Morgunblaðið - 18.12.1980, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1980
15
Vistaskiptin nálgast
Ronald Reagan, tilvonandi Bandarikjaforseti, og kona hans.
Nancy, sjást hér frammi fyrir Hvíta húsinu, en þar voru þau á
ferð um miðjan mánuðinn til að kynna sér hibýlaháttu á þessu
væntanlega heimili þeirra i Washington. APsimamynd.
Sovétríkin:
Skipt um yfirmenn á 20
herstjórnarsvæðum
Moskvu. 17. desember. AP.
YFIRMENN nokkurra sov-
éskra herstjórnarsvæða, eink-
um við vesturlandamæri Sovét-
rikjanna eða í Austur-Evrópu,
hafa verið fluttir tii á síðustu
tveim mánuðum, eftir því sem
heimildir í Moskvu segja. Tal-
ið er, að þessar tilfærslur
standi ekki í sambandi við
atburðina í Póllandi.
Heimildarmenn í Moskvu
segja, að tilflutningur herfor-
ingjanna nái til 20 helstu her-
stjórnarsvæða í Sovétríkjunum
og eru sumir þeirrar skoðunar,
að þó að þessar breytingar hafi
lengi staðið til, hafi óróinn í
Útnefningu Haigs
víða vel tekið
EBE:
Ekkert samkomulag
um fiskveiðistefnu
Brtlssel. 17. des. AP.
TILRAUNIR Efnahagsbanda-
lagsrikjanna, sem staðið hafa i
fimm ár, til að koma sér saman
um fiskveiðistefnu fóru út um
þúfur i dag. Einkum var deilt
um skiptingu heildarafla milli
þjóðanna og aðgang erlendra
fiskimanna að breskum miðum.
Síðustu tillögur um aflakvóta
kváðu á um, að Bretar fengju
mest í sinn hlut, eða 36,1% af
404.000 tonna afla, Danir næst-
mest, 24,1%, en aðrar þjóðir
minna. Þá var einungis átt við
afla úr Norðursjó.
Bundinn var endi á samninga-
viðræðurnar þegar Danir, Þjóð-
verjar, Hollendingar og Belgar
mótmæltu kvóta sínum, sem
þeim þótti skorinn við nögl, og
Frakkar kröfðust áframhaldandi
veiða á breskum miðum, sem þeir
sögðust hafa „sögulegan rétt“ til.
17. dcs. AP.
ÚTNEFNINGU Alexander M.
Haigs sem væntanlegs utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna
hefur verið misjafnlega tekið,
víða vel en annars staðar láta
viðbrögðin á sér standa.
Utanríkisráðherra Breta,
Carrington lávarður, fagnaði
tilnefningu Haigs og kvaðst
hlakka til samstarfsins við
hann. Aðrir háttsettir embætt-
ismenn breskir sögðust búast
við, að Haig yrði einarðari í
afstöðu sinni til Sovétríkjanna
en fyrirrennarar hans og færi
sú stefna saman við stefnu
bresku ríkisstjórnarinnar.
Talsmaður japanska utanrík-
isráðuneytisins sagði, að Jap-
anir fögnuðu Haig og byggjust
ekki við neinum breytingum á
sambúð ríkjanna. ísraelsmenn
og Egyptar hafa hvorir tveggja
lýst ánægju sinni með Haig og
binda Egyptar vonir við, að
ástandið í Austurlöndum nær
verði ríkari þáttur í utanrík-
isstefnu Bandaríkjanna með
tilkomu Haigs.
í Moskvu var sagt frá tilnefn-
ingu Haigs án athugasemda en
á meðan Haig var æðsti yfir-
Ástralía:
Armenar myrða aðalræðismann
Sydney, 17. des. AP.
TVEIR armenskir hryðjuverkamenn skutu f dag til bana
tyrkneska aðalræðismanninn í Sydney í Ástralíu og lifvörð hans
að auki. Þetta er í fyrsta sinn sem erlendur sendimaður er
myrtur í Ástralíu.
Ástralska lögreglan telur að
Armenarnir hafi komið til
landsins gagngert til að myrða
aðalræðismanninn, Sarik Ari-
yak, en talið er að þeir hafi
fylgst með ferðum hans í nokkra
daga. Líklegt þykir að morðingj-
arnir séu nú komnir úr landi.
