Morgunblaðið - 06.03.1981, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 06.03.1981, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1981 17 Af þingi Norðurlandaráðs: Ingvar Gislason Árni Gunnarsson Halldór Ásgrimsson Jákvæðari afstaða til hugmynda um Nordsat — en málinu skotið á frest Frá Elinu Pálmadóttur. hlaóamanni Mbl. í Kaupmannahöfn. LJÓST er. að endanleg afstaóa verður ekki tekin hér á þingi Norðurlandaráðs um gervihnött- inn Nordsat. sem veita mundi hverju heimili á Norðurlöndum möguleika á að ná næstum öllum norrænum sjónvarps- og út- varpsdagskrám. Miklar umræð- ur fóru fram um Nordsat-málið hér í Kaupmannahöfn. Alls tóku 18 ræðumenn til máls. þar af þrír íslendingar. Tillaga menn- ingarmálanefndar um að fela ráðherranefndinni að vinna mál- ið endanlega fyrir árslok svo hægt verði að taka lokaákvörð- un á næsta þingi. var samþykkt með 70 atkvæðum gegn 1. en tveir sátu hjá. Umræður og atkvæðagreiðslan Frá Elínu Pálmadóttur. bladamanni Mbl. í kaupmannahofn. ÁRNI GUNNARSSON, for- maður menningarmálanefndar Norðurlandaráðs. gagnrýndi ráðherranefnd Norðurianda- ráðs i skýrslu sinni hér í dag. Ilann kvartaði undan þvi, að gengið væri framhjá vilja menningarmálanefndar þegar skipt væri litlum fjárveitingum. Sem dæmi tók Árni veitingu 6 milljóna danskra króna, sem teknar hefðu verið úr sjóðnum og veitt til norrænna menning- ardaga. sem nefndir væru „Scandinavia Today“. Árni kvað það persónulega skoðun sína, að nafnið á þessu kynningarverkefni segði sína báru þess glögg merki, að Nord- sat-málið á vaxandi fylgi að fagna. Nær allir ræðumenn voru jákvæðir í garð hugmyndarinnar um Nordsat. Það var helst, að einstaka þingfulltrúar lengst til vinstri og hægri andæfðu hug- myndinni um Nordsat. Langflest- ir ræðumanna töldu Nordsat mikilvægt menningarpólitískt mál fyrir Norðurlönd og mæli- kvarði á raunverulegan vilja norrænna þjóða til samvinnu. Þó er ýmislegt á huldu um framkvæmdaatriði málsins og þarf að kanna betur. Þar má nefna hvernig deila skuli kostn- aði, hvort auglýsingar eigi að vera eður ei, hve mörgum rásum skuli stefnt að og áhrif verkefnis- ins á iðnað í löndunum, þá einkum rafiðnaðinn. sögu og beri að varast því nafnið Scandinavia næði til þriggja Norðurlanda af fimm og virtust jaðarlöndin gleymd. Þá sagði Árni, að margar menningar- stofnanir væru í uppbyggingu og jafnvel þó þær væru nokkurra ára gamlar, þá hefðu þær fulla þörf fyrir aukið rekstrarfé til að mæta sívaxandi kostnaði og upp- byggingu. Árni sagði, að þegar svona kæmi fyrir, þá tæki þetta fé frá uppybyggingu þessara stofnana. Hann benti á, að Norræna húsið í Reykjavík hefði mikla þörf fyrir aukafjárveit- ingu til þess að ljúka við bygg- inguna, en nú væru meira en 10 ár liðin síðan Norræna húsið var tekið í notkun í Reykjavík. Ingvar lýsir fylgi við Nordsat íslenzku ræðumennirnir þrír, þeir Ingvar Gíslason mennta- málaráðherra og þingmennirnir Árni Gunnarsson, sem er formað- ur menntamálanefndar, og Hall- dór Ásgrímsson voru eindregið hlynntir hugmyndinni um Nord- sat. Raunar hafði Matthías Á. Mathiesen lýst stuðningi við Nordsat í opnunarræðu sinni á þinginu. Ingvar Gíslason sagði í ræðu sinni, að íslenzka ríkis- stjórnin hefði ekki tekið afstöðu til Nordsat og því mælti hann aðeins fyrir sjálfan sig. Hann skýrði frá því, að allir flokkar á Islandi væru búnir að taka já- kvæða afstöðu til Nordsat utan einn (Alþýðubandalagið). Menntamálaráðherra sagði, að Nordsat væri mælikvarði á hug- sjónir um norræna samvinnu. Hann sagðist í fyrstu hafa verið nokkuð hikandi en eftir því sem tímar hefðu liðið, þá hafi sífellt fleiri jákvæðar hliðar komið fram og þá einkum varðandi menning- armál. „Sjónvarpsútsendingar um gervihnetti ryðja sér sífellt meira til rúms út um allan heim. Við getum ekki staðið utan við þá þróun, því ekki leikur nokkur vafi á