Morgunblaðið - 30.11.1980, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 30.11.1980, Qupperneq 26
58 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1980 JOHN & YOKO John Lennon er svo sannarlega ekki lengur rödd hins unga reiða manns. „Double Fantasy“ er ekki jafn sterk endurkomuplata og vonast var eftir, þó ekki sé hægt að segja annað en að platan sé góð. Það er ekkert vafamál að hlutur Yoko Ono á plötunni á eftir að virka illa hjá mörgum aðdáenda hans, en þó er hún mun aðgengi- legri í tónlist sinni í dag meðal nýrri stefna í popptónlist, heldur en hún var þegar hún gaf út sínar stórgóðu plötur „Approximately Infinite Universe" og „Feel the Space", sem fáir vildu reyndar gefa tækifæri á eftir fyrri plötur hennar. „Double Fantasy" er þó nokkuð mikið truflandi. Lögunum er rað- að þannig að þau eiga lag til skiptis, þannig að platan virkar sundurlaus vegna ólíkrar tónlist- ar. Lennon-lögin eru flest ljúf og mild og fjalla um ástir og sambúð hans við Yoko og um fjölskylduna sína. Allt er þetta fremur inn- hverft og við sem höfum ekki kynnst þvi hvernig er að vera giftur Yoko eigum ekki kannski allir jafn gott með að skilja hlutina til hlítar. Lögin hans Lennons eru „Start- ing Over“ sem flestir hljóta að hafa heyrt nú þegar, lag í gömlum rokkstíl, þó ekki neitt keyrslurokk. Lagið er fallegt og létt og á án efa eftir að hljóma þó nokkuð á næstu mánuðum. Textinn fjallar um ást- ina þeirra Yoko og eilíf endurnýj- un hennar. Næsta Lennon lag er „Cleanup Time" og fjallar um þær hreinsanir sem þau þurftu að gera á málefnum sínum eftir að Beatles hættu. Lagið er nokkuð í þeim stíl sem hann var með á seinni plötum sínum. „I’m Losing You“ er blúsari, þ.e.a.s. í Lennon stílnum, svipað og „Yer Blues" er Lennon-blús. „Beautiful Boy“ fjallar um Sean son þeirra hjóna. Lagið er afskap- lega milt og ljúft og fallegt. Lagið minnir á rólegri lögin á Mind Games eins og flest allt Lennon- efnið hér gerir. Þess má líka geta að Björgvin Halldórsson notaði svipaða hljóma í laginu „Japanska stúlkan" á síðustu Lónlí Blú Bojs plötunni. „Watching the Wheels" fjallar um gagnrýni á hann vegna fjar- veru hans frá plötubransanum. Lagið er nokkuð gott og vinnur vel á. Þegar Newsweek spurði hann í viðtali í sumar hvers vegna hann væri byrjaður að taka upp aftur sagði hann „vegna þess að þessi „húsmóðir" (þ.e.Lennon) hefur áhuga á að hasla sér smá völl á ný. 9. október verð ég (varð að sjálf- sögðu) 40 ára og sama dag verður Sean 5 ára, og ég hef efni á að segja „Pabbi gerir annað líka“ (heldur en að elda ofan i hann og sinna). Hann er ekki vanur því — í fimm ár hef ég varla snert á gítar. Um síðustu jól sýndu ná- grannarnir honum „Yellow Sub- marine“ og hann kom hlaupandi inn og sagði, „Pabbi þú varst að syngja ... varst þú bítli?“. Ég sagði „Reyndar, já.“ Lagið „Watching The Wheels“ kemst næst því að ná upp stemmningunni á „Mother" plöt- unni. „Woman“ er með lélegasta text- anum. Jafnvel flestir byrjunar- textarnir voru betri! En lagið er mjög gott og á án efa eftir að verða vinsælt. Einna helst minnir það á rólegri lögin sem hann samdi á meðan hann var í Beatles. „Dear Yoko“ er ekkert líkt „Oh Yoko“ og fjallar um ást hans á Yoko að sjálfsögðu. Lagið er nokkurs konar boogie/rokk í Lennon-stílnum. Lög Yoko, „Kiss Kiss Kiss“, „Give Me Something”, „I’m Mov- ing On“ „I’m Your Angel“, „Beautiful Boys“, „Every Man Has a Woman Who Loves Him“ og „Hard Times Are Over“, eru öll sterkari en frá henni hefur heyrst áður. Textar hennar segja oft hér meira en textar Lennons, þó fár- ánlegt sé að líkja þeim saman að öðru leyti í tónlist. Hennar stíll er í rauninni fersk- ari í dag og lög eins og „Kiss Kiss Kiss“, „I’m Your Angel", „Every Man Has a Woman Who Loves Him“, og „I’m Moving On“ eru allt klassa lög. En