafði samband við Mála- skólann Mími og Málaskóla Hall- dórs Thorsteinssonar og sagðist vonast til að geta einnig rætt við enskukennara í framhaldsskólum hér á landi. Ferðamiðstöðin hf. er umboðsaðili fyrir skólann hér og skipuleggur ferðir utan, bæði fyrir einstaklinga og hópa. Gatenby sagði að allar upplýsingar um skólann fengjust þar, en einnig gætu þeir sem hafa áhuga hringt í sig að Hótel Loftleið- um fram að laugardegi, en þá fer hún af landi brott. Talið frá vinstri: Birgir Ás Guðmundsson yfirheyrnar- og talmeinafræðingur, Þuríður Kristjánsdóttir formaður Zontaklúbbs Reykjavíkur, Ingimar Sigurðsson formaður stjórnar Heyrnar- og talmeinastöðvar íslands og Einar Sindrason yfirlæknir. Heyrnar- og talmeinastöðin fær höfðinglega gjöf frá Sontasystrum IIEYRNAR- og talmeinastóð ís- lands hefur nýlega borist höfð- ingleg gjöf frá Zontasystrum. Gjöfin er mjög nákvæmt sjúk- dómsgreiningartæki til greiningar á sjúkdómum í raddböndum, svo- kallað Stroboscop. Hægt er að sjá sjúkdóma á algeru frumstigi strax og þeir fara að valda hreyfingarhindrunum. Gerir þetta kleift að sjá fyrir ýmsa sjúkdóma, sem erfitt hefur verið að greina áður á byrjunar- stigi, s.s. krabbamein í raddbönd- um. Auk þess er tækið mikilvægt til að finna alls kyns bólgur og hnútamyndarnir, sem finnast hjá fólki, sem þarf mikið að beita röddinni, eins og kennarar, söngv- arar o.fl. Jafnframt er tækið mjög mikilvægt í sambandi við stjórnun á meðferð, sérstaklega með tilliti til þess hvort þurfi að fara í skurðaðgerð eða hvort hægt sé að viðhafa aðrar lækningaaðferðir. Heyrnar- og talmeinastöð Is- lands vill nota tækifærið til þess að þakka Zontasystrunum þessa höfðinglegu gjöf, sem er ein af mörgum, sem þær hafa gefið í þágu heyrnardaufra og talsjúkra. Fréttatilkynning Og svolítið fyrir augað Fimmtudagskvöld 27. nóvember gefst gestum Blómasalar enn einu sinni að njóta sælkeramáltíðar í góðu umhverfi. Að þessu sinni eru það nýmæli að sælkeri kvöldsins Sigmundur Guðmundsson flugum- ferðarstjóri annast einnig borðskreytingar af kunnáttu og smekk- vísi. Matseðill Sigmundar: Eplabökuð smálúða í bvítvíni Flétan emhallée en pommes, souce vin blanche Grísakótilettur Sælkerans Cotes de porc gourmet Útilegubátur með Líkjörsfarmi Banane au four au Jiqueur de cacao Konfektkökur Petits Fours Njótið gómsætrar máltíð- ar og kynnist af eigin raun listfengum borðskreytingum Sigmundar. Borðpantanir í símum 22321 og 22322. Verið velkomin Ný skáldsaga eftir Graham Greene komin út: Sprengjuveizlan SPRENGJUVEIZLAN heitir nýj- asta skáldsaga Grahams Greene og er hún nýútkomin hjá Almenna hókafélaginu. Sagan kom fyrst út í Bretlandi siðastliðið vor og heíur í haust verið að koma út víðsvegar um heiminn. I fréttatilkynningu frá AB segir, að aðalefni bókarinnar sé könnun á fégræðgi mannsins klædd í búning spennandi skemmtisögu. §agan er m.a. kynnt þannig á kápu: Dr. Fischer er kaldhæðinn og tilfinningalaus margmilljónari. Mesta lífsyndi hans er að auðmýkja hina auðugu „vini“ sína. Hann býður þeim reglulega í glæsilegar veislur og þar skemmtir hann sér við að hæða þá og niðurlægja. Hann þykist öruggur að bjóða þeim hvað sem er því að í veislulok eiga þeir von á afar dýrmætum gjöfum frá gestgjafanum. Þetta nær hápunkti í síðustu veislunni. Þar eiga gestirnir, 6 að tölu, að sprengja jólaknöll. Þeim er sagt að í 5 af þessum knöllum séu fjármunir, 2 milljónir svissneskra franka í hverjum, en í einu sé banvæn sprengja. Hversu langt getur fégræðgin teymt menn? Inn í þessa einkennilegu sögu fléttast fögur ástarsaga dóttur hins mikla dr. Fischer og Englendings sem segir söguna. Björn Jónsson skólastjóri hefur þýtt Sprengjuveisluna. GrahamGreene Barbaraí HSLUVUSðD Hollywood stjarnan Barbara Streisand sem ekki aöeins þykir góð kvikmyndaleikkona heldur einnig frábær söng- kona hefur nú sent frá sér aldeilis afbragösgóða L.P.-plötu Guilty. Þessi plata veröur kynnt hjá okkur í Hollywood í kvöld og aö sjálfsögöu allir boönir vel- komnir. HOLUJWOOD1 011 tónliil i Hollywood ÍKimtba i Sauða- nes er vel setið Sigurður Jónsson. Efra-Lóni. hef- ur sent hlaðinu athugasemd vegna greinarinnar. „Svipmyndir frá bórshófn og nágrenni“. sem birtist 9. nóv. sl. Telur hann frásögn af heimsókn að Sauðanesi mjög mis- heppnaða og gefa ranga hugmynd af þvi, sem fyrir auga ber. Sigurður segir: „Á undanförnum 10 árum hefur á Sauðanesi verið byggt upp fyrir- myndarheimili. Þar er svo til nýtt stórt íbúðarhús, fjárhús yfir 700 fjár, vel einangruð með djúpum kjöllurum, grindalögð. Heyhlöður með súgþurrkun yfir . vetrarfóðrið, vönduð og stór vélageymsla, hesthús fyrir 20—30 hesta, grafnir nokkrir km. af skurðgröfuskurðum og tún ræktað fyrir þann bústofn sem húsin rúma. Girðingar um tún og engi og auk þess stór fjárgirðing um órækt- að beitiland. Hér hafa verið að verki ung hjón sem á sama tíma hafa eignast og alið upp myndarleg börn. Auk þessa sem hér hefur verið nefnt hafa þessi hjón tekið virkan þátt í félagsmálalífi byggðarlagsins og voru á tímabili kennarar við barnaskólann í Þórs- höfn.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.