Morgunblaðið - 30.11.1980, Page 24

Morgunblaðið - 30.11.1980, Page 24
56 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1980 Félagsstofnun stúdenta: Athugasemdir við rangfærslur Hlutleysi gagnar ekki BLAÐINU hefur borist eftirfar- andi frá Ilagsmunanefnd Vöku, félaKs lýöræðissinnaðra stúd- enta: Vegna athugasemda stjórnar Félagsstofnunar stúdenta, sem birtust í Morgunblaðinu 11. nóv- ember sl., vill hagsmunanefnd Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, taka eftirfarandi fram. Vaka hefur ávallt bent á þá hættu, sem felst í þeirri stefnu sem fylgt hefur verið í rekstri Félagsstofnunar stúdenta undan- farin ár, og kemur skýrt fram í ástandi á stúdentagörðunum. Vaka hefur bent hvað eftir annað á nauðsyn þess, að leiguverðið standi undir eðlilegum rekstrar- kostnaði. Þessari stefnu hafa kommúnistar þeir, sem eru ráð- andi afl í rekstri fyrirtækisins, alfarið hafnað og eru afleiðingar þess nú óðum að koma í ljós. Garðarnir eru vart íbúðarhæfir vegna uppsafnaðrar viðhaldsþarf- ar, en þrátt fyrir það reyndi stjórn Félagsstofnunar að sprengja upp leiguverðið og hengja þannig nú- verandi leigjendur á görðunum fyrir það skipbrot, sem hin sósíal- íska rekstrarstefna hefur beðið. Stúdentaráð hafnaði þessari ómerkilegu aðför stjórnarinnar og studdi leigjendur garðanna og sanngjarnar kröfur þeirra um, að leiguverðið yrði lítið hækkað frá því sem var vegna ömurlegs ástands garðanna. Ekki höfðu þó allir ráðsliðar kommúnista manndóm í sér til þess að standa við þessa ákvörðun sína. Stjórn Stúdentaráðs — sem er eingöngu skipuð fulltrúum róttæklinga — boðaði til skyndifundar í ráðinu, þar sem boðuð var stefnubreyting í þá átt að hætta átti öllum stuðningi við garðbúa en fylkja liði með stjórn Félagsstofnunar. BLAÐINU hefur borist eftirfar- andi frá Manneldisfélagi íslands: Nýlega var haldinn fundur á vegum Manneldisfélags Islands, þar sem rætt var um matvæla- löggjöfina, framkvæmd hennar og áhrif. Frummælendur voru þau Ingimar Sigurðsson, deildarstjóri í Heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytinu, Þórhallur Hall- dórsson, framkvæmdastjóri Heil- brigðiseftirlits Reykjavíkurborg- ar, Stefán Vilhjálmsson, matvæla- fræðingur hjá Kjötiðnaðarstöð KEA, og Alda Möller, matvæla- fræðingur. Ingimar Sigurðsson gerði stutta grein fyrir matvælalöggjöfinni, sem rekur aldur sinn til ársins 1936. Taldi Ingimar, að þótt þessi gömlu lög hafi á margan hátt reynst vel, þá sé nú vel tímabært að endurskoða löggjöfina í heild. Matvælalöggjöfin byggist að miklu leyti á setningu reglugerða, og virðast flest, ef ekki öll ráðu- neyti hafa lagt sitt af mörkum og gefið út reglugerðir varðandi eft- irlit með matvælum, framleiðslu þeirra, dreifingu eða sölu. Er nú svo komið, að fjöldi reglugerða er orðinn slíkur, að á fárra færi er að fylgjast með öllum þeim boðum og bönnum sem sett hafa verið. Ekki bætir úr skák, að skörun, og jafnveí mótsagnir, er að finna milli einstakra reglugerða þar sem fleiri en eitt ráðuneyti fjalla um sömu málefni. Taldi Ingimar því ráðlegast að samræma eftirlit með matvælum undir eina stjórn. Þórhallur Halldórsson ræddi síðan um framkvæmd matvæla- löggjafarinnar. Hann lagði áherslu á að framtíð virks eftirlits Þessu hafnaði Stúdentaráð gegn andmælum nokkurra róttæklinga, sem kröfðust þess, að núverandi leigjendum yrði refsað vegna þeirra mistaka í rekstri, sem stjórn Félagsstofnunar hefur orð- ið sek um. Ráðið samþykkti aftur á móti tillögu þess efnis, að aflað yrði fullkomnari gagna um málefni garðanna