Morgunblaðið - 21.02.1981, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 21.02.1981, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1981 13 Hér sjást Ribbentrop, utanrikisráðherra Hitlers, og Stalin, átrúnað- argod Sósialistaflokksins, fagna griðarsáttmála sinum 1939. Þá féllust kommúnistar og nazistar, byltingar-samhyggjumenn og þjóðernis-samhyggjumenn, í faðma, og Þjóðviljinn heima á íslandi tók að skrifa, að Bretar væru miklu hættulegri en þýzku nazistarnir. Dr. Magnús Jónsson prófessor, sem var alþingismaður Sjálfstæð- isflokksins frá stofnun hans til 1946, ieiddi skarpieg rök að þvi i grein i Stefni 1930, að verka- menn ættu ekki að vera sósialist- ar. sjálft sig til þess að andstæðing- unum gefist ekki tóm til að tortíma því.“ Höfundur reynir að lokum rit- gerðarinnar að skýra hina snöggu fylgisaukningu Sósíalistaflokks- ins, sem fékk (undir heitinu „Kommúnistaflokkur") 8,5% at- kvæða í kosningunum 1937, en 18,5% í haustkosningunum 1942. Hann nefnir, að Sósíalistaflokkurinn var eini stjórnarandstöðuflokkurinn á þjóðstjórnarárunum, að leiðtogar hans urðu stundum píslarvottar að mati almennings, að Kremlverjavináttan spillti ekki fyrir honum, eftir að Stalín var orðinn bandamaður vest- rænna lýðræðisþjóða, að Sósíalistar voru mjög vold- ugir á vettvangi listanna, jafn borgaralegir menntamenn og Sig- urður Nordal og Einar 01. Sveinsson urðu meðreiðarsveinar (fellow-travellers) þeirra, að Sósíalistaflokkurinn tók for- ystuna í þeirri kjarabaráttu, sem Þjóðstjórnin efndi til með því að dæla peningum út í atvinnulifið. Allar þessar skýringar eru, hygg ég, réttar, en höfundur ræðir þær ekki rækilega, og í því felst megingalli ritgerðarinnar. Hún er umfram allt vel unnin uppsuða úr dagblöðum, Alþingistiðindum og nokkrum bókum. I hana vantar þá sögulegu vídd, sem fæst með glímu við munnlegar heimildir, hagsögu og hugmyndasögu. Einn snarasti þátturinn í valdavef Sósí- alista lá t.d. um vettvang listanna, en um það ræðir Stefán varla: Halldór Laxness og Þórbergur Þórðarson seiddu miklu fleiri menn til samhyggju en Brynjólfur Bjarnason og Einar Olgeirsson, Bréf til Láru og Alþýðubókin áttu miklu fleiri lesendur en Kommúnistaávarpið. Ég nefni tvö önnur rannsóknarefni. Vænlegt getur verið til árangurs, ef við ætlum að skýra hið mikla fylgi Sósíalistaflokksins, að bera flokkakerfi, stéttaskiptingu og hugmyndasögu íslendinga saman við þessi fyrirbæri þeirra vest- rænu þjóða, sem veitt hafa sam- eignarsinnum svipað fylgi, t.d. Frakka, Finna og ítala. Og hvort eigum við heldur að kenna hinum flokkunum um eða þakka Sósíal- istaflokknum fyrir hið mikla fylgi hans? Betri lokaritgerðir hafa verið skrifaðar en þessi í Háskóla ís- lands. En höfundurinn þarf þó ekki að skammast sín fyrir þetta verk, það er frambærilegt. I það hafa að vísu slæðzt nokkrar ónákvæmnisvillur, bókin „Þjóðar- búskapur íslendinga" er t.d. nefnd „Þjóðartekjur íslendinga". En höfundurinn er efni í raunveru- legan sagnfræðing, ef hann heldur samvizkusemi sinni, aflar sér víð- tækari þekkingar og losnar við nokkra hleypidóma. Óhjákvæmilegt að skerða útsýni við upp- byggingu borgarinnar - segir Sigurjón Pétursson, forseti borgarstjórnar „ÞESSI bygging hefur bæði verið samþykkt i skipuiagsnefnd og borgarráði,” sagði Sigurjón Pét- ursson. forseti borgarstjórnar, er