Morgunblaðið - 06.03.1981, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1981
Markúsarbúd á Eskifirði rifin
EHkifÍrði 5. mars.
NÚ nýlega var svonefnd Mark-
úsarbúð hér á Eskifirði rifin, en
þar bjó síðast Ingólfur Hall-
Krímsson. Elzti hluti hússins
var byKKður 1897 ok var nefnt
Antonshús. Síðan var bætt við
húsið árið 1907. Um 1920 var i
húsinu fyrsta kvikmyndahús á
Eskifirði, sýninKarvélin var
handsnúin eins ok þá tíðkaðist.
en bæði var hæKt að kaupa miða
i almcnn ok upphækkuð betri
sæti.
.Síðan var verzlun í húsinu allt
fram á síðustu ár og lengst mun
Markús E. Jensen hafa verzlað
þar, en síðast Sigurþór Jónsson.
Húsið var rifið þar sem það
stóð út í Strandgötuna og var
orðið í vegi fyrir bæjarskipu-
laginu.
— Ævar.
Hverjir gegna
störfum ráðherra?
„MÉR ER ekki kunnugt um hver gegnir störfum þriggja ráðherra
Alþýðuhandalagsins“, sagði Pálmi Jónsson í viðtali við Mbl. í gær, en
hann gegnir nú störfum forsætisráðherra í fjarveru Gunnars Thorodd-
sen og Friðjóns Þórðarsonar. Frá því á þriðjudag hafa allir þrír
ráðherrar Alþýðuhandalagsins verið erlendis á þingi Norðurlandaráðs.
Eyjólfur Konráð Jónsson alþingismaður spurði þá Pálma Jónsson og
Ólaf Ragnar Grímsson alþingismann í umræðum í sameinuðu AlþinKÍ í
gær, hver gegndi störfum fjármálaráðherra í fjarveru Ragnars Arnalds.
„Ég veit það ekki“, svaraði Pálmi þá, en Ólafur Itagnar svaraði engu.
Ragnar Arnalds fjármálaráð-
herra, Svavar Gestsson heilbrigðis-
og tryggingaráðherra og Hjörleifur
Guttormsson iðnaðar- og orkuráð-
herra fóru allir á þing Norður-
landaráðs í Kaupmannahöfn. Þó
mun Ragnar ekki hafa farið utan,
fyrr en á þriðjudag skv. upplýsing-
um Pálma, og Hjörleifur var vænt-
anlegur heim í gærkvöldi. Á sama
tíma gegndi Tómas Árnason störf-
um Ólafs Jóhannessonar utanríkis-
ráðherra og Ingvars Gíslasonar
menntamálaráðherra en Steingrím-
ur Hermannsson sjávarútvegsráð-
herra fór ekki utan. Pálmi Jónsson
gegndi störfum hinna sjálfstæð-
ismannanna tveggja.
Við spurðum Pálma hvort engin
ákvæði væru í stjórnarskránni um
hvernig staðið skyldi að málum, er
ráðherra færi utan? „Ég verð að
játa, að ég hef ekki kynnt mér það“
svaraði Pálmi. Þá sagði hann að-
spurður, að þessa vikuna hefði
ríkisstjórnin aðeins afgreitt nokkur
formsatriði, því hún hefði ekki talið
rétt að afgreiða stærri málefni
vegna fjarveru ráðherranna, og
væri það ekki venja í slíkum
tilvikum. „Afgreiðsla verðhækkan-
anna bíða komu hinna ráðherr-
anna, enda ákvæði í bráðabirgða-
lögunum frá því á gamlársdag, að
undanþágu frá verðstöðvunarlög-
unum megi ekki veita án samþykkis
ríkisstjórnarinnar", sagði hann að
lokum.
Nýjustu hugmyndir meiríhlutans í skipulagsmálum:
íbúðabyggð í JSlliðaárdal og
þungaiðnað i Arbæjarhverfi
NÝJUSTU skipulagshugmyndir
vinstri meirirhlutans í borgar-
stjórn Reykjavikur lúta að því að
taka til skipulags og bygginga
svæði i Elliðaárdal og i Árbæjar-
hverfi. Svæðin sem hér um ræðir cr
svæði i Eiliðaárdal, allt frá Reykja-
nesbraut og að hinni væntanleKU
Höfðabakkabrú. Þetta er norðan
Stekkjarhakka. á milli Stekkjar-
bakka og Elliðaáa. Þarna eru
hugmyndir um að íbúðahyggð rísi.
Þá eru uppi hugmyndir um að
úthluta svæði í Árbæjarhverfi und-
ir þungaiðnað, eða atvinnustarf-
semi fyrir þungavinnu. Svæði þetta
er mjótt og er á milli bæjarháls og
Hraunhæjar. Hugmyndirnar lúta
að því að skipta þessu svæði í
þrennt og þar verði úthlutað lóðum
til atvinnufyrirtækja.
I samtali við Morgunblaðið sagði
Magnús L. Sveinsson borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins að mál þetta
hefði verið kynnt á fundi Umhverf-
ismálaráðs síðastliðinn þriðjudag og
áður hefði verið búið að kynna það á
fundi í skipulagsnefnd. Magnús
sagðist hafa gert athugasemdir við
þessar hugmyndir á fundinum og
síðan kynnt málið á fundi hjá
borgarstjórnarflokki Sjálfstæðis-
flokksins. „Borgarstjórnarflokkur-
inn er á móti þessum hugmyndum
og telur fráleitt að hugsa sér að
byggja á þessum svæðum. Meiri-
Borgarstjórn:
Tillögu um orkumál frestað
Sameignarsamningur um Landsvirkjun samþykktur
í UMRÆIÐUM um sameignarsamn-
ing um Landsvirkjun á fundi
borgarstjórnar i ga'rkveldi lagði
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir borgar-
fulltrúi fram tillögu um orkumál. í
tillogunni segir að borgarstjórn
Reykjavíkur samþykki að skora á
ríkisstjórn og Alþingi að taka sem
fyrst ákvörðun um næstu stórvirkj-
un. Jafnframt lýsi borgarstjórn
Reykjavíkur því yfir að hún telji
Sultartangavirkjun eigi að verða
næsta verkefni í orkumálum. svo
hægt verði að forða vandræða-
ástandi i orkumálum i náinni
framtið.
Sjöfn sagði ennfremur að sam-
eignarsamningur sá sem gerður
hefði verið og nú lægi fyrir borgar-
stjórn væri miklu betri en sá „sem
felldur var hér í borgarstjórn á
sínum tíma, en sá samningur var
gerður að undirlagi þeirra Bessa-
staðaárvirkjunarmanna í iðnaðar-
ráðuneytinu".
Davíð Oddsson borgarfulltrúi
Leiðrétting:
Ekki, féll niður
í Morgunblaðinu í fyrradag urðu
þau mistök í frétt af sjóprófunum
vegna Heimaeyjarslyssins að eitt
orð, ekki, féll niður þar sem standa
átti að'ekki væri óalgengt að aðstoð
varðskips væri afturkölluð.
Sjálfstæðisflokksins sagði í umræð-
um að hann væri hlynntur þessum
nýja sameignarsamningi og kvaðst
hann jafnframt styðja tillögu Sjafn-
ar um orkumál. „Það er ljóst að
þessi virkjunarkostur er að ýmsu
leyti hagkvæmur og hvað lengst
kominn í undirbúningi," sagði Dav-
íð.
Sigurður Tómasson borgarfulltrúi
Alþýðubandalagsins lagði fram
frestunartillögu á tillögu Sjafnar og
var samþykkt að fresta málinu til
næsta fundar borgarstjórnar, sem
verður að hálfum mánuði liðnum.
Síðan var sameignarsamningur
um Landsvirkjun samþykktur með
14 atkvæðum gegn 1, en Albert
Guðmundsson greiddi atkvæði á
móti.
hlutinn má ekki sjá græn svæði í
borginni án þess að vilja taka þau til
bygginga, enda er hann kominn í
þrot með byggingalóðir," sagði
Magnús.
Magnús sagði ennfremur, hvað
svæðið á Árbæjarhverfi varðaði, að
ibúarnir hefðu komið óskum á
framfæri um að svæðið, þar sem
þungaiðnaðurinn á að rísa, verði
ræktað upp og þeir fengju sjálfir að
hafa hönd í bagga með ræktun
svæðisins. Magnús taldi litlar líkur
á að það gæti orðið ef hugmyndum
meirihlutans yrði hrint í fram-
kvæmd. Þá sagði Magnús að hug-
myndirnar sem að Elliðaárdal lytu
hefðu það í för með sér að svokallað-
ur Höfðabakkavegur yrði ekki að
veruleika, heldur myndi Höfða-
bakkabrú verða tengd Stekkjar-
bakkanum. Slíkt taldi Magnús frá-
leitt því nú þegar væri mikil umferð
um Stekkjarbakkann, svo mikil að
íbúarnir hefðu kvartað undan.
Ákvörðun í þessu máli verður
væntanlega tekin á fundi í skipu-
lagsnefnd á mánudaginn.
Kolmuimaveiði:
Stjórnvöld taki
þátt í olíukostnaði
FULLTRUAR útgerðarmanna 8 af
stærstu loðnuskipunum gengu í
gærmorgun á fund sjávarútvegs-
ráðherra. Voru þar lagðar fram
tölur um kostnað þessara skipa
við kolmunnaveiðar og rætt um
möguleika þessara skipa eftir að
loðnuveiðar hafa dregist verulega
saman. Útgerðarmenn telja nauð-
synlegt að gera myndarlegt átak í
kolmunnaveiðum, en til þess að
það sé mögulegt telja þeir að
stjórnvöld þurfi að taka þátt i
olíukostnaði, en kolmunnaveiðar
eru olíufrekur veiðiskapur. Sjáv-
arútvegsráðherra hefur mál þetta
nú til athugunar.
Sigurður Óskarsson:
Suðurland
náðist af
strandstað
FLUTNINGASKIPIÐ Suður-
land kom upp að bryggju á Höfn
í Hornafirði um klukkan 6 í
gærmorgun, en á flóðinu
skömmu áður hafði tekist að ná
skipinu af strandstað í Mikleyj-
arál með aðstoð vélbátsins Giss-
urs hvíta. Suðurland strandaði
á leið inn til Hornafjarðar
síðastliðinn þriðjudagsmorgun
og tókst ekki fyrr en í fjórðu
tilraun að ná skipinu af strand-
stað. Engar skemmdir urðu á
skipinu. Suðurland lestaði salt-
fisk á Hornafirði í gær og er
skipið nú fulllestað. Það beið í
gærkvöldi eftir flóði til að
komast út.
„Vonandi halda stuðningsmenn rikis-
stjórnarinnar nú betur vöku sinniu
„OKKAR afstaða er alveg skýr og
við ræddum málið t.d. mikið á
þingi Alþýðusambands Suður-
lands 21. og 22. febrúar sl. Þar var
engin hjáróma rödd, allir töldu að
Suðurlandið væri hagkvæmast og
heppilegast til næstu virkjunar-
framkvæmda,“ sagði Sigurður
Óskarsson framkvæmdastjóri full-
trúaráðs verkalýðsfélaganna í
Rangárþingi í viðtali við Mbl. í
Kær. en hann var spurður, hvert
álit félaga verkalýðsfélaganna
væri á staðsetningu næstu stór-
virkjunar landsmanna.
„Það er ekki aðeins, að við viljum
fá virkjunina í Suðurlandskjör-
dæmi af því að við búum þar. Það
er einnig vegna þess að allir
marktækir sérfræðingar telja, að
þetta sé eini staðurinn sem sé
tilbúinn. Þar nefna þeir í fyrsta
lagi að vegakerfið á Austurlandi
t.d. sé ekki tilbúið til að taka við
slíkum framkvæmdum. Aðstöðu-
sköpun tekur yfirleitt langan tíma,
og hún er þar ekki fyrir hendi. Þá
greinir rannsóknarmenn, sem vit
hafa, á um, hvort aðstöðusköpun sé
yfirleitt fyrir hendi þar. Þó ekki sé
tekið fleira en þetta, þá nægir það
til þess, að við erum þess fullvissir
að það er ekkert vafamál hvar
næsta virkjun á að vera staðsett.
Við viljum einnig, að það verði
sýndur stórhugur við að virkja
þessar dýrmætu orkulindir þjóðar-
innar. Við teljum, að við eigum að
halda ótrauð áfram á Tungnár-
svæðinu, jafnframt eigum við að
hefja nauðsynlegan undirbúning
fyrir virkjanir norðan- og austan-
Iands.“
Þá sagði Sigurður: „Ég tel að
sunnlenzku þingmennirnir og aðrir
þingmenn, sem styðja ríkisstjórn-
ina, ættu núna — hafi þeir látið
plata inn á sig í stjórnarsáttmála
ákvæðum sem útiloka hagkvæm-
ustu leiðina í orkumálum á íslandi
— að láta skynsemina ráða.
Samfara öllum virkjunaráætlun-
um og ákvörðunum þá er tímabært
að íhuga hvaða orkufrekan iðnað
við eigum að tryggja þessum virkj-
unum og hvar staðsetja. Vonandi
halda nú sunnlenskir stuðnings-
menn ríkisstjórnarinnar á Alþingi
betur vöku sinni varðandi þessi
mál, heldur en þegar þeir létu véla
inn á sig stjórnarsáttmálanum.
Það verður gaman að sjá þá standa
frammi fyrir kjósendum sínum
eftir allar borubröttu yfirlýs-
ingarnar.