og stóð því fyrri ákvörð- un ráðsins um stuðning við garð- búa óhögguð. Þrátt fyrir þessa niðurstöðu Stúdentaráðs, sátu tveir fulltrúar stúdenta í stjórn Félagsstofnunar hjá við atkvæðagreiðslu um þessi mál og virtu þannig vilja Stúd- entaráðs að vettugi. Þessir tveir — fulltrúar stúdenta, hafa þannig gerst sekir um gróft trúnaðarbrot og ættu því að segja af sér skilyrðislaust og án tafar. I fyrrgreindum athugasemdum gerir stjórn Félagsstofnunar bók- haldsmál fyrirtækisins að umtals- efni. Þar er fullyrt, að bókhalds- mál þess séu í góðu horfi og ekkert ami þar að. Vaka fagnar því, ef satt er, að bókhald þessa fyrirtæk- is sé nú loks komið í lag, enda er löngu kominn tími til. En það eru rangfærslur sem ráðandi öfl innan fyrirtækisins hafa reynt að koma að hjá stúdentum, að bókhald fyrirtækisins hafi ávallt verið í besta lagi. Vaka hefur hvað eftir annað krafist þess að fá að líta í bókhald Félagsstofnunar stúd- enta, en ávallt fengið þau svör, að það væri ekki mögulegt vegna þess að það hafi ekki verið fært. Ekkert bókhald hefur verið til staðar, þrátt fyrir fullyrðingar kommún- ista um hið gagnstæða. í athugasemdum heldur stjórn Félags^ tofnunar því fram, að „áætlanir" þær, sem til séu um rekstur stúdentagarðanna, séu byggðist á ráðningu sérmenntaðs fólks til eftirlitsstarfa, og nefndi matvælafræðinga, sem Háskóli Is- lands útskrifar, í þessu sambandi. Einnig væri brýn nauðsyn að bæta starfsaðstöðu, einkum utan höfuð- borgarsvæðisins. Taldi Þórhallur, að samvinna nærliggjandi sveitar- félaga um heilbrigðiseftirlit gæti verið þáttur í bættri aðstöðu og aukinni hagræðingu eftirlitsins. Stefán Vilhjálmsson ræddi síð- an um löggjöfina frá sjónarhóli framleiðenda. Hann benti á, að reglur um merkingar matvæla væru bæði óljósar og erfiðar í framkvæmd. Hönnun nýrra merkimiða væri kostnaðarsöm, og því væri þörf á greinargóðum fyrirmælum um merkingar,.þann- ig að ekki þyrfti sífellt að endur- nýja miðana. Ennfremur taldi Stefán, að nokkurs misræmis gætti í eftirliti með innlendum og innfluttum matvælum, t.d. sæjust stundum aukaefni, sem bönnuð eru hérlendis, í innfluttum mat- vælum. Til hvers ætlast neytandinn af matvælalöggjöfinni? Þetta efni hafði verið rætt í umræðuhópi fyrir fundinn, og flutti Alda Möll- er, ritari félagsins, niðurstöður hópsins. Starfshópurinn komst að þeirri niðurstöðu, að máttlítið eftirlit með matvælum valdi því, að neytendum sé ekki tryggð eðlileg hollusta matvæla. Lítið sem ekkert er fylgst með efna- mengun matvæla, og notkun litar- efna og annarra aukefna er einnig að miklu leyti eftirlitslaus. Grun- ur leikur á, að framleiðendum sé hvorki nógu vel kunnugt um ákvæði reglugerða um leyfð auk- ekki haldlaus gögn. Það eina, sem Stúdentaráð hefur fengið í hendur um þessi efni, er eitt handskrifað blað, sem er órökstutt með öliu, og er illa komið fyrir þessu fyrirtæki stúdenta ef allur rekstur þess byggist á plöggum sem þessum. Allt hjal stjórnar Félagsstofn- unar um það, að hún sé hlynnt málefnalegri umræðu um stöðu fyrirtækisins, er markleysa. Stjórnendur þessa fyrirtækis hræðast alla umræðu um málefni þess eins og sést best á því, þegar framkvæmdastjóri fyrirtækisins mætti á fundi hjá Stúdentaráði — til málefnalegra umræðna að því er ráðsliðar héldu — og byrjaði á því að skýra frá því, að hann hefði ekki tíma til að vera lengi á fundinum vegna anna. Slíkt virðingarleysi við fulltrúa stúdenta er ólíðandi, en sýnir vel afstöðu stjórnar Félagsstofnunar til umbjóðenda sinna og vilja þeirra og þor til