Morgunblaðið - 18.12.1980, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1980
Kalmann Sigurðsson
frá Stað - Minning
Fæddur 8. nóvember 1904.
Dáinn 5. nóvember 1980.
Föstudaginn 21. nóvember sl.
var jarðsettur frá Kirkjuvogs-
kirkju Kalmann Sigurðsson, út-
vegsbóndi frá Stað í Höfnum.
Hann lést að Landakotsspítala í
Reykjavík 5. nóvember, eftir fárra
vikna legu þar.
Kalmann var fæddur 8. nóvem-
ber 1904 að Junkaragerði í Höfn-
um, sonur hjónanna Pálínu Jóns-
dóttur og Sigurðar Jónssonar, er
þar bjuggu. Kalmann ólst upp í
föðurhúsum ásamt systkinum sín-
um, þeim Sigurlínu, sem var eist
og er enn á lífi, búsett í Reykjavík
og Jóni og Helgu, sem bæði eru
dáin. Árið 1931 kvæntist hann
eftirlifandi konu sinni Ingunni
Guðmundsdóttur, ættaðri frá Kol-
beinsvík í Strandasýslu. Hófu þau
búskap sinn að Junkaragerði og
bjuggu þar í 7 ár. Sigurður faðir
hans hafði látist nokkru áður og
Sigurlína gift og búsett í Reykja-
vík en Pálína móðir hans bjó
áfram í Junkaragerði með börnum
sínum þeim Jóni og Helgu. í
Junkaragerði fæddust þeim Kal-
manni og Ingunni 3 börn, tvíbura-
systurnar Guðrún og Sigríður,
sem báðar eru búsettar vestan
hafs og sonurinn Bragi, sem Iést
tæpra tveggja ára. Dóttursonur
þeirra, Ólafur Kalmann, ólst einn-
ig upp hjá þeim.
Eftir 7 ára búsetu að Junkara-
gerði fluttu þau inn í Kirkjuvogs-
hverfi. Þar byggði Kalmann húsið
Stað og fékk til aðstoðar við sig
vin sinn Hinrik ívarsson í Merki-
nesi, en báðir voru þeir smiðir
góðir. Á Stað hefur fjölskyldan
búið síðan.
Kalmann var hraustur, at-
hafnasamur drengur og tók ungur
þátt í daglegum störfum til stuðn-
ings við heimili sitt og foreldra í
harðri lífsbaráttu, að hætti þess
tíma. Strax eftir fermingu fór
hann að róa á opnum árabáti með
föður sínum og var í skiprúmi hjá
honum þar til hann eignaðist eigin
bát. Sjómennskan var honum í
blóð borin og varð hans ævistarf.
Nokkrar ær, ein kú og dálítil
jarðarafnot voru þó lengst af nýtt
til búbætis samhliða sjófanginu,
sem færði þó heimilinu alla tíð þá
björg er til þurfti til hagsældar og
traustrar afkomu. Það er hörð og
óvægin lífsbarátta að eiga nær
alla afkomu sína og fjölskyldu
sinnar undir sjósókn á lítilli
opinni trillu út á opið ólgandi
úthaf við rastarvæng einnar
straumhörðustu og yggldustu
rastar hér við land. Stundum var
Kalmann einn á báti, en oftar
hafði hann háseta. Jón, bróðir
hans, reri lengi með honum og
síðar Ólafur uppeldissonur hans.
Allir voru þeir harðduglegir sjó-
menn og kunnu vel til verka.
Umhirðu og viðhaldi Kalmanns á
bátnum og öllu því er að sjósókn-
inni laut var við brugðið. Virðing
hans fyrir farkostinum og starfs-
greininni var augljós. Kannske
var þetta uppspretta að allri hans
farsæld og velgengni í fangbrögð-
um við Ægi. Hann nam ungur af
föður sínum reynslu liðinna alda
og tók síðan í þjónustu sína
uppbyggingu og tækni líðandi
stundar eftir því, sem aðstæður
leyfðu í tiltölulega vanbúinni
heimabyggð, er hann yfirgaf þó
aldrei í leit að auðveldari lífshátt-
um.
í allmarga áratugi vissi ég hver
Kalmann frá Junkaragerði var,
hafði veitt honum eftirtekt sökum
hógværðar og prúðmennsku og á
síðari árum fékk ég nánari kynni
af því að hjá honum var þetta ekki
uppgerð eða sjónarspil. Upplag,
uppeldi og siðan samspil við dint-
ótt náttúruöflin munu hafa átt
ríkan þátt í sterkri skapgerð hans.
Ég hygg að hann hafi ekki átt
neinn óvin eða andsnúinn ná-
granna en hinsvegar marga góða
vini.
Litla byggðarlagið, sem var
hjartkært heimkynni hans alla
ævi, er nú snauðara eftir að hann
sést ekki lengur ganga þar glaður
milli vina eða ýta úr vör sínu litla
fleyi. Staður hefur misst þá forsjá
og vernd, sem Kalmann veitti alla
tíð. Ingunni og Ólafi verður það
þungbær raun, einnig dætrunum
og fjölskyldum þeirra í fjarlægð.
Öllum þeim er það þó huggun
harmi gegn að vita, að hann var
traustur trúmaður og hafði oft á
örlaga stundu beðið.
Stýr mínu fari heilu heim
i höfn á friöarlandi.
þar mÍK i þinni jfæsku geym,
ó Guó minn allsvaldandi.
Og það má fullvíst telja að
honum verði falinn farkostur þar í
landi friðarins og honum ætlað að
taka á móti og ferja ástvinina,
þegar þar að kemur, í höfn á
friðarlandi.
Ingunni og börnum hennar
sendum við innilegar samúðar-
kveðjur.
Ragnheiður og
Jón Tómasson.
Ný sending komin
í númerum 34—49
meö loöfóöri
og ófóöraöir.
Pantanir óskast
sóttar sem fyrst
Verð frá kr. 21.010.- Nýkr. 210,10.
Millibrúnir. Mjúkt en sterkt Anilin skinn.
Meö þykkum ekta hrágúmmisólum.
Einnig nýkomnir uppreimaöir barnaskór frá Jip og
kvenkuldastígvél, — hvít og blá lág indjána — stígvél,
— vandaóar mokkasínur karla og kvenna og margt,
margt fleira.
'gage
sími 18519 og 23566.
Póstsendum samdægurs.
t
Móöir mín
ÞORVALDÍNA ÓLAFSDÓTTIR.
lést 9. desember í Landakotsspítala. Jaröarförin fór fram í kyrrþey
aö ósk hinnar látnu.
Fyrir hönd fjölskyldunnar.
Erla Guömundsdóttir.
t
Eiginmaöur minn, faöir okkar, afi og langafi
BJARNI BJARNASON
frá Herjólfsstööum í Álftaveri,
Rauöageröi 74,
lézt á Landakotsspftala 10. desember. Jaröarförin fór fram f
kyrrþey aö ósk hins látna.
Pálfna Bjarnadóttir,
börn, barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir og amma,
ELÍN ÞORKELSDÓTTIR,
Freyjugötu 46, Reykjavík,
andaöist aö heimili sínu aö morgni 13. desember.
Jaröarförin fer fram föstudaginn 19. desember kl. 3 e.h. frá
Fríkirkjunni í Reykjavík.
Valdimar Þóröarson,
Þorkell Valdimarsson, Sigrföur A. Valdimarsdóttir,
Siguröur Valdimarsson, Bryndís Friöþjófsdóttir,
og barnabörn.
t
Útför eiginkonu minnar, móöur, tengdamóöur, ömmu og lang-
ömmu,
JÓHÖNNU G. TÓMASDÓTTUR,
fer fram frá Hallgrímskirkju, föstudaginn 19. des. kl. 2.
Jóhann Þorleifsson,
Svanfríður Jóhannsdóttir, Magnús Brynjólfsson,
Tómas Haukur Jóhannsson, Erla Andrésdóttir,
Unnur Jóhannsdóttir, Björgólfur Stefánsson,
Kristfn Jóhannsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Maöurinn minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
BJÖRGVIN TORFASON,
Eskihlfö Sa,
veröur jarðsunginn frá Dómkirkjunni, föstudaginn 19. desember
kl. 13.30.
Dagbjört Guðbrandsdóttir,
Katrín Björgvinsdóttir,
Krístín Björgvinsdóttir,
Kári Kaaber,
Björgvin og Birgir.
+ Þökkum innilega samúö og hlýhug við andlát og útför fööur okkar.
tengdafööur, afa og langafa,
ERLENDARJÓNSSONAR
KEFLAVIK
Jóhanna Erlendsdóttir Bragi Sigurðsson
Kristín Erlendsdóttir, Ragnar Þóröarson
Hlíf Erlendsdóttir
Þóranna Erlendsdóttir Pétur Pétursson
Guöfinnur Erlendsson Guöbjört Erlendsdóttir
András Erlendsson Hjördís Guömundsdóttir
Ellý Siguröardóttir Július Sigurösson
Erlendur Jónsson Alda Ögmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og
minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í
miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi
á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga.
Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal
einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um
hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum
Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.