Morgunblaðið - 21.02.1981, Blaðsíða 30
HVAÐ ER AÐ GERAST UM HELGINA?
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1981
NORRÆNA IIÚSIÐ
Arnaldur Arnarson
á Háskólatónleikum
í daK verða haldnir i Norræna
húsinu (jórðu Háskólatónleikar
vetrarins ok hefjast þeir kl. 17.00.
Arnaldur Arnarson
Flytjandi er Arnaldur Arnarson
gitarleikari.
Á efnisskránni er einungis tónlist
frá Rómönsku Ameríku sem samin
var á þessari öld og eru öll verkin
upphaflega samin fyrir gítar. Flutt
veröa verk eftir Heitor Villa-Lobos,
Manuel Maria Ponce og Agustin
Barrios Mangore. Þessi þrjú tóns-
káld eru meðal merkustu gítarhöf-
unda Rómönsku Ameríku og hafa
þeir haft mikil áhrif á gítartónlist
og aukið mjög virðingugítarsins.
Arnaldur Arnarson lauk prófi í
gítarleik 1977 frá Tónskóla Sigur-
sveins og var kennari hans þar
Gunnar H. Jónsson. Síðan 1978
hefur hann verið við framhaldsnám
í Manchester á Englendi og eru
kennarar hans þar Gordon Cross-
key og George Hadjinikos. Arnald-
ur hefur haldið nokkra tónleika í
Reykjavík og á Akureyri auk þess
sem hann hefur komið fram í
hljóðvarpi og sjónvarpi.
KJARVALSSTAÐIR
Vinnan - fólkiö - landið
Um helgina lýkur sýningu
Guðmundar Ármanns og Sigurð-
ar Þóris, „Vinnan — fólkið —
landið“, sem staðið hefur frá 7.
febrúar i vestursal Kjarvals-
staða.
Á sýningunni eru um 90 myndir,
málverk, grafík og teikningar.
Þessi sýning hefur þá sérstöðu,
eins og nafnið bendir til, að
meginhluti verkanna sýnir fólk
við vinnu, í fiskvinnslu, uppskip-
un, verksmiðjuvinnu, skipasmíði
o.fl. Einnig eru á sýningunni
nokkrar landslagsmyndir.
í dag um kl. 16 koma nokkrir
félagar úr Vísnavinum í heimsókn
á sýninguna og taka lagið, en
sýningunni lýkur annað kvöld eins
og fyrr segir.
LEIKLISTARFÉLAG MII
„Til hamingju með
afmælið Wanda June“
Annað kvöld verður siðasta sýn-
ing Leiklistarfélags Menntaskól-
ans við Hamrahlíð á leikritinu _Til
hamingju með afmælið Wanda
June“ eftir handariska háðfuglinn
og rithöfundinn Kurt Vonnegut Jr.
og hefst sýningin kl. 20 i hátíðarsal
MH.
Kurt Vonnegut er þekktur fyrir
skáldsögur sínar sem einkennast
mjög af miklu og sérstæðu hug-
myndaflugi. Hann hlaut fyrst rit-
höfundarfrægð með skáldsögu sinni
„Slaughterhouse 5“ en hún byggist
öðrum þræði á reynslu þeirri er
hann hlaut sem þýskur stríðsfangi,
er hann varð vitni að eyðingu
Dresden í síðari heimsstyrjöldinni.
NÝLISTASAFNIÐ
Gjörninga-
vika
Um þessar mundir stendur yfir
_Gjörningavika“ i Nýlistasafninu
við Vatnsstig. Fyrsti gjörningurinn
fór fram á fimmtudagskvöld og var
þar að verki ólafur Lárusson. í
kvöld eru það Bjarni Þórarinsson
og Halldór Ásgeirsson sem flytja
gjorninginn. en síðan taka aðrir við
næstu f jögur kvöld.
„Með orðinu performance er átt
við hugtak sem undanfarið hefur
verið nefnt gjörningur og felur í sér
athöfn, óháða tíma, efnisnotkun og
umfangi, athöfn einnar manneskju
eða fleiri. Performansinn kemur í
kjölfar hinna svokölluðu happen-
ings, sem var lítt undirbúin athöfn,
þar sem tilgangurinn var að aðhaf-
ast eitthvað á ákveðnum stað, oft
með einhverja aðskotahluti eða efni
úr heimi velmegunar, gjarnan í
hópum. Þessar uppákomur voru
mikiðiðkaðar uppúr bandarísku „ab-
síðan hefur hann sent frá sér hverja
skáldsöguna af annarri sem hlotið
hafa hinar bestu viðtökur.
Þetta leikrit er eina leikrit höf-
undar. í því tekur hann fyrir
Odysseifs-minnið um týndu hetjuna
er snýr heim. í verkinu er hún
prsónugerð í bandaríska atvinnu-
hermanninum og auðkýfingnum
Harold Ryan. í fjarveru hans hefur
kona hans orðið sér úti um tvo
vonbiðla, ryksugusölumann og „hýr-
an“ lækni, en hann er jafnframt
friðarsinni, hinn andstæði póll við
Ryan. Einnig víkur sögunni til
himnaríkis, þar sem við kynnumst
Mildred Ryan, þriðju konu Harolds,
þýskum nasistaforingja, og Wöndu
litlu June.
ólafur Lárusson: Úr gerningi 4.
október 1979.
strakt-expressionisku" byltingunni á
sjötta áratugnum.
Þróunin verður síðan, að athöfnin
einfaldast í umfangi sínu og verður
hnitmiðaðri, samfara þeirri áherzlu
sem conceptual-listtímabilið á átt-
unda áratugnum leggur á hreina
hugmyndlist og hefur í sér fólgna
tilhneigingu til einföldunar."
ÞJÓÐLEIKIIÚSIÐ
Nágranninn tekur slag með Willy Loman (Árni Tryggvason og Gunnar Eyjólfsson).
Frumsýnir leikrit-
ið „Sölumaður deur“
í kvöld frumsýnir Þjóðleikhús-
ið hið víðfræga leikrit Arthur
Millers, Sölumaður deyr. Dr.
Jónas Kristjánsson hefur þýtt
leikinn. Áskell Másson hefur
samið tónlist fyrir sýninguna,
Þórhallur Sigurðsson er leik-
stjóri, leikmyndina gerir Sigur-
jón Jóhannsson. Dóra Einars-
dóttir sér um búningana og
Kristinn Daníelsson sér um lýs-
inguna.
Það er Gunnar Eyjólfsson sem
leikur sölumanninn Willy Lom-
an, en leikritið lýsir lífi hans og
því hvernig hann reynir að
réttlæta sig þegar honum finnst
hann vera útskúfaður. Margrét
Guðmundsdóttir leikur eiginkon-
una Lindu og Hákon Waage og
Andri Örn Clausen leika synina
Biff og Happy. Þá eru stór
hlutverk í höndum Randvers
Þorlákssonar. Bryndísar Péturs-
dóttur, Árna Tryggvasonar og
Róberts Arnfinnssonar.
Leikritið „Sölumaður deyr“ hef-
ur verið sýnt oftar og víðar í
veröldinni en flest önnur leikrit
sem samin hafa verið á síðustu
áratugum. Og þetta er í annað
sinn sem Þjóðleikhúsið tekur
verkið til sýninga, en það var áður
á fjölunum árið 1951 í uppfærslu
Indriða Waage. — önnur sýning á
Margeir hefur enga trú á _pat-
entlausnum“, nema ef vera
skyldi þeirri að drekka sig
fullan (Gisli Alfreðsson).
Sölumaður deyr verður annað
kvöld.
Fáar sýningar
eftir á „Líkamanum“
Annað kvöld verður sýning á
leikriti James Saunders Líkaminn
— annað ekki á Litla sviði Þjóð-
leikhússins og eru aðeins örfáar
sýningar eftir. Sýning þessi fékk
mjög lofsamlega dóma allra gagn-
rýnenda og einkum fengu leikar-
arnir fjórir Gísli Alfreðsson,
Kristbjörg Kjeld, Steinunn Jó-
hannesdóttir og Sigmundur Örn
Arngrímsson, mikið lof fyrir
frammistöðu sína. Leikstjóri er
Benedikt Árnason, Jón Svanur
Pétursson gerir leikmyndina, Páll
Ragnarsson sér um lýsinguna og
örnólfur Árnason hefur þýtt leik-
inn.
Leikritið segir opinskátt frá
tvennum hjónum sem áður fyrri
voru mjög nánir vinir, en hittast
nú aftur eftir margra ára aðskiln-
að og eiga ekki lengur ýkja margt
sameiginlegt. Það er ekki vert að
rekja nánar efni leiksins, því
atburðarásin er spennandi og sjón
er sögu ríkari.
Kunna vel að meta
þessa uppsetningu
Tvær til þrjár sýningar hafa
verið undanfarnar helgar á leik-
gerð Árna Ibsens á Oliver Twist
eftir Charles Dickens, en um
þessa helgi er aðeins ein sýning, á
morgun kl. 15.00 og er það vegna
frumsýningarinnar á „Sölumann-
inum“. Ekki þarf að fjölyrða um
söguna af munaðarleysingjanum
Oliver Twist, svo kunn er hún, en
það hefur komið í ljós að íslenskir'
leikhúsgestir kunna vel að meta
þessa sviðsetningu á efninu.
ALÞÝÐlILEIKIll S
Þrjár sýningar á
„Kóngsdótturinnt
Um helgina verður Alþýðuleik-
húsið með þrjár sýningar á
„Kóngsdótturinni sem kunni
ekki að tala“, í dag kl. 15 og á
morgun kl. 15 og 17. Þá verður
„Stjórnleysingi ferst af slysför-
um“ á fjölunum i Hafnarbiói
annað kvöld kl. 20.30.
Mjög góð aðsókn hefur verið að
sýningum Alþýðuleikhússins í
Hafnarbíói og virðist sem stærra
húsnæði leikhússins laði til sín
fleiri áhorfendur. Um helgina fjöl-
menna Grindvíkingar á Kóngs-
dótturina en um síðustu helgi voru
Hvergerðingar gestir á barnasýn-
ingunni. Að sögn forráðamanna
Alþýðuleikhússins er mikil
stemmning í salnum þegar 300
áhorfendur fylgjast með viðureign
biðlanna Vilfreðs og Alfreðs við
Drekann ógurlega en það er há-
punktur sýningaririnar.
„Sálin hans Jóns míns“ er á
fjölunum hjá Leikbrúðulandi á
morgun og hefst sýningin kl. 15
að Frikirkjuvegi 11. Leikstjóri er
Briet Héðinsdóttir en Messiana
Tómasdóttir gerði brúður og
leiktjöld með aðstoð Leikbrúðu-
lands. Davíð Walters sá um
lýsinguna. Margir þekktir leikar-
ar Ijá brúðunum raddir sinar.
IILÍÐARENDI
Léttklass-
ískur söngur á
konudagskvöldi
Annað kvöld mun matargestum
veitingastaðarins Hlíðarenda gef-
ast kostur á að hlýða á hjónin
Sieglinde Kahman og Sigurð
Björnsson syngja léttklassísk lög
frá ýmsum löndum. Undirleikari
verður Agnes Löve.
Tónleikar í
Njarö víkurkirkju
Á morgun verða þriðju reglu-
legu tónleikar í Ytri-Njarðvíkur-
kirkju á þessum vetri, og hefjast
þeir kl. 15. Þar koma fram þau
Ragnheiður Guðmundsdóttir söng-
kona og Jónas Ingimundarson
pianóieikari.