Morgunblaðið - 21.02.1981, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1981
Með
glöðu
geði
býég
um
rúm forsætisráðherrans
segir Arne Olav Brundtland eiginmaður forsætisráðherra Noregs
Gro Harlem Brundtland, hinn nýi forsætisráðherra
Noregs, er fjögurra barna móðir og eiginmaður
hennar, Arne Olav Brundtland, starfar við Utanrík-
ismálastofnun Noregs í Oslo og er virkur félagi í
Hægri flokknum, Birgit Rasmussen, blaðamaður við
Berlingske Tidende, átti viðtal við Arne Olav um það,
hvernig væri að vera „húsmóðir44 með tvöfalt
vinnuálag. Hann var einnig spurður að því, hvort
hann mundi berjast gegn konu sinni í næstu
kosningum.
egar nýji forsætisráðherr-
ann í Noregi heldur hátíð-
legt silfurbrúðkaup eftir
nokkur ár, getur hún, án þess að
halla réttu máli, þakkað „honum
Árna Ólafi minum, en án hans
ómetanlegu aðstoðar hefði ég
aldrei náð svo langt“.
Gro Harlem Brundtland var
yfirlæknir við heilbrigðisráðið í
Oslo fyrir 7 árum, þegar hún varð
umhverfismálaráðherra. Maður
hennar, sem stundar rannsókn-
arstörf við Utanríkismálastofnun
Noregs og er ritstjóri timaritsins
„Alþjóðastjórnmál", tók þá að sér
án þess að mögla, hið algenga
starf húsmóður með tvöfalt vinnu-
álag. Nú er Arne Olav Brundtland
orðinn sögulega sjaldgæft fyrir-
bæri, fimmti forsætisráðherra-
maður í heimi og hann er bæði
glaður og stoltur yfir „upphefð"
konu sinnar. Ekki er með neinum
rétti hægt að segja að hann sé
bara maður konunnar sinnar.
Löngu áður en kona hans fór að
taka verkulegan þátt í stjórnmála-
baráttunni, var hann orðinn kunn-
ur sérfræðingur í norrænum varn-
ar- og öryggismálum.
Það gerir aðstæðurnar enn sér-
stæðari, að maðurinn að baki
konunnar, sem hefur fengið það
hlutverk að bjarga Verkamanna-
flokknum í nauðum hans, er sjálf-
ur virkur í „óvinaherbúðunum",
hann er hverfisborgarstjóri og
formaður Hægri flokksins á Bygd-
ey, þeim hluta borgarinnar, sem
þau eiga heima í.
Arne Olav Brundtland hlýtur að
eiga Noregsmet sem hláturmild-
asti maður landsins. Hann hlær
að þessu öllu saman. Þegar hann
er spurður hvernig honum líði í
sviðsljósinu, svarar hann „I can
take it“ (ég ræð við það) og gerir
sig ábúðarmikinn í framan, ef það
er hægt að gera það skellihlæj-
andi. Hár, glæsiiegur, aðlaðandi,
glettinn. Honum mislíkar, ef sagt
er, að flestar konur héldu sig nú
heima hjá svona eiginmanni, því
hann er á varðbergi gegn því, sem
gefur á nokkurn hátt til kynna
fordóma gegn honum. Hann er
góður kvenréttindamaður.
„Hvernig finnst þér að konan
þín skuli vera orðin forsætisráð-
herra? Hefurðu áhyggjur, þear þú
lítur til þess hvernig þessi staða
hefur slitið mönnum út?“
„Gro er enn ung og hraust,
aðeins 41 árs. Aðalbreytingin hjá
okkur varð, þegar hún varð um-
hverfisráðherra og síðar varafor-
maður Verkamannaflokksins. Það
var það sem kom á óvart. Auðvit-
að er mikið álag á þeim stjórn-
málamönnum, sem lengst ná og
erfiðast er að vera forsætisráð-
herra.
En það eru 24 stundir í sólar-
hringnum og Gro hefur alltaf
verið vön að nota þær allar. í
stjórnmálum gildir frjáls sam-
keppni. Menn verða alltaf að vera
í viðbragðsstöðu og keppinautarn-
ir hafa talsverð áhrif á hvernig
mönnum tekst til. Ég veit ekki,
hvort Gro hefur hugsað um það,
en ég hef a.m.k. hugleitt þá
einkennilegu þversögn, að fólk,
sem berst fyrir styttri og þægi-
legri vinnutíma fyrir aðra, hamast
sjálft við vinnu sína seint og
snemma. Fyrir nokkrum vikum
sendu makar trúnaðarmanna í
stettarfelögum i Drammen fyrir-
spurn til Vinnueftirlitsins, um
Arne Olav Brundtland í skrif-
stofu sinni i Utanríkismálastofn-
un Noregs, þar sem hann stundar
rannsóknir og ritstýrir tímariti
um aiþjóðastjórnmál.
hvort vinnustaðalöggjöfin gilti
ekki fyrir maka þeirra. Fram-
kvæmdastjóri Vinnueftirlitsins,
fyrrverandi varaforseti norska al-
þýðusambandsins, sagði „Við tök-
um þetta mál mjög alvarlega"
segðir Arne Brundtland og hlær.
„Kvartaðir þú ekki þegar öll
ábyrgðin á heimilisstörfunum
lenti skyndilega á þér“
„Nei, fjöldi kvenna vinnur tvö-
falt starf og við vorum fljót að
koma á reglu, þannig að hvert
barn fékk sin ákveðnu störf.
Yngsta barnið var þá 7 ára. Nú er
Jörgen 13 ára, Ivar 15 ára, Kaja 17
ára og Knút 19 ára, hann vinnur á
olíuborpalli núna. á hálfs árs
fresti ræðum við vinnuskipting-
una á aðalfundi. Auðvitað gengur
þetta ekki alveg eins og smurt, en
alveg sæmilega samt. Mitt starf er
að kaupa í matinn, þvo þvott og
ganga frá honum og svo ber ég
aðalabyrgðina á að allt gangi. Við
viljum ekki hafa aðstoð við heim-
ilisstörfin. Konan mín er auðvitað
sú eina sem ekki er á „listanum".
Ég er ekki að kvarta, en verð að
játa að mér finnst vera óskaplega
mikið um endurtekningar í hús-
móðurstarfinu, barnauppeldið
telst þar með. Maður getur orðið
vitlaus á þeim. Þarfnú í 530. skipti
að segja „þú mátt ekki henda
nærbuxunum á baðherbergisgólf-
ið“, og „hvað á ég að vekja ykkur
oft á morgnana?" En það eru líka
kostir. Kannske eru margir þeirra
karlmanna, sem hafa átt konur,
sem séð hafa algerlega um heimil-
ið og hafa því getað einbeitt sér að
því að ná langt í starfi sínu, ekki
alveg eins hamingjusamir. Sumir
vina minna, sem völdu að helga
sig starfinu og eru farnir að taka
lífinu með meiri ró núna, þegar
þeir eru komnir á sjötugsaldurinn,
finna nú ánægjuna, sem fylgir því
að vera afi, og þeir velta fyrir sér
hverju þeir misstu af í skiptum
sinum við börn sín. Þessi hugsun
leitar líka á Gro núna.“
„Konan þín sagði í blaðaviðtali
við mig fyrir 2 árum, að það stæði
í vegi fyrir starfsframa þínum að
þú þyrftir að gæta bus og barna."
„Það er erfitt að meta slíkt, en
örn Baldursson og Kolbrún Jóhannesdóttir reka veitingahúsið
Torfuna á Bernhöftstorfu í Reykjavík. og hér er Örn (t.h.) með einum
matsveina sinna, Friðriki Sigurðssyni. LjóMn.: uija Guómundsdóttir.
Torfan býður
nýjan matseðil
Skákþing Reykjavíkur:
Stigakerfið er þrösk-
uldur hinum efnilegu
VEITINGAHÚSIÐ Torfan á
Bernhöftstorfu í Reykjavík, sem
nú hefur starfað i átta mánuði,
kynnti nýlega fyrir blaða-
mönnum nýjan matseðil. Er þar
um að ræða ýmsa nýja rétti á
matseðli veitingahússins, bæði
fisk- og kjötrétti.
Örn Baldursson og Kolbrún
Jóhannesdóttir reka Torfuna og
kváðu þau staðinn hafa fengið
góðar viðtökur og því hafi nú verið
ákveðið að bjóða upp á fjölbreytt-
ari matseðil. Eru fáanlegir ýmsir
forréttir og súpur, kjöt eða fisk-
réttir og síðan eftirréttir og kaffi-
brauð. Þá eru einnig fáanleg sterk
og létt vín. Torfan er opin daglega
kl. 10 til 23:30 og er matur
fáanlegur til kl. 23 virka daga og
23:30 um helgar. Alls eru starfs-
menn að jafnaði 15.
Þó að keppnin í A-flokki á skák-
þingi Reykjavíkur hafi vakið mesta
athygli var keppni í öðrum flokkum
ekki síður spennandi því að þar
geisar hatrömm barátta um hvern
vinning sem gæti þýtt sæti í hærri
flokki á næsta móti. Undanfarin mót
hefur keppnin í B-flokki jafnan verið
mjög jöfn og spennandi og á því varð
engin undantekning nú. Þar hefur
hið umdeilda stigakerfi myndað
nokkurn hóp efnilegra skákmanna
sem allir virðast á svipuðu styrk-
leikastigi. Þessi jafni styrkur þeirra
þýðir það að hver vegur annan og
dreifing vinninganna verður því
óeðlilega mikil. Af því leiðir síðan að
enginn þátttakenda hækkar nægi-
lega mikið til að flytjast upp í
A-flokk og auka þar enn á styrkleika
sinn. Næstum sömu menn tefla því
mót eftir mót í B-flokki án þess að
hækka umtalsvert á stigum, því að
þrátt fyrir það að þeim fari fram þá
bítast þeir alltaf um sömu stigin. Áð
þessu leyti er stigakerfið ákaflega
óþjált og kemur jafnvel í veg fyrir að
ungir og efnilegir skákmenn fái
tækifæri við sitt hæfi, svo sem í
þessu tilfelli.
Úrslitin í B-flokki urðu á þessa
leið:
1,—2. Sveinn Kristinsson T.R. og
Magnús Gunnarsson S.S. 6 'k v.,
3.-5. Árni Á. Árnason T.R. Björg-
vin Jónsson S.Ke. og Guðmundur
Haildórsson T.Hr. 6 v., 6.-7. Lárus
Jóhannesson T.R. og Torfi Stefáns-
son T.h.N. 5'/2 v., 8.69. Helgi Jóna-
tansson S.Ke. og Haukur Bergmann
S.Ke. 4 'k v., 10. Óli Valdimarsson
S.M. 2,'k v., 11. Björn Árnason T.R.
l'k v.
Skák
eftir Margeir
Pétursson
Vart er hægt að segja annað en
þeir Magnús og Sveinn hafi verið
fremstir meðal jafninga, því að
einungis einn vinningur skildi fyrsta
og sjöunda mann að! Magnús Gunn-
arsson hefur um árabil verið einn
fremsti skákmaður á Suðurlandi, en
frammistaða Sveins kom mikið á
óvart því harin mætti til leiks eftir
að hafa tekið sér tuttugu ára hlé frá
þátttöku í mótum. Sveinn var fyrir
þessa löngu hvíld meðal okkar sterk-
ustu skákmanna, var þá t.d. um tíma
ritstjóri Skákblaðsins samt Þóri
Ólafssyni.
í kjölfar efstu manna fylgja síðan
nokkrir upprennandi skákmenn af
yngri kynslóðinni sem enn um sinn
verða að bíða síns tíma hvað varðar
þátttöku í A-flokki. Fyrir síðustu
umferð var Guðmundur í efsta sæti
ásamt Sveini, en tefldi þá of glæfra-
lega og varð að lúta í lægra haldi
fyrir Lárusi í bráðskemmtilegri
skák.
Af úrsiitunum í C-flokki að dæma
eru unglingarnir í Taflfélagi Reykja-
víkur í mikilli framför og koma
áreiðanlega til með að ryðja sér eldri
og reyndari skákmönnum úr efstu
flokkunum innan skamms. Efstir
urðu þeir Hrafn Loftsson og Sveinn
Ingi Sveinsson með 9 v. af 11
mögulegum. Þriðji varð Páll Þór-
hallsson með 8 v. og fjórði Stefán G.
Þórisson með 7 v., en þessir fjórir
eru allir úr T.R. Jafnir í fimmta sæti
urðu Sigurður H. Jónsson S.Ke. og
Ágúst Ingimundarson T.R. með 6 v.
Tveir kornungir skákmenn urðu
efstir í D-flokki, þeir Gunnar Freyr
Rúnarsson T.R. og Jóhannes
Ágústsson T.R. með 7 v. af 11
mögulegum. Næstir urðu Jón H.
Steingrimsson T.R. með 6 'k v., Axel
Þorkelsson T.R. og Rögnvaldur G.
Möller T.R. með 6 v.
í E-flokki, þar sem tefldar voru 11
umferðir eftir Monrad-kerfi, vann
Eggert Ólafsson yfirburðasigur,
hlaut 10'k vinning. Þar sem Eggert
hafði ekki stig fyrir mótið bíða
stigaspekúlantar með óþreyju eftir
því að sjá hvaða einkunn tölvan
úthlutar honum fyrir þessa frum-
raun hans. Næstir komu: Davið