Morgunblaðið - 06.03.1981, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1981
5
Yoko Ono ok John Lennon.
Bók um John Lenn-
on og bítlana frá AB
— eftir Anders Hansen blaðamann
BÓK UM hinn nýlátna bítil John Lennon mun væntanleg hjá Almenna
bókafélaginu. Það er Anders Ilansen blaðamaður. sem er að skrifa
bókina, sem verður ævisaga Lennons, sagt verður frá ferli hans og
hljómsveitarinnar The Beatlcs, rakin sólóferill hans og samband við
Yoko Ono, og sagan sogð allt til þess dags er hann féll fyrir
morðingjahendi í New York siðla á síðasta ári.
.„Ég er þegar byrjaður á þessu
verki, það er rétt“ sagði Anders í
samtali við Morgunblaðið í gær.
„Hugmyndina að þessu fékk ég
eiginlega þegar eftir lát Lennons,
og nú hefur orðið að samkomulagi
að Almenna bókafélagið gefi bók-
ina út. Mér hefur miðað ágætlega
við verkið, og sýnist mér þetta
munu verða bók upp á um 200
blaðsíður, auk þess sem myndir
verða á 40 til 60 síðum."
Anders kvaðst lengi hafa fylgst
með ferli Bítlanna, bæði meðan
þeir léku saman og eftir að þeir
hættu samstarfi og hófu sjálfstæð-
an feril hver í sínu lagi. „Efnisöfl-
un hefur því verið mér tiltölulega
auðveld" sagði Anders, „því í gegn-
um tíðina hefur mikið verið skrifað
um þessa frægu fjórmenninga frá
Liverpool. Bækur, blaðagreinar og
viðtöl um og við bítlana skipta
hundruðum, og úr þessu hef ég
verið að vinna. Eftir lát Lennons í
vetur hafa þegar komið út bækur
um hann, og mun ég að sjálfsögðu
einnig taka mið af þeim, svo og af
síðstu viðtölum er hann veitti
skömmu fyrir andlátið. í bókinni
ættu að verða miklar upplýsingar,
sem ekki hafa komið fram áður
hérlendis, auk þess sem sagan er
rifjuð upp fyrir þá sem vel hafa
fylgst með ferli Bitlanna í gegnum
tíðina."
Anders kvaðst fremur hafa vilj-
að fara þá leið að skrifa sjálfur bók
um Lennon og Bítlana, en að þýða
einhverja nýútkomna bók. „Ástæð-
ur þess eru fyrst og fremst þær“
sagði Anders, „að betur fer á því að
mínu áliti, að bók fyrir íslenska
lesendur sé skrifuð af íslendingi
hér heima á íslandi, en að notast sé
við það sem miðað er við aðrar
þjóðir og allt annan lesendahóp. Þá
hefur mér einnig virst að þær
bækur um Lennon sem út hafa
komið nú eftir dauða hans, séu of
mikil hraðsuða til að þær geti talist
áhugaverðar. En með því að velja
úr það besta af tiltækum heimild-
um, nýjum og gömlum, held ég að
takast eigi að gera góða bók, þó um
það verði lesendurnir auðvitað að
dæma er hún kemur út.“
Anders sagðist skrifa bókina
þannig, að hún ætti að geta átt
erindi til allra aldurshópa og allra
lesenda. „John Lennon og Bítlarnir
eru ekki eign neins sérstaks aldurs-
hóps eða einnar kynslóðar" sagði
Anders, „heldur náðu þeir fjór-
menningar til mun fleiri en al-
mennt gerist um listamenn. Von-
andi geta því allir sótt eitthvað í
bókina, þó trútega höfði hún eink-
um til unglinganna og svo til þess
fólks sem nánast ólst upp með
Bítlunum, en það er nú fólk sem
hefur komið sér fyrir og er orðið
ráðsett!"
Ályktun Alþingis:
Sveigjanlegar regl-
ur um aldurshámark
ríkisstarfsmanna
ALÞINGI samþykkti i gær
þingsályktun þess efnis að rík-
isstjórnin skuli endurskoða
lagareglur um aldurshámark
starfsmanna ríkisins í samráði
við samtök rikisstarfsmanna.
Markmið endurskoðunarinnar
skal vera að kanna, „hvort ekki
sé rétt að hækka aldursmork
þau, sem nú er miðað við, gera
reglurnar sveigjanlegri, svo og
að setja fastari reglur um
möguleika eldri starfsmanna tii
að gegna hlutastörfum, ýmist á
sínum gamla vinnustað eöa i
öðrum stofnunum“.
Þessi tillaga, sem nú er orðin
ályktun Alþingis til ríkisstjórn-
ar, var flutt af þremur þing-
mönnum Sjálfstæðisflokksins,
Birgi ísleifi Gunnarssyni, Sal-
ome Þorkelsdóttur og Alberti
Guðmundssyni. I greinargerð
með tillögunni er fram tekið að
meðalaldur landsmanna hafi
hækkað verulega, samhliða því
sem menn varðveittu starfs-
hæfni fram á mun hærri aldur
en áður var. Því sé rétt að
endurskoða það lagaákvæði að
ríkisstarfsmenn skuli undan-
tekningarlaust láta af störfum
við 70 ára aldursmark. Sá kostur
verði áfram tiltækur að menn
geti sezt í helgan stein þegar
umsömdum eftdirlaunaaldri er
náð, ef þeir kjósa svo, en eigi
jafnframt það val, ef vilji og
heilsa leyfir, að starfa lengur í
hluta- eða heilu starfi.
