Morgunblaðið - 18.12.1980, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1980
Jóhannes Árnason, sýslumaður - Kjördæmamálið:
Seinni grein
Um kosningar til Al-
þingis ojí fjórðungsþinga
Ekki kæmi til greina að hafa
einmenningskjördæmin til Al-
þingis á sama hátt og var fram til
ársins 1959. Sú skipting landsins i
kjördæmi var þá löngu orðin úrelt
og hafði skapað hið mesta mis-
rétti. Það má nefna sem dæmi, að
þá voru 437 kjósendur í fámenn-
asta kjördæminu, Seyðisfirði, en
8505 kjósendur í því fjölmennasta,
Gullbringu- og Kjósarsýslu. Sá
þingmaður, sem kosinn var með
upp, yrði skiptingin að miðast við
núverandi aðstæður og með tilliti
til framtíðarinnar. Kjördæmin
yrðu að vera fjölmennari, en áður
var, og alþingismönnum mundi
fækka. Fjöldi kjósenda í hinum
einstöku kjördæmum getur aldrei
orðið jafn. Því valda margvíslegar
aðstæður í landi okkar. Flest
kjördæmin yrðu með 2500—5000
kjósendur á kjörskrá og kjósendur
að baki hverjum þingmanni að
fæstum atkvæðum, hlaut 190 at- kvæði. 15 þingmenn náðu kosn- meðaltali um 3000.
ingu í sínum kjördæmum með Það mætti hugsa sér að kjör-
190—548 atkvæðum. Þetta var dæmi til Alþingis yrðu sem hér
orðin skrípamynd af lýðræðinu. Ef segir og 1 alþingismaður kosinn í
einmenningskjördæmi yrðu tekin Kjördæmasamband hverju þeirra:
(landsfjórðungur) Kjósendur
og kjördæmi: á kjörskrá:
VESTFIRÐINGAFJÖRÐUNGUR 1. Akraneskjördæmi
(Akraneskaupstaður) 2. Borgarfjarðarkjördæmi (Borgarfj arðarsýsla, Þingm. Akurnesinga 3033
Mýrasýsla) 3. Snæfellsneskjördæmi (Snæfellsness- og Þingm. Borgfirðinga 2445
Hnappadalssýsla) 4. Breiðafjarðarkjördæmi (Dalasýsla, Austur-Barða- strandarsýsla, Vestur-Barða- Þingm. Snæfellinga 2616
strandarsýsla 5. Vestfjarðakjördæmi (Vestur-ísafjarðarsýsla, Þingm. Breiðfirðinga 2143
Bolungarvíkurkaupstaður) 6. ísafjarðarkjördæmi (Isafj arðar kau pstaðu r, Norður-ísafjarðarsýsla, Þingm. Vestfirðinga 1718
Strandasýsla) Þingm. Isfirðinga 3045
Kjésendur á kjörsk. alls 15000
NORÐLENDINGAFJÓRÐUNGUR 1. Húnavatnskjördæmi (Vestur-Húnavatnssýsla, 2505
Austur-Húnavatnssýsla) 2. Skagafjarðarkjördæmi (Skagafjarðarsýsla, Þingm. Húnvetninga
Sauðárkrókskaupstaður) 3. Siglufjarðarkjördæmi Þingm. Skagfirðinga 2706
(Siglufjarðarkaupstaður) 4. Eyjafjarðarkjördæmi (Eyjafjarðarsýsla, Ólafs- fjarðarkaupstaður, Dal- Þingm. Siglfirðinga 1326
víkurkaupstaður) 5. Akureyrarkjördæmi Þingm. Eyfirðinga 3043
(Akureyrarkaupstaður) 6. Húsavíkurkjördæmi Þingm. Akurcyringa 8041
(Húsavíkurkaupstaður) 7. Þingeyjarkjördæmi (Suður-Þi ngeyj arsýsla, Þingm. Húsvikinga 1379
Norður-Þingeyjarsýsla) Þingm. Þingeyinga 2954
Kjósendur á kjörsk. alls 21954
AUSTFIRÐINGAFJÓRÐUNGUR 1. Fljótsdalskjördæmi (Seyðisfjarðarkaupstaður,