Morgunblaðið spurði hann, hvort veitt hefði verið byggingarleyfi fyrir húsi Landssmiðjunnar við Skútuvog. „Það er ætlunin að inni við Sundin rísi skipasmiðja í framtíð- inni og með hliðsjón af því hefur Landssmiðjunni verið veitt lóð við Skútuvoginn. Hún mun þá í fram- tíðinni annast ýmis verkefni, tengd eða skyld skipasmíðum og forráðamenn hennar töldu að viss lágmarkshæð hússins væri nauð- synleg ef eðlileg starfsemi ætti að geta átt sér stað þar. Því hefur þetta verið samþykkt, þó svo að hæð þess sé nokkru meiri en annarra húsa við Elliðavog og Skútuvog." Nú hefur þú áður mótmælt byggingum á þessum slóðum, hvaða munur er á þessu nú og áður? „Það sem ég mótmælti áður var áframhald samfellds veggs húsa, sem rauf útsýni á talsverð- um kafla. Sú útsýnisskerðing hefði orðið mun meiri, en það sem nú er um að ræða. Það er óhjákvæmilegt að við uppbyggingu borgarinnar skerðist útsýni að einhverju leyti, en ég legg áherzlu á að það verði ekki byrgt með öllu eins og átt hefur sér stað við Klettagarða." Borgarstjórn frestaði afgreiðslu málsins á fundi sínum síðastliðið fimmtudagskvöld og ákveðið var að kynna það Sundasamtökunum, sem sent höfðu borgarstjórn mót- mæli vegna þess. Stuðnings- yfirlýsing við fóstrur Á FUNDI stjórnar Nemendafélag Fósturskóla íslands var eftirfar- andi ályktun samþykkt: Við lýsum yfir eindregnum stuðningi við aðgerðir fóstra i kjarabaráttu þeirra og vonum að aðgerðirnar beri árangur sem erf- iði. Einnig viljum við taka fram að þeir nemendur sem útskrifast úr Fósturskóla íslands í vor munu ekki ráða sig í fóstrustörf fyrr en deilan er leyst. Fyrir hönd Nemendafélags Fósturskóla íslands. Anna Árnadóttir. EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Tilbeiðsluhús Baha'ia eru tákn um sameiginlegan uppruna allra trúarbragða. Myndin sýnir líkan af húsi sem Baha'iar eru að byggja á Indlandi. Fyrirlestur á vegum Baha’ia á Hótel Esju ANNAÐ kvöld mun Adib Taher- zadeh halda fyrirlestur á vegum Baha'ia á Hótel Esju (sal 1). í þessum fyrirlestri, sem hefst kl. 20.15, mun Adib taka til umfjöll- unar efnið „Tilgangur lifsins". Adib Taherzadeh er ættaður frá Persíu. Faðir hans var einn af fyrstu lærisveinum Baha’u’llah, höfundar Baha’a-trúarinnar. Adib er verkfræðingur að mennt og starfar sem tæknilegur fram- kvæmdastjóri á trlandi. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku en túlkaður jafnóðum á íslensku. Að fyrirlestrinum lokn- um verður fréttaspurnum svarað. (Fréttatilkynning). Gestir til KROSSINN í Kópavogi hefur fengið til sín gesti sem munu tala og syngja á samkomum þar næstu 2—3 vikur. Þetta eru forstöðumaður Hvitasunnusafn- aðarins í Lafayette i Louisiana, Robert Hunt og kona hans. Þau hjónin eru bæði prédikarar og syngja saman auk þess sem hann leikur á trompet. Fyrsta samkoman verður í kvöld, laugardagskvöld, kl. 20.30. Samkomur verða svo á hverjum degi nema á mánudögum. Hefjast þær kl. 20.30 nema á sunnudögum kl. 16.30. Á samkomunum mun Hunt biðja fyrir sjúkum. Krossins Robert Hunt Wá 111 Kalmar ’81 □ Við höfum nú gjör- breytt og stækkað sýningarhúsnæði okkar í Skeifunni 8, Reykjavík. □ Þar er nú veröld inn- réttinga í vistlegu húsnæði, sem á sér enga hliðstæðu hér- lendis. □ Hringið eða skrifið eftir nýjum bæklingi frá Kalmar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.