Þingsályktunin var samþykkt
með 31 samhljóða atkvæði í
Sameinuðu þingi í gær. Margir
þingmenn vóru fjarverandi at-
kvæðagreiðsluna, bæði erlendis
á þingi Norðurlandaráðs og af
öðrum orsökum.
Ashkenazy kosinn heið-
ursforseti Listahátíðar
á fundi fulltrúaráðs hátíðarinnar
FULLTRÚARÁÐ Listahátiðar.
sem fer með yfirstjórn Listahá-
tiðar hélt nýverið fund, þar sem
endurskoðuð voru iög hátíðarinn-
ar og kosið i framkvæmdastjórn
Listahátiðar. Einnig var á þess-
um fundi Vladimir Ashkenazy
gerður að heiðursforseta Lista-
hátiðar.
Hinar nýju samþykktir um
Listahátíð fela meðal annars í sér
skýrari ákvæði um fjárhag og
reikningsskil Listahátíðar og hlut-
verk framkvæmdastjóra. Sam-
kvæmt þeim ber framkvæmda-
stjóri ábyrgð á fjárreiðum Lista-
hátíðar og skal hann hafa fullt
samráð við ríkisendurskoðun og
borgarendurskoðun varðandi þau.
Þessar samþykktir og einhverjar
fleiri, taka ekki gildi fyrr en þær
hafa fengið staðfestingu borgar-
ráðs Reykjavíkur.
Á fundinum var einnig kosið í
framkvæmdastjórn Listahátíðar
til næstu 2ja ára. Kosningu hlutu
Ann Sandelin, forstjóri Norræna
hússins, Njörður P. Njarðvík,
form. Rithöf. samb. Islands, og
Rögnvaldur Sigurjónsson form.
Félags íslenskra tónlistarmanna.
Einnig sitja í framkvæmdastjórn
Gunnar R. Bjarnason, fulltrúi
menntamálaráðuneytisins og
Guðrún Helgadóttir, fulltrúi
Reykjavíkurborgar. Fram-
kvæmdastjórnin ákvað að Njörður
P. Njarðvik skyldi vera formaður
hennar. Varaformaður var kjör-
inn Rögnvaldur Sigurjónsson.
Fulltrúaráðið kaus sem áður
segir Vladimir Ashkenazy heið-
ursforseta Listahátíðar í þakklæt-
isskyni fyrir þátt hans að stofnun
Listahátíðar og ómetanlega aðstoð
við hátíðina þau 10 ár frá því hún
var stofnuð. Svo var Örnólfur
Árnason endurráðinn fram-
kvæmdastjóri Listahátíðar. Einn-
ig urðu formannaskipti í full-
trúaráðinu, Egill Skúli Ingibergss-
on tók við af Ingvari Gíslasyni" en
menntamálaráðherra og borgar-
stjóri gegna til skiptis for-
mennsku í fulltrúaráðinu, tvö ár í
senn.
Kapella St. Jósefssystra í Hafnarfirði:
Helgi- og bænastundir
hvert föstudagskvöld
í KVÖLD. föstudag 6. marz kl.
20:30, verður haldin helgi- og
bænastund i kapellu St. Jósefs-
systra í Hafnarfirði. Verður svo á
hverju föstudagskvöldi fram að
páskum.
Helgistundir þessar verða í um-
sjá presta kaþólska safnaðarins og
þjóðkirkjusafnaðanna í Hafnar-
firði og eru liður í einingarvið-
leitni kirkjunnar á kristniboðsári.
Á föstunni er kristnum mönnum
ætlað að ihuga baráttu Jesú Krists
við öfl myrkurs og dauða. Við
getum þar leitað huggunar og
styrks, fundið til þess að hann er
enn að verki, falið honum erfið-
leika og þrautir í trausti þess að
upprisan og sigurinn sé hans.
Þess er vænst að einhverjir
finni þjá sér hvöt til þess að njóta
þessara stuttu en góðu stunda í
kapellu systranna því þar ríkir
mildur blær virðingar og blessun-
ar.
Prestarnir.
Loöfóöruöu
sleðagallarnir
og
pólarúlpurnar
vinsælu
komin aftur
10156 Pólarúlpan
er flík sem flestir íslendingar
þekkja af eigin reynslu. Hlýrri og
sterkari skjólflík er varla hægt aö
hugsa sér. Allir, sem útiveru
stunda, hvort sem er við vinnu
eöa leik, þurfa aö eiga svona úlpu.
Ytra byröi er 100% polyamid og
svo er hún loöfóöruö og er þaö
eitt af mörgu, sem hún hefur
fram yfir aörar úlpur á markaðn-
um.
Úlpan er létt, vindþétt, hrindir vel
frá sér vatni og er afburða hlý.
Litir: Blátt og grænt.
Stæröir: 44—58 (jafnar tölur).
Sleðagallar
Þessir frábsru sleöagallar eru loöfóöraöir meö hettu.
Þeir eru léttir, vindþéttir og „ofn"hlýir. Flík, sem allir sem
útiveru stunda, þurfa aö eiga
Belgjageröin
Heildsala — Smásala
í húsi Karnabæjar,
Fosshálsi 27, sími 85055.