Morgunblaðið - 21.02.1981, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1981
Ljósm. Mbl. Krlstján.
Sverre Hamre og ólafur Jóhannesson ræddust við i gærmorgun og
var þessi mynd þá tekin.
Sverre Hamre heldur
ræðu á fundi SVS í dag
HÉR á landi er nú staddur
Sverre Hamre hershöfðingi,
æðsti yfirmaður varna Noregs.
Hann er hér i boði Samtaka um
vestræna samvinnu.
í dag, laugardag, heldur
Hamre ræðu og tekur þátt í
umræðum á fundi, sem haldinn
er í Átthagasal Hótel Sögu og
hefst klukkan 12. Umræðuefnið
verður: Sjónarmið Norðmanna í
varnarmálum og varnir á norð-
urslóðum. Ræðu sína flytur
Hamre á ensku. Fundurinn er
ætlaður félagsmönnum SVS og
eru þeir hvattir til að mæta vel
og taka með sér gesti.
I för sinni hingað hefur Sverre
Hamre rætt við ýmsa aðila.
Yfirvinnubann boðað
á vertíðinni í Eyjum
Verkalýðsfélögin í Vest-
mannaeyjum hafa boðað
yfirvinnubann í Eyjum frá
og með 26. feb. n.k. vegna
meintra brota í sambandi
við ný lög um vinnutíma,
en lög frá 1. jan. sl. gera
ráð fyrir að ekki sé unnið
lengur en 14 tíma á dag,
eða til kl. 22 nema við
björgun sjávarafla þegar
vinna má allt til kl. 24.
ASÍ og VSÍ hafa ekki
samið um þessi atriði. en
þetta getur skapað vand-
Vegna nýrra
laga um
vinnutíma
ræði í verstöðvum þar sem
bátar koma með óaðgerð-
an afla að landi.
Verkalýðsfélögin í Vestmanna-
eyjum ætla nú að láta reyna á
þetta en atvinnurekendur og
verkalýðsfélögin í Eyjum héldu
sameiginlegan fund í sl. viku þar
Teljum atvinnu við
sjónvarpið tryggða
segir Gísli Alfreðsson um nýgerðan samning
Svissneskt leigu-
flugfélag f lýgur
hingað 11 ferðir
SVISSNESKT leiguflugfélag,
CTA, mun fljúga nokkrar ferðir
hingað til lands í sumar frá
Ziirich með svissneska ferða-
menn á Caravelie-þotum. Eru
ferðir þessar skipulagðar af
ferðaskrifstofu í Sviss, Sagareis-
en. Svissneska flugfélagið flýgur
11 ferðir, en Arnarflug mun fara
14 ferðir milli Keflavíkur og
ZUrich.
Halldór Sigurðsson, sölustjóri
Arnarflugs, sagði, að Arnarflug
hefði sl. sumar setið eitt að
þessum ferðum, en nú hefðu flug-
málayfirvöld þar í landi komið því
svo fyrir að hið svissneska flugfé-
lag fengi hluta af þessu verkefni.
Gæti svo farið, að enn fleiri ferðir
kæmu í þess hlut.
Áður hefur verið skýrt frá því í
Mbl., að danska flugfélagið Sterl-
ing muni fljúga hingað tvisvar í
viku í sumar á leið sinni til
Grænlands og norska félagið
Braathens er einnig væntanlegt
með nokkrar ferðir. Halldór Sig-
urðsson kvað ferðir erlendra
leigufélaga hafa áhrif á starfsemi
Arnarflugs, en ekki mjög mikla
þar sem þessi svissneski markaður
væri nokkuð nýr. Sveinn Sæm-
undsson, blaðafulltrúi Flugleiða,
kvað ferðir félaga frá Norðurlönd-
um án efa geta dregið úr farþega-
fjölda hjá Flugleiðum, ekki sízt ef
innlendar ferðaskrifstofur seldu
Islendingum þessar ferðir. — Öll
áætlunarflugfélög lenda í þessum
erfiðleikum og það er algengt, að
leigufélög fleyti rjómann ofan af á
háannatímanum, þegar áætlun-
arfélögin þurfa að ná sem beztri
nýtingu og tekjum til að geta
haldið uppi nauðsynlegri þjónustu
aðra árstíma, sagði Sveinn. Hann
kvað erlend félög stundum undir-
bjóða, en stundum hefðu Flugleið-
ir ekki vitað um slíkar ferðir og
því ekki getað gert tilboð, en
stjórnvöld gætu gripið inn í og
verndað áætlunarfélög að vissu
marki í tilvikum sem þessum.
