Morgunblaðið - 18.12.1980, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1980
Pétur Björnsson um frumvarp um vörugjald:
Engar aðrar iðngrein-
ar eru sérskattaðar
MARGIR aðilar, einstakl-
ingar, fyrirtaeki og samtök,
hafa undanfarna daga mót-
mælt frumvarpi um vöru-
gjald í sælgætis- og gos-
drykkjaiðnaði. Morgunblaðið
ræddi í gær við Pétur
Björnsson, forstjóra Vífil-
fells, og sagði hann m.a. að
vörugjaldið myndi hækka
gosdrykki um 25%. Frum-
varpið fæli í sér að ein grein
drykkjariðnaðar, öl og gos-
drykkir, væru dregnir út til
sérsköttunar og óhjákvæmi-
legs samdráttar, á sama tíma
og aðrar drykkjarvörur væru
undanþegnar og jafnvel
niðurgreiddar.
— Við höfum ávallt talið það
mjög hættulegt fordæmi að draga
einstakar þröngar iðngreinar eða
aðrar atvinnugreinar út til þungr-
ar sérsköttunar. Þetta skapar óör-
yggi atvinnuvega landsins fyrir
utan það að staða þessara greina á
markaðinum verður ótrygg og
jafnvel vonlaus. Því meiri sem
sérsköttunin er því vonlausari
verður staða greinarinnar, sagði
Pétur. — Með þessu frumvarpi
sjáum við í hendi okkar að hlutfall
verðlagningar okkar vara á mark-
aðnum muni raskað svo, að þessar
vörur geta ekki talist vera hinn
aðgengilegi „munaður" sem fólk
með lágar tekjur á að geta veitt
sér.
— Sérsköttun á gosdrykkjaiðn-
aðinum hófst á árunum 1950—’60
með föstum tolli á hverja flösku,
er skyldi renna til Styrktarfélags
vangefinna. Það voru allir ánægð-
ir með hugarfarið sem lá að baki
því að finna tekjur til þessa
mannúðarmáls. Aftur á móti voru
ekki allir sammála þeirri aðferð
við tekjuöflunina, að leggja hana á
herðar einnar greinar iðnaðar.
Þessi tollur þróaðist síðan upp í
háan toll (vörugjald 24%) sem
rennur beint til ríkisins, en
styrktarfélagið löngu gleymt. Auk
þessa 24% vörugjalds er greiddur
framleiðslutollur kr. 16 á líter,
sem nú stendur til að breyta í 30%
vörugjald. Það eru engar aðrar
iðngreinar á íslandi, utan sælgæt-
is- og gosdrykkjariðnaðar, hluti
drykkjariðnaðar, sem eru sér-
skattaðar.
— Búningur frumvarpsins og
orðalag ber með sér áberandi
blekkingu, þar sem forðast er að
Pétur Björn8son
minnast á 24% vörugjaldið, sem
þegar er fyrir hendi og gefur þar
af leiðandi þingmönnum ekki
rétta mynd af eðli frumvarpsins.
— Þeir sem að frumvarpinu
standa virðast vita betur því farið
hefur verið með frumvarpið með
slíkri leynd, að allflestir komu af
fjöllum, þegar það birtist í fjöl-
miðlum. Ekki hefur heldur verið
rætt við aðila, sem hlut eiga að
máli. Síðan er auðsjáanlega ætl-
unin að reka frumvarpið í „hvelli"
listfræðingur hefur haft allan veg og
vanda af bókinni og ritar formála um
þessa tvo íslandsleiðangra og þá lista-
menn, sem myndirnar gerðu.
ísland á 18. öld er listaverkabók með gömlum
Islandsmyndum. Þær eru allar úr tveimur vísinda-
leiðöngrum sem hingað voru farnir frá Bretlandi á 18.
öld — leiðangri Banks 1772 og leiðangri Stanleys
1789.
Flestar þessara mynda eru nú í fyrsta sinn
prentaðar beint eftir frummyndunum.
Sumar hafa aldrei birzt áður í neinni bók. Þessar
gömlu Islandsmyndir eru merkileg listaverk. En þær
eru einnig ómetanlegar heimildir um löngu horfna tíð,
sem rís ljóslifandi upp af síðum bókarinnar.