því, að á næstu árum munu dynja yfir Norðurlönd sjónvarps- útsendingar frá erlendum gervi- hnöttum," sagði Ingvar. Hann taldi það ekki skipta meginmáli þó ákvörðun drægist eitthvað. ís- lenzka ríkisstjórnin myndi taka ákvörðun þegar þar að kæmi en Ingvar benti jafnframt á, að á Islandi væri samsteypustjórn og einn stjórnarflokkanna hefði ekki tekið afstöðu í málinu. Árni Gunnarsson gagn- rýndi seinaj;an>; Árni Gunnarsson, formaður menntamálanefndar, kvaðst sem jafnaðarmaður verða fyrir von- brigðum, ef Nordsat yrði ekki að Arni gagnrýnir ráðherranefndina veruleika. Hann sagði, að það hefði í för með sér afturkipp í norrænni samvinnu almennt en ekki síst í menningarmálum. Árni sagði, að með Nordsat yrði hægt að sjónvarpa samtímis 7 sjónvarpsdagskrám til austur- svæðisins á Norðurlöndum, það er Danmerkur, Svíþjóðar, Noregs og Finnlands. Á vestursvæðinu yrði hægt að ná allt að fimm dagskrám, það er á Grænlandi, íslandi og Færeyjum. Hægt yrði að ná 11 útvarpssendingum á norðaustursvæðinu og 10 á norð- vestursvæðinu. Hann minnti á, að brátt myndu gervihnettir frá löndum utan Norðurlanda kom- ast á braut umhverfis jörðu. Hann nefndi v-þýzka og franska gervihnetti og er áætlað að út- sendingar frá þeim hefjist 1985. Hægt yrði að ná sjónvarpssend- ingum frá þessum gervihnöttum á stórum hluta Norðurlanda. Þá sagði hann, að fleiri þjóðir ynnu nú að því, að koma gervihnöttum á braut umhverfis jörðu. Ibúar Norðurlanda gætu því staðið and- spænis því, að fá bylgju sjón- varpsútsendinga frá útlendum gervihnöttum og nefndi hann áhrif þess sem fylgja mundu auglýsingakúltúr. Hann sagði, að þessar útsendingar gætu haft víðtækari áhrif á menningu Norðurlanda en menn óraði fyrir. Árni gagnrýndi þann drátt, sem hefur orðið á ákvörðun um Nordsat. Hann benti á, að þrátt fyrir kröftuga viljayfirlýsingu, ef samþykkt yrði, þá mundi það taka tíma að afgreiða málið í hverju landi. Og síðan þyrfti að vinna að tæknilegri hlið málsins, sennilega í 4 til 5 ár. Útsendingar frá Nordsat hæfust því ekki fyrr en í fyrsta lagi í lok þessa áratugs. Annað hvort þurfi að ákveða af eða á, og þannig fá málið út af dagskrá því það hefði þegar tekið óheyrilegan tíma í meðferð þingsins. Halldór Ásgrímsson minnti á það í ræðu sinni, að Norðurlöndin ættu að baki langa menningar- lega samvinnu og nefndi hann sérstaklega íslendingasögurnar. Hann sagði, að ekki yrði hægt að varðveita menningararfleifð Norðurlanda með því að draga sig inn í skel sína. Fjölmiðlar væru hluti af nútíma þjóðfélagi og óaðskiljanlegur hluti þess. Þróuninni yrði að stjórna og henni verði best stjórnað með því að nota nútímatækni. Nú þegar nái útsendingar frá meginlandi Evrópu til syðstu héraða Norður- landa, og brátt munu þær ná til Norðurlanda allra. Hvað ætla Norðurlönd að gera þá? spurði Halldór. Hann sagði, að megin- þorri Islendinga teldi, að menn- ing þjóðarinnar yrði best varð- veitt og styrkt í gegn um sam- vinnu og í snertingu við Norður- lönd. Island liggur á útjaðri norrænnar menningar og jaðar- svæði er alltaf viðkvæmt. Margir aðrir tóku til máls og tóku eindregna afstöðu með Nordsat. Meðal annarra tók menntamálaráðherra Norð- manna til máls, og gagnrýndi Svía harðlega fyrir að setja kostnað fyrir sig á sama tíma og þeir hugleiddu að senda eigin gervihnött á braut umhverfis jörðu. I umræðunum kom fram, að allir ráðherrar finnsku stjórn- arinnar hafa lýst stuðningi við Nordsat. Færeysku fulltrúarnir lýstu miklum áhuga á framgangi málsins. Þá lýsti menntamála- ráðherra Danmerkur yfir stuðn- ingi sínum við Nordsat. Hins vegar voru sænsku fulltrúarnir ekki eins sammála. En almennt talað, þá eru menn hér mun bjartsýnni á, að Nordsat verði komið á braut umhverfis jörðu og að íbúar Norðurlanda muni njóta sjónvarps og útvarpssendinga um Nordsat. Fyrirspurn um ferjusamgöngur Guðrún Helgadóttir Frá