Morgunblaðið - 18.12.1980, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1980
Eyjólfur Konráð Jónsson:
Hjörleifur deilir á tíma-
bil Gunnars Thoroddsen
Hvern veg var eftirliti með súrálsverði háttað frá 1975?
Súrálsverð til álversins í Straumsvík kom til umræðu utan dagskrár í efri deild
Alþingis í gær. Iðnaðarráðherra lét að því liggja að ekki hefði verið samræmi í
útflutningsverði súráls í Ástralíu og innflutningsverði hér síðan 1975. Voru hann og
Gunnar Thoroddsen, forsætisráðherra, sem varð iðnaðarráðherra 1974, krafðir sagna
um, hvern veg eftirliti með ákvæðum álsamnings um þetta atriði hefði verið
framfylgt 1975 og síðan. Efnisþráður umræðnanna verður lauslega rakinn hér á
eftir.
Ásakanir og
undansláttur
Kjartan Jóhannsson (A) sagði
þetta mál snúast um meint mis-
ræmi í útflutningsverði súráls frá
Astralíu og kostnaðarverði til Is-
als. I fréttaviðtölum við iðnaðar-
ráðherra í gær kæmi þó fram, ekki
sjaldnar en átta sinnum, að of
snemmt sé að staðhæfa nokkuð eða
kveða upp endanlega dóma, enda
eigi ísal eftir að gefa skýringar hér
að lútandi. Það er óvenjulegt, sagði
Kjartan, að upplýsingar sem þess-
ar séu látnar á þrykk út ganga án
þess að ráðherra sé jafnframt
reiðubúinn til að standa við mála-
tilbúnaðinn, sem væntanlega verð-
ur nýttur til að byggja á kröfur af
hálfu íslendinga í málinu.
Kjartan vitnaði til álsamnings-
ins um súrálsverð til Isal, sem miða
ætti við verð súráls eins og það
væri milli óskyldra aðila. Óhjá-
kvæmilegt væri að ráðherra skýrði
þingheimi frá því, hvern veg hefði
verið að því staðið að fylgjast með
verðákvörðun súráls undangengin
ár. Ráðherrann hlýtur að hafa
aðrar og meiri upplýsingar hér að
lútandi en fram eru komnar, því
þetta er sú undirstaða, sem hugs-
anlegar kröfur af okkar hálfu
hljóta að byggjast á. Þetta er m'jög
mikilvægt; en jafnframt er var-
hugavert, ef forsendur eru ótraust-
ar, því „þetta má helzt ekki reynast
vindhögg", sem færir okkur skaða í
stað sterkari stöðu.
Kjartan vitnaði til þess er hann
átti sæti í stjórn ísals 1974 og hefði
gert iðnaðarráðuneyti kunnugt um
að ástæða væri til að fylgjast með
súrálsverði, sem verið hefði 14,9%
af söluverði áls 1972,15,1% 1973 og
15,8% 1974. Þetta hefði hann ítrek-
að 1975 enda hefði verið gert ráð
fyrir 14% hlutfallsverði í undir-
búningsplöggum við stofnun ál-
versins. Kjartan sagði ástæðu til
þess að ráðherra gerði þinginu
ítarlega grein fyrir því, hvern veg
hefði verið staðið að skoðun þessa
máls síðan, hver þróun hefði orðið í
hlutfallsverði súráls síðan (miðað
við söluverð áls), því það „er
nokkuð seint í rass gripið" ef
eftirlitsskyldu hefur ekki verið
sinnt allan þennan tíma þar til nú.
Upplýsingar þurfa að koma klárar
og hreinar á borð þingmanna, enda
mikilvægt að málatilbúnaður ráðu-
neytisins verði ekki vindhögg, sem
reynzt getur okkur á margan hátt
skaðlegt.