það er ljúft að heyra í Lennon aftur og án efa á platan eftir að breytast í hugum manna í framtíðinni líkt og með aðrar plötur hans, en það er gaman að Lennon og Yoko skulu vera virk á ný- Þess má líka geta að þau tóku ekki bara upp þessa plötu, því efni á næstu plötu lá tilbúið á sama tíma, þannig að búast má við henni strax 1981. hia. Umhverfis jörðina á 45 mín. HALLI OG LADDI (Hljómplötuútgáfan JUD 029).' Þeir félagar Halli og Laddi hafa nú skemmt landsmönnum um nokk- urra ára skeið við góðar undirtekt- ir. Þeir hyrjuðu mcð Gunnari Þórð- arsyni og Gisia Rúnari f plötu- hransanum með plötunni „Látum sem ekkert c“, sem enn 1 dag stendur sem þeirra sterkasta kímn- iplata. þó hinar seinni standi flest ar bærilega fyrir sfnu. Og eins og aðrir í tónlistarlífinu hafa þeir tekið sér ýmislegt fleira fyrir hendur, eins og Glám og Skrám-plötuna með Ragnhildi Gísladóttur, og að sjálfsögðu HLH-flokkinn með Björgvini Hall- dórssyni, sem sló í gegn á síðasta ári. Á sinni nýju plötu „Umhverfis jörðina á 45 mín.“, taka þeir fyrst og fremst fyrir svipað glens og verið hefur á undanförnum plötum þeirra með viðeigandi tæknibrellum og hljóðum auk efnis sem hæfði HLH-flokknum, sem eru gömul gull- aldar-rokklög, en þau eru nokkur á þessari plötu. Þeir félagar koma víða við, og líkja eftir tónlistareinkenn- um og viðurkenndum stælum við- komandi þjóða i flutningi sínum. Inn í kímnina fella þeir að sjálfsögðu ýmis hressileg skot á iandann sjálf- an þó það hefði að sjálfsögðu mátt vera meira. Flest laganna eru erlend að uppruna, sum frá viðkomandi þjóðlöndum eins og „Færeyjar", „Tafist í Texas" og líklega „Japanska fatagínan" (miðað við nafnið á höfundinum alla vega), en oftast þó bandarísk og brezk lög. Spike Jones er að sjálfsögðu með þó það sé engan veginn það sterkasta á plötunni. Eins og fyrri daginn er auðheyri- legt, að þeir félagar eru ágætir söngvarar og gera nokkuð í því að vinna þá hlið vel, þó um kímni sé að ræða. Einnig hefur ágætur og lipur flutningur tónlistarmanna sitt að segja hér, en Tómas Tómasson, bassagítarleikari sá um stjórnina á upptökunum og fékk félaga sína úr Þursaflokknum, Ásgeir Oskarsson og Þórð Árnason til liðs auk Viðars Alfreðssonar, Kristins Svavarssonar og nafnanna Magnúsar Ingi- marssonar og Kjartanssonar. „Umhverfis jörðina á 45 mín.“ er ekki fuilkomin plata, og líklega ekki besta plata þeirra bræðra, en þeir eru samt ennþá einir í sínum flokki og svona plötur eiga að vera á boðstólum. hia. Ný plata frá EAGLES Hljómsveitin Eagles heíur lengi átt stóran hóp aðdáenda hérlendis. Þar af lciðandi er vaninn sá, að beðið sé eftir nýjum plötum frá þeim félögum með nokkurri eftirvæntingu. „Eagles Live“ heitir nýja platan þeirra að þessu sinni og er tvöfalt hljómleika- albúm. Upptökurnar eru að mestu frá þessu sumri, nema hvað fimm lög, „New Kid in Town“, „Wasted Time“, „Take It to the Lirnit", „Doo- lin-Dalton“ og „Desperado", voru tekin upp 1976 og þar af leiðandi með Randy Meisner á bassanum. Annars eru á plötunni 15 lög sem flest hafa komið út með Eagles áður, lagið „Sev- en Bridges Road“ er þó nýtt og tvö lög eftir Joe Walsh, „Life’s Been Good“ og „All Night Long“ eru hér í fyrsta sinn með Eagles á opinberri plötu. Hljómleikar Eagles hafa löngum verið frægir fyrir það að frægir gestir hafa verið fastir liðir á sviðinu. Má nefna, að Linda Ronstadt, Jackson Browne, J.D. Souther og Bob Sieger hafa- verið tíðir gestir. Á þessari plötu er lítið lagt upp úr gestum, en þó koma bæði J.D. Souther og fyrrum fé- lagi Joe Walsh, Joe Vitale við sögu. Önnur lög en framanskráð eru: „Hotel California", „Heartache Tonight", I Can’t Tell You Why“, „The Long Run“, „Saturday Night“, „Life in the Fast Line“ og „Take It Easy“. hia.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.