Elinu Pálmadóttur. blaðamanni Mbl. I Kaupmannahofn GUÐRÚN Helgadóttir lagði í dag fram fyrirspurn á þingi Norðurlandaráðs um ferjusam- göngur milli íslands, Færeyja og annarra Norðurlanda. Hún spurði hvort vænta mætti af- stöðu Færeyinga til málsins í næstu framtíð. Pauli Ellefsen, lögmaður Fær- eyinga svaraði fyrirspurninni og sagði, að landstjórnin mundi taka málið upp innan fimm vikna og þá mundi liggja fyrir afstaða Færeyinga, en mikill áhugi væri á málinu í Færeyjum. Hæstaréttardómur frá 1978: Ritstjóra Mbl. ekki skylt að bera vitni um hver ákveðinn auglýsandi væri MIKIL umræða hefur farið fram undanfarna daga um rétt blaðamanna og ábyrgðarmanna dagblaða til að neita að gefa upp heimildir að fréttum vegna Dagblaðsmálsins svokallaða. Áþekkt mál kom fvrir dómstóla árið 1977. 21. desember árið 1977 krafðist Rannsóknarlögregla ríkisins þess, að Styrmir Gunnarsson, annar af tveimur ritstjórum Morgunblaðs- ins, yrði kvaddur fyrir dóm, til þess að bera vitni um það, hver sett hafi í Morgunblaðið, 240. tölublað, er út kom 9. nóvember 1977, svohljóðandi auglýsingu. „50% ávöxtun sparifjár! Vilt þú auka sparifé þitt um helming á einu ári á algjörlega löglegan hátt? Stærri og minni upphæðir í lengri og styttri tíma. Hafir þú áhuga, sendu þá nafn og síma- númer til Mbl., merkt: „X—4226“.“ Skorist vitnið, þ.e. Styrmir Gunnarsson, undan vitnisburði, var þess krafist, að úrskurðað yrði um skyldu hans til vitnisburðar- ins. í dómsorðunum segir: Styrmir hefur komið fyrir dóm og lýst því yfir að hann telji, að lögum samkvæmt eigi hann ekki að bera vitni um slík atriði, sem hér um ræðir. Af hálfu hans hefur lög- maður hans, Guðmundur Péturs- son, hæstaréttarlögmaður lagt fram greinargerð, áður en málefni þetta var tekið til úrskurðar. Rannsóknarlögreglustjóri ríkis- ins styður kröfu sína við 41. grein laga 74/1974 og við 1. mgr. 89. gr. laga 74/1974, sbr. 124. grein laga 85/1936. Af reglu 41. greinar laga 74/ 1974 verður ekki leidd nein skylda á hendur Styrmi Gunnarssyni til þess að veita upplýsingar þær, sem hér er krafizt. Hér koma einungis til greina reglur laga um vitnaskyldu. Skv. 5 tl. 126. greinar einka- málalaga nr. 85/1936 má sá, er ábyrgð ber á innihaldi prentaðs rits eða blaðs að lögum, ekki skýra frá því fyrir dómi án leyfis, hver sé höfundur að riti, grein eða frásögn, sem í riti eða blaði hefur birzt án þess höfundur væri nafn- greindur. Regla þessi á einungis við vitnaskyldu í einkamáli. Úm vitnaskyldu í opinberu máli fer eftir reglum XII. kafla laga 74/ 1974. Þar er ekkert ákvæði, er svari til 5 tl. 126. gr. einkamála- laga, og ekki er vitnað tíl reglna einkamálalaga í kaflanum. Er vitnaskylda að ýmsu ríkari í opinberu máli en einkamáli. Regl- um 126. greinar einkamálalaga verður því ekki beitt beint um málefni það, sem hér er um að ræða. Hins vegar þykir samband ábyrgðarmanns blaðs eða tímarits og þeirra, er í það rita, þar á meðal auglýsenda, þess eðlis, að eigi sé rétt, nema ríkar ástæður krefjist, að skylda ábyrgðarmann til að skýra frá nafni höfunda, sem kjósa að leyna nafni sínu. Hér má hafa hliðsjón af reglum 95. gr. laga 4/1974, þótt þær taki ekki beint til réttaratriðis þess, sem hér er um að ræða, er vitnisburðar krafist vegna gruns um brot gegn lögum 58/1960, en refsing fyrir brot gegn þeim lögum getur ekki farið fram úr sektum. Samkvæmt því, sem nú hefur verið rakið, verður niðurstaðan sú að Styrmi Gunnarssyni verður talið óskylt að bera vitni um það, hver fram- angreindur auglýsandi sé“. Rannsóknarlögreglustjóri kærði úrskurðinn til Hæstaréttar og krafðist þess, að hinum kærða úrskurði yrði hrundið. Málinu var hins vegar vísað frá Hæstarétti á þeirri forsendu, að kæruheimild í máli sem þessu væri ekki í hendi rannsóknarlögreglustjóra, heldur hjá ríkissaksóknara.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.