—
Almenna bókafélagid
Austurstræti 18 — Sími 25544
Skemmuvogi 36, Kóp. sími 73055.
í gegnum þingið án þess að menn
átti sig á eðli málsins. Enda ber
orðalag frumvarpsins þess merki.
— Ég vil geta þess í leiðinni að
starfsmannafélag okkar lét þegar
ganga undirskriftarlista meðal
starfsfólks þar sem mótmælt er
þessum ráðstöfunum, vegna ótta
um atvinnuöryggi sitt og hafa
allir ritað undir hann, utan þeirra
sem ekki voru til staðar vegna
fjarvista. Aðilar úr einum póli-
tísku flokkanna gera lítið úr
hættulegum áhrifum frumvarps-
ins, eins og samdrætti og skertu
atvinnuöryggi. Samt sem áður
telur þessi flokkur sig vera í
forsvari og bera hag launafólks
fyrir brjósti.
— Hvað liggur þá að baki
þessu frumvarpi?
— Þegar vegið er svo ódrengi-
lega úr söðli stjórnvalda fer mann
að gruna að ýmis ankannanleg
sjónarmið kunni að búa undir
órólegu yfirborðinu, eins og ýms-
um viðundrum, sem kastað er frá
stjórnarheimilinu þessa dagana.
Nefna mætti árás á Álverið og
tilverurétt þess, Helguvíkurmál og
margt annað taugaveiklunar-
kennt.
— Eitt af þessum sjónarmiðum
gæti verið, að gera stöðu flutn-
ingaaðila út um land með bílum
vonlitla, þar sem þessi iðnvarning-
ur skapar þeim öryggi í flutning-
um, en flutningamenn eiga nú í
hinni hörðustu baráttu við hið
ríkisrekna Ríkisskip, sem undir-
býður fragtir út um land þrátt
fyrir stórkostlegt tap í rekstri,
sem borgaður er niður með al-
mannafé. Minnkandi flutningar á
öli og gosdrykkjum geta kippt
fótunum undan þessari stétt og
þeirri sérstæðu þjónustu, sem hún
vinnur fyrir fólk og fyrirtæki úti
um landsbyggðina. Hvernig ætti
Ríkisskip að annast dreifingu til
manna eða bjarga bónda á einum
sólarhring með brýnar nauðsynj-
ar, sagði Pétur Björnsson að
lokum.
Fjórðungs-
mót á Rang-
árbökkum
ÁKVEÐIÐ hefur verið að halda
Fjórðungsmót sunnlenzkra hesta-
manna dagana 2. til 5. júlí 1981 á
mótssvæði hestamannafélagsins
Geysis á Rangárbökkum við Hellu.
Þeir aðilar sem að mótinu standa
eru öll hestamannafélög af svæð-
inu vestan úr Hvalfirði austur að
Lómagnúp, ásamt Hrossaræktar-
sambandi Suðurlands. Fram-
kvæmdanefnd mótsins skipa eftir-
taldir menn: Bergur Magnússon,
Fáki, Birgir Guðmundsson,
Sleipni, Bjarni H. Ansnes, Smára,
Gunnar Jóhannsson, Geysi,
Hreinn Ólafsson, Herði, Jóhannes
Guðmundsson, Gusti, Steinþór
Runólfsson, Hrossaræktarsam-
bandi Suðurlands.
Framkvæmdarstjóri hefur verið
ráðinn Gunnar Jóhannsson, Ás-
mundarstöðum og geta menn leit-
að upplýsinga hjá honum eða
öðrum framkvæmdarnefndar-
mönnum, auk þess geta menn af
þessu svæði snúið sér til formanna
sinna félaga.
Fréttatilkynning
Leiðrétting
í MORGUNBLAÐINU í gær var
rangt farið með föðurnafn yfir-
manns fraktdeildar Flugleiða. Það
er Sigurður Matthíasson, sem
gegnir þessu starfi og er beðist
velvirðingar á þessum mistökum.
Al'lil.VSINIiAKlMINN KR:
^ 22480
^ Jliovjjunhlntiit)