Morgunblaðið - 18.12.1980, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1980
Tillaga á Alþingi:
Gervasoni verði
veitt landvist
í GÆRKVÖLDI var lögð fram í
samcinuðu Alþingi tiilaxa til þings-
ályktunar um að beina því til
stjórnvalda að þau heimili Frakkan-
um Gervasoni landvist hér á landi.
FlutninKsmenn tillóKunnar eru
tveir þinKmanna Alþýðuhandalans-
ins. þeir Stefán Jónsson ok Skúli
Alexandersson. t Kreinarjferð um
málið seifja þinjcmennirnir svo:
I þingskjali þessu verður ekki
rakin ferðasaga Patrick Gervasonis
frá bernsku í frönsku munaðarleys-
ingjahæli til íslandsstranda né sá
málarekstur sem sprottinn er af
hérvist hans, enda sennilegt að
alþingismenn muni greina á um
túlkun ýmissa málsatvika. Hitt virð-
ist okkur, að hér hafi nú borist á land
þess háttar útlendingur sem býsna
hart hefur orðið úti í samtíð sinni, en
þó ekki sakaður um neinn þann
verknað sem til vansæmdar telst á
landi hér, og við haefi að telja honum
til vorkunnar fremur en foráttu að
skillítið fólk hefur aukið á vandræði
hans undir yfirskini vináttu. íslend-
ingar hafa fyrr veitt erlendu fólki
hæli þótt minni nauður ræki í okkar
hús, og reiknast til drengskapar.
Flutningsmenn vilja í engu kasta
rýrð á störf þeirra embættismanna,
sem unnið hafa að- því af einurð að
stemma stigu við því, að misindisfólk
setjist að á landi hér, en telja að illa
væri komið ef til þess leiddi að
nauðleitarmanninum Patrick Gerva-
soni yrði nú vísað út í tvísýnu.
Banaslys í
Örlygshöfn
ÞAÐ SLYS varð að bænum Efri-
Tungu í Örlygshófn í fyrrakvöld að
Marinó Kristjánsson. bóndi þar,
varð undir dráttarvél og mun hann
hafa látizt samstundis. Slysið varð í
halla heim við bæinn, fór dráttarvél-
in l'A veltu og varð Marinó undir
vélinni. Hann var ógiftur og barn-
laus, en bjó í Efri-Tungu ásamt
bróður sínum og aldraðri móður.
Mildi aö ekki varö stórslys
MESTA mildi var að ekki varð stórslys á Skógarseli
við Þverársel um hádegisbil í gær, þegar vörubifreið
fór yfir á öfugan vegarhelming og skall framan á
Simcu-fólksbifreið.
Kona ók fólksbifreiðinni og fótbrotnaði hún og
skarst á andliti en slapp að öðru leyti vel. Sem fyrr
segir má telja það mestu mildi, því mælaborð bílsins
gekk langt aftur. Konan, sem er um fertugt, var með
litla dóttur sína í aftursæti en hana sakaði ekki.
Telja má líklegt að bifreiðin sé ónýt. Ljósm. Mbl.
Þórarinn Ragnarsson.
Rafmagnsveitur Reykjavikur:
Fara fram á 28,6%
hækkun á gjaldskrá
Frumvarp að f járhagsáætlun rætt í borgarstjórn í dag:
Niðurstöðutölur tæpir
62,5 milliarðar króna
Leggjum til að horfið verði frá þessari skattpíningu,
RAFMAGNSVEITUR Reykjavíkur
hafa farið fram á það við borgar-
ráð að fá heimild til að hækka
gjaldskrá sína um 28.6%. Borgar-
ráð samþykkti hækkunarbeiðnina
með þremur atkvæðum gegn einu.
en einn borgarráðsmaður sat hjá.
Hækkun þessa telja Rafmagnsveit-
urnar sig þurfa að fá frá og með 1.
febrúar. Einnig telja Rafmagnsveit-
urnar sig þurfa að hækka gjaldskrá
sem nemur væntanlegri hækkun á
heildsöluverði frá Landsvirkjun.