umræðna um málefni fyrirtækisins. Einnig mætti geta þess, að fulltrúar Vöku í hagsmunanefnd Stúdentaráðs lögðu fram tillögu þess efnis, að aflað yrði fyllri upplýsinga um stöðu Garðanna hjá stjórn Félagsstofnunar. Þessi tillaga var lögð fram á fundi hagsmunanefndar fyrir einum og hálfum mánuði síðan. Ekkert svar hefur enn borist frá stjórn Félags- stofnunar við þessari beiðni, hvað sem því kann að valda. Annað hvort er hér um áhugaleysi að ræða eða þá, að engin ábyggileg gögn eru til staðar um stöðu og rekstur Garðanna. Athugasemdir stjórnar Félags- stofnunar eru uppfullar af rang- færslum og útúrsnúningum. Hags- munanefnd Vöku hvetur stjórnina til að einbeita sér að því að lagfæra það, sem miður hefur farið í rekstri fyrirtækisins á síðustu árum, og láta af þeim ljóta leik sínum að vera með hátt- stemmdar yfirlýsingar á síðum dagblaðanna, sem fá alls ekki staðist. Hagsmunanefnd Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta. efni né um samsetningu ýmissa innfluttra aukefnablandna, sem notuð eru við framleiðslu. Eftirlit með gerlamengun er mun virkara, en þó fer slík mengun að sumu leyti vaxandi vegna breyttra neysluvenja og aukinna samgangna við útlönd. Merkingar matvæla voru einnig til umræðu, og taidi starfshópur- inn, að neytendur ættu rétt á bættum merkingum, en þó fyrst og fremst að allar merkingar væru réttar og byggðar á rannsóknum. Mætti það teljast lágmarkskrafa, að nafn framleiðenda, geymsluþol og nettóþyngd innihaldsins, auk hráefna samsettra matvæla, væru tilgreind á pakkanum. Ekki væri heldur við það unandi, að merk- ingar væru á tungumálum óskilj- anlegum öllum þorra landsmanna. Einkum væri mikilvægt að merk- ingar og leiðbeiningar um notkun á ungbarnaþurrmjólk væru á ís- lensku og styddust við einingar metrakerfisins (grömm, desilítra o.s.frv.) í stað annarra lítt kunnra eininga, svo sem únsa. Að lokum taldi starfshópurinn, að æskilegt væri að færa mat- vælaeftirlitið sem mest inn í fyrirtækin sjálf, þannig að stærri fyrirtækjum væri gert skylt að ráða til sín sérfróðan starfsmann, sem bæri ábyrgð á framleiðslunni, og að smærri fyrirtæki sameinuð- ust um slíka ráðgjafaþjónustu. Einnig þyrfti að gera heilbrigðis- eftirlitinu kleift að ráða fleira sérmenntað fólk í sína þjónustu. Forsenda þess, að neytendum væri tryggð eðlileg gæði og hollusta matvæla væri þó, að neytendur sjálfir væru vel á verði um sín hagsmunamál, en til þess að svo mætti verða, þyrfti að auka veru- lega almenna fræðslu á matvæla- og næringarsviði innan skólakerf- isins. Fyrir hönd stjórnar Manneldisfélags íslands, Laufey Steingrimsdóttir Innrás Sovétmanna í Afgan- istan, og áframhald á hernaðar- aðgerðum þeirra þar, hafa haft mikil áhrif varðandi skoðanir margra hér í Noregi. Aðgerðir Sovétmanna þar eystra, sýna betur en nokkuð annað, að það er lítil stoð í að vera hlutlaust, varnarlítið land, svo sem Afgan- istan. Þær raddir, sem hæst hafa hrópað varðandi hlutleysi og afvopnun, hafa hljóðnað, og fólk flest, sem á annað borð fylgist með stjórnmálum, hefur lært sína lexíu út frá áðurnefndum atburðum. Fólk, sem komið er yfir miðj- an aldur, hefir reyndar orðið vitni að því að hlutleysi og Morgunblaðinu hafa borizt til birtingar eftirfarandi um- sagnir erlendis um Stundarfrið: Ljósið kemur frá Reykjavík Svenska Dagbladet, 30. sept- emher 1980, Stokkhólmi Áke Janzon skrífar: Stundum gerist það að sænska leikhúsið vinnur í stílfærslum, allavega í leiktjöldum og um- hverfi, jafnvel í tiltölulega raunsæjum leikritum. En við getum