Morgunblaðið - 06.03.1981, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1981
Peninga-
markadurinn
/
GENGISSKRANING
Nr. 45 — 5. marz 1981
Ný kr. Ný kr.
Eining Kl. 13.00 Kaup Sala
1 Bandaríkjadollar 6,567 6,585
1 Starlmgapund 14,443 14,482
1 Kanadadoilar 5,470 5,485
1 Dönsk króna 0,9806 0,9633
1 Norsk króna 1,2124 1,2157
1 Saanak króna 1*4171 1,4210
1 Finnakt mark 1,6068 1,6112
1 Franakur franki 1,3093 1,3129
1 Baig. franki 0,1881 0,1887
1 Svissn. franki 3,3746 3,3839
1 Hoilansk ftorina 2,7879 2,7956
1 V.-þýzkt mark 3,0807 3,0892
1 Itölak lira 0,00639 0,00641
1 Auaturr. Sch. 0,4353 0,4365
1 Portug. Escudo 0,1152 0,1155
1 Spénskur paaati 0,0756 0,0758
1 Japanskt yan 0,03154 0,03163
1 írskt pund 11,280 11,311
SDR (sóratók
dréttarr.) 4/3 8,0260 8,0481
V J
r
GENGISSKRANING
FERÐAMANNAGJALDEYRIS
5. marz 1981
Nýkr. Ný kr.
Eining Kl. 13.00 Kaup Sala
1 Bandarflcjadotlar 7,224 7,244
1 Starlingapund 15,886 15,930
1 Kanadadoilar 6,017 6,034
1 Dönak króna 1,0787 1,0816
1 Norsk króna 1,3336 1,3373
1 Saanak króna 1,5588 1,5631
1 Finnakt mark 1,7675 1,7723
1 Franakur franki 1,4402 1^4442
1 Baig. franki 0,2069 0,2076
1 Sviaan. franki 3,7121 3,7223
1 Hoilanak ftorina 3,0607 3,0752
1 V.-þýzkt mark 3,3688 3,3981
1 ítölak lira 0,00703 0,00705
1 Auaturr. Sch. 0,4788 0,4802
1 Portug. Eacudo 0,1287 0,1271
1 Spénakur paaati 0,0832 0,0834
1 Japanakt yan 0,03489 0,03479
1 írskt pund 12,408 12,442
V J
Vextir:
INNLÁNSVEXTIR:.
(ársvextir)
1. Almennar sparisjóðsbækur 35,0%
2. 6 mán. sparisjóösbækur .......36,0%
3.12 mán. og 10 ára sparisjóðsb.374%
4. Vaxtaaukareikningar, 3 mán...404%
5. Vaxlaaukareikningar, 12 mán..46,0%
6. Ávísana- og hlaupareikningur.19,0%
7. Vísitölubundnir sparifjárreikn. 1,0%
ÚTLÁNSVEXTIR:
(ársvextir)
1. Víxlar, forvextir ..................34,0%
2. Hlaupareikningar....................36,0%
3. Lán vegna útflutningsafuröa....... 84%
4. Önnur endurseljanleg afurðalán ... 29,0%
5. Lán með ríkisábyrgö.................37,0%
6. Almenn skuldabréf...................38,0%
7. Vaxtaaukalán........................45,0%
8. Vísitölubundin skuldabréf ........... 24%
9. Vanskilavextir á mán................4,75%
Þess ber að geta, að lán vegna
útflutningsafurða eru verðtryggð
miðaö við gengi Bandaríkjadollars.
Lífeyrissjóöslán:
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkis-
ins: Lánsupphæö er nú 80 þúsund
nýkrónur og er lániö visitölubundiö
með lánskjaravísitölu, en ársvextir
eru 2%. Lánstími er allt aö 25 ár, en
getur verið skemmri, óski lántakandi
)oess, og eins ef eign sú, sem veð er í
er lítilfjörleg, þá getur sjóðurinn stytt
lánstímann.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna:
Lánsupphæð er nú eftir 3ja ára aöild
að lífeyrissjóðnum 48.000 nýkrónur,
en fyrir hvern ársfjóröung umfram 3
ár bætast viö lániö 4 þúsund ný-
krónur, unz sjóösfélagi hefur náð 5
ára aðild að sjóðnum. Á tímabilinu
frá 5 til 10 ára sjóösaöild bætast viö
höfuöstól leyfilegrar lánsupphæöar 2
þúsund nýkrónur á hverjum ársfjórð-
ungi, en eftir 10 ára sjóðsaðild er
lánsupphæöin orðin 120.000 nýkrón-
ur. Eftir 10 ára aöild bætast viö eitt
þúsund nýkrónur fyrir hvern ársfjórð-
ung sem líður. Því er í raun ekkert
hámarkslán í sjóðnum. Fimm ár
veröa aö líöa milli lána.
