Morgunblaðið - 21.02.1981, Side 1
48SÍÐUR OGLESBÓK
43. tbl. 69. árg.
LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Þremur ræðismönnum
rænt á Norður-Spáni
Madrid. 20. febrúar. AP.
BASKNESKIR aðskilnaðarsinnar
rændu i dag ræðismönnum Austur-
rikis. Uruguay og E1 Salvador á
Norður-Spáni og gerðu einnig ár-
angurslausa tilraun til að ræna
ræðismanni Portúgala. Að sögn
lögreglunnar vakir það fyrir
mannræningjunum að þvinga
stjórnvöld til að leysa úr haldi 300
skæruliða ETA-samtakanna, að-
skilnaðarhreyfingar Baska.
Ráðist var inn á heimili ræð-
ismannanna í nótt og þeir fluttir
strax á brott en nokkrir skærulið-
anna höfðu gætur á húsunum til
morguns. Mikil leit var hafin að
skæruliðunum þegar uppvíst varð
um mannránin en þegar síðast
fréttist hafði hún engan árangur
borið.
Lögreglan telur að mannræningj-
arnir séu úr hinum hófsamari armi
ETA-samtakanna og dregur þá
ályktun af orðaskiptum þeirra við
fjölskyldur ræðismannanna. Þeir
sögðust ræna mönnunum vegna
„basknesku fanganna" og til að
vekja „alþjóðlega athygli“ á kröfum
aðskilnaðarsinna um uppgjöf saka.
Einnig gáfu þeir í skyn við fjöl-
skyldu austurríska ræðismannsins,
að honum yrði ekki haldið lengi.
Embættismenn stjórnarinnar
drógu einnig mjög í efa, að mann-
ránin væru gerð til að hefna
Baskans, sem spænska lögreglan er
sökuð um að hafa pyntað til bana,
vegna þess, að hann hefði verið
félagi í róttækari armi ETA, sem
sakaður er um að bera meginábyrgð
á 95 pólitiskum morðum á Spáni á
síðasta ári.
Tilraun með
geimskutlu
gekk vel
kanaveral hofða. Florida.
20. febrúar. AP.
HINIR þrír geysiöflugu hreyflar
geimskutlunnar Columbiu vökn-
uðu til lífsins i dag með miklum
drunum þegar fram fór þýð-
ingarmikil tilraun, sem skera
mun úr um það, hvort unnt
verður að senda geimskutluna
ásamt geimförum á braut um
jörðu i april nk.
„Allt gekk eins og í sögu og
hreyflarnir unnu eins og til var
ætlast," sagði í tilkynningu
stjórnstöðvarinnar, en stefnt er
að því, að Columbia fari á braut
um jörðu 7. apríl nk. eða tveimur
árum síðar en upphaflega var
áætlað.
Vísindamenn eiga raunar eftir
að leggja endanlega blessun sína
yfir tilraunina í dag en flestir
telja, að með henni hafi verið
yfirstiginn erfiðasti þröskuldur-
inn í þeim byltingarkenndu breyt-
ingum, sem verða munu á geim-
könnun Bandaríkjamanna með
tilkomu skutlunnar.
Meðal ánægðra áhorfenda að
tilrauninni í dag voru geimfar-
arnir tveir, John Young og Bob
Crippen, sem stjórna munu Col-
umbiu í jómfrúrferðinni. „Við
erum ferðbúnir," sagði Young,
sem á að baki fjórar geimsigl-
ingar og hefur m.a. spássérað um
á tunglinu.
Dewsbury, Englandi, 20. (ebrúar. AP.
VÖRUBÍLSTJÓRINN Peter Suthcliffe, sem grunaður er um að
vera hinn svokallaði „kvennamorðingi frá Yorkshire“, var í dag
formlega ákærður um að hafa myrt 13 konur og gert tilraun til
að myrða aðrar sjö. Ekki hefur verið ákveðið hvenær
réttarhöldin fara fram, en búist er við þeim í byrjun næsta
mánaðar.
Friðarverðlaunahafinn Adolfo Perez Esquivel heldur út úr lögreglustöðinni í fylgd rómversk-kaþólska
kardinálans í Sao Paulo. Esquivel var handtekinn i fyrrakvöld, hafður í haldi í tvær stundir og varaður við
að láta sér nokkuð það um munn fara, sem viðkæmi mannréttindamáium í Brasiliu, ella yrði hann rekinn úr
landi. — AP-símam.vnd
Friðarverðlaunahafa
hótað með brottrekstri
Mikill viðbúnaður var viðhafður
þegar Suthcliffe var fluttur til
dómshússins og öllum nálægum
götum lokað til að koma í veg fyrir
að atburðirnir frá 5. jan. sl.
endurtækju sig. Þá safnaðist sam-
an mikill mannfjöldi fyrir utan
réttarsalinn, sem hafði í hótunum
við sakborninginn og hrópaði að
honum ókvæðisorð.
