Morgunblaðið - 04.03.1981, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. MARZ 1981
Vendipunkturinn?
SÁ LEIKUR sem var bestur af
hálfu íslenska landsliðsins í
Frakklandi var gegn Svíum. Sá
leikur tapaðist aðeins með einu
marki, 16—15. Með örlítilli heppni
hefði sigur hæglega getað unnist í
þeim leik. Sá sem öðrum fremur
kom í veg fyrir þann sigur var
markvörður sænska landsliðsins,
Claes Ilellgren. Það má vera að
tap gegn Svíum hafi verið vendi-
punkturinn. Eftir þann leik gekk
illa.
Framhalds-
skólamót
FRAMHALDSSKÓLAMÓT í
svigi og göngu verður haldið í
dag og hefst keppni klukkan
11.00. Keppnin fer fram við
Skiðaskálann i Ilveradölum. en
þangað er vel fært og lyftur í
gangi. I>að er Skíðafélag Reykja-
víkur sem sér um mótið, en
keppendur verða á annað hundr-
að.
gerðist"
hristi höfuðið þegar árangur
islenska liðsins var ræddur.
Hann sagði mér að sænsku leik-
mennirnir hcfðu verið mjög
hræddir við íslenska liðið. Sjálfur
hefði hann lagt sig allan fram í
leiknum og sjaldan fagnað jafn
innilega eftir nokkurn landsleik
eins og eftir leikinn gegn tslend-
ingum sem vannst með einu
marki. Og Hellgren var ekki sá
eini sem var undrandi á árangri
íslenska liðsins það var sama við
hvern var rætt enginn átti orð.
KÞÍ10 ára
Knattspyrnuþjálfarafélag ís-
lands er tfu ára á þessu ári, en
stofnun þess á sínum tíma var að
sjálfsögðu stórt skref fram á við í
skipulagsmálum knattspyrnunn-
ar hér á landi. Félagið ætlar að
gera sér glaðan dag í tilefni
afmælisins, nánar tiltekið föstu-
daginn 13. mars að Síðumúla 11.
„ðskiljanlegt hvað
„ÉG VAR mjög bjartsýnn fyrir
þessa keppni og átti von á að við
myndum verða í þremur efstu
sætunum,“ sagði Axel Axelsson
eftir að B-keppninni lauk. Mér er
óskiljanlegt hvað gerðist. — Ég
raddi við Ilellgren markvörð
Svia eftir keppnina og hann
• Það vakti mikla athygli allra i íslenska hópnum á B-keppninni i Frakklandi hversu glæsilegar
iþróttahallirnar voru sem leikið var í. Það var alveg sama hvar leikið var, hver höllin af annarri var hreint
út sagt stórkostleg. Eitt var það sem vakti þó hvað mesta athygli og það var hin góða lýsing sem i
íþróttahöllunum var. Eitthvað annað en leikmenn eiga að venjast úr Laugardalshöllinni. Myndin hér að
ofan er úr iþróttahöllinni i Paris þar sem úrslitaleikurinn á milli Pólverja og Tékka fór fram.
m . Ljósm. Mbl. ÞR.
Sænski markvörðurinn Hellgren
sem varði eins og berserkur allan
tímann gegn íslenska liðinu. Og
reyndar alla keppnina. í leiknum
gegn Dönum um 3.-4. sæti varði
Hellgren 11 skot og 1 viti í siðari
hálfleiknum.
Quini var rænt!
KOMIÐ hefur i Ijós, að miðherja
Barcelona, spænska stórliðsins,
Quini. hefur verið rænt, en í Mbl.
í gær var frá þvi skýrt, að
kappinn hefði horfið aðeins
tveimur klukkustundum eftir að
lið hans hafði gersigrað Hercules
i spænsku deildarkeppninni í
knattspyrnu.
Víðtæk leit var strax sett í gang,
en ekkert spurðist til Quini. Lög-
regla og fjölskylda knattspyrnu-
mannsins létu ekkert eftir sér
hafa, en fréttaskeyti höfðu það
eftir áreiðanlegum heimildum, að
bréf hefði borist frá mannræn-
ingjum, þar sem farið væri fram á
umtalsvert lausnargjald. Þá fékk
lögreglan í Barcelona tvær upp-
hringingar, þar sem einhverjir
piltar töldu sig hafa rænt Quini af
pólitískum ástæðum. Það var hins
vegar talið nokkuð öruggt að i
báðum tilvikum hafi verið um
gabb að ræða og ekkert pólitískt
væri í spilinu. Einhver bjartsýni
er talin ríkja um að mál þetta fái
farsælan endi. Það verður erfiður
biti að kyngja fyrir Barcelona ef
Quini verður ekki skilað fljótlega,
hann er markhæsti leikmaður
spænsku deildarkeppninnar um
þessar mundir með 18 mörk úr 23
leikjum.
• Búnaðurinn á gönguskíðum ber þess merki að skíði, bindingar og skór eru ekki gerðir sérstaklega fyrir rennsli.
• Það sem er nú allra mikilvægast er að koma sér af öryggi niður brekkur.
@ Bull’s
Lið Bjarkar og
Ármanns sigruðu
BIKAIiMÓT Fimleikasamhands
tslands fór fram í íþróttahúsi
Kennaraháskóla tslands, sunnu-
daginn 1. mars. Þetta var flokka-
keppni. keppt var í A-flokki pilta
og A-. B- og C-flokki stúlkna.
Úrslit voru þessi: í A-flokki
pilta sigraði A-lið Ármanns með
185,20 stigum.
Heimir Gunnarsson
Ingólfur Stefánsson
Þór Thorarensen
Kristján Ársælsson
Arnar Diego
í A-flokki stúlkna sigraði lið
Fimleikafélagsins Bjarkar með
92,78 stigum.
Brynhildur Skarphéðinsdóttir
Rannveig Guðmundsdóttir
Svava Mathiesen
Guðrún B. Kristinsdóttir
Hulda Ólafsdóttir.
í B-flokki stúlkna sigraði lið
íþróttafélagsins Gerplu, Kópavogi
með 86,58 stigum.
Vilborg Viðisdóttir
Hlíf Þorgeirsdóttir
Jónína Sjgurðardóttir,
Bryndís Olafsdóttir
Katrín Guðmundsdóttir
í C-flokki stúlkna sigraði einnig
lið Gerplu með 50,48 stigum.
Þórey Heiðarsdóttir
Þorbjörg Kristjánsdóttir
Jónína Arnardóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Snæfríður Þorsteinsdóttir
Keppt var um farandbikara
hvers flokks og vinningshafar
fengu gullpening til eignar.
Einnig lauk dómaranámskeiði
karla um sl. helgi og tóku 8
dómarar próf að því loknu. Norsk-
ur alþjóðlegur dómari, Harald
Brynildsen, kenndi á námskeiðinu
og var hann hér í fjórða skipti.
Hann var einnig yfirdómari pilta
á Bikarmótinu.