Morgunblaðið - 18.12.1980, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1980
31
iðinn mánudag að Víkingsliðið
væri öruggt í 4 liða úrslit keppn-
innar ef liðið fengi Lugi sem
mótherja?
„Við strákarnir í Víkingsliðinu
munum gera allt sem í okkar valdi
stendur til þess að standa við þessi
ummæli mín. Hins vegar vil ég að
það komi fram, að ég er mjög
hræddur um dómgæsluna í síðari
leik liðanna. Sá leikur fer fram í
Svíþjóð. Formaður Lugi er sá
frægi Wadmark sem lét dæma
okkur að ósekju úr keppninni á
Víkingar duttu í lukkupottinn
-drógust á móti sænska liðinu Lugi
SEGJA má að Víkingur hafi
dottið í lukkupottinn, er dregið
var til átta liða úrslita í Evr-
ópukeppni meistaraliða í hand-
knattleik í gærmorgun. Nafn
Víkings kom fyrst upp úr hatt-
inum og síðan nafn sænska
liðsins Lugi Lund, gamla fé-
lagsins hans Jóns Hjaltalín.
Lugi var einmitt. ásamt Barce-
lona, óskalið Vikinga. Mögu-
leikar Vikinga á því að komast i
4- liða úrslitin eru því umtals-
verðir. því Tatahanya er áreið-
anlega sterkara lið en Lugi. En
annars drógust eftirtalin Iið
Víkingur — Lugi Lund
ZSKA Moskva — Grosswallstadt
Dukla Prag — Magdeburg
FC Barcel. — Kolinska Ljublana
Það var einnig dregið til átta
liða úrslita í Evrópukeppni bik-
arahafa, en í þeirri keppni voru
Haukar fulltrúar íslands. Mót-
herjar Hauka, TUS Nettlestedt
drógust gegn spænska liðinu
Calpisa Alicante. En drátturinn
leit annars svona út:
Nettlestedt — Calpisa
Baia Mare — ZSKA Sofia
Atl. Madrid — Hansa Rostock
Sabac — Budapest
Þorbergur Aðalsteinsson Víkingi er bjartsýnn á að vel gangi i átta
liða úrslitum Evrópuiúeistarakeppninnar i handknattleik. á móti
sænska liðinu Lugi.
„Enginn leikur er
unninn fyrirfram"
— segir Þorbergur Aðalsteinsson
Ég er mjög ánægður með mótherja okkar i átta liða úrslitum
Evrópukeppninnar í handknattleik. betta var það lið sem við
óskuðum okkur sem mótherja. En ég vil undirstrika það. að enginn
leikur er unninn fyrirfram. Það verður að vinna báða leikina á
vellinum. Svo mælti Þorbergur Aðalsteinsson er Mbl. fékk álit hans á
mótherjum Víkings i Evrópukeppninni i handknattleik.
Hvað með ummæli þín í sínum tíma. Hann gæti hugsan-
íþróttaþætti sjónvarpsins síðastl- lega haft mikil áhrif á dómara
Stjörnuleikur
í knattspyrnu
næsta sumar?
HUGSANLEGT er. að í byrjun
júní fari fram á Laugardalsvell-
inum mikill stjörnuleikur i
knattspyrnu i tilefni af 70 ára
afmæli Vals. Það verður margt
um dýrðir hjá félaginu i tilefni
ársins, en ef þetta dæmi gengur
upp. verður það áreiðanlega
hápunkturinn. Það sem hér um
ræðir, er að Valsmenn hafa
skrifað 10 íslenskum atvinnu-
knattspyrnumönnum bréf, þar
sem þeim er boðið að kostnað-
arlausu að koma hingað til
lands og leika vináttu- og sýn-
ingarleik gegn Val. Ekki er öll
sagan sögð. því að boði Vals-
manna fylgir sú bón, að hver
þessara leikmanna hafi heim
með sér einn leikmann úr liði
sinu.
Þeir knattspyrnumenn sem
fengið hafa bréf Valsmanna, eru
Ásgeir Sigurvinsson Standard,
Atli Eðvaldsson Dortmund,
Magnús Bergs Dortmund, Albert
Guðmundsson Edmonton, Jó-
hannes Eðvaldsson Tulsa, Janus
Guðlaugsson Fortuna Köln,
Arnór Guðjohnsen Lokeren, Pét-
ur Pétursson Feyenoord, Hörður
Hilmarsson AIK og Teitur Þórð-
arson Öster. Óljóst er hvort að
allir þessir kappar sjái sér fært
að þekkjast boð Valsmanna, en
líklegt má þó telja að flestir
þeirra geti það. Gæti því vel
farið svo, að íslenskir áhorfend-
ur fái að sjá á Laugardalsvellin-
um samankomna stjörnuleik-
menn eins og Jan Peters Feye-
noord, Vlodi Lubanski Lokeren,
Simon Tahamata Standard,
Manfred Burgsmuller Dortmund
og fleiri.