Norður-Múlasýsla og Skriðdals-, Valla-, Egilsstaða- og
Eiðahreppar á Fljótsdalshéraði) 2. Austfjarðakjördæmi (Neskaupstaður, Eskifjarðar- kaupstaður, Suður Múlasýsla Þingm. Fljótsdalskjörd. 2966
utan Fljótsdalshéraðs) 3. Skaftafellskjördæmi Þingm. Austfirðinga 3487
(Austur-Skaftafellssýsla) Þingm. Skaftfellinga 1295
Kjósendur á kjörsk. alls 7748
SUNNLENDINGAFJÓRÐUNGUR 1. Suðurlandskjördæmi (Rangárvallasýsla, Vestur-
Skaftafellssýsla) 2. Árneskjördæmi Þingm. Sunnlendinga 3034
(Árnessýsla) 3. Selfosskjördæmi Þingm. Árnesinga 3965
(Selfosskaupstaður) 4. Vestmannaeyjakjördæmi Þingm. Selfosskaupst. 1962
(Vestmannaeyj akaupstaður) 5. Reykjaneskjördæmi (Gullbringusýsla, Njarðvíkur- Þingm. Vestmannaeyinga 2822
kaupstaður, Grindavíkurkaupstaður 6. Keflavíkurkjördæmi Þingm. Reyknesinga 3751
(Kef'.avíkurkaupstaður) Þingm. Keflvfkinga 3925
7. Hafnarfjarðarkjördæmi
(Hafnarfjarðarkaupstaður)
8. Kópavogskjördæmi
(Kópavogskaupstaður)
9. Garðakjördæmi
(Garðabær)
10. Kjalarnesskjördæmi
(Kjósarsýsla- og Seltjarnarnes-
kaupstaðar)
REYKJAVÍK
(Tölur áætlaðar)
Miðbæjarkjördæmi
Vesturbæjarkjördæmi
Austurbæjarkjördæmi
Háteigskjördæmi
Laugarneskjördæmi
Langholtskjördæmi
Laugaráskj ördæmi
Fossvogskjördæmi
(Bústaða- og Fossvogs)
Grensáskjördæmi
Breiðholtskjördæmi
Fellakjördæmi
(Fella og Hóla)
Árbæjarkjördæmi
Auðvitað mætti haga skiptingu
landsins í einmenningskjördæmi á
annan veg, en ég hefi hér fylgt
þeirri reglu að slíta ekki í sundur
lögsagnarumdæmi, nema á Aust-
. urlandi, þar sem ég freistaðist til
að láta allt Fljótsdalshérað vera í
kjördæmi með Seyðisfirði og
Norður-Múlasýslu og kenni enda
kjördæmið við Fljótsdalshérað.
Byggðarlega og landfræðilega séð
virðist þetta ekki vera fráleitt.
Þessi skipting þýðir það, að í
sumum tilvikum eru tvö eða fleiri'
umdæmi, sýslur eða kaupstaðir
saman í einu kjördæmi við Al-
þingiskosningar vegna fámennis
og einnig af landfræðilegum
ástæðum. Af sömu ástæðum er
kjósendafjöldi í nokkrum kjör-
dæmum í algjöru lágmarki og á
það við um kjördæmi í öllum
landshlutum. En þetta á fyrir sér
að breytast er fram líða stundir.
I Reykjavík er skiptingin miðuð
við kirkjusóknir, til að setja eitt-
hvað fram til umræðu. Auðvitað
kemur önnur skipting einnig til
greina, en það hefi ég ekki athug-
að neitt nánar. Ég geri ráð fyrir
að þrátt fyrir að þingmenn í
Reykjavík yrðu þannig kosnir í
einmenningskjördæmum í borg-
inni, yrðu þeir kenndir við Reykja-
vík, eins og nú er, en ekki
viðkomandi borgarhluta, þar sem
þeir voru kosnir, enda þótt vissu-
lega mætti hugsa sér það. Kjörnir
þingmenn yrðu því 1., 2. og 3.
þingmaður Reykvíkinga o.s.frv.,
raðað t.d. eftir atkvæðamagni.
