Morgunblaðið - 04.03.1981, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 04.03.1981, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. MARZ 1981 31 „Sennilegasta skýringin er einfaldlega sú að við erum ekki með nægilega gott lið“ - segir Hilmar Björnsson landsliðsþjálfari “Ég er bæði mjög leiður og sár yfir því hversu illa okkur gekk í B-kepninni. Þetta eru mikil vonbrigði.“ sagði Hilmar Björnsson landsliðsþjálfari er Mbl. ræddi við hann er keppninni i Frakklandi lauk. Hilmar hafði þetta að segja um keppnina i heild: — Ég kann ekki neina einhlíta skýringu á þvi hversu illa okkur gekk. Það mætti sjálfsagt benda á svo ótalmarga hluti sem hjálpast að. Það var margt sem benti til þess að landsliði okkar myndi ganga vel að þessu sinni og því hefur sjálfsagt ríkt bjartsýni á meðal almennings. Ég varaði hinsvegar eindregið við bjartsýni. Eftir sigurleik okkar gegn Austur-Þjóðverjum margsagði ég að þau úrslit gætu skapað of mikla bjartsýni og við yrðum að halda okkur við jörðina. Það er alveg eins og að við höfum aðeins keppnisþrek í einn til tvo leiki erlendis, ekki fleiri. Við höldum hreinlega ekki út svona marga leiki. „Sennilegasta skýringin er ein- faldlega sú að við erum bara ekki með nægilega gott lið.“ — Hin iiðin eru sterkari en við erum. — Leikmenn sem eru mjög af- gerandi heima fyrir í leikjum sínum voru alls ekki nægilega atkvæðamiklir í keppninni. Og það kemur upp í hugann hvort lands- liðshópurinn hafi verið nægilega andlega sterkur og samstilltur þegar á móti blés. — í leikjum kom það fyrir aftur og aftur að leikmenn gerðu Unglingasundmót Ægis Guðrún setti nýtt telpnamet UNGLINGAMÓT Ægis fór fram í Sundhöll Reykjavikur sunnudag- inn 1. marz. Keppt var í fjórtán greinum sveina og meyja. þ.e. 12 ára og yngri, drengja og telpna, þ.e. 13—14 ára, og pilta og stúlkna, þ.e. á aldrinum 15—16 ára. Auk Ægis áttu sex félög kepp- endur á mótinu. Þau voru íþróttabandalag Akraness (ÍA), Sundfélag Hafnarfjarðar (SH), Ungmennafélag Njarðvíkur (UMFN), Ungmennafélag Selfoss (Self) og sunddeildir Ármanns og KR í Reykjavik. Á mótinu setti Guðrún Fema Ágústsdóttir nýtt telpnamet, er hún synti 100 m bringusund á 1.19.0 mín. Úrslit í einstökum greinum urðu sem hér segir: t00m HkriAHund pilta: Min. Jón Átrústsson, Ægi 4:37.1 Ólafur Einarsson, Ætfi 4:45.2 EAvarð Þ. EðvarðsH.. UMFN 4:49.2 200m skriðsund ntúlkna: Katrin L. Sveinadóttir. Ægri 2:19.4 Hrðnn Bachmann. Ægi 2:26.7 GuðbjðrK Bjarnadóttir. Sell. 2:29.3 50 m skriðsund sveina: Sek. Jóhann Samsonarson, SH 33.9 FinnboKÍ Gyllanon. SIl 34.1 BorKþór BraKason. UMFN ok OddKeir M. SveinsHon. Æfd 34.7 50m brinKUsund meyja: Maria Valdimarsdóttir. ÍA 46.5 SÍKrún llreiðarsdóttir. Self. 48.6 Bryndís Guðmundsdóttir. Self. 49.7 200m fluKsund drengja: Min. Gudmundur Gunnarsson. Æid 2:42.5 ólafur EinarsNon, Ekí 2:47.5 Gudlaugur Daviðsson, í A 2:55.3 lOOm brinKUsund telpna: Guðrún Fema Á»cústsdóttir. /Egi 1:19.0 Sigurlaug K. Guómundsdóttir, t A 1:25.6 Þóra Jónsdóttir, ÍA 1:26.6 lOOm skriðsund pilta: Jón Ágústsson, Ægi 1K)0.7 Eóvarö Þ. Eðvarösson, UMFN 1:02.0 Hákon Sigursteinsson. ÍA - 1:03.1 200m fjórsund stúlkna: Katrin L. Sveinsdóttir, Ægi 2:41.3 Ragnheióur Runólfsdóttir, ÍA 2:42.5 Maria Óladóttir. Self. 2:47.1 50m bringusund sveina: Sek. Jóhann Samsonarson, SH 42.4 Siguróur Ingvason, í A 44.2 Finnbjörn Finnbjörnsson, Ægi 47.9 50m skriösund meyja: Jule Simprini, UMFN 36.5 Maria Valdimarsdóttir, ÍA 38.8 Anna Einarsdóttir. ÍA 40.6 200m fjórsund drengja: Mín Eóvarö Þ. EÓvarÓsson, UMFN 2:31.4 Guömundur Gunnarsson, Ægi 2:40.0 Guólaugur Daviósson, í A 2:49.3 lOOm flugsund telpna: Guörún Fema Ágúsdóttir, Ægi 1:15.9 Hanna M. Ilelgadóttir, Ægi 1:19.6 Þóra Jónsdóttir, ÍA 1:23.6 4xl00m fjórsund pilta: Min A-sveit Ægis 5:04.0 Sveit S.H. 5.42.9 B-sveit Ægis 6:26.2 4xl00m skriósund stúlkna: A-sveit Ægis 4:34.7 Sveit ÍA 4:54.0 Sveit UMFN 5:16.4 Getrauna- spá MBL. c ■6 jg 3 c 9 SÁ tm o £ Sunday Mirror Sunday People Sunday Express News of the World Sunday Telegraph SAMTALS 1 X 2 Middlesbr. — Wolves i 1 1 1 1 1 6 0 0 Nott. Forest — Ipswich 2 X 1 X X X 1 4 1 Brighton — Coventry 1 1 X 1 1 2 4 1 1 Leicester — Arsenal 1 X X 2 X X 1 4 1 Sunderland — A. Villa 1 X 2 2 2 X 1 2 3 WBA - Cr. Palace 1 1 1 1 1 1 6 0 0 Bristol C. — Grimsby 1 2 2 2 X X 1 2 3 Chelsea — Bolton X 1 1 1 2 1 4 1 1 Notts County — Luton 1 1 X 1 1 1 5 1 0 Prston — Orient X X 1 X X X 1 5 0 QPR — Blackburn 1 1 1 X 1 1 5 1 0 Shréwsbury — Oldham 1 1 1 2 2 X 3 1 2 ekki það sem fyrir þá var lagt. Einstaklingsframtakið var i fyrirrúmi og það kann aldrei góðri lukku að stýra. Nú, það hefur án efa haft sín áhrif að hópurinn breyttist veru- lega. Leikmenn sem hefðu styrkt hópinn drógu sig til baka. Sem dæmi get ég nefnt Ólaf Bene- diktsson markvörð, Alfreð meidd- ist, Ólafur Jónsson datt út vegna vinnu sinnar, Viggó Sigurðsson og Björgvin Björgvinsson. Leikmenn þessir treystu sér ekki til að vera með vegna persónulegra að- stæðna. Á meðan keppni stóð yfir í Frakklandi voru haldnir margir fundir og farið yfir bókstaflega allt sem máli skipti. Til dæmis eftir tapið gegn Frökkum var leikmönnum skipt niður í litla hópa og rætt var saman um hvað fór miður og hvað væri að. En engin einhlít skýring kom í ljós. Það er oft rætt manna á meðal að gefa landsliðinu meiri tíma. En þá vaknar sú spurning hvort að leikmenn sem eru áhugamenn eru tilbúnir til þess að leggja á sig aukið erfiði við æfingar. Það er staðreynd að við þurfum að keppa meira erlendis en það kostar aukið fjármagn. Hvar fæst það? Það kemur fyrir að menn gefa kost á sér í landsliðshópinn en draga sig svo til baka, það er ekki nægilega gott. Þá liggur við að nú orðið þurfi að ganga á eftir leikmönnum í landsliðið. Samningur minn um landsliðsþjálfun hjá HSt er runn- inn út. Hann var eins og kunnugt er aðeins gerður fram yfir B-keppnina. Ég sé ekki starfs- grundvöll fyrir mig áfram eins og staðan er i dag. Eitt af því sem vantar hjá mörgum leikmönnum í landsliði er meiri sjálfsagi. Þrátt fyrir þá slæmu útreið sem lið okkar fékk í Frakklandi tel ég að íslenskur handknattleikur sé ekki á niður- leið. Landslið okkar vantar meiri reynslu í marga leiki í röð. Þá má • Þegar illa gengur er mönnum gjarnt á að gleyma þeim góða árangri sem náðst hefur. Ililmar Björnsson hefur skilað mörgum landsliðssigrum i handknattleik. Fram að B-keppninni lék is- lenska landsliðið 17 landsleiki sigraði í 9 gerði 2 jafntefli en tapaði aðeins 6 leikjum. í B-keppninni lék liðið 6 leiki sigraði í 2 en tapaði 4. í 23 leikjum eru því 11 sigrar 2 jafntefli og 11 tapleikir. ekki vera með of örar breytingar í landsliðshópnum. Sami kjarninn verður að starfa lengi saman. Það er nægur efniviður á íslandi til þess að við getum átt gott hand- knattleikslandslið í framtíðinni. En við megum ekki gleyma því að þjóðfélagsaðstæðurnar bjóða ekki upp á það að stundaðar séu keppnisíþróttir þannig að árangur á heimsmælikvarða náist. Menn vinna langan vinnutíma og lífs- baráttan er hörð. Það vill oft bitna á þeim mönnum sem stunda af- reksíþróttir. í raun er það stórmerkilegt hversu vel þessi litla þjóð hefur staðið sig í íþróttakeppni erlendis þrátt fyrir þessar erfiðu aðstæður. — Að lokum vil ég segja það að við verðum að taka óförum okkar með ró og jafnaðargeði. Og um leið að það virðist vera ríkjandi skoðun meðal margra að það séu aðrir en leikmenn sem hafa afgerandi áhrif á úrslit leikja. En tölulegar staðreyndir sem teknar eru i einstökum leikjum sýna okkur annað. Það eru nefnilega þeir leikmenn sem leika leikina sem ráða því hvernig leikurinn endar. ÞR. Merkjasala á öskudag Reykjavíkurdeild R.K.I. afhendir merki á neöantöldum stööum frá kl. 9.00 á öskudag 4. marz. Börnin fá 10% sölulaun, og þrjú söluhæstu börnin fá sérstök árituö bókaverölaun. Vesturbær: Skritst. Reykjavíkurdeildar RKÍ Öldugötu 4. Melaskólinn v/Furumel Skjólakjör Sörlaskjóli 42 Skerjaver Einarsnesi 36 Austurbær: Skrifst. R.K.Í. Nóatúni 21 Sunnukjör Skaftahlíð Hlíöarskólinn v/Hamrahlíð Austurbæjarskólinn Smáíbúða- og Fossvogshverfi: Fossvogsskóli Breiöagerðisskóli Háaleitisapótek Álftamýrarskóli Brauðstofan Grímsbæ Kleppsholt: Langholtsskóli Vogaskóli Arbær: Árbæjarskóli Breiðholt: Breiöholtsskóli Arnarbakka 1 Fellaskóli — Breiöholti III Hólabrekkuskóli v/Suðurberg/Vesturberg Ölduselsskóli. NY KYNSLOÐ Snúningshraöamælar með raf- eindaverki engin snerting eða tenging (fotocellur). Mælisviö 1000—5000—25.000 á mín- útu. Einnig mælar fyrir allt að 200.000 á mínútu. Rafhlöðudrif léttir og einfaldir í notkun. Sftyi(?fl3DM@)(Ull)- fei&INMMMMni & ©<S> Vesturgötu 16, simi 1 3280. Prufu-hitamælar + 50 til + 1000 C í einu tæki meö elektrón- ísku verki og Digital sýn- ingu. VESTURGOTU 16 - SÍMA* 14630 - 21480 VELA-TENGI Allar gerðir Öxull — í — öxul. Öxull — í — flans. Flans — í — flans. Tenqið aldrei stál — í — stál, hafið eitthvað mjúkt á milli, ekki skekkju og titring milli tækja. Allar stærðir fastar og frá- tengjanlegar @flyiffla(ui§)yiij Vesturgötu 16, simi 13280. (Q<9) At ÓI.VSINt.ASIMINS KR: 27480

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.