Spara mér að kveða
upp dóma fyrirfram
Hjörleifur Guttormsson, iðnað-
arráðherra, hóf mál sitt á því að
lesa upp tvo fyrstu töluliði frétta-
tilkynningar ráðuneytis síns (sem
birt var í heild á miðopnu Mbl. í
gær). Efnisatriði þeirra var að
meginpunkti það að „innflutnings-
verð á súráli til íslands sé miklu
hærra en eðlilegt má telja miðað
við útflutningsverð frá Astralíu".
Ráðherra sagðist ekki draga í efa
traustleika þeirra gagna, sem á
væri byggt, en vildi þó ekki kveða
upp efnislega dóma né halda uppi
fullyrðingum, enda matsatriði,
hvern veg finna skuli það viðmið-
unarverð, sem hugsanlegar skaða-
bótakröfur yrðu byggðar á. Þar
þurfi að kveða til fleiri aðila en
íslenzka og álsamningurinn þann
veg úr garði gerður að hann
fulltryggi ekki íslenzka hagsmuni.
Ráðherra sagði að endurskoðun-
araðili, Coopers & Lybrand í Lon-
don, dragi ekki í efa þær forsendur,
sem iðnaðarráðuneytið byggði
reikningslegar niðurstöður sínar á,
en þetta fyrirtæki myndi fara
nánar ofan í sauma á, hvern veg
finna skuli umrætt viðmiðunarverð
og hafa um það efni tengsl við
Alusuisse, varðandi skýringar af
þess hálfu.
Ráðherra sagði ekki verulegan
mun á súrálsverði útfluttu í Ástr-
alíu og innkaupsverði hér fyrr en
1975 en frá og með því ári annað
uppi á teningnum. Las hann upp
enskan texta Coopers & Lybrand,
umsögn um tölfræðilegar niður-
stöður ráðuneytisins nú, sem hann
hafði áður vitnað til, en fyrirtækið
myndi að beiðni íslenzkra aðila
Kjartan Jóhannsson
fara nánar ofan í saumana á þessu
máli á tímabilinu frá 1975. Ráð-
herra sagðist ekki vilja fullyrða,
hvað kæmi út úr þeirri endurskoð-
un en sér virtist sem verð súráls cif
í Noregi hefði á tímabili verið 25%
lægra en verð hingað komins súr-
áls. Þá sagði ráðherra að raforku-
verð til álverksmiðja í Noregi væri
og verulega hærra en raforkuverð
til ísals.
Hjörleifur veitizt að
Gunnari Thoroddsen
Eyjólfur Konráð Jónsson (S)
sagði m.a. að þrjú mál sem voru á
dagskrá Sameinaðs þiflgs í gær:
iðnaðarstefna, stefnumörkun í
stóriðjumálum og fyrirspurn . um
Blönduvirkjun hefðu ekki fengizt
rædd vegna þess að iðnaðarráð-
herra hafði öðrum hnöppum að
sinna þ.e. að halda blaðamarina-
fund um uppiýsingar, sem Alþingi
höfðu ekki verið áður sendar. Ræða
ráðherra nú hefði hvorki aukið á
þær upplýsingar, sem fréttamenn
fengu í gær, né skýrt þau efnisat-
riði, sem Kjartan Jóhannsson hefði
fjallað um.
Ef þær upplýsingar, sem ráð-
herra hefur kunngert alþjóð, eru
réttar, eru þær í senn hryggilegar
og gleðiefni. Hryggilegar, ef Isal
hefur brotið á okkur samninga,
varðandi súrálsverð, en ánægju-
efni, ef í ljós kemur, að álsamning-
urinn tryggir okkur meira í aðra
hönd en ráð var fyrir gert, þ.e. að
greiða niður Búrfellsvirkjun, með
stofnlínum og spennistöðvum
skemmri tíma en á 25 árum. Ef, ég
endurtek ef hér er um samnings-
brot að ræða, þá þarf að taka á því
máli með samhug og festu, en
ráðherra þarf að tengja málsatriði
betur saman og fullnægja upplýs-
ingaskyldu til þingsins betur.
Núverandi iðnaðarráðherra stað-
hæfir að þessi mál hafi verið í
stöku lagi, þ.e. eftirlit með súráls-
verði, þar til 1975, er núverandi
forsætisráðherra verður iðnaðar-
ráðherra. Síðan hafi verið mis-
brestur á allan iðnaðarráðherra-
feril hans og raunar áframhald-
andi. Enginn ætti því að geta
svarað betur fyrir þetta tímabil en
forsætisráðherrann, hvern veg eft-
irliti með súrálsverði var hagað í
iðnaðarráðherratíð hans, sem nú-
verandi iðnaðarráðherra gagnrýnir
svo harðlega. Raunar hefur Hjör-
leifur Guttormsson áður gert því
skóna í þingræðu, hve erfitt hafi
Á. s
Hjörleifur Guttormsson
verið að koma í iðnaðarráðuneytið
eftir veru núverandi forsætisráð-
herra þar. Ég treysti og núverandi
forsætisráðherra betur til að fjalla
um þetta tímabil í iðnaðarráðu-
neytinu en arftaka hans þar. Ég
beini þeirri spurningu til hans,
hvern veg var að þessum málum
staðið af hálfu ráðuneytisins á
þessu árabili? Núverandi iðnaðar-
ráðherra getur hinsvegar e.t.v.
upplýst, hvern veg var að eftirlit-
inu staðið á ráðherraárum Magn-
úsar Kjartanssonar?
Að lokum sagði Eyjólfur að
þingheimur ætti kröfu á því að
ráðherra gerði gleggri grein fyrir
öllum sínum málatilbúnaði. Ef rétt
reyndist, sem um væri dylgjað,
myndi ekki standa á samstöðu
þingmanna úr öllum flokkum um
að ná fram rétti okkar. En með
hliðsjón af upphlaupinu á Flugleið-
ir og hvern veg þær ásakanir hefðu
runnið út í sandinn væri óhjá-
kvæmilegt, að krefjast þess að öll
spil og allar upplýsingar væru
settar á borð þingmanna.
Endurskoðaðir
samningar
Gunnar Thoroddsen, forsætis-
ráðherra, sagði að nafn sitt hefði
verið nefnt í þessari umræðu. Þess
vegna vildi hann segja örfá orð.
Álsamningurinn hafi verið endur-
skoðaður haustið 1974, er hann
kom í iðnaðarráðuneytið, bæði
varðandi skattlagningu fyrirtækis-
ins, þ.e. framleiðslugjaldið, og
varðandi raforkuverðið. Náðst
hefðu fram verulegar úrbætur.
Hann hefði ekki tiltækar tölur um
framleiðslugjaldið, en ávinningur-
inn í hærra raforkuverði síðan,
miðað við eldri samning, væri milli
8 og 9 milljarðar króna.
Svörin ærið mögur
Kjartan Jóhannsson (A) þakk-
aði svör ráðherra, þó mögur hefðu
verið. Ég óska eftir því að iðnað-
arráðherra láti þegar dreifa ljósriti
Eyjólfur Konráð Jónsson
af bréfi Coopers & Lybrand til allra
þingmanna, svo þeir geti sett sig
inn í umsögn þessa endurskoðunar-
aðila. — Kjartan sagði að upplýs-
ingar ráðherra varðandi súrálsverð
í Noregi og Ástralíu væru ekki
tæmandi og dyggðu skammt, einar
út af fyrir sig, til að sækja okkar
mál. Það sem ráðherra las úr bréfi
endurskoðunaraðilans sýndi það
eitt að menn þar kynnu að leggja
saman og draga frá, en ekki það
sem eftir hefði verið leitað. Ég
vona sannarlega, bæði vegna ráð-
herrans og okkar allra, að hann
hafi mikilvægari gögn í fórum
sínum.
Þá upplýsti forsætisráðherra á
engan hátt, hvern veg staðið hafi
verið að eftirliti með súrálsverði í
iðnaðarráðherratíð hans.