„NIÐURSTÖÐUTÖLUR frum
varps að fjárhagsáætlun Reykja-
víkurborgar eru að þessu sinni
tæpir 62,5 milljarðar,“ sagði Dav-
ið Oddsson borgarfulltrúi í sam-
tali við Morgunblaðið. en frum-
varp að fjárhagsáætlun verður
rætt í borgarstjórn í dag.
„Meirihluti borgarstjórnar gerir
ráð fyrir að fá rúmlega 30,5
Geir Hallgrimsson formaður Sjálfstæðisflokksins:
Réttur okkar ótvíræður
samkvæmt álsamningnum
„ÞAÐ LIGGUR í augum uppi. að
það er sjálfsagt og raunar skylda
okkar að ganga úr skugga um,
hvernig þessum viðskiptum er
varið milli dótturfyrirtækis Alu-
suisse í Astralíu og ísal. Og svo er
fyrir að þakka forsjálni islenzku
samningamannanna á sinum
tíma. þegar samningurinn milli
tslands og Alusuisse var gerður,
að fslendingar geta samkvæmt
þeim samningi krafizt þess að um
verð á súráli til ísals fari eins og
um viðskipti óskyldra aðila sé að
ræða.“ sagði Geir Hallgrimsson,
formaður. Sjálfsta-ðisflokksins. er
Mhl. spurði hann í gær álits á
súrálsmálinu og málsmeðferðinni.
„Það kemur því úr hörðustu átt,
þegar iðnaðarráðherra byrjar þetta
mál með því að draga í efa, að í
samningi okkar í upphafi hafi verð
gengið nægilega tryggilega frá því,
að við gætum leitað réttar okkar í
þessu efni,“ sagði Geir. „En réttur
okkar er ótvíræ'ur, ef atvik máls-
ins eru þau, að verð til ísals sé
hærra en gerist og gengur í slíkum
viðskiptum milli óskyldra aðila.
Það er ekki eingöngu þetta, sem
vekur upp grunsemdir um það, að
fyrir iðnaðarráðherra vaki fyrst og
fremst það að misnota þetta mál i
flokkspólitískum tilgangi, heldur
einnig hitt, að honum er svo brátt
að gera sér pólitískan mat úr því og
gera það opinbert, að hann gerir
það áður en hann er sjálfur til-
búinn að hefja viðræður við Alu-
suisse. I frásögn Morgunblaðsins af
blaðamannafundi iðnaðarráðherra
segir svo: „Hjörleifur Guttormsson
lagði áherzlu á að hér væri um
mjög mikið mál að ræða, sem
þarfnaðist nákvæmari rannsókna
áður en viðræður hefðust við Alu-
suisse, en hann kvað það ásetning
sinn að krefjast endurskoðunar á
samningum íslands og Alusuisse.
Myndi ráðuneytið nú fela alþjóð-
lega endurskoðunarfyrirtækinu
Coopers & Lybrand að kanna málið
betur áður en viðræður hefðust.
Taldi hann að það gæti ef til vill
liðið mánuður áður en niðurstöður
endurskoðunarfyrirtækisins lægju
fyrir.“ Hefði nú ekki verð skynsam-
legra að fá fyrst þessar niðurstöður
endurskoðunarfyrirtækisins, ef í
alvöru vakti fyrir ráðherranum að
ná árangri; annars vegar leiðrétta
mögulega of hátt verð til ísals og
hins vegar fá fram endurskoðun á
samningi Islands og Alusuisse
varðandi skattgreiðslur og raforku-
verð?
En ég legg áherzlu á, að mál
þetta verður að upplýsa að fullu og
nýta rétt íslands samkvæmt samn-
ingnum við Alusuisse. Og þá verður
ráðherrann umfram allt að sjást
fyrir og hætta því að draga í efa
þennan samningslega rétt okkar til
þess að koma höggi á pólitíska
andstæðinga, sem stóðu fyrir
samningagerðinni um ísal fyrir 15
árum.“
Steingrímur Hermannsson formaður Framsóknarflokksins:
Hefðum átt að nota okkur
eftirlitsréttinn oftar
„ÞAÐ ER iðnaðarráðherra. sem
hefur látið kanna málið og hann
telur. að það sé hægt að draga
ályktanir af þessum niðurstiiðum.