Nú verður fjölgun íbúa í ein-
hverju af þessum 38 kjördæmum
og kjósendafjöldi þar fer í 10000
eða meira í ákveðnum kosningum,
og ætti þetta-’ kjördæmi þá að
breytast sjálfkrafa í tvímenn-
ingskjördæmi, þar sem kosnir
yrðu 2 alþingismenn að viðhafðri
hlutfallskosningu í þeim kosning-
um. Jafnframt yrðu kosnir vara-
þingmenn. Hver framboðslisti
yrði því skipaður fjórum mönnum.
Á sama hátt ætti að kjósa þrjá
þingmenn hlutfallskosningu í
þessu kjördæmi, ef fjöldi kjósenda
á kjörskrá færi yfir 15000 eða aðra
tölu, sem ákveðin yrði o.s.frv. Á
þennan hátt mundi atkvæðisrétt-
ur kjósenda í hinum einstöku
kjördæmum jafnast, eftir því sem
kjósendum þar fjölgaði í framtíð-
inni, án þess að gera þyrfti
sérstakar breytingar á kjördæma-
skipaninni með stjórnarskrár-
breytingu og tvennum þingkosn-
ingum, eins og nú er, sbr. 2. mgr.
79. gr. stjórnarskrárinnar.
Á sama hátt mundi þingmönn- -
um kjördæmis fækka aftur, ef
Þingm. Hafnfirðinga
Þingm. Kópavogskaupst.
Þingm. Garðabæjar
Þingm. Kjalarneskjörd.
Kjósendur á kjörsk. alls
Þingm.
Reykvíkinga
7485
8440
2708
3720
41822
5550
4000
5100
6650
3560
4370
3370
6330
3450
6000
5800
“ “ 2492
Kjósendur á kjörsk. alls 56672
fjöldi kjósenda þar færi niður
fyrir tilgreind mörk í ákveðnum
kosningum. Kjördæmi legðist þó
aldrei niður, heldur hefði ávallt
minnst einn þingmann.
Sem dæmi um kjördæmi, sem
líkleg væru til að verða tvímenn-
ingskjördæmi á næstu árum,
mætti nefna stóru kaupstaðina
Akureyri, Hafnarfjörð og Kópa-
vog. Þegar kjósendafjöldi í þessum
kjördæmum færi yfir 10000, ætti
að kjósa 2 þingmenn í hverju
þeirra, sem þýddi rúmlega 5000
kjósendur að baki hverjum þing-
manni.
Þetta fyrirkomulag býður því
upp á blandað kerfi, er fram líða
stundir. Enginn getur í dag séð
með nokkurri vissu fyrir um
þróun byggðar á íslandi í framtíð-
inni. Þó er ljóst, að í mörgum
þeirra kjördæma í þessum tillög-
um, sem eru í hópi fámennustu
kjördæmanna, myndarlegum
kaupstöðum og blómlegum sveit-
um, eigi eftir að verða veruleg
fólksfjölgun þegar á næstu árum.
Má telja nokkuð víst, að með þessu
fyrirkomulagi yrði ekki um að
ræða fjölgun þingmanna, svo
nokkru næmi, á næstu áratugum,
til aldamótanna eða svo.
Nú kann einhver að segja sem
svo, að þrátt fyrir fjölgun þing-
sæta með tilkomu tvímennings-
kjördæma, þyrfti að gera eitthvað
til jöfnunar með líkum hætti og
nú er gert milli þingflokka, vegna
breytilegs kjósendafjölda í ein-
stökum kjördæmum.
Þetta sjónarmið hefur við nokk-
ur rök að styðjast, enda eru
eflaust margir, sem ekki eru
reiðubúnir til að sætta sig við
þann kalda veruleika, sem kosn-1
ingaúrslit í einmenningskjördæm-
um oft bjóða upp á, svo sem er t.d.
í Bretlandi, þar sem engin jöfnun-
arþingsæti eru, heldur ráðast úr-
slitin einfaldlega á annan hvorn
veginn og sigurvegarinn verður að
taka við og stjórna. Eftir 3—4
daga frá kosningum er komin
ríkisstjórn með meirihluta og
ábyrgð gagnvart þinginu.