Kjartan sagði að ekki skorti á
eftirlit með skattmálum smælingj-
anna í þjóðfélaginu, þar væri allt
grannt skoðað, en illa gengi að fá
fram upplýsingar frá þessum
tveimur iðnaðarráðherrum um eft-
irlit með hér umræddu máli, svo
stórt sem það þó væri í sniðum.
Full ástæða er til þess að úttekt
verði gerð þar á og þó fyrr hefði
verið. Hafi samningar verið sviknir
verður að taka á því máli með
einurð og festu. En ef hér er um
vindhögg eitt að ræða þá þarf líka
ýmislegs að spyrja.
(Er hér var komið var umræðu
frestað vegna þingflokksfunda.)
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
(S) tók til máls að loknu hléi, og
lagði áherslu á mikilvægi málsins.
Hann gagnrýndi málsmeðferðina
og spurði hvort nauðsynlegt hefði
verið að leggja málið fram að svo
stöddu, hvort ekki hefði átt að bíða
frekari upplýsinga. Þá spurði hann
um hvernig samstarf yrði haft við
stjórnarandstöðuna um málið, og
einnig um hvort sendinefnd hefði
verið gerð út til Ástralíu vegna
málsins.
Hjörleifur Guttormsson (Abl)
svaraði, og sagðist ekki hafa Jagt
málið fyrir Alþingi vegna mikilla
anna þar í síðustu viku fyrir jól.
Hann sagði rétt að maður hefði
verið gerður út til Ástralíu vegna
málsins, það væri Ingi R. Helgason
hrl. sem farið hefði að beiðni
iðnaðarráðuneytis og kynnt sér
málið. Hjörleifur sagði að ekki
hefði verið talið rétt að bíða með
málið, þar sem það væri þegar
farið að kvisast út, meðal annars
til fjölmiðla, en áfram yrði haldið
að kanna það. Telexskeyti hefði
verið sent til fyrirtækisins í Sviss,
þangað hefði farið sendimaður
héðan og aðstoðarforstjóri þaðan
komið hingað til viðræðna, en
skýrari svör kæmu væntanlega
síðar um ýmsa þætti málsins.
Eyjólfur Konráð Jónsson (S)
Gunnar Thoroddsen
sagði skýringar ráðherra ekki
nægilegar, hann hefði lagt málið
fram á blaðamannafundi í áróð-
ursskyni í stað þess að kynna það
fyrst á Alþingi. Þá kvaðst Ey. Kon.
vilja fá skýrari svör frá forsætis-
ráðherra um hvað hefði verið gert í
tíð hans í iðnaðarráðuneytinu, en
svör hans fyrr um daginn hefðu
verið í óskýrum véfréttarstíl.
Gunnar Thoroddsen forsætis-
ráðherra ítrekaði fyrri svör sín, en
sagði jafnframt, að ekki þætti
ástæða til að tortryggja hið er-
lenda fyrirtæki svo að á hverju ári
þyrfti að gera rannsóknir á starf-
seminni á hverju ári.
Þorvaldur G. Kristinsson (S)
tók aftur til máls og ítrekaði
spurningu sína um hvernig sam-
starfi við stjórnarandstöðu um
málið yrði háttar.
Eyjólfur K. Jónsson (S) kvaddi
sér á ný hljóðs, og sagði það nú
komið fram, að ekkert hefði verið
gert í að kanna málið á tíma
Gunnars Thoroddsens sem iðnað-
arráðherra, og væri gott útaf fyrir
sig að fá það fram. Greinilegt sagði
hann hins vegar að Hjörleifur
ætlaði ekkert samstarf að hafa við
stjórnarandstöðuna, þótt vera
kynni að hann neyddist til þess.
Hjörleifur Guttormsson iðnað-
arráðherra tók enn til máls og
sagði að samstarf yrði haft við
stjórnarandstöðuna, en ekki lægi
fyrir áætlun um á hvern hátt.
Kjartan Jóhannsson (A) kvaðst
vænta þess að þetta mál og þessi
umræða á Alþingi yrði til þess að í
framtíðinni yrði betur fylgst með
þessum málum en hingað til.