Að sögn lögreglunnar hafði
Ariyak verið hótað dauða og
hafði hann þess vegna skipt um
bíl við lífvörðinn þegar atburð-
urinn átti sér stað. Tveir menn á
bifhjóli óku upp að bílum aðal-
ræðismannsins og lífvarðarins
og skutu manninn í fremri
bílnum til bana. Þegar þeir
uppgötvuðu að þeir hefðu skotið
rangan mann hófu þeir skothríð
á seinni bílinn og myrtu sendi-
herrann.
Nokkrum stundum eftir
morðin hringdi kona til frétta-
stofu í Sydney og sagði að
„hefndarsamtök armenska þjóð-
armorðsins" stæðu að baki
þeim. Með því er verið að vitna
til þeirra atburða á árinu 1915
þegar Tyrkir drápu, að því er
sumir telja, hálfa aðra milljón
Armena.
Endurminningar Brattelis
metsölubók i Noregi í ár
Ósló, 17. des. AP,
ENDURMINNINGAR Trygve
Brattelis, fyrrverandi forsætis-
ráðherra i Noregi, sem nú
stendur á sjötugu og hefur
dregið sig i hlé í stjórnmálabar-
áttunni, eru metsölubókin i
Noregi á þessu ári.
Tiden Norsk Forlag, sem gefur
bókina út, hefur tilkynnt, að
fyrsta bindi endurminninganna
hafi verið prentað i 160.000
eintökum og þar af 100.000 í
mjög góðu bandi. Bókin heitir
„Fangi nifls og nætur“ og segir
Bratteli þar frá reynslu sinni
sem fangi í útrýmingarbúðum
Hitlers en með mestu ólíkindum
þótti, að hann skyldi komast lífs
af.
Ef öll 160.000 eintökin seljast,
eins og búist er við, mun Bratteli
fá í höfundarlaun um 160 millj-
ónir ísl. kr., sem er hálfu meira
en Nóbelsverðlaunin í bók-
menntum.
Annar fyrrverandi forsætis-
ráðherra og Verkamannaflokks-
leiðtogi, Einar Gerhardsen, sem
nú er 83 ára, hefur einnig ritað
endurminningar sínar Kfimm
bindum og hafa þær selst hingað
til í 600.000 eintökum.
Trygve Bratteli
maður Atlantshafsbandalags-
ins var hann gjarna kallaður
„skelmir" og „galdralæknir"
austur þar. Sömu sögu er að
segja frá öðrum Austur-
Evrópulöndum.
Póllandi flýtt fyrir þeim.
Á Moskvu-herstjórnarsvæð-
inu hefur Pyotr G. Lushev, sem
er 57 ára og var áður yfirmaður
Mið-Asíu-herstjórnarsvæðis-
ins, tekið við af Vladimir Govo-
rov. Mikhail Zaitsev hefur tekið
við af Yevgeny Ivanovski sem
yfirmaður sovésku herjanna í
Austur-Þýskalandi, en Ivan-
ovski tók við fyrri stöðu Zait-
sevs sem yfirmaður hersins í
Hvíta-Rússlandi, á landamær-
unum við Pólland.
Hershöfðingjarnir Dmitri
Yazov og Alexander Mayorov,
yfirmenn Rauða hersins í
Tékkóslóvakíu og á Eystra-
saltsströndinni við landamæri
Póllands, hafa verið fluttir en
ekki er vitað hvert.
Callaghan
hyggur á
endurkjör
London. 17. des. — AP.
JAMES Callaghan, fyrrv. for-
sætisráðherra Breta. hefur lýst
yfir að hann ætli að bjóða sig
fram i næstu þingkosningum í
kjördæmi sínu í Cardiff í Suður-
VVales. Callaghan er nú 68 ára
að aldri. Næstu kosningar verða
ekki síðar en 1984.
„Ég er vel á mig kominn og sé
ekkert því til fyrirstöðu," sagði
Callaghan og bætti því við, að
flokksdeildin í Cardiff hefði
„fagnað ákaflega“ ákvörðun hans.
Búist hafði verið við, að Callag-
han byði sig ekki fram aftur eftir
að hann laut í lægra haldi fyrir
Michael Foot í formannskjörinu.
Nú eru á lífi fjórir fyrrverandi
forsætisráðherrar í Bretlandi.
Harold Wilson og Edward Heath,
64 ára báðir og sitja enn í neðri
málstofunni, Home lávarður er
77 ára og Harold Macmillan 86.
