Morgunblaðið - 06.03.1981, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
54. tbl. 69. árg.
FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Reagan vill
38% aukningu
til hermála
Waxhinictun — frh Önnu Bjarnadottur
fréttaritara Mortrunhlaftsins
ALLAR líkur benda til þess
að Bandaríkjaþing muni
samþykkja tillögu hinnar
nýju stjórnar Ronalds Reag-
ans um að auka á þessu ári
framlög til varnarmála um
12,4% og um 14,6% á árinu
1982, en síðan um 7%
árlega fram til 1985. Þá
munu framlög til hermála í
Baskaland:
Lögreglu-
foringi
myrtur
Madrid, 5. mars. — AP.
NÝJASTA pólitíska morðiö í
Baskalandi er talið boða nýja
skriðu ofbeldisverka, en Rai-
mundo Moya lögregluforingi,
sem víst er talið að ETA-menn
hafi orðið að bana í Bilbao í
dag, er fimmtugasti löggæzlu-
maðurinn sem hryðjuverka-
menn í héraðinu leggja að velli
á einu ári.
Hinn nýi forsætisráðherra
Spánar, Leopoldo Calvo Sotelo,
aflýsti öllum embættisverkum
sínum í dag og hraðaði sér til
Bilbao til að votta þessu síð-
asta fórnarlambi hryðju-
verkamanna virðingu sína.
tíð Reagans hafa aukizt um
38%.
Það var Caspar Weinberg-
er varnarmálaráðherra, sem
lagði fram tillögur þessar
þegar síðari hluti fjárlaga-
frumvarps Reaganstjórnar-
innar kom fram á miðviku-
dag. í Weinberger fylgdi
tillögunum úr hlaði með
ræðu þar sem fram kom það
álit að með þessum ráðstöf-
unum gætu Bandaríkin víg-
búizt í snatri, en það mundi
aftur auka öryggi landsins
verulega gegn hvers kyns
ógnum úr austurvegi.
Það var skammgóður vermir i bvrjun vikunnar. Eftir kafaldið á öskudag kom nístandi kuldi
með ofanbyl og neðanbyl, og svona var ástandið í Bankastræti þegar ólafur K. Magnússon
ljósmyndari Morgunblaðsins var staddur þar i gær.
Stjórn Reagans vill fresta
nýjum hafréttarsáttmála
SameinuAu þjóöunum, 5. mars. — AP.
STJÓRN Reagans
Bandaríkjaforseta hefur gef-
ið til kynna að hún viiji slá á
frest nýjum hafréttarsátt-
mála. sem vonazt hafði verið
eftir að gengið yrði frá eftir
sjö eða átta vikur, í lok
fundar Ilafréttarráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna en fund-
urinn hefst, í New York í
byrjun næstu viku.
Fréttamenn hafa það eftir
fulltrúum Bandaríkjanna á
ráðstefnunni að Alexander
Haig utanríkisráðherra hafi
gefið bandarísku sendinefnd-
inni á fundinum fyrirmæli um
að sjá til þess að samningar
tækjust ekki um nýjan haf-
réttarsáttmála að þessu sinni,
þar sem hin nýja stjórn í
Washington þyrfti að fá ráð-
rúm til að „endurskoða stefnu
Afganistan:
Hungursneyð og vopnaþurrð
blasa við þjóðf relsissveitum
Nýju Delhí, 5. marz. — AP.
HAFT ER eftir heimildum í
Kabúl, að afganskar þjóðfrels-
issveitir hafi nú að mestu leyti
gefizt upp á að berjast gegn
sovézka innrásarliðinu og
stjórnarhernum til sveita, þar
sem hungursneyð og vopna-
þurrð blasi við þeim. Þjóðfrels-
issveitirnar eru sagðar boina
kröftum sinum að andspyrnu i
horgum og bæjum.
Samkvæmt þessum fregnum er
ástandið í andspyrnuhreyfing-
unni alvarlegast í nyrztu héruð-
um landsins, svo og í vesturhlut-
anum. Þar er sagt að þegar hafi
fjölmargir orðið hungurvofunni
að bráð, auk þess sem hungurs-
neyð er yfirvofandi í ýmsum
afskekktum héruðum. Frá Pak-
istan hafa einnig borizt fréttir af
matvælaskorti i Afganistan, en
engar áreiðanlegar tölur hafa
borizt um fjölda þeirra, sem talið
er að líði skort.
