Morgunblaðið - 18.12.1980, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1980
7
Innilegt þakklæti
til allra þeirra ættingja og vina sem glöddu mig með
heimsóknum, gjöfum, blómum og skeytum á áttrœðisaf-
mæli mínu þann 28. nóv. sl.
Guð gefi ykkur gleðileg jól.
Jónína Árnadóttir
frá Finnmörk.
Kjólar - kjólar
Nýkomiö sérlega fjölbreytt úrval af kvöld- og
samkvæmiskjólum, úr allskónar prjónaefnum, satíni,
prjónasilki og nýtísku hömruöu flaueli í 8 glæsilegum
litum. Allar stæörir, einnig tækifæriskjólar.
Opiö föstudag til 7 laugardag til 10.
Fatasalan
Brautarholti 22, inngangur frá Nóatúni
(við hliðina á HKðarenda).
PRISMA . É
UX
ux ■
799. 500
869. 000
999. 000
749.500
825.
949.
BORGARTUNI 10
REYKJAVfK SlMI 27099
SJÖNVARPSBÚÐIN
SJÖBERGS
OF SWED€N
Hefilbekkir
Fyrirliggjandi 3 stæröir af hefilbekkjum fyrir verk-
stæöi, skóla og til tómstundavinnu.
Jón Baldvin Hannibalsson ritstjóri Alþýðublaðsins kallar
blað sitt gjarnan „raritet" í opinberum umræðum og vísar
þá til lítillar útbreiðslu þess. Hitt hlýtur einnig aö vera mjög
sjaldgæft, að blöö skýri frá því á forsíöu, þegar ritstjórar
þeirra gera jólainnkaupin. Meðfylgjandi mynd var þó birt af
Jóni Baldvin á forsíðu Alþýðublaðsins, er hann keypti „eitt
tré“ hjá Sambandi alþýðuflokkskvenna á Lækjartorgi. Mun
myndbirtingin liður í herferð Alþýðuflokksins til að láta
frammámenn sína vera í sviðsljósinu. Var herferðin hafin
eftir að Kjartan Jóhannsson var kjörinn flokksformaður og
dró sig inn í vetrarhíðið.
Sama dag og Alþýðublaðið birti forsíðumyndina af
ritstjóra sínum velti Loki Vísis því fyrir sér, hvenær
jólasveinarnir komu til bæjarins. Þeir skyldu þó ekki vera
allt áriö á Alþýöublaöinu.
Gullkist-
urnar
Eins og við var að
húast stendur Þjóðvilj-
inn á öndinni af vand-
lætingu yfir blaða-
mannafundi Hjörleifs
Guttormssonar um ál-
verið,og súrálskaup þess
frá Ástraliu. Er greini-
legt, að sú verkaskipting
hefur verið ákveðin milli
blaðsins ok ráðherrans.
að fyrst skyldi hann
leggja til, að álverið
verði lagt niður. Siðan
upplýsa illan hug Sviss-
ara í garð tslendinga og
þá setja á sig svip sann-
girninnar en Þjóðviljinn
taka að sér hlutverk
dómarans. Kjartan
Ólafsson, fyrrum fram-
kvæmdastjóri Sósialista-
félags Reykjavikur og
gæslumaður hagsmuna
heimskommúnismans
innan Alþýðubandalags-
ins, lætur að sjálfsögðu
ekki skutinn eftir liggja
í forystugrein Þjóðviíj-
ans i gær. Ilann segir
meðal annars:
„Mcð þessu móti varð
bókfærður hagnaður af
rekstri álversins hér
þessum 30 milljörðum
króna lægri en ella, og
arðurinn sem íslenska
rikið átti að fá skatt af
lendir i staðinn i gull-
kistum fjölþj(>ðlegra ál-
fursta.“
Það er einkennilrg til-
viljun. að Þjóðviljarit-
stjórinn skuli nota orðið
„gullkistur“ i þessu sam-
hengi. Orðið leiðir nefni-
lega hugann að þvi, að
sá maður, sem nefndur
hefur verið gullkistu-
vörður Alþýðubanda-
lagsins, Ingi R. Ilelga-
son, er fulltrúi islensku
rikisstjórnarinnar i
stjórn ÍSAL. Skipaður
sérstaklega til að ga-ta
íslenskra hagsmuna i
stjórninni. Hann sat
meira að segja við hlið
iðnaðarráðherra á
blaðamannafundinum i
fyrradag. Ilvað hefur
hann gert innan stjórn-
ar fSÁL til að koma i
veg fyrir þá afarkosti,
sem félagið er látið sæta
i kaupum á súráli að
mati yfirmanns hans,
iðnaðarráðherra? Varla
hefur hann verið með
hugann við „gullkistur"
i Sviss á stjórnarfundum
í ÍSAL?
Athygii vakti, að á
þessum blaðamanna-
fundi var ekki Þorsteinn
Ólafsson. hinn fulltrúi
ríkisstjórnarinnar í
stjórn ÍSAL. Beið ráð-
herrann með að setja
fundinn i von um að
Þorsteinn kæmi. Þess
má geta. að Þorsteinn
Ólafsson var aðstoðar-
maður Hjörleifs Gutt-
ormssonar iðnaðarráð-
herra i rikisstjórnartið
Ólafs Jóhannessonar.
Ilann er nú fulltrúi Er-
lendar Einarssonar for-
stjóra Sambands is-
lenskra samvinnufélaga.
Af ummælum Tómas-
ar Árnasonar viðskipta-
ráðherra í Tímanum í
gær um þetta mál má
ráða. að framsóknar-
menn séu á báðum átt-
um eins og venjulega en
telji þo of fljótt af stað
farið með ásakanir. Alu-
suisse hefði átt að fá
betra tækifæri til að
skýra mál sitt.
Faröu ekki
í Jólaköttinn
Kjólar — Blússur
Mussur — Vesti
Skyrtur — Bindi
og m.fl.
Nýkomnir fallegir
Afgan kjólar.
Vesturgötu 3,
simi 12880.