Þetta gerðist 18. desember
Veður
víða um heim
Akureyri -3 snjókoma
Amsterdam 8 rigning
Aþena 18 heiöskírt
Berlín 5 sólskin
Brussel 11 heiðskirt
Chicago 1 skýjað
Feneyjar 5 rigning
Frankfurt 6 heiðskírt
Færeyjar 3 haglél
Genf 6 skýjað
Helsínki 0 heiöskirt
Jerúsalem 13 skýjað
Jóhannesarb. 25 sólskin
Kaupmannahöfn 2 skýjað
Las Palmas 9 hálfskýjað
Lissabon 14 heiöskírt
London 12 rigning
Los Angeles 31 heiðskfrt
Madrid 9 heiðrkírt
Mallorka 10 skýjaö
Malaga 13 léttskýjaö
Miamí 25 skýjað
Moskva 3 skýjað
New York 3 heiöskfrt
Osló -2 snjókoma
Parfs 7 skýjað
Reykjavík -2 skýjað
Rió de Janeiro 37 heiöskírt
Rómaborg 13 heiðskirt
Stokkhólmur 0 skýjaö
Tel Aviv 18 skýjað
Tókýó 12 heiöskírt
Vancouver -4 skýjaö
Vínarborg 5 skýjað
1559 — Elízabet I veitir skozkum
lávörðum aðstoð til að hrekja
Frakka frá Skotlandi.
1644 — Stjórnarár Kristínar
drottningar hefjast í Svíþjóð.
1745 — Orrustan við Clifton Moor.
1777 — Veturseta byltingarhers
George Washingtons í Valley
Forge hefst.
1792 — Réttarhöld í Bretlandi
gegn Thomas Paine vegna útgáfu
„The Richts of Man“.
1799 — Útför George Washingtons
í Mount Vernon.
1865 — Þrælahald endanlega af-
numið í Bandaríkjunum.
1890 — Frederick Lugard leggur
Uganda undir Brezka-Austur-
Afríku-félagið.
1903 — Bandaríkin fá Panama-
skurð til eilífðar gegn árlegu leigu-
gjaldi samkvæmt Panama-sátt-
mála.
1912 — Fundur Piltdown-manns-
ins kunngerður.
1927 — Chiang Kai-shek steypir
Hankow-stjórninni af stóli.
1944 — Her Japana hrakinn frá
Burma.
1961 — Innrás Indverja í Goa,
nýlendu Portúgala — Vopnahlé SÞ
í Katanga hefst.
1962 — Fundur Kennedys og
Macmillans í Nassau.
1%3 — Óeirðir afrískra stúdenta í
Moskvu eftir dauða Ghanamanns
sem mótmælti kynþáttamisrétti.
1%5 — Níu Afríkuríki slita stjórn-
málasambandi við Breta út af
Rhódesíu.
1975 — Fulltrúar ísraels og 12
annarra ríkja ganga af fundi Un-
esco vegna deilu um zionisma.
Afmæli: Elizabet Petrovina, rússn-
esk keisaradrottning (1709—1762)
— Carl Maria von Weber, þýzkt
tónskáld (1786-1826) - Christo-
pher Fry, enskur leikritahöfundur
(1908—) — Willy Brandt, þýzkur
leiðtogi (1913—) — Betty Grable,
bandarísk leikkona (1916—1973).
Andlát: 1737 Antonio Stradivarus,
fiðlusmiður — 1803 Johann Her-
der, rithöfundur — 1829 Jean
Baptiste Lamarque, náttúrufræð-
ingur.
Innlent: 1682 d. Guðríður Símon-
ardóttir — 1728 Eldgos við Leir-
hnúk — 1871 Leyfi til sölu á sætum
í Dómkirkjunni afturkallað — 1893
Landsyfirréttur mildar dóminn
gegn Skúla Thoroddsen — 1939
„Sköpun“ eftir Haydn flutt í
Reykjavík — 1951 Alþjóðadóm-
stóllinn dæmir Norðmönnum rétt
til að ákveða 4 mílna landhelgi —
1958 Emil Jónssyni falin stjórn-
armyndun — 1979 Tvö flugslys í
Mosfellsheiði — 1915 f. Sigurður
Bjarnason frá Vigur.
Orð dagsins: Séu menn uppfræddir
án trúarinnar eru þeir aðeins
gerðir að glúrnum djöflum —
Hertoginn af Wellington, brezkur
hershöfðingi (1769—1852).