FÉLAG ísl. leikara og Rikisút-
varpið undirrituðu í gær nýjan
kjarasamning leikara vegna
vinnu við útvarp og sjónvarp.
Gisli Alfreðsson formaður Félags
ísl. leikara tjáði Mbl. að samning-
urinn við útvarp fæli aðallega í
sér ýmsar lagfæringar og við
sjónvarpið væri tryggður hlutur
islenzkrar leiklistar.
Gísli Alfreðsson sagði aðalágr-
einingsefnið hafa verið vinnu við
sjónvarp vegna samdráttar í ís-
lenzkri dagskrárgerð. Sagði Gísli
að leikarar teldu sig hafa fengið
viðunandi tryggingu fyrir því að
íslenzkri leiklist verði gert veru-
lega hátt undir höfði og á móti
lækkuðu leikarar endursýn-
ingargjald um 50%. Sagði Gísli að
sjónvarpið myndi tryggja þetta
með því að sýna eitt íslenzkt
leikrit í mánuði nýtt eða endur-
sýnt og kvað Gísli deilu þessa ekki
hafa snúizt svo mikið um launalið-
inn. Leikarar munu koma til
félagsfundar á mánudag, en sam-
ningur þessi tekur einnig til
söngvara, listdansara og leik-
myndateiknara. Félag leikstjóra
hefur enn ekki lokið samningum
sínum, en þeir munu þó vera í
sjónmáli.
Guðbjörn
Jensson
látinn
Bygging Landssmiðjunnar við Skútuvog:
Ákvarðanatöku
frestað í borgarstjórn
Samþykkt að kynna Sundasamtökunum málið
TILLAGA frá borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins um að fresta
skyldi afgreiðslu erindis varðandi byggingu Landssmiðjunnar við
Skútuvog og vísa málinu til umsagnar umhverfismálaráðs, var felld í
borgarstjórn á fimmtudagskvöld með 8 atkvæðum gegn 7. Tillagan
var svohljóðandi:
„Borgarstjórn samþykkir að
fresta afgreiðslu 21. liðar fundar-
gerðar borgarráðs frá 3. febrúar
og vísa málunum til umsagnar
umhverfismálaráðs. . Jafnframt
verði Sundasamtökunum kynntar
fyrirhugaðar byggingarfram-
kvæmdir á Sundasvæðinu, áður en
endanleg ákvörðun verður tekin
um fyrirhugaða byggingu Lands-
smiðjunnar við Skútuvog."
Meirihlutinn lagði fram brevt-
ingartillögu við tillögu sjálfstæð-
ismanna og var sú tillaga sam-
þykkt. Breytingartillagan var svo-
hljóðandi:
„Tillagan orðist svo: Borgar-
stjórn samþykkir að fresta af-
greiðslu á 21. lið fundargerðar
borgarráðs frá 3. febrúar og felur
borgarstjóra ásamt Borgarskipu-
lagi að kynna Sundasamtökunum
fyrirhugaðar byggingarfram-
kvæmdir."
GUÐBJÖRN Jensson skipstjóri
lézt á gjörgæzludeild Borgarspít-
alans í Reykjavík í fyrradag 53
ára að aldri. Guðbjörn var fædd-
ur 18. apríl 1927 í Reykjavík.
Guðbjörn Jensson lauk fiski-
mannaprófi hinu meira frá Stýri-
mannaskólanum í Reykjavík 1950.
Var hann háseti árin 1944 til 1951
og stýrimaður 1951 til 1961, lengst
af á bv. Hvalfelli. Frá 1961 til 1975
var hann skipstjóri á ýmsum
togurum, síðast skuttogaranum
Snorra Sturlusyni. Hefur hann
síðan farið í nokkrar afleysinga-
ferðir. Síðustu árin stundaði hann
nokkra alifuglarækt í Helguvík á
Álftanesi.