Ég legg mikla áherzlu á að
endurskoðun álsamningsins fari
fram sem fyrst. einkum vegna
raforkuverðsins. En við verðum
að gaúa þess að samhúðin við
þetta fyrirtæki sé góð. því annars
komumst við ekkert áfram með
endurskoðun." sagði Steingrímur
llermannsson. formaður Fram-
sóknarflokksins, er Mbl. spurði
hann i gær álits á súrálsmálinu og
málsmeðferðinni.
„Ég tel, að það hefði átt að nota
oftar ákvæðið um að óháð fyrirtæki
skoðaði uppgjörið," sagði Stein-
grímur. „Þetta var gert 1974 og
1975 og ég tel eðlilegast, að þetta sé
gert sem oftast.
Hins vegár hefur Alusuisse nú
lagt fram ýmsar upplýsingar og ég
felli engan dóm í þessu máli. Það
þarf að skoða betur áður en það er
hægt. Ég hefði því talið skynsam-
legast að fara í þetta mál af
nokkurri ró.
Á sínum tíma, þegar ég kom
nálægt þessu, komst ég á þá
skoðun, að það væri í raun útilokað
að fylgjast nákvæmlega með bók-
haldsuppgjörum þessara alþjóðlegu
hringa. Ég lagði því stíft til, að
Alusuisse greiddi fast framleiðslu-
gjald og punktur. Það náði því
miður ekki fram að ganga, því þeir
vildu hafa þessa undankomuleið, að
gjaldið færi aldrei yfir 55% af
tekjum. Við settum þá botn á móti,
þannig að gjaldið færi aldrei undir
35%. En þetta þýðir, að við þurfum
að standa í erfiðu eftirliti og
uppgjöri við þá.
Með þessari rannsókn nú er
iðnaðarráðherra aðeins að gegna
skyldu sinni, þannig að ég tek ekki
undir raddir um pólitískar ofsókn-
ir í málinu. Hitt má svo aftur deila
um, hvort málsmeðferðin er sú
skikkanlegasta, sem hugsast getur.
En ráðherrann er aðeins að gera
það sem honum ber. Við því er
ekkert að segja og það þótt fyrr
hefði verið."
milljarða í tekjur af útsvörum,
rúmlega 9 milljarða í tekjur af
fasteignagjöldum og tæpa 9 millj-
arða í tekjur af aðstöðugjöldum,"
sagði Davíð.
„Meirihlutinn hyggst nú sem í
fyrra leggja 11,88% útsvar á borg-
arbúa, 0,5% ætlar meirihlutinn að
leggja á eigendur íbúðarhúsnæðis í
formi fasteignaskatts og 1,25% á
að leggja á eigendur atvinnuhús-
næðis. Þetta eru sömu álagningar-
reglur og giltu í fyrra, en þegar við
sjálfstæðismenn stjórnuðum borg-
inni gáfum við afslátt af öllum
þessum álagningarstuðlum. Við
segir Davíð Oddsson
munum að sjálfsögðu gera tillögu
um að horfið verði frá þessari
skattpíningu, og að þess í stað verði
teknar upp þær álagningarreglur
sem giltu þegar Sjálfstæðisflokk-
urinn var í meirihluta í Reykjavík.
Það er ljóst að þó vinstri flokk-
arnir hafi ekki stjórnað borginni
nema í tvö og hálft ár, þá er nú
mun dýrara fyrir borgarbúa að búa
í Reykjavík, en á meðan Sjálfstæð-
isflokkurinn var við stjórnvölinn.