Höfuðstóll lánsins er tryggður með
byggingavísitölu, en lánsupphæðin
ber 2% ársvexti. Lánstíminn er 10 til
25 ár aö vali lántakanda.
Lánskjaravísitala fyrir febrúar-
mánuö 1981 er 215 stig og er þá
miöað við 100 1. júní '79.
Byggingavísitala var hinn 1. janú-
ar síöastliðinn 626 stig og er þá
miðað við 100 í október 1975.
Handhafaskuldabróf í fasteigna-
viðskiptum. Algengustu ársvextir eru
nú 18—20%.
Hljóðvarp kl. 21.45:
Hinn réttlausi maður
í hljóðvarpi kl. 21.45 er
dagskrárliður er nefnist
Ilinn réttlausi maður.
Gunnlaugur Þórðarson dr.
jur. flytur erindi.
— Titill erindisins er nú
kannski fullstór, sagði
Gunnlaugur, — en þetta
eru hugleiðingar um
áfengi, blessun þess og
bölvun. Áfengi er, alveg
eins og akstur bifreiða,
mikill hluti af lífi okkar.
Hjá okkur hérna er það
þannig að menn eru nán-
ast réttlausir í ölvunar-
akstursmálum. Það er ekki
frekari vörn í slíku máli en
í víxilmáli. Sönnunargagn-
ið í víxilmáli er víxill, en
það er miklu tæpilegra í
ölvunarakstursmáli, þar
sem það er aðeins ein
blóðprufa. Ég hef hamrað
á nauðsyn þess, að fleiri
blóðprufur yrðu teknar og
meira aðhalds yrði gætt í
þessum málum.
Dr. Gunnlaugur Þórðarson
Þrátt fyrir að læknis-
fræðilegar rannsóknir er-
lendis sýni að menn geti
haft talsvert áfengismagn
í blóðinu án þess þó að
bera þess nokkur ytri
merki, er sú hætta alltaf
fyrir hendi að sýni ruglist.
Þess vegna er það sjálf-
sögð öryggisráðstöfun að
taka fleiri en eina prufu.
Um þetta fjallar mitt er-
indi svo og nýgenginn hér-
aðsdóm, þar sem greiddar
voru bætur vegna þess að
maður var að ósekju svipt-
ur ökuleyfi. Með hinum
réttlausa manni á ég
þannig við manninn sem
situr undir stýri og á það á
hættu að missa ökuleyfi
sitt, jafnvel þó að hann
hafi verið „bláedrú".
Áfengislykt sannar ekkert,
hún þarf ekki að stafa af
öðru en einum pilsner.
Fréttaspegill kl. 21.20:
Borgarastríð og björgunarlaun
Á dagskrá sjónvarps kl.
21.20 er Fréttaspegill,
þáttur um innlend og er-
lend málefni á líðandi
stundv Umsjónarmenn
Bogi Ágústsson og Guðjón
Einarsson.
Meðal efnis í Frétta-
spegli að þessu sinni er
borgarastríðið í E1 Salva-
dor og stuðningur stórveld-
anna við andstæðar fylk-
ingar þar. I öðru lagi verð-
ur fjallað um samvinnu
Grænlendinga og íslend-
inga og möguleika á að
auka hana. Á innlendum
vettvangi verður fjallað um
björgunarlaun varðskip-
anna, sem hafa verið gagn-
rýnd að undanförnu. Rætt
verður við Kristján Ragn-
arsson, formann LÍÚ, Jón
Magnússon, lögfræðing
Landhelgisgæslunnar, og
Gunnar Felixson hjá
Tryggingamiðstöðinni. Síð-
an verður greint frá nýjum
niðurstöðum um mataræði
íslendinga og rætt við Jón
Óttar Ragnarsson mat-
vælafræðing af því tilefni.
Vanessa Redgrave
F östudagsmy ndin:
Hann
fór um
haust
Á dagskrá sjónvarps kl.
22.30 er bresk bíómynd,
Hann fór um haust (Out of
Season), frá árinu 1975. Leik-
stjóri er Alan Bridges. Aftal-
hiutverk Cliff Robertson,
Vanessa Redgrave og Susan
George.