Stefnu Reagans farið
að gæta í S-Ameríku?
New York, 5. mars. — AP.
ÝMSUM mannréttindahreyfing-
um ber saman um að stefna
Reagans Bandarikjaforseta í
mannréttindamálum hafi þegar
orðið til þess að herforingja-
stjórnir i S-Ameríku hafi hert á
klónni. Er m.a. bent á handtökur
baráttumanna fyrir mannrétt-
indum i Argentínu nýlega, hand-
töku Nóbelsverðlaunahafa og
döm yfir verkalýðsleiðtoga í
Braziliu nýlega staðhæfingu
þessari til stuðnings.
Talsmaður nokkurra þekktra al-
þjóðasamtaka um mannréttindi
benti á það i dag, að Alexander
Haig, hinn nýi utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hafi nýlega látið
svo um mælt að stjórn Reagans
ætlaði að draga úr þeirri áherzlu
sem verið hefði á mannréttinda-
málum, en beita sér í j>ess stað
gegn alþjóðlegum umsvifum
hryðj uverkamanna.
Bandaríkjanna" í málinu, en
miðað við árangur samninga-
viðræðna á ráðstefnunni
hingað til sé ástæða til að hafa
miklar áhyggjur af mögu-
leikum bandarískra fyrir-
tækja á því að öðlast aðgang
að auðlindum á hafsbotni.
Haft er eftir ýmsum full-
trúum á ráðstefnunni, að
stjórnir þróunarríkjanna, sem
nú mynda hóp 121 ríkis á
ráðstefnunni, séu æfar af reiði
yfir þessum málatilbúnaði
Bandaríkjastjórnar. Elliot
Richardson, fyrrum aðal-
fulltrúi Bandaríkjanna á
hafréttarráðstefnunni, lét svo
um mælt í dag, að Bandaríkja-
stjórn ætti að fara varlega í að
reyna að fá þróunarríkin til að
fallast á nýjar tilslakanir, því
að nýjar kröfur yrðu sennilega
til þess að stofna í hættu
mikilvægum árangri sem þeg-
ar hefði náðst.
Tvö flugrán
Islamahod. Los AnicHps. 5. mar/.- AP.
PAKISTÖNSK farþegaþota
með 118 farþegum var enn á
valdi þriggja flugramingja á
Kahúl-flugvelli þegar síðast
fréttist í kvöld. bá var þota frá
Continental Airlines með fáein-
um farþegum á valdi eins flug-
ræningja á flugvellinum við Los
Angeles.
Flugræningjarnir í Kabúl eru
sagðir gráir fyrir járnum og
hóta þeir að sprengja þotuna í
loft upp verði 79 pólitískum
föngum í Pakistan ekki sleppt
þegar í stað. Kröfur í Los
Angeles liggja ekki fyrir, en
flugræninginn sem þar er að
verki er búinn skotfærum og
handsprengjum.
Pólland:
Kreml krefst að „atburða-
rásinni verði snúið við“
Varsjá, 5. marz. — AP.
YFIRLÝSING sem birt var
eftir fund sovézkra og pólskra
leiðtoga í Moskvu i dag er talin
ótvíræð sönnun þess að Kreml-
stjórnin sé að herðast mjög í
afstöðu sinni til ástandsins í
Póllandi. Yfirlýsingin er talin
hin harðorðasta sem Sovét-
menn hafa látið frá sér fara
síðan ólgan á pólskum vinnu-
markaði kom upp á yfirborðið
fyrir átta mánuðum.
Meðal Samstöðumanna í Pól-
landi hefur yfirlýsingin vakið
ugg, en þar segir m.a. að
„Sovétríkin og sovézk þjóð telji
fullvíst að pólskir kommúnistar
hafi bæði getu og aðstöðu til
þess að snúa atburðarásinni við,
þannig að sú hætta sem vofi
yfir árangri sósíalismans með
þjóðinni verði úr sögunni".
Athygli vekur að slík yfirlýs-
ing er birt nú, þegar friðsam-
legra er á pólskum vinnumark-
aði en verið hefur um langt
skeið. I leiðtogafundinum tóku
þátt m.a. Stanislaw Kania og
Jaruzelski, af hálfu Pólverja, og
Brésneff af hálfu Sovétríkj-
anna.