Eftirlifandi kona hans er Vikt-
oría Skúladóttir og eignuðust þau
fjóra syni.
o
INNLENT
Steingrimur Hermannsson sjávarútvegsráðherra:
„Greina þarf betur á milli í ýmsum
atriðum björgunarþjónustu á sjó“
„ÉG TEL að það eigi að skoða
mjög vel öll atriði varðandi
björgunarþjónustu á sjó og
tryggja það að aldrei verði
hafnað besta kostinum, slíkt má
ekki eiga sér stað,“ sagði
Steingrímur Hermannsson sjáv-
arútvegsráðherra í samtaii við
Mbl. í gær.
„Það eru mörg atriði í þessum
efnum sem þarf að athuga og ég
hóf könnun á þessu þegar ég var
dómsmálaráðherra, en það þarf
að greina betur á milli ýmissa
atriða sem hafa verið bitbein,
svo sem þess hvort verið sé að
bjarga skipi frá því að farast eða
losa net úr skrúfu í stilltu veðri.
Það er ekki óeðlilegt að varð-
skipsmenn hafi einhver björgun-
arlaun, því þeir þurfa oft að
setja sig í ákveðna hættu, en ég
tel ástæðu til þess að greina á
milli í ýmsum atriðum."
sem þessi nýju lög voru rædd og
áhrif þeirra á fiskvinnsluna. Var
ákveðið þar að skoða þessi mál
nánar hjá heildarsamtökunum í
Reykjavík, en á fundinum í Eyjum
voru m.a. fulltrúar ASÍ, Vinnu-
veitendasambands íslands og
nýskipaður forstöðumaður vinnu-
eftirlits ríkisins.
Ef yfirvinnubannið tekur gildi
hefur það a.m.k. kosti fyrst í stað
slæm áhrif fyrir bátaflotann, því
þá lyki vinnu við fiskmóttöku kl. 5
og bátar yrðu að koma að landi
mun fyrr en venjulega, sérstak-
lega við þær erfiðu aðstæður til
’sjósóknar sem hafa verið að
undanförnu vegna tíðarfarsins.
Ekkert annað verkalýðsfélag á
landinu hefur boðað til yfirvinnu-
banns vegna þessara atriða.
Hægt miðar
um togara-
og bátakjör
HÆGT gengur í samningavið-
ræðum um togara- og báta-
kjör. Fundir voru haldnir í
gærmorgun, en sökum anna
ýmissa samninganefndar-
manna frá báðum aðilum var
fundum slegið á frest þar til
árdegis í dag. Þótt hægt
gangi, segja aðilar, að miði í
áttina, en þó er vart búizt við,
að samningar takist fyrr en
eftir næstu helgi.
Verkföllum á togaraflotan-
um, sem komu til framkvæmda
9. febrúar og á bátaflotanum,
sem koma átti til framkvæmda
16.' febrúar, hefur nú verið
frestað til 26. febrúar og var
það gert í sambandi við lausn
fiskverðsvandans.
Steinn Stein-
sen látinn
STEINN Steinsen verkfræðing-
ur, fyrrum bæjarstjóri, lézt á
Landspítalanum i Reykjavik i
fyrradag. Steinn var fæddur 20.
júní 1891 á Fjósum í Laxárdal í
Dalasýslu.
Steinn Steinson lauk stúd-
entsprófi í Reykjavík 1912 og prófi
í byggingarverkfræði frá DTH í
Kaupmannahöfn árið 1922. Rak
hann eigin verkfræðistofu í
Reykjavík árin 1930 til 1934 og
annaðist þá einkum útreikninga
og teikningar á járnbentri stein-
steypu, m.a. í Þjóðleikhúsið,
Landakotsspítalann, Landssíma-
húsið og Sundhöllina, en áður
vann hann við undirbúning Flóa-
áveitunnar og hafði umsjón með
framkvæmd verksins. Steinn
Steinsen var bæjarstjóri á Akur-
eyri árin 1934 til 1958, en eftir það
rak hann eigin verkfræðistofu í
Kópavogi. Steinn var formaður
Verkfræðingafélags íslands árin
1932 til 1934.
Kona hans var Anna Eggerts-
dóttir sem lézt árið 1965 og
eignuðust þau tvo syni.