Þessar auknu tekjur borgarsjóðs
skila sér ekki til borgaranna, a.m.k.
sér ekki nokkur maður að þær komi
fram í bættri eða betri þjónustu,"
sagði Davíð Oddsson.
Pósturinn varð að víkja
vegna neyðartilfellis
FRÁ ÞVÍ var skýrt í Mbl. í gær að
bögglapóstur hefði safnast saman á
Keflavikurflugvelli og Flugleiðir
látið þennan póst víkja fyrir öðru.
Mbl. spurði Svein Sæmundsson um
þetta í gær og sagði hann ástæðuna
fyrir því. að hluti bögglapóstsins.
sem átti að fara á föstudag beið til
laugardags og sunnudags, einkum
vera þá. að vegna slyss í Græn-
landi hefði þurft að koma tveimur
mjög illa brenndum Græniending-
um hið fyrsta utan. Pósturinn hefði
orðið að víkja i þessu neyðartilfelli,
en hinir slösuðu voru í körfum
fremst í vélinni.
Sveinn sagði ennfremur, að þenn-
an dag hefði komið mun meira af
pósti, heldur en póstmenn reiknuðu
með á miðvikudag og fimmtudag.
Ekki væri rétt að tala um að
bögglapósturinn hefði hrúgast upp,
en það sein varð að bíða af fyrr-
nefndum ástæðum, hefði farið á
laugardag og sunnudag.
Fagranes sigldi
fyrir eigin vél-
arafli til hafnar
Isafirði, 17. desember.
DJÚPBÁTURINN Fagranes. sem
strandaði við Arnarnes að kvöldi
þriðjudags, náðist af strandstað um
fjögurleytið í nótt, með aðstoð
skuttogarans Júliusar Geirmundsson-
ar ís 270. Hermann Skúlason skip-
stjóri á Júliusi sagði í viðtali við
fréttaritara Morgunhlaðsins að vel
hefði gengið að ná Fagranesi á flot,
aðallega vegna þess að veður var
sæmilega gott meðan á björgunar-
aðgerðum stóð.
Við björgun fólksins um kvöldið
var notast við gúmmíbát Björgun-
arsveitarinnar Skutuls undir stjórn
Jökuls Jósefssonar, formanns sveit-
arinnar, og var fólkið selflutt út í
lóðsbátinn. Um nóttina þegar bjarga
átti skipinu var orðið ófært fyrir
gúmmíbátinn. Jónas Helgason bóndi
í Æðey kom þarna um nóttina á
litlum vélbáti og tókst honum að
koma mannskap og dráttartógi í
Fagranesið. Um það leyti, sem bát-
urinn losnaði var Jónas að reyna að
komast að strandstaðnum með aðra
dráttartaug, en varð þá frá að hverfa
vegna veðurs.
Fagranes er nokkuð dældað á
fjögurra metra kafla á bakborðssíðu.
Ekki hefur tekizt að rannsaka skipið
til hlítar. Enginn leki kom þó að
skipinu og það gat siglt fyrir eigin
vélarafli til hafnar.
Fagranes var að koma úr venju-
legri póstferð um Djúpið þegar
óhappið varð. Auk sex farþega, sem
voru þrír bændur og húsfreyja úr
Djúpinu, ísfirðingur og bílstjóri úr
Ölfusi, var skipið með mjólk og
aðrar afurðir frá sveitaheimilum í
Djúpinu. Undir venjulegum kring-
umstæðum hefðu tugir nemenda úr
Reykjanesskóla verið með í þessari
ferð á leið í jólaleyfi, en flugvél frá
Flugfélaginu Örnum hafði sótt þá
daginn áður.
Sjópróf fór fram hjá bæjarfóget-
anum á ísafirði í gær og var þeim
ekki lokið þegar Mbl. hafði síðast
fregnir af. Flest bendir til, að
mannleg mistök hafi valdið óhapp-
inu. Fagranesið siglir þessa leið
a.m.k. tvisvar sinnum í viku, en að
þessu sinni var siglt of grunnt með
Arnarnesinu, en þar eru miklar
grynningar. - Úlfar.