Peter Suthcliffe var hljóður og
án allra svipbrigða þegar ákær-
Pólland:
Varsjá, 20. frbrúar. — AP.
BÆNDUR í Suðaustur-Póllandi
komust i dag að samkomulagi við
fulltrúa stjórnvalda og er ekki
vitað til annars en að allt sé nú með
kyrrum kjörum i landinu. Stjórn
Jaruzelskis, hins nýja forsætisráð-
herra, gefst nú tækifæri til að snúa
sér af alefli að efnahagsmálunum
og er búist við, að ekki dragist
lengur úr hömlu að tilkynna mat-
arskömmtun i Póllandi, sem ganga
átti í gildi um siðustu áramót.
urnar á hendur honum voru lesnar
upp, en hann er sakaður um að
hafa myrt 13 konur og reynt að
myrða aðrar sjö. Ákærandinn
sagði, að lögreglan myndi leggja
fram ýmis sönnunargögn við rétt-
arhöldin, t.d. „teikningar, kort og
ljósmyndir, sem sakborningurinn
hefði tekið... og átta aðra hluti".
Þar mun vera átt við skrúfjárn,
hamar og nokkra hnífa sem fund-
ust í fórum Suthcliffes.
Hin opinbera pólska fréttastofa,
PAP, sagði í dag, að Sovétmenn
hefðu ákveðið að veita Pólverjum
greiðslufrest á lánum, sem þeir
hefðu veitt þeim, en engar tölur
voru nefndar í því sambandi. í
næstu viku munu vestrænir lánar-
drottnar Pólverja halda fund í París
þar sem afborgunarskilmálarnir
verða endurskoðaðir
Á fundi, sem Jaruzelski átti í gær
með starfsmönnum lyfjaverksmiðju
nálægt Varsjá, sagði hann, að
Sao Paulo, 20. febrúar. — AP.
Argentínumaðurinn Adolfo Per-
ez Esquivel, sem fékk friðarverð-
laun Nóbels á siðasta ári, var i
gær tekinn i vörslu brasilisku
stjórnin ætlaði að sjá til þess, að
„Pólland yrði ekki gjaldþrota" og
bætti því við, að efnahagsástandið í
Póliandi yrði helsta umræðuefnið á
fundi með sendiherrum Bandaríkj-
anna, Bretlands, Vestur-Þýskalands
og Frakklands í næstu viku.
Búist er við tilkynningu stjórn-
valda um matarskömmtun um nk.
mánaðamót en samkvæmt henni
eiga fullorðnir að fá 3,5 kg af kjöti
mánaðarlega, unglingar og erfiðis-
menn nokkru meira en börn minna.
lögreglunnar um stundarsakir
og varaður við því að gefa
yfirlýsingar um pólitisk mál.
Ella ætti hann það á hættu að
vera rekinn úr landi.
Esquivel var hafður í haldi í
tvær stundir og honum hótað því,
að hann yrði rekinn úr landi ef
hann minntist einu orði á brasil-
ísk innanríkismál. Talið er, að
lögregluyfirvöld hafi haft í huga
viðtal, sem Esquivel átti við dag-
blað í Brasilíu þar sem hann
sagðist styðja málssókn vinstri-
sinnaðrar konu á hendur stjórn-
völdum vegna pyndinga, sem hún
hefði sætt.
Handtaka Esquivels hefur vakið
mikinn úlfaþyt í Brasilíu og hafa
kaþólskir kirkjuhöfðingjar,
stjórnmálamenn og jafnvel stuð-
ningsmenn herstjórnarinnar verið
ómyrkir í máli um aðfarir lögregl-
unnar.
Kardinálinn í Sao Paulo, Paulo
Evaristo Arns, kallaði handtök-
una „fáránlega firru — það að
handtaka friðflytjanda" og leið-
togi jafnaðarmannaflokks stjórn-
| arinnar á þingi sagði, að lögreglan
„hefði ekki átt að koma fram við
I Esquivel á þennan hátt“.
Sotelo tapaði
í fyrstu lotu
Madrid. 20. (ebrúar. AP.
LEOPOLDO Calvo Sotelo, for-
sætisráðherraefni Miðflokka-
sambandsins, beið i dag lægri
hlut í atkvæðagreiðslu þings-
ins um útnefninguna og skorti
hann sjö atkvæði upp á tilskil-
inn meirihluta. 176 atkvacði af
350.
Önnur atkvæðagreiðsla fer
fram nk. mánudag og fullyrða
stuðningsmenn Sotelos, að þá
muni útnefning hans verða
staðfest. Við aðra atkvæða-
greiðslu nægir meirihluti við-
staddra þingmanna en ekki
allra eins og við þá fyrri. Við
atkvæðagreiðsiuna í dag mæltu
vinstri menn mjög gegn Sotelo,
en það, sem úrslitum réð, var
fjarvera þingmanna Katalóníu-
manna, Baska og íhaldsmanna.
Matarskömmtun
á næstu grösum
Suthcliffe formlega
ákærður um 13 morð