fullyrt að við erum ein- ungis byrjendur í því tilliti eftir að hafa séð gestaleik íslenska Þjóðleikhússins í Klara-Ieikhús- inu hér í Stokkhólmi — aðeins ein sýning, því miður. Hér er ekkert hálfkák á ferð- inni. Leikmyndateiknarinn, Þór- unn S. Þorgrímsdóttir, hefur skapað djúpt keilulaga leikrými, alhvítt, nánast án húsgagna nema hvað til hægri eru tveir barstólar, einnig er sjónvarps- tæki og veggfast stereóhljóm- flutningstæki er til vinstri. Bak við grisju glittir í nokkra stál- rörstóla umhverfis borð. Þetta er ekki einungis stíl- færsla, þetta er gerilsneyðing nánast — ryksuga leikur gegn- umsneitt mikilvægt hlutverk meðal fárra og einfaldra leik- muna. Það eina sem gefur leik- rýminu líf — eða undirstrikar tómleikann — eru hljóðin úr í það minnsta þremur símtækjum, nokkrum ferðaútvarpstækjum sem keppa við sjónvarpið og stereótækin um völdin í þessum hljóðaheimi. Tónlistardagskráin er fjölbreytt: allt frá Bach til Rossini, frá Mozart til Offen- bach — og svo auðvitað öll þessi nýja popptónlist, sem ég er ekki nógu gamall til að dæma um. En hvað með manneskjurnar? Tekst hinum djarfa leikstjóra, Stefáni Baldurssyni, einnig að stílfæra þær? Ekki alveg, en hin afvopnun hefir boðið hættunni heim. Það var vorið 1940, þegar Þjóðverjar réðust á landið, og kúguðu síðan þjóðina í 5 ár. Þessari lexíu hafa hinir eldri Norðmenn ekki gleymt, en at- burðirnir í Afganistan hafa hinsvegar orðið til að minna fólk betur á að lítil stoð er í afvopnun og hlutleysi. Síðustu árin hafa varnir Nor- egs verið efldar, og fjárveitingar til hermála hafa stórum aukist. Gert er ráð fyrir aukafjárveit- ingu á þessu ári, sem nemur a.m.k. 300 millj. n. króna. Fé þetta fer m.a. til eflingar á strandvirkjum, og til að mæta aukakostnaði vegna hækkandi verðs á bensíni og olíu. stórbrotna stóra systir fjölskyld- unnar leikur glæsilega sjálf- umglaða kynbombukvenvél sem þýtur frá einu símtæki til ann- ars í glansandi silkifatnaði og á háum hælum. Enginn getur keppt við hana í líkamsburðum, en Kristbjörg Kjeld, sem leikur móðurina, stendur henni þó ekki langt að baki, og maður skilur firringu yngstu dótturinnar — það er Guðrún Gísladóttir sem leikur hana, hrædd eins og fugl, en augun full af uppreisn. Stundarfriður er sem sé fjöl- skyldudrama, eða öllu heldur: Þetta er ekkert drama, heldur kröftug lýsing á fjölskyldulífinu á norðurhveli jarðar eins og það er þegar orðið eða verður innan tíðar: stressað, sambandslaust, stjórnast af vélum, pillum og fjölmiðlum. Ekki stundarfriður — fjöl- skyldufaðirinn, Haraldur, hefur þegar fengið hjartaslag og hefur engan tíma aflögu fyrir elsku- lega foreldra sína þegar þau koma í heimsókn í ellinni. Hann er leikinn af Helga Skúlasyni með taugaveiklunarfyndni, en hann fær ekkert tækifæri sem faðir eða sonur eða eiginmaður fyrr en í lokaatriðinu þegar sjónvarpið bilar og hann upp- götvar skyndiiega litla hrukku í fallegu andliti eiginkonu sinnar. Allt í einu horfa þau hvort á annað. Þetta eru lokamínúturn- ar. Þetta er ekki stórbrotið leikrit en óhugnanlega áhrifamikið í einföldun sinni. Líklegast einnig í tilsvörunum sem ég skildi ekki eitt orð af — íslenska er vinalegt tungumál séð á prenti, en fram- sagt er það næstum eins erfitt og mesópótamíska. En svo mikið er víst að íslenska Þjóðleikhúsið hefur starfskrafta sem það getur verið stolt af. Matvælalöggjöfín: Ekki er kyn þótt keraldið leki Umsagnir um Stundarfrið ^Stundarirutur^ Ljuset kommer frán Reykiavikj

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.