Án þess að ákveða að talan 11 sé
einhver heilög tala í sambandi við
gera ráð fyrir að úthlutað yrði allt
að 11 jöfnunarþingsætum eða
uppbótarþingsætum, eins og þau
eru stundum kölluð.
Þessum þingsætum ætti að
skipta niður á landsfjórðungana
og Reykjavík hlutfallslega miðað
við kosningaþátttöku, þó þannig
að hvert þessara kjördæmasam-
banda fengi minnst 1 þingsæti í
sinn hlut. Jafnframt ætti að setja
„þak“ á fjölda uppbótarþingsæta,
er komið gætu í hlut hvers kjör-
dæmasambands, á þann veg, að
þessi þingsæti gætu aldrei orðið
fleiri, en sem svaraði '4 hluta af
fullri tölu kjörinna alþingismanna
í kjördæmum hvers landsfjórð-
ungs eða Reykjavíkur í hverjum
alþingiskosningum. Að öðru leyti
gilti hlutfallsleg skipting innan
þessara marka. Miðað við fjölda
kjörinna alþingismanna sam-
kvæmt framan rituðu væri fjöldi
uppbótarþingsæta í fyrstu sem
hér segir: I Vestfirðingafjórðungi,
Norðlendingafjórðungi og Aust-
firðingafjórðungi 1 þingsæti í
hverjum fjórðungi, í Sunnlend-
ingafjórðungi 2 þingsæti og í
Reykjavík 3 þingsæti, alls 8 þing-
sæti. Þetta ætti síðan fyrir sér að
breytast i tímans rás, þegar ein-
stök kjördæmi yrðu smátt og
smátt tvímenningskjördæmi og
alþingismönnum fjölgaði innan
hvers kjördæmasambands, uns
fullri tölu uppbótarþingsæta yrði
náð, 11 þingsætum. Jafnframt
mundi svigrúmið fyrir hlutfalls-
lega skiptingu aukast.
Til að finna hverjir skuli hljóta
þessi viðbótarþingsæti í hverjum
landsfjórðungi eða Reykjavík, er
lagt til að þau hljóti sá eða þeir
frambjóðendur í kjördæmum
fjórðungsins, sem flest atkvæði
hafa hlotið í kosningunum, en ekki
náð kosningu sem kjördæmakosn-
ir alþingismenn, og án tillits til
þess fyrir hvaða flokk þeir buðu
sig fram eða voru utan flokka.
Ekki ætti að skipta máli, hvort
flokkur þessa frambjóðanda hefði
fengið þingmann kjördæmakosinn
í kosningunum eða ekki. Úthlutun
uppbótarþingsæta með þessum
hætti yrði því fyrst og fremst til
jöfnunar milli frambjóðenda,
kjósenda í kjördæmum innan
hvers svæðis og landshluta, en
ekki milli þingflokka eingöngu,
svo sem nú er, enda þótt það kæmi
til með að verða einnig nokkuð á
þann veg í framkvæmdinni. Upp-
bótarþingsætin kæmu að jafnaði í
hlut frambjóðenda í fjölmennustu
kjördæmunum. Væri það í sam-
ræmi við þau sjónarmið, sem nú
eru aðallega uppi um breytingar á
úthlutun þessara þingsæta og fyrr
er um getið.
Miðað við þær hugmyndir, sem
hér hafa verið settar fram, yrðu
alþingismenn alls 46, 38 kjörnir í
jafn mörgum einmenningskjör-
dæmum og 8 landskjörnir þing-
menn í landsfjórðungunum og
landskjörna þingmenn, skulum við þannig:
Kjörd. Meðaltal Uppb. l'inx Meóaltal
Kjósendur kosnir kjósenda bing- sæti kjósenda
Umdæmi: á kjorskrá: þinvm: á þinxm: sæti: alls: á þinKsæti:
Vestfirðingafj. 15000 6 2500 i 7 2143
Norðlendingafj. 21954 7 3136 i 8 2744
Austfirðingafj. 7748 3 2583 i 4 1937
Sunnlendingafj. 41822 10 4182 2 12 3485
Reykjavík 56672 12 4723 3 15 3778
143196 38 3768 8 46 3113