Morgunblaðið - 21.02.1981, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1981
29
þingfréttir í stuttu máli
Atvinnuleysi af völd-
um náttúruhamfara
Vinnuafköst Alþingis á haustþingi
Atvinnuleysi —
Náttúruhamfarir
Fram er lagt á Alþingi írum-
varp sem íelur það i sér að þegar
viðtækt atvinnuleysi er yíirvof-
andi af vöidum náttúruhamfara,
t.d. þegar hafis lokar höfnum á
heilu landssvæði. hafi stjórn At-
vinnuleysistryggingasjóðs heim-
ild til þess i samráði við viðkom-
andi sveitarstjórnir að greiða
aukakostnað sem hlýst af þvi að
koma í veg fyrir atvinnuleysi á
viðkomandi landssvæði, t.d.
fiutningskostnað á afla milli
byggðarlaga og svæða.
Flutningsmenn eru Lárus
Jónsson (S), Eyjólfur Konráð
Jónsson (S), Guðmundur Bjarna-
son (F), Stefán Jónsson (Abl) og
Stefán Guðmundsson (F).
Olíugjald til fiski-
skipa — utan skipta
Fram er komið stjórnarfrum-
varp um framlengingu 7,5% olíu-
gjalds til fiskiskipa, sem fiskkaup-
andi (vinnsluaðili) greiðir ofan á
fiskverð og fram hjá skiptaverði.
Þegar fiskafli er seldur í erlendri
höfn skal og draga 1% olíugjald til
útgerðar frá heildarsöluverðmæti.
Þetta frumvarp er einnig flutt í
tengslum við fiskverðsákvörðun.
Lögheimili fólks á
stofnunum og sér-
hönnuðum heimilum
Pétur Sigurðsson (S) og ólafur
G. Einarsson (S) flytja frumvarp
til laga sem feíur það í sér að
heimild fólks til að halda eldra
lögheimili, þó það dvelji á „elli-
heimili eða annarri slíkri stofn-
un“, verði færð út. í stað fyrra
orðalags leggja þeir til að heimild-
in verði bundin við „sérhönnuð
heimili og íbúðir aldraðra og
öryrkja byggð í tengslum við
þjónustumiðstöð aldraðra eða
heilsugæzlustöð".
Dýralæknisum-
dæmum f jölgaö
Halldór Blöndal (S) og Árni
Gunnarsson (A) flytja frumvarp
til laga að skipta Þingeyjarsýslum
í tvö dýralæknisumdæmi í stað
eins: vesturumdæmi (Bárðdæla-
hreppur og þeir bæir vestan
Fljótsdalsheiðar, sem eru í Reyk-
dælahreppi og Aðaldælahreppi
norðan Hrafnalækjarskóla) og
austurumdæmi (S-Þingeyjarsýsla
austanverð, Húsavík og Keldunes-
hreppur í N-Þingeyjarsýslu).
Mishá útflutnings-
gjöld á sjávarafurðum
Með lögum frá 1976 vóru öll
lagaákvæði um mismunandi út-
flutningsgjöld af sjávarafurðum
numin úr gildi og lagt eitt sam-
ræmt útflutningsgjald á sjávaraf-
urðir. Fram er komið stjórnar-
frumvarp sem felur það í sér að
útflutningsgjald á frystar sjávar-
afurðir skuli vera 4,5% (í stað
5,5%) árið 1981 en útflutnings-
gjald af skreið hækka í 10% (úi
5,5%). I greinargerð er þessi
breyting tengd fiskverðsákvörðun
ÞÁ VAR KÁTT í HÖLLINNI: Ráðherrar veraldlegra hluta og
geistlegra, fjármálaráðherrann og kirkjumálaráðherrann, halda gleði
sinni hvað sem liður Þórshafnartogurum og öðrum fárviðrum
stjórnmálanna
Þá flytja Egill Jónsson (S) og
Sveinn Jónsson (Abl) frumvarp
sem felur í sér að stofnað verði
nýtt dýralæknisumdæmi á Aust-
urlandi og hljóði þá 16 tl. viðkom-
andi laga svo: Norðfjarðarum-
dæmi (Mjóafjarðarhreppur, Nes-
kaupstaður, Norðfjarðarhreppur,
Helgustaðahreppur og Eskifjarð-
írkaupstaður), Austurlandsum-
dæmi nyrðra: (N-Múlasýsla að
undanteknum Skeggjastaðahreppi
og Vopnafjarðarhreppi, Seyðis-
fjörður og S-Múlasýsla að mörk-
um milli Eskifjarðarkaupstaðar
og Reyðarfjarðarhrepps).
Stjórnarfrumvörp og
þingmannafrumvörp
Fram að jólahléi Alþingis vóru
samþykkt 27 stjórnarfrumvörp
sem lög en aðeins 4 þingmanna-
frumvörp. Tvö þingmannafrum-
vörp vóru felld, þ.á m. frumvarp
um niðurfellingu barnaskatta
1980. Einu þingmannafrumvarpi
um tekjuskatt og eignaskatt var
vísað til ríkisstjórnarinnar.
Tvær þingsályktanir vóru sam-
þykktar, önnur varðandi aðild
Grikklands að EBE og hin um
frestun á fundum Alþingis. 36
fyrirspurnum frá þingmönnum
var svarað.
Lögin, sem samþykkt vóru„
fjölluðu m.a. um: Málefni Flug-
leiða, olíugjald fiskiskipa, útflutn-
ingsgjald af sjávarafurðum,
meinatækna, eftirlaun aldraðra,
almannatryggingar, fiskimála-
sjóð, aflatryggingarsjóð, lífeyr-
issjóð barnakennara, tímabundið
vörugjald, ferðagjaldeyri, samn-
ing um aðstoð í tollamálum, líf-
eyrissjóð starfsmanna ríkisins,
skráningu lífeyrisréttinda, ný-
byggingargjald, stimpilgjald,
lántökur 1980 og 1981, lífeyrissjóð
bænda, verðjöfnunargjald á raf-
orku, söfnunarsjóð lífeyrisrétt-
inda, vörugjald, fæðingarorlof,
jöfnunargjald, undanþágu ríkisins
varðandi minnstu mynteiningu í
bókhaldi o.fl., Grænlandssjóð,
sparisjóði og biskupskosningu.
raðauglýsingar —. raðauglýsingar — raðauglýsingar
kennsla
Verkamannafélagið Hlíf
Hafnarfirði
Námskeiö í ræðumennsku og framsögn
verður haldið í félagsheimili Hlífar Reykja-
víkurvegi 64, dagana 2., 4., 6., 9., 11., og 13.
marz 1981 og stendur yfir þessi kvöld frá kl.
20—23. Leiöbeinandi verður Tryggvi Þór
Aðalsteinsson framkvæmdastjóri M.F.A. Fé-
lagar í Hlíf og Framtíðinni eru hvattir til
þátttöku.
Fræðslunefnd Hlífar.
Itilboö — útboö
.............
Tilboð óskast í húseignirnar:
1. Mávahlíð 4, 1. hæð.
4 herb. íbúð 100 ferm. með 40 ferm.
innréttuðum bílskúr. Óskað er tilboða í
íbúöina með eða án bílskúrs.
2. Tindasel 3, kjallari
140 ferm. geymslu- og/eöa iönaðarhúsnæði
með aðkeyrslu frá götu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu V.B. mánu-
daginn 2. mars. kl. 15.00 að viöstöddum
þeim bjóðendum, sem þess óska.
Áskilinn er réttur til að taka hvaöa tilboöi
sem er eða hafna þeim öllum.
Nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu
V.B. að Suðurlandsbraut 30, sími 81240.
Stjórn verkamannabústaða í Reykjavík.
Útboð — Forval
Byggingarhópur um nokkur raðhús við
Granaskjól í Reykjavík leitar eftir vilja
byggingarverktaka í að reisa a.m.k. 4 raðhús
og skila þeim uppsteyptum og frágengnum
að utan, á ári þessu. Framkvæmdir eiga að
geta hafizt í júníbyrjun nk. og verður þá búið
að ganga frá fyllingu undir sökkla.
Um verður að ræöa lokað útboö að undan-
gengnu forvali. Þeir aðilar sem áhuga kunna
að hafa á því að bjóöa í verk þetta eru beðnir
um að hafa samband við verkfræðistofuna
FORSJÁ SF. að Skólavörðustíg 3 en hún
veitir allar frekari upplýsingar.
Verktakar skulu skila inn upplýsingum vegna
forvals þessa fyrir kl. 17.00 föstudaginn 27.
febrúar. Lokað útboð fer fram fyrri hluta
marz.
Tilboð óskast
í eftirtaldar bifreiðar
umferðaróhöppum.
Fíat 128
Skoda 110
V.W. sendiferðab.
Toyota sendib.
Ford Cortina 1300
Skodi120
Austin Allegro
Austin Allegro
Datsun D.
V.W. 1300
Ford Bronco
B.M.W. 316
sem skemmst hafa í
árg. 1972
árg. 1976
árg. 1977
árg. 1980
árg. 1972
árg. 1977
árg. 1976
árg. 1979
árg. 1972
Bifreiðarnar verða til sýnis að Skemmuvegi
26, Kópavogi, mánudaginn 23/2 ’81.
Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga
fyrir kl. 17 þann 24/2 '81.
nauöungaruppboö
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 87., 91. og 94. tölublaði
Lögbirtingablaðsins 1980 á hluta í húseign-
inni Móatún 18, Tálknafirði með tilheyrandi
lóð og mannvirkjum, þinglesin eign Blikanes
hf., fer fram eftir kröfu Skúla J. Pálmasonar
hrl., Ólafs Axelssonar hdl., Gjaldheimtunnar í
Reykjavik, Stefáns Skarphéðinssonar hdl.,
Guömundar Ingva Sigurðssonar hrl., og
Gunnars Sæmundssonar hdl., á eigninni
sjálfri, fimmtudaginn 26. febrúar 1981 kl.
16.00. Seldar verða 3 íbúðir í smíðum á efri
hæð hússins (tvær 3ja herb. og ein 2ja herb.).
Sýslumaður Barðastrandarsýslu.
18. febrúar 1981.
Nauðungaruppboð
Nauöungaruppboð annað og síðasta á v/s
Gullfaxa SH 125 þinglýstri eign Kristins
Arnbergs Sigurössonar sem auglýst var í
101., 106. og 110. tbl. Lögbirtingarblaðsins
1980 fer fram í skrifstofu embættisins í
Stykkishólmi eftir kröfu Fiskveiðisjóðs ís-
lands o.fl., föstudaginn 27. febrúar, 1981, kl.
14.00.
Stykkishólmi 19, febrúar, 1981.
Sýslumaöur Snæfellsnes- og
Hnappadalssýslu.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU