Morgunblaðið - 21.02.1981, Side 23

Morgunblaðið - 21.02.1981, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1981 23 Alta-málið: Awiftrislrir Pólland á elleftu stundu Verkamenn eiga rétt á að stofna frjáls samtök Filippseyjum. 20. febrúar. — AP. JÓHANNES Páll páfi II sem nú er á ferðalagi um Filippseyjar sagði í ræðu sem hann hélt fyrir meira en milljón verkamenn i bænum Bocold að verkamenn „ættu rétt á að stofna frjáls samtök“ sem vernduðu hagsmuni þeirra. Páfinn nefndi hvorki föðurland sitt Pólland í þessu sambandi né Filippseyjar en þar eru verkalýðsfélög undir umsjá ríkisins og verkföll eru bönnuð. í ræðunni sagði páfinn ennfremur að frjáls verkalýðsfélög ættu að njóta verndar laganna en lögin ættu ekki að hindra störf þeirra. Framkvæmdir stöðv- Spánarkonung- ur til Noregs Osló, 20. febrúar. - AP. JUAN Carlos Spánarkonungur mun fara í opinbera heimsókn til Noregs ásamt Soffíu drottn- ingu 3. maí nk. Konungshjónin munu dvelja þar til 6. maí. Filippinskir foreldrar rétta páfanum barn sitt svo hann geti blessað það. Páfinn kom til Filippseyja sl. þriðjudg og fögnuðu honum um ein og hálf milljón manna við komuna til Manila. Páfinn á Filippseyjum: aðar á mánudaginn? Frá J»n Erik Lauré, fréttaritara Mbl. i Osló 20. fehrúar. RÍKISSTJÓRNIN tekur ákvörðun um það á mánudag- inn hvort haldið verður áfram að leggja veginn að virkjunarstaðnum við Alta-ána. Það þykir nú ljóst að við framkvæmdirnar hafa verið brotin lög um fornminj- ar. Samkvæmt þeim var skylt að rannsaka það hvort fornleifar leyndust í jörðu áður en framkvæmdirnar hófust en slíkt var ekki gert. Eins og er er málið mjög óljóst. Þeir sem sjá um framkvæmdirnar við virkjunarstaðinn segjast hafa sent uppdrætti og upplýsingar til fornminjasafnsins í Tromsö til þess að safnið gæti látið rannsaka svæðið. Fé var einnig lagt fram. Starfsmenn safnsins segja hins vegar að uppdrættirnir hafi ekki verið nógju nákvæmir. Mörg bréf munu hafa verið send milli þess- ara tveggja aðila en ekkert varð af rannsóknunum. Samkvæmt lögun- um á að kortleggja allar forn- minjar sem eru eldri en 100 ára og ef þurfa þykir á að koma þeim fyrir í vörslu. Það hefur flækt málið talsvert að lög þessi voru staðfest eftir að leyfi til vegaframkvæmdanna ha- fði verið gefið. Sérfræðingar sem hafa rann- sakað virkjunarsvæði áður segja að þar sé talsvert af gömlum samískum grafreitum. Umhverfis- og olíu- og orku- málaráðuneytin rannsaka nú mál- ið með tilliti til laganna. Á mánudaginn tekur ríkisstjórnin Alta-málið fyrir á fundi. Verður þá tekin ákvörðun um það hvort framkvæmdir verði stöðvaðar. Einn farinn að borða á ný Þrír samanna fimm sem hafa svelt sig í mótmælaskyni undan- farinn mánuð fóru í nótt til Stokkhólms og hyggjast halda þar áfram föstunni. Þeir óttuðust það að yfirvöld í Noregi færu að skerast í leikinn með því að neyða þá til að borða. Þeir ætla ekki að koma til Oslóar fyrr en þeir hafa fengið tryggingu fyrir því að slíkt verði ekki gert. Eínn samanna hætti að svelta sig í dag samkvæmt beiðni fjöl- skyldu sinnar. Fimmti saminn liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi. Hann neitar samt að neyta matar. í gær bárust út fréttir um það frá dómsmálaráðuneytinu að læknar myndu taka ráðin í sínar hendur eftir að samarnir misstu meðvit- und. Væru þeir skyldugir til að hindra það að þeir létust, kæmi þá jafnvel til greina að beita valdi. Dómsmálaráðuneytið hefur dregið þessa frétt til baka. Salad bar. Dagana 21. og 22. febrúar efnum við til kynningar á amerískum mat. Við bjóðum fjölbreytta ameríska rétti á hlaðborði. Heilsteiktur nautahryggur með ferskum maís og bökuðum kartöflum. Prim Rib of Beef, with fresh corn and baked potatoes. Körfukjúklingur Heilsteikt nautalæri. Southern fried Chicken. Roast leg of beef Reykt svinalæri Hamborgarar Smoked leg of pork — ham Hamburgers Eplakaka með þeyttum rjóma Apple pie with whipped cream. 10 teg. salöt — ten different salads. Veður víða um heim Akureyri Amsterdam Aþena Berlin BrUssel Chicago Feneyjar Frankfurt Fmreyjar Genf Helsínki Jerúsalem Jóhannesarb. 5 2 14 -2 0 16 5 0 6 2 -5 15 24 Kaupmannahöfn -1 Las Palmas Lissabon London Loa Angeles Madrid Mallorca Miami Moskva New York Osló París Reykjavík Ríó de Janeiro Rómaborg Stokkhólmur Tel Aviv Tókýó Vancouver Vínarborg 17 13 4 29 9 13 6 23 -5 15 -2 2 4 35 10 -4 19 7 12 1 skýjað skýjað heiðskirt skýjað snjókoma skýjað heiðskírt skýjað skýjaö skýjað skýjað skýjað heiðskírt skýjaö skýjað heiðskírt snjókoma heiðskírt heiöskirt léttskýjað alskýjað heiðskírt heiöskirt rigning heiðskírt skýjað skúrir heiðskírt heiðskírt skýjað skýjað skýjað skýjað skýjaö Kafbát- ar til Taiwan Haag, 20. febrúar. — AP. HOLLENSKA stjórnin ákvað í dag að standa við fyrri ákvörðun sína og heimila hollensku fyrir- tæki að selja tvo kafbáta til Taiwan, þrátt fyrir hótanir Kín- verja um stjórnmálaslit og sam- þykkt þingsins um að kafbátarnir verði ekki seldir til Taiwan. Stjórnarandstaðan hefur boðað vantrauststillögu á stjórnina vegna þessa máls. émTTi \v/ ERLENT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.