Myndin fjallar um mæðgur
og samband þeirra við gamlan
vin móðurinnar. Anna rekur
sumargistihús á strönd Eng-
lands en húsið erfði hún eftir
móður sína. Henni leiðist að
hírast þar yfir veturinn með
ungri dóttur sinni og vonar að
hver veturinn verði sinn síð-
asti þar. Hún vonar að hún
geti selt húsið, en kaupendur
láta á sér standa. Dag nokk-
urn birtist gamall vinur henn-
ar og kynni þeirra verða náin
að nýju. Þar með hefst sam-
spil miðaldra móður, ungrar
og fallegrar dóttur og ævin-
týragjarns manns.
Útvarp Reykjavík
FÖSTUDIkGUR
6. mars
MORGUNNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10 Bæn. 7.15 Leikfimi.
7.25 Morgunpósturinn.
8.10 Fréttir. 8.15 Veðurfregn-
ir. Forustugr. dagbl. (útdr.).
Dagskrá.
Morgunorð: Ingunn Gísla-
dóttir talar.
8.55 Daglegt mál Endurt.
þáttur Böðvars Guðmunds-
sonar frá kvöldinu áður.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Nanna Ingibjörg Jónsdóttir
les „Eigingjarna risann“ eft-
ir Oscar Wilde í þýðingu
Hallgríms Jónssonar.
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Filadelfiuhljómsveitin
leikur fúgur eftir J.S. Bach.
Eugene Ormandy stj.
11.00 „Ég man það enn“
Skeggi Ásbjarnars<jn sér um
þáttinn. Óskar Fngimarsson
les kafla úr bók Óskars
Clausens „Með góðu fólki“.
11.30 Þættir úr sigildum tón-
verkum eftir Purcell, Grieg,
Schubert og Smetana.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar.
Á frivaktinni.
Sigrún Sigurðardóttir kynn-
ir óskalög sjómanna.
SÍDDEGIÐ
15.00 Innan stokks og utan.
Sigurveig Jónsdóttir og
Kjartan Stefánsson stjórna
þætti um heimilið og fjöl-
skylduna.
15.30 Tónleikar. Tilkynningar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Siðdegistónleikar: Tón-
list eftir Beethoven.
Emil Gilels og hljómsveitin
Filharmonía leika Píanó-
konsert nr. 4 í G-dúr op. 58;
Leopold Ludwig stj./ Fíl-
harmoniusveitin í Berlin
leikur Sinfóniu nr. 1 i C-dúr
op. 21; Herbert von Karajan
stj.
17.20 Lagið mitt.
Helga Þ. Stephensen kynnir
óskalög barna.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
KVÖLDID____________________
19.40 Á vettvangi.
20.05 Nýtt undir nálinni.
Gunnar Salvarsson kynnir
nýjustu popplögin.
20.35 Kvöldskammtur.
Endurtekin nokkur atriði úr
morgunpósti vikunnar.
21.00 Frá tónlistarhátíðinni í
Schwetzingen sl. sumar.
Alexander Lagoya leikur á
gítar
a. Rossiniana nr. 1. op. 119
eftir Mauro Giuliani.
b. Prélude, Nocturna og
Scherzino eftir Joaquin Rod-
rigo (Tileink. A. Laogya).
c. Sónata i A-dúr eftir Joa-
quin Turina.
d. Minningar frá L'Alham-
bra eftir Francisco Tórrega.
e. „Guajtra“ eftir Emilo Pu-
jol.
21.45 Hinn réttlausi maður.
Gunnlaugur Þórðarson dr.
jur. flytur erindi.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Lestur Passíusálma (17).
22.40 Jón Guðmundsson rit-
stjóri og Vestur-Skaftfell-
ingar. Séra Gísli Brynjólfs-
son les frásögu sina (2).
23.00 Djass, í umsjá Gerard
Chinotti. Kynnir Jórunn
Tómasdóttir.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
SKJÁNUM
FÖSTUDAGUR
6. mars
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.40 Á döfinni.
20.50 Skonrok(k).
Þorgeir Ástvaldsson kynn-
ir vinsæl dægurlög.
21.20 Fréttaspegiil.
Þáttur um innlend og er-
iend málefni á liðandi
stund.
Umsjónarmenn Bogi Ág-
ústsson og Guðjón Einars-
son.
22„30 Hann fór um haust.
(Out of Season).
Bresk biómynd frá árinu
1975.
Leikstjóri Alan Bridges.
Aðalhlutverk Cliff Robert-
son, Vanessa Redgrave og
Susan George.
nna rekur sumargistihús.
veturna býr hún ein i
húsinu ásamt nitján ára
dóttur sinni. Vetrardag
nokkurn ber gest að garði.
Það er maður, setn Anna
þekkti vel en hefur ekki séð
i mðrg ár.
Þýðandl Ragna Ragnars.
23.55 Dagskráriok.