Teitur fer
til Lens
leiksins. Hann er stjórnarmaður í
IHF og hefur sín áhrif. Við eigum
því von á miklum heimadómurum
sem gætu gert okkur lífið leitt.
En það er alveg víst að það mun
enn frekar efla okkur í baráttunni
gegn Lugi að við gleymum aldrei
hversu illa var farið með okkur er
við vorum dæmdir úr Evrópu-
keppninni. Það átti rót sína að
rekja til Wadmarks eftir að við
höfðum slegið lið hans Lugi út úr
keppninni sagði stórskytta Vík-
inga Þorbergur Aðalsteinss. — ÞR.
„ÞAÐ MÁ segja að málið sé
komið í höfn. Öster og Lens hafa
komist að samkomulagi með allt
nema nokkur smáatriði. Forráða-
menn liðanna ræða svo saman á
föstudag og þá verður væntan-
lega gengið frá þeim atriðum. Ég
mun leika með öster fram í
júníbyrjun á næsta keppnistíma-
bili, en fer síðan til Frakklands í
júni eða júlí. Ég má ekki byrja að
leika með Lens á miðju keppnis-
timabili." sagði Teitur Þórðarson
er Mbl. raddi við hann í gær-
kvöldi.
Nú liggur það nokkuð ljóst fyrir
að Teitur Þórðarson gerist at-
vinnumaður með franska 1. deild-
arliðinu Lens. Teitur sagðist vera
mjög ánægður með tilboð það sem
hann hefur fengið og mun hann
væntanlega skrifa undir tveggja
ára samning við Lens fyrir ára-
mót.
Teitur Þórðarson hefur leikið
með Öster 1 Svíþjóð í þrjú ár og
staðið sig frábærlega vel. Hann
hefur tvívegis orðið Svíþjóðar-
meistari með liði sínu.
— ÞR.
Tveir „pressuleikmenn" í landsliðið
Hilmar Hjörnsson landsliðs-
þjálíari í handknattleik hefur
bætt þeim Einari Þorvarðarsyni
IIK og Þorbirni Guðmundssyni
Val í landsliðshópinn sem þegar
hefur verið gefinn upp fyrir
komandi landsleiki gegn Belgum.
Leikirnir fara fram á íaugardag-
inn og sunnudaginn. Má ætla að
a.m.k. Einar hafi verið valinn
sökum frækilegrar frammistöðu
með pressuliðinu gcgn landslið-
inu á Selfossi í fyrrakvöld.
Fram kom í samtali við Hilmar,
að þeir Ólafur H. Jónsson, Björg-
vin Björgvinsson og Árni Indriða-
son gefi ekki kost á sér í landsleiki
þessa vegna anna. Hann gerði sér
hins vegar vonir um að þeir
Innanhússmót KSI
ÞEIR aðilar. sem hyggja á þátt-
töku í landsmótum og bikar-
keppnum K.S.Í. og íslandsmótinu
í innanhússknattspyrnu á næsta
ári, sendi tilkynningar þar að
lútandi ásamt þátttökugjöldum
til K.S.Í., pósthólf 1011, Reykja-
vík, fyrir 1. janúar nk.
Nauðsynlegar upplýsingar
varðandi þessi mót hafa verið
send til þeirra aðila, sem voru
þátttakendur á liðnu sumri, en
aðrir aðilar, sem hyggja á þátt-
töku eru vinsamlegast beðnir að
leita upplýsinga hjá gjaldkera
sambandsins í síma 91-24260.
myndu allir vera með í B-keppn-
inni í febrúar. „Þessir leikmenn,
svo og Viggó Sigurðsson munu
gefa mér ákveðið svar um jólaleyt-
ið og þá mun ég velja endanlega
hópinn sem fer til Frakklands"
sagði Hilmar. Hilmar var m.a.
spurður um hvort ýmsir aðrir
leikmenn hefðu ekki komið til
álita, eins og til dæmis Jóhannes
Stefánsson úr KR, leikmaður sem
ætti tvímælalaust að fá tækifæri
með landsliðinu. Hilmar taldi hins
vegar ekki vanta mann í þá stöðu
sem Jóhannes leikur með liði sínu.
íslendingar og Belgar hafa að-
eins einu sinni leikið landsleik
áður, það var árið 1972 og vann
ísland þá með yfirburðum. En
Belgar hafa tekið sig gífurlega á
síðan og voru sára óheppnir að
komast ekki í B-keppnina, er þeir
töpuðu mikilvægum leik gegn
Hörkuleik lauk
með jafntefli
Ármann—ÍR
21—21
ÁRMANN og ÍR gerðu jafntefli í
2. deild í gærkvöldi 21—21. Leik-
urinn var mjög jafn og spennandi
og allvel leikinn. Það voru IR-
ingar sem jöfnuðu leikinn þegar
aðeins 50 sekúndur voru eftir af
leiktímanum. Þá var dæmt víta-
kast á Ármann og Guðmundur
Þórðarson einn besti leikmaður IR
skoraði örugglega. Ármenningum
tókst ekki að skora úr síðustu sókn
sinni í leiknum.
ÍR-ingar byrjuðu leikinn vel og
skoruðu fjögur mörk án þess að
Ármann kæmist á blað. En hægt
og sígandi náðu Ármenningar
betri tökum á leik sínum og staðan
í hálfleik var 13—12 þeim í hag.
Allur síðari hálfleikur var mjöjg
jafn og jafntefli því nokkuð sann-
gjörn úrslit. Bæði liðin sýndu góð
tilþrif og allt bendir til þess að
þau verði í baráttunni um topp-
sætið í 2. deild í vetur. En staðan í
2. deild er mjög jöfn og tvísýn og
mörg lið nokkuð jöfn að getu.
Bestu menn í liði Ármanns voru
þeir Einar, Friðrik og Óskar.
Guðmundur Þórðarson og Bjarni
Bessason léku best hjá ÍR-ingum.
Mörk ÍR: Guðmundur 7 3v, Bjarni
6, Ásgeir 3, Brynjólfur 2, Ársæll,
Guðjón, og Sigurður 1 mark hver.
Mörk Ármanns: Óskar 7, Einar 4,
Björn 4, Jón 2, Friðrik 2, Kristinn
og Haukur 1 mark hvor.
-þr.
Handknattlelkur
ísrael með eins marks mun á
C-keppninni í Færeyjum á síðasta
ári. Belgar stóðu sig geysivel í
keppninni, unnu m.a. Frakka, sem
unnu Islendinga síðast er þjóðirn-
ar áttust við. Belgar fengu sér
júgóslavneskan þjálfara fyrir 6—7
árum og hefur sá byggt upp mjög
þokkalegt lið sem borgar sig ekki
fyrir íslendinga að vanmeta. Þá
væri voðinn vís. Hins vegar verður
ísland að teljast sigurstranglegri
aðilinn, ekki síst þar sem leikið er
á heimavelli.
HSÍ græddi mikla peninga á
landsieikjunum gegn Vestur-
Þjóðverjum, að sögn forráða-
manna sambandsins um 13 millj-
ónir króna. Fór allt upp í skuldir.
En HSÍ þarf að fá minnst 1500
áhorfendur á báða leikina til
samans til þess að sleppa á sléttu.
-KK-
Argentína
burstaöi Sviss
ARGENTÍNA sigraði Sviss ör-
ugglega með fimm mörkum gegn
engu í landslcik í knattspyrnu
sem fram fór í Cordoba í fyrra-
kvöld. Staðan í hálfleik var 4—0
og réðu heimsmeistararnir lengst
af lögum og lofum á vellinum.
Ramon Diaz skoraði fyrsta
markið eftir fjórar mínútur, eftir
snjalla fyrirgjöf frá Diego Mara-
dona. Leopoldo Luqué bætti öðru
marki við skömmu síðar, einnig
eftir undirbúning Maradona.
Daniel Valencia og Diego Mara-
dona bættu tveimur mörkum við
rétt fyrir lok fyrri hálfleiks og
Daniel Pasarella skoraði síðan
fimmta markið snemma í síðari
hálfleik. Undir lok leiksins vökn-
uðu framherjar Sviss aðeins og
Hans Jorg Pfister átti stangar-
skot. En úrslitin voru ráðin.
jnwmiant!!
íöróttlr