Morgunblaðið - 04.03.1981, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. MARZ 1981
15
í gær kom i fyrsta skipti til Reykjavikur norska skipið Lynx, sem hafskip hefur leigt næstu 6 mánuði
til siglinga á Norðurlandahafnir. Skipið er 1200 tonn dw og sérstaklega hannað fyrir palla- og
gámaflutninga. Það hefur opnanlegar dyr á hliðum og lyftu, auk bómu sem lyftir 28 tonnum.
Ljósm. ÓI.K.Mhk.
Pálmi Jónsson um Þórshafnarmálið:
„Hlutverk Fram-
kvæmdastofnunar
að afgreiða málið44
„VIÐ Iítum svo á að málið sé hjá Framkvæmdastofnun. Það
er hlutverk hennar að afgreiða það. Annars hefur þetta ekki
verið rætt í ríkisstjórninni frá því að við scndum
Framkvæmdastofnuninni okkar bréf.“ sagði Pálmi Jónsson
landbúnaðarráðherra í viðtali við Mbl. en hann gegnir nú
forsætisráðherrastörfum í fjarveru Gunnars Thoroddsen og
Friðjóns Þórðarsonar. Pálmi var spurður hver afstaða
rikisstjórnarinnar væri til svonefnds Þórshafnartogaramáls
og meðferðar stjórnar Framkvæmdastofnunar á því fyrir
helgi.
r *
Alyktun stjórnar Blaðamannafélags Islands:
Skylda blaðamanna að skýra
ekki frá heimildarmönnum
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi ályktun frá stjórn
BlaÓamannafélags íslands. sem
samþykkt var á fundi stjórnar-
innar í gærdag vegna niðurstöðu
Sakadóms Reykjavikur í máli
tveggja blaðamanna Dagblaðs-
ins, sem gert er að gefa upp nafn
heimildarmanns sins i svokölluðu
Kötlufellsmáli:
Stjórn Blaðamannafélags ís-
lands lýsir eindregnum stuðningi
við þá tvo blaðamenn Dagblaðsins,
Atla Steinarsson og Ómar Valdi-
marsson, sem neitað hafa að gefa
upp heimildir fyrir frétt á baksíðu
blaðsins 31. janúar sl., þar sem
fjallað var um svonefnt Kötlu-
fellsmál.
Vígslan
29. júlí
London, 3. mars. AP.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
Karl Bretaprins og lafði Dí-
ana Spencer gangi í hjóna-
band í St. Páls-kirkjunni í
London 29. júlí nk. Flest
konungleg brúðkaup í Bret-
landi hafa hingað til farið
fram í Westminster-dóm-
kirkjunni. Ástæðan fyrir því
að svo verður ekki nú er að St.
Páls-kirkjan tekur fleiri
manns í sæti.
Stjórn BÍ lítur svo á, að það séu
augljósir hagsmunir blaðamanna,
jafnt sem skylda þeirra við heim-
ildarmenn sína, að skýra ekki frá
þeim. Ef út af þessu væri brugðið
myndi það verða til að stórskerða
möguleika blaðamanna til frétta-
öflunar og verða þannig stjórn-
arskrárvernduðu ritfrelsi fjötur
um fót. Það er því ekki að
ástæðulausu, að í siðareglum
Blaðamannaféiags íslands er
skýrt tekið fram, að blaðamanni
beri að virða nauðsynlegan trúnað
við heimildarmenn sína.
Þessu til stuðnings vill stjórn BÍ
skírskota til ummæla Ólafs Jó-
hannessonar ráðherra og fyrrum
lagaprófessors, í tímariti laga-
deildar Háskóla íslands um þetta
efni frá 1969, þar sem segir
orðrétt:
„Það er augljóst, að prentlögin
byggja á þeirri reglu, að höfundi
ritsmíða í dagblöðum, vikublöðum
og tímaritum sé óskylt að nafn-
greina sig. Nafnleyndin er að vísu
ekki heimiluð sérstaklega berum
orðum en hún leiðir af ábyrgðar-
kerfinu. Um það segir m.a. svo í
greinargerð frumvarjssins til laga
um prentrétt: „Ábyrgðarkerfi
þessu er ætlað að slá vörð um
prentfrelsið, með því að sporna við
eftirgrennslun yfirvalda um það,
hverjir kunni að eiga hlutdeild í
því, sem ritað er, að ná með
skjótum og virkum hætti til þess,
sem telst sekastur, og loks sér-
staklega að vernda nafnleynd höf-
undar og heimildarmanns." Auk
þess verður nafnleyndarréttur
höfundar dreginn af því, að í
lögunum er nafngreiningarskylda
lögð berum orðum á útgefanda,
ritstjóra og prentara, en ekki
minnst á höfunda."
— I bókun stjórnarformanns
Framkvæmdastofnunar á fund-
inum fyrir helgi segir að nánari
útskýringar verði til að koma frá
hendi ríkisstjórnarinnar.
„Það er ekkert vandamál að
gefa þær skýringar og það verður
gert, ef þess verður óskað."
— Hvað finnst þér persónu-
lega um þetta mál?
„Mér sýnist að það sé búið að
velkjast alltof lengi og ástæða sé
til að Framkvæmdastofnunin
hraði afgreiðslu þess, hver svo
sem niðurstaða þeirrar af-
greiðslu verður.
— En hefur ríkisábyrgðar-
sjóði ekki verið tilkynnt að
tryKKja megi 90% kaupverðsins?
„Það verður að hafa í huga i
því sambandi að málið þarf að
fara í gegnum Alþingi í tengslum
við lánsfjáráætlun og afgreiðast
þar.“
— Nú segir stjórnarformaður
Framkvæmdastofnunar, að þeim
1.500 millj. kr. sem getið er um í
12. gr. lánsfjáráætlunarfrum-
varpsins og stjórnvöld hafi
reiknað með að yrðu notaðar til
fjármögnunar þessara skipa-
kaupa, sé þegar ráðstafað til
innlendrar skipasmíði og við-
gerða. Stendur samþykkt ríkis-
stjórnarinnar þrátt fyrir það?
„Eg vil ekkert um það segja.
Ríkisstjórnin hefur fallist á til-
lögur Framkvæmdastofnunar
um kaupin og enda þótt við
kysum fremur að lán byggða-
sjóðs yrði 20% miðað við 21
millj. kr. norskar þá stendur
samþykkt okkar enn og málið er
nú í höndum Framkvæmdastofn-
unar,“ sagði Pálmi að lokum.
Breytingartillaga:
Lækkun tekjuskattsstof ns
vegna veikinda og fleira
ALBERT Guðmundsson og Guð-
mundur J. Guðmundsson. alþing-
ismenn. hafa lagt fram á Alþingi
breytingartillögu við frumvarp til
laga um ráðstafanir gegn verð-
bólgu um lækkun á tekjuskatts-
stofni vegna veikinda og fleira.
Gert er ráð fyrir að ný grein
númer 66 komi inn i lögin, en hún
er eftirfarandi:
Skattstjóri skal taka til greina
umsókn manns um lækkun tekju-
skattsstofns þegar svo stendur á
sem hér greinir:
1. Ef ellihrörleiki, veikindi, slys
eða mannslát hafa skert gjald-
þol manns verulega.
2. Ef á framfæri manns er barn
sem haldið er langvinnum sjúk-
dómum eða er fatlað eða vangef-
ið og veldur framfæranda veru-
legum útgjöldum umfram venju-
og
5.
legan framfærslukostnað
mótteknar bætur.
Ef maður hefur foreldra eða
aðra vandamenn sannanlega á
framfæri sínu.
Ef maður hefur veruleg útgjöld
vegna menntunar barna sinna
16 ára og eldri.
Ef maður hefur orðið fyrir
verulegu eignatjóni sem hann
hefur ekki fengið bætt úr hendi
annarra aðila.
©
INNLENT
6. Ef gjaldþol manns hefur skerst
verulega vegn tapa á útistand-
andi kröfum, sem ekki stafa frá
atvinnurekstri hans.
7. Ef maður lætur af störfum
vegna aldurs og gjaldþol hans
skerðist verulega af þeim sök-
um.
Nánari ákvæði um framan-
greindar ívilnanir skulu sett af
ríkisskattstjóra. Skattstjóri getur
veitt ívilnanir samkvæmt þessari
grein án umsóknar. Ákvörðun
skattstjóra samkvæmt þessari
grein má skjóta til ríkisskattstjóra
sem tekur endanlega ákvörðun í
málinu. Ríkisskattstjóri skal sér-
staklega fylgjast með ívilnunum,
sem skattstjórar veita samkvæmt
þessari grein, og sjá til þess að
samræmis sé gætt og ákvæðum
þessarar greinar framfylgt.
Slysavarnadeild og Rauða krossdeild á Egilsstöðum:
Reisa saman félags-
og biörgunarmiðstöð
EidlHHtööum, 1. marz.
SLYSAVARNADEILDIN GRÓ á
Egilsst(>ðum hefur undanfarið ár
unnið að byggingu húss fyrir
starfsemi sina hér á staðnum.
Framkvæmdir hafa að miklu leyti
farið fram i sjálfhoðavinnu. Fyrir
nokkru hófust viðra*ður milli
slysavarnadeildarinnar og Rauða
krossdeildarinnar hér um aðild
að hyggingunni og þann 28. febr.
sl. undirrituðu þcssi tvö félög
samning um byggingu og rekstur
þessarar félags- og björgunar-
miðstöðvar.
Eign Rauða krossdeildarinnar á
Fljótsdalshéraði og Borgarfirði
eystra er 20% en slysavarnadeild-
arinnar GRÓ 80%. í húsinu sem er
tvær hæðir, hvor 162 fermetrar,
verður tækjageymsla á neðri hæð
en fundarsalur, eldhús og skrif-
stofa á efri hæð.
Mikill skortur hefur verið á
félagsaðstöðu fyrir þessi félög og
fleiri á Egilsstöðum. Ætlunin er að
önnur félagasamtök geti fengið
leigða fundaraðstöðu í húsinu. Þá
er gert ráð fyrir að leigja nokkur
herbergi fyrir skrifstofur.
Rauða krossdeildin hefur haft í
mörgu að snúast undanfarið. Er
þess skemmst að minnast, að á
síðasta ári gaf RK-deildin heilsu-
gæzlustöðinni á Egilsstöðum mjög
fullkominn sjúkrabíl. Deildin sam-
þykkti nú fyrir skömmu að gefa
heilsugæzlustöðinni fullkominn
sjúkrastól, sem staðsettur verður á
Borgarfirði eystra. Stóllinn er út-
búinn fyrir sjúkraflutninga og
hentar sérstaklega vel með tilliti
til slíkra flutninga til og frá
flugvelli. RK-deildin tók þátt í
Afríkusöfnuninni með útgáfu
auglýsingablaðs í samstarfi við
aðrar deildir á Austurlandi. Auk
þessa hefur deildin haft með hönd-
um önnur hefðbundin störf
RK-deilda, m.a. merkjasölu og
blóðsöfnun.
Það er staðföst trú heimamanna,
að vel hafi tekizt til um samstarf
það sem hér hefur verið lýst og
jafnvel brotið blað í sögu þessara
aðila um samstillt átak til eflingar
starfsemi sinnar og öryggi þegna
þessa lands.
Fréttaritari
Ljósm J.D.J.
Ragnar Ó. Steinarsson formaður RK-deildarinnar á Fljótsdalshéraði
og Borgarfirði evstra og llalldór Sigurðsson formaður slysavarna-
deildarinnar GRÓ við félags- og björgunarmiðstöðina sem nú er